Peningamál - 01.11.2007, Blaðsíða 33
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
3
33
Atvinnuvegafjárfesting utan stóriðju hefur tekið við sér ...
Samdráttur stóriðjufjárfestingar setur svip sinn á þróun atvinnuvega-
fjárfestingar og þjóðarútgjalda í heild sinni. Minni innflutningur fjár-
festingarvöru í tengslum við byggingu ál- og orkuvera leiðir til þess að
innflutningur í heild dregst saman á þessu ári. Atvinnuvegafjárfesting
hefur hins vegar dregist hægar saman en spáð var. Önnur fjárfesting
en stóriðjufjárfesting virðist hafa sótt í sig veðrið. Bygging stórverslana
og skrifstofuhús næðis virðist t.d. hafa færst í aukana í ár og horfur
á að þess muni gæta fram á næsta ár. Niðurstöður viðhorfskannana
segja sömu sögu.
Capacent Gallup kannaði stöðu og framtíðarhorfur stærstu fyrir-
tækja á Íslandi á tímabilinu 24. ágúst til 16. september sl. Stjórnendur
fyrirtækja voru nokkru svartsýnni en áður, en þess ber að geta að
könnunin var framkvæmd þegar umfjöllunin um óróann á fjármála-
mörkuðum stóð sem hæst í fjölmiðlum. Nokkur munur er á afstöðu
fyrirtækja eftir atvinnugreinum. Meira en helmingur forsvarsmanna í
byggingarstarfsemi telur t.d. að aðstæður verði verri að ári liðnu en
þriðjungur forsvarsmanna fjármálafyrirtækja er á sömu skoðun. Þrátt
fyrir að dregið hafi úr væntingum um almennar aðstæður í efnahags-
lífinu búast einungis 11% forráðamanna fyrirtækja við því að innlend
eftirspurn eftir vöru eða þjónustu eigin fyrirtækis muni minnka á
næstu sex mánuðum og helmingur þeirra býst við því að hún muni
aukast. Um 35% forsvarsmanna fyrirtækja telja að fjárfesting í ár verði
meiri en í fyrra.
... vöxtur íbúðafjárfestingar hefur reynst meiri en áætlað var ...
Eins og kemur fram í rammagrein IV-3 er gert ráð fyrir mun örari vexti
íbúðafjárfestingar í ár en áður eða um 10%. Spáð er áframhaldandi
vexti íbúðafjárfestingar á næsta ári en að samdráttur taki við á árunum
2009 og 2010. Hann er þó mun minni en spáð var í síðustu heftum
Peningamála, enda þróun húsnæðisverðs hagstæðari og aðlögun inn-
lendrar eftirspurnar seinna á ferðinni.
... og stjórnvöld boða stóraukna fjárfestingu næstu árin eftir
22% vöxt í fyrra
Í fyrra greip ríkisvaldið til frestunar framkvæmda og fjárfestingar-
útgjalda til að sporna gegn þenslu í efnahagslífinu og vildi með því
leggja lóð sín á vogarskálarnar í baráttunni við verðbólgu. Fyrsta
áætlun Hagstofunnar frá því í mars í ár benti til þess að þó nokkurs
aðhalds hefði verið gætt í fjárfestingu hins opinbera á síðasta ári því
að samkvæmt henni jókst hún aðeins um tæplega 1%. Endurskoðaðar
bráðabirgðatölur benda hins vegar til þess að opinber fjárfesting hafi
aukist um fimmtung í fyrra, þegar sérstaks aðhalds átti að gæta.
Vöxtinn má einkum rekja til sveitarfélaga, en kosningar voru á árinu.
Vöxtur samneyslu var sömuleiðis endurskoðaður upp á við um eina
prósentu vegna mun meiri samneyslu sveitarfélaga. Stóraukin fjár-
festing hins opinbera hefur verið boðuð næstu tvö árin, m.a. vegna
mótvægisaðgerða vegna skerðingar þorskkvóta og til að veita sam-
drætti í annarri fjármunamyndun mótvægi.
0
10
20
30
40
2010200520001995199019851980
1. Grunnspá Seðlabankans 2007-2010.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
% af VLF
Mynd IV-7
Fjármunamyndun sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu 1980-20101
Mynd IV-8
Þróun íbúðafjárfestingar og
húsnæðisverðs 2000-20101
1. Grunnspá Seðlabankans 2007-2010.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Magnbreyting frá fyrra ári (%)
Íbúðafjárfesting (v. ás)
Ársbreyting húsnæðisverðs (h. ás)
%
-10
-5
0
5
10
15
20
-20
-10
0
10
20
30
40
‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00
1. Grunnspá Seðlabankans 2007-2010.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Magnbreyting frá fyrra ári (%)
Mynd IV-9
Þróun innflutnings 2000-20101
-12
-6
0
6
12
18
24
30
‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00