Lögmannablaðið - 01.03.2004, Qupperneq 22
Námskeið á vorönn
22
Gallar í fasteignakaupum.
Með lögum um fasteignakaup, nr. 40/2002, var
gallahugtakinu í fasteignakaupum breytt. Eftir þær
breytingar þarf meira til svo fasteign teljist gölluð en
áður var auk þess sem gerðar eru ríkari kröfur til
kaupanda um skoðun á eign þegar eftir afhendingu. Á
námskeiðinu verður fjallað ítarlega um þessar
breytingar, röksemdir fyrir þeim og hvernig réttarstaða
kaupanda hefur breyst í þessum efnum. Jafnframt
verður stuttlega getið um, hvernig staða kaupanda er
jöfnuð í öðrum reglum laganna. Miðað við
dómaframkvæmd síðustu áratuga má ætla að þessi
breyting hafi mikla hagnýta þýðingu og skipti miklu í
störfum lögmanna.
Kennari: Viðar Már Matthíasson prófessor við
lagadeild HÍ.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, Rvík.
Tími: Þriðjudagur 16. mars, kl. 16:00-19:00.
Verð: kr. 12.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
9.500,-
Nýmæli í barnalögum og
barnaverndarlögum.
Ýmsar breytingar hafa orðið á réttarstöðu barna og
foreldra í kjölfar nýrra barnaverndarlaga nr. 80/2002,
sem tóku gildi 1.júní 2002, og barnalaga nr. 76/2003,
sem tóku gildi 1. nóvember 2003. Á námskeiðinu
munu Hrefna Friðriksdóttir fara yfir nýmæli
barnaverndarlaga og Valborg Snævarr fara yfir nýmæli
barnalaga.”
Í nýjum barnaverndarlögum eru m.a. skýrari reglur um
vinnslu barnaverndarmála, málsmeðferð fyrir
barnaverndarnefnd og gert ráð fyrir aðkomu dómstóla
að máli um vistun barns utan heimilis eða sviptingu
forsjár.
Í nýjum barnalögum eru margvísleg nýmæli sem ætlað
er að stuðla að bættri réttarstöðu barna, m.a. virkari
heimildir til að koma á umgengni barns við
forsjárlaust foreldri, heimildir sýslumanna rýmkaðar
til úrskurðar í ágreiningsmálulm foreldra sem fara
sameiginlega með forsjá barns, dómstólum heimilað
að kveða á um umgengni og meðlag í dómi í
forsjármálum og málsmeðferðarreglur fyrir
dómstólum og stjórnvaldi einfaldaðar og skýrðar,
breytt aðild í faðernismálum auk fjölda annarra
nýmæla.
Kennarar:Hrefna Friðriksdóttir hdl, Barnaverndarstofu
og Valborg Þ. Snævarr hrl.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, Rvík.
Tími: Þriðjudagur 23.mars, kl. 16:00-19:00.
Verð: kr. 16.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
12.500,-
Lögmenn og fjölmiðlar.
Störf lögmanna verða sífellt fyrirferðarmeiri í
fjölmiðlum og varla líður sá dagur án þess að
lögmaður komi fram í viðtali í ljósvakamiðlum.
Lögmannafélag Íslands hefur fengið til liðs við sig tvo
reynda fjölmiðlamenn þau Elínu Hirst, fréttastjóra á
Sjónvarpinu, og Svein Helgason, fréttamann á
Útvarpinu, til þess að kynna fyrir lögmönnum hvernig
fjölmiðlar vinna, hvernig best er að haga samvinnu
við fjölmiðla, hvað ber að hafa í huga varðandi viðtöl
í sjónvarpi og útvarpi og fleira. Námskeiðið verður í
formi fyrirlestra og verklegra æfinga í viðtalstækni.
Kennarar:Elín Hirst, fréttastjóri ríkissjónvarpsins og
Sveinn Helgason fréttamaður á
ríkisútvarpinu.
Staður: Kennslustofa LMFÍ, Álftamýri 9, Rvík.
Tími: Þriðjudagur 30. mars, kl. 16:00 –20:00.
Verð: kr. 20.500,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
16.500,-
Grillað með meisturum
Argentínu steikhúss.
Meistarar Argentínu steikhúss munu halda
grillnámskeið 1. apríl nk. Byrjað verður á fræðslu um
hvernig á að grilla mismunandi tegundir af kjöti, fiski
og fugli. Rætt verður um kosti og galla kola- og
gasgrilla og aukahlutir kynntir s.s. reykbox o.fl.
Einnig verður farið yfir hvaða meðlæti henti. Síðan
verður vínkynning með smakki þar sem vínþjónn
kynnir 5 mismunandi vín (þrúgur) sem henta með
grillmat. Að lokum verða grillaðar 3 tegundir af kjöti,
grænmeti og fiski til að bragða á með tilheyrandi
sósum og meðlæti.
Kennarar:Ingvar Sigurðsson matreiðslumeistari
Argentínu og Þorgeir Pálsson vínþjónn á
Argentínu.
Staður: Hússtjórnarskóli Reykjavíkur, Sólvallagötu
12.
Tími: Fimmtudagur 1.apríl kl. 16:30-20:30.
Verð: kr. 14.000,- en fyrir félaga í félagsdeild kr.
11.000,-
1 / 2 0 0 4
Skráning fer fram hjá félagsdeild í síma 568 5620 eða með tölvupósti á netfang eyrun@lmfi.is