Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2010, Blaðsíða 51
50 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
náttúrufarslegu sjónarhorni. Sýni sem hefðu verið tekin nær bæjunum
hefðu ef til vill gefið skýrari mynd af því hvenær búseta hófst á hverjum
bæ fyrir sig. Slíkt er þó háð því að finna megi óhreyfð setlög í nágrenni
bæjarstæða. Þá er rétt að geta þess að til eru aðferðir sem byggjast á
greiningu smásærra breyta sem ekki hefur enn verið beitt til að rannsaka
til dæmis upphaf búsetu eða tímabil landnýtingar. Í því sambandi má
fyrst og fremst nefna gró af sveppum sem eiga sínar kjöraðstæður í saur
úr grasbítum, þó svo að þeir geti einnig lifað í rotnandi gróðurleifum
(t.d. Van Geel o.f l. 2003). Sýnt hefur verið fram á að gróum af slíkum
sveppum fjölgar í jarðlögum þar sem beit er mikil (Innes og Blackford
2003). Fyrstu rannsóknir af þessu tagi frá Kjarardal, við sel Reykholts þar,
benda til að gró af þessum sveppum geti aukið verulega möguleika til að
staðsetja upphaf eða breytingar á landnotkun í setlögum og tímasetja (Egill
Erlendsson og Guðrún Gísladóttir 2010).
Þakkarorð
Verkefnið var f jármagnað af The Leverhulme Trust, Háskólanum í
Aberdeen og Rannsóknanámssjóði Rannís. Kim Vickers, Ian Lawson,
Freddy Gathorne-Hardy og Mike Church tóku þátt í sýnatökum og
annarri vettvangsvinnu og Ian Lawson og Ed Schofield aðstoðuðu við
vinnu á rannsóknastofu. Landeigendum eða þeirra talsmönnum skulu
þökkuð góðfúsleg leyfi til að fara um jarðir þeirra og góð ráð. Rósa
Erlendsdóttir las yfir handritið og lagfærði.
Heimildir
Andrés Arnalds 1987: Ecosystem disturbance in Iceland. Arctic and Alpine Research 19, 508-
513.
Axford, Y., Áslaug Geirsdóttir, Miller, G.H. og Langdon, P. 2008: Climate of the Little Ice
Age and the past 2000 years in northeast Iceland inferred from chironomids and other
lake sediment proxies. Journal of Paleolimnology 41, 7-24.
Árni Magnússon og Páll Vídalín 1913-1917: Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín I:
Vestmannaeyja- og Rangárvallasýsla. Hið íslenska fræðafélag, Kaupmannahöfn.
Ása L. Aradóttir og Thröstur Eysteinsson 2005: Restoration of birch woodlands in Iceland.
Í Stanturf, J.A. og Madsen, P. (ritstj.) Restoration of Boreal and Temperate Forests. CRC
Press, Boca Raton, 195-209.
Áslaug Geirsdóttir, Miller, G.H., Thorvaldur Thordarson og Kristín B. Ólafsdóttir 2009:
A 2000 year record of climate variations reconstructed from Haukadalsvatn, West
Iceland. Journal of Paleolimnology 41, 95-115.