Lögmannablaðið - 01.03.2004, Side 11
11
þess. M.a. lýsti Jakob R. Möller hrl., þeirri skoðun
sinni að undirbúningur frumvarpsins væri mein-
gallaður. Þótt samráð hafi verið haft við stjórn
félagsins væri ljóst að starfsmenn dómsmálaráðu-
neytis hafi algjörlega ráðið gerð þess. Jakob taldi
vafa leika á því að starfsmenn dómsmálaráðu-
neytis, sem áttu þátt í samningu frumvarpsins,
hafi haft þá þekkingu og yfirsýn sem nauðsynleg
væri til þess að semja frumvarp um störf og rétt-
indi lögmanna. Kvaðst Jakob geta sætt sig við þær
breytingar sem lagðar væru til í frumvarpinu varð-
andi staðfesturéttinn, úrskurðarnefndina og kröfur
um öflun málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi.
Að öðru leyti væri engin nauðsyn á lagabreyt-
ingum á yfirstandandi löggjafarþingi.
Úrskurðarnefnd lögmanna
Umræður urðu um úrskurðarnefnd lögmanna
en Gestur Jónsson hrl., formaður úrskurðar-
nefndar, lýsti sig mótfallinn því að fækka nefndar-
mönnum til að draga úr kostnaði félagsins af
rekstri hennar. Nefndin fengist við um 40 mál á ári
og vart væri hægt að bjóða þremur nefndar-
mönnum upp á að vinna sama fjölda mála á sömu
launum og fimm nefndarmenn gera nú. Þá væri
tilverugrundvöllur Lögmannafélagsins undir
þessu eftirlitsvaldi kominn. Róbert Árni Hreiðars-
son hdl., lýsti hins vegar þeirri skoðun sinni að
leggja bæri úrskurðarnefnd lögmanna niður. Lög-
menn ættu, líkt og aðrir, að vera ábyrgir gerða
sinna og réttindi þegnanna væru tryggð með þar
til bærum yfirvöldum, þ.e. lögreglu og dóm-
stólum. Með því að leggja nefndina niður væri
ákveðinn vandi félagsins leystur.
Breytingar á öflun réttinda til málflutn-
ings fyrir Hæstarétti
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að til að fá rétt-
indi sem hæstaréttarlögmaður þurfi lögmaður að
hafa flutt 40 mál fyrir héraðsdómi og fjögur próf-
mál í Hæstarétti fyrir 5 eða 7 manna dómi. Gert er
ráð fyrir að prófnefnd sú sem er í núgildandi
lögum, verði felld niður. Fundarmenn voru ekki á
eitt sáttir með þessar breytingar og kom fram til-
laga frá Sveini Skúlasyni hdl., um undanþágu-
ákvæði þannig að héraðsdómslögmenn, sem
hefðu starfað samtals í 10 ár, gætu fengið undan-
þágu frá prófraun fyrir Hæstarétti. Þessi hópur
hefði ríka reynslu af þeim störfum, sem réttindi til
að vera hæstaréttarlögmaður veita, og málflutn-
ingur í Hæstarétti væri mun einfaldari en mál-
flutningur í héraði þar sem lögmaður væri búinn
að undirbúa allt málið frá grunni.
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl, kvaðst ánægður
með þá breytingu sem frumvarpið fæli í sér varð-
andi niðurfellingu prófnefndar enda hefði sú
nefnd sett fótinn óhæfilega fyrir þá sem stefnt
hefðu að því að afla sér þeirra réttinda. Hins vegar
væri hann mótfallinn því að fjölga munnlega
fluttum málum úr 30 í 40 og prófmálum úr 2 í 4,
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð