Lögmannablaðið - 01.03.2010, Síða 27
LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2010 > 27
Um miðbik námskeiðsins vitna- og
aðilaskýrslur fyrir dómi, sem haldið var
hjá LMFÍ 11. mars sl., gekk inn ung
kona og tók sér sæti framarlega í
kennslustofunni. Þegar hálftími var eftir
af námskeiðinu stöðvaði bíll fyrir utan
LMFÍ með látum og konan rauk út.
Uppi varð fótur og fit meðal þátttakenda
þegar þeir fylgdust með hörðum
átökum milli hennar og manns sem
hafði ekið bílnum. Sumir ruku út til að
aðstoða konuna, aðrir hringdu í 112 en
skyndilega datt allt í dúnalogn. Þá var
þátttakendum sagt frá því að atburðirnir
hefðu verið settir á svið af einum
kennara námskeiðsins, Sigurði Tómasi
Magnússyni hrl. og kennara við
Háskólann í Reykjavík, til þess að sýna
fram á hversu mismunandi vitni
upplifðu atburði. Búið var að setja upp
réttarsal í bókasafninu og þangað fóru
nemendur til að hlusta á vitnaleiðslur.
Þátttakendur námskeiðsins voru settir í
hlutverk saksóknara, verjanda og vitna.
Nokkur munur var á hvernig vitni
upplifðu atburðinn. Þannig varð grái
fjölskyldubíllinn, sem sést á myndinni
að ofan, að dökkum, tveggja dyra
sportbíl í framburði eins vitnisins. Í
lokin settust „gerandi“ og „þolandi“ í
vitnastúkuna og lýstu atburðum eins og
þeir gerðust. Það skal tekið fram að öll
vitnin voru allsgáð og óvenju skammur
tími leið frá því að atburðir gerðust og
þar til skýrslutökur fóru fram.
Umsagnir þátttakenda:
„Þetta var vægast sagt undarleg uppákoma.
Ég áttaði mig í sjálfu sér ekki á því hvað
var að gerast, enda sat ég ekki gluggamegin
í salnum og sá því ekki neitt. Mér brá þó
eins og öðrum, sérstaklega þegar einhver
fór að tala um að ekið hefði verið á
gangandi vegfaranda. Ég tók upp símann
og hringdi í 112, enda taldi ég fullvíst að
eitthvað alvarlegt hefði átt sér stað! Þessi
uppákoma var ótrúlega lærdómsrík og
maður fékk að sjá það frá fyrstu hendi
hversu erfitt það getur verið fyrir vitni að
lýsa atburðum sem það varð vitni að. Í
þessu tilfelli liðu ekki nema 1520 mínútur
frá atburðinum og þangað til vitni gáfu
skýrslu en þau áttu samt í vandræðum
með það.“
„Þetta var mjög raunverulegt, gerðist mjög
hratt og skildi áhorfendur eftir í hálfgerðu
sjokki.“
„Mjög fróðlegt að fylgjast með hvað vitni
eru í rauninni „léleg“, t.a.m. það að veita
ekki athygli fyrsta högginu frá konunni.
Líklega göngum við öll út frá því að konur
byrji ekki líkamleg átök og þeir fordómar
okkar skila sér í því að við veitum slíku
síður athygli.“
Aðsent efni
Uppákoma á námskeiði
Leikararnir Saga garðarsdóttir og Kolbeinn arinbjörnsson eru nemar við Leiklistarskóla Íslands og áttu stórleik að mati viðstaddra.
„Vitni“ spurt um málsatvik í réttarsal.