Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2010, Blaðsíða 123
122 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
að teljast mikið vafamál að upplýsingar um hæð og breidd og GPS-hnit
komi fornleifafræðingum eða öðrum fræðimönnum að gagni síðar því að
kletturinn var ekki manngerður.
Stjórnsýsluákvarðanir á sviði þjóðminjavörslu þurfa að byggjast á
málefnalegum rökum og hafa lagastoð. Er það álit greinarhöfundar að
Fornleifavernd ríkisins hefði átt að heimila niðurbrot klettsins án skilyrða
í ljósi þess að átrúnaður á hann væri nýlega til kominn og heimildir bentu
til að hann væri ekki hin upprunalega Ófeigskirkja. Fullnægjandi væri að
hennar væri getið í örnefnaskrám.
Grástein í Grafarholti mátti ekki f lytja árið 1999 nema undir eftirliti
fornleifafræðings. Álagatrú á hann var yngri en 100 ára en hann hafði
það umfram Ófeigskirkju að vera örugglega réttur steinn. Í niðurlagi
álitsgerðar um afstöðu þjóðminjavörslunnar til f lutnings á Grásteini segir
m.a. að málefnið sé ögrandi og veki til umhugsunar um hvort skilgreining
þjóðminjalaga á fornleifum sé of víðtæk. Hvort ekki sé brýnt að skapa
samræmda stefnu hvað varðar skráningu á fornleifum og þá ekki síst
svonefndum „huglægum fornleifum“. Eins sé vert að velta fyrir sér hvaða
sess yngri minjar eigi að hafa í slíkum skrám, svo sem hernaðarmannvirki
úr seinni heimsstyrjöld og leifar sem vitna um breytta atvinnuvegi
þjóðarinnar á þessari öld. Sama á við um hina ætluðu Ófeigskirkju.
Tilvísanir
1 Þjóðminjalög nr. 107/2001, f-liður 9. gr.
2 Orri Vésteinsson, 1999. Fornleifakönnun. Álftanesvegur milli Engidals og Selskarðs.
3 Jónatan Garðarsson, tölvupóstur frá 6. maí 2009.
4 Ragnheiður Traustadóttir, 1999. Grásteinn í Grafarholti.
5 Þjóðminjalög nr. 107/2001, 1. mgr. 9. gr.
6 Ibid, bls. 13.
7 Ibid, bls. 15.
8 Hallgrímur J. Ámundason, tölvupóstur dags. 11. maí 2009.
9 Ari Gíslason. Örnefnaskrá í Garðahverfi. Örnefnasafn Stofnunar Árna Magnússonar.
10 Gísli Sigurðsson 1963, bls. 130. Örnefnaskrá í Garðahverfi.
11 Kristján Eiríksson 1976-77, bls. 1. Örnefnaskrá í Garðahverfi.
12 Ibid, bls. 13.
13 Guðlaugur Rúnar Guðmundsson 2001, bls. 13. Örnefni og leiðir í landi Garðabæjar.
14 Ibid, bls. 130.
15 Jónatan Garðarsson, tölvupóstur dags. 6. maí 2009.
16 Guðlaugur Rúnar Guðmundsson, www.hraunavinir.net, 23. apríl 2009, kl. 13.48.
17 Ibid.
18 Jónatan Garðarsson, www.hraunavinir.net, 19. apríl 2009.
19 Tölvupóstur til Örnefnasafns frá Guðlaugi Rúnari Guðmundssyni 24. apríl 2009.