Lögmannablaðið - 01.03.2010, Blaðsíða 12
12 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2010
Allir sem hafa fylgst með knatt-
spyrnumótum LMFÍ síðustu áratugina
vita að tvö lið hafa borið höfuð og
herðar yfir önnur lögfræðimenntuð
fótboltalið, nefnilega „Reynsla og
Léttleiki“ og „Grínarafélagið“. Valda-
tími þessara liða hefur verið langur,
sumir segja 20 ár, og liðin skipuð nánast
sömu leikmönnum allan þann tíma. En
margt hefur breyst á þessum árum og
nú gengur fyrrnefnda liðið einungis
undir nafninu Reynslan, enda er ekkert
við liðið sem minnir lengur á léttleika,
og enginn man lengur hvað var fyndið
við Grínarafélagið.
Sökum lasleika og örkuml félagsmanna
náði Grínarafélagið ekki í lið fyrir mótið.
Ein styrkasta stoð liðsins og fyrirliði,
Smári Hilmarsson, treysti sér ekki einu
sinni til þess að sitja við ritaraborðið og
skrá stigin og varð því að kalla út varalið
í það verk. Reynslunni tókst að skrapa
saman liði á síðustu stundu en án
varamanns. Nú var lag fyrir önnur lið
að taka völdin. Lið ungra og léttleikandi
og kynslóðaskiptin voru yfirvofandi.
Og margir gerðu tilkall til. Ber þá fyrst
að nefna liðið FC S18, sem stendur fyrir
Fótboltafélagið Suðurlandsbraut 18.
Þrátt fyrir þetta óþjála nafn voru þeir
sennilega með sterkasta liðið á papp ír-
unum, einvalalið frækinna knatt spyrnu-
snillinga. Lið Opus lögmanna var
geysisterkt og FC Mörkin var til alls
líkleg. LOGOS er hins vegar þekkt fyrir
margt annað en knattspyrnu og á því
varð engin breyting að þessu sinni.
Mótið gekk ótrúlega vel fyrir sig þrátt
fyrir fjarveru Smára, sem hefur stjórnað
þessum mótum frá því að elstu leik-
menn Þrumunnar muna. Margoft voru
sýnd frábær tilþrif eins og myndir af
mótinu sýna ef ljósmyndarinn hefur
Á léttum nótum
Kynslóðaskiptum slegið á frest
Lögmenn lögðu allt í sölurnar í hita leiksins en komu þó ósárir af velli. Frá vinstri, Eiríkur Hauksson hdl., daníel Pálmason og bjarni
Þór bjarnason. Ekki er hægt að þekkja þann sem laut í duft í þetta sinn.
Sumir reittu hár sitt meira en aðrir. f.v.
grétar jónasson og jón Ármann
guðjónsson
Hið árlega jólasnappamót LMFÍ var haldið 18. desember sl. og
mættu 7 lið til leiks í Framhúsinu.