Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 21
Skírnir
Dróttkvæða þáttur
19
aður af þeim, þá er þersýnilegt, að þau hafa einmitt sótzt
eftir þessu. Þessi mishljómur eða tvísæi, eða hvað menn
vilja kalla þetta fyrirbrigði, hefur veitt þeim sérstaka
listarnautn, ef til vill meiri en nokkuð annað, og drótt-
kvæðin eru lokuð bók fyrir þeim, sem ekki kann að njóta
þessa mishljóms að einhverju leyti.
Giraldus Cambrensis, brezkur rithöfundur á tólftu öld,
segir, að Norðimbrar hafi um langan aldur tíðkað eins
konar tvísöng, og hann hyggur, að þeir hafi numið þann
söng í fyrstu af norrænum víkingum, alveg eins og margt
í máli þeirra sé af norrænum rótum. Ég hef enga hug-
mynd um, hvort þessi tilgáta er rétt. En víst hefði þeim
mönnum, sem sóttust eftir kenningum 4. flokksins, verið
trúandi til að hafa gaman af tvísöng, og honum væntan-
lega heldur blæstríðum og ekki sem samræmustum fyrir
eyru síðari tíma manna.
Kenningar þriggja fyrstu flokkanna, hinar fornger-
mönsku kenningar, eru orðskraut, og skraut er list, og
list er ekki náttúra. En þó eru þessar kenningar ekki það
fjarri eðlilegu orðfæri, að þær séu alveg andstæðar veru-
leikanum. En í hinum norrænu kenningum, kenningum
4. flokksins, eru allir hlutir aðrir en þeir sýnast eða segj-
ast vera. Okbjörninn er alls ekki björn, heldur uxi, og
móðakarnið er alls ekkert akarn, alls enginn ávöxtur,
heldur hjarta manns. Að ekki sé talað um svana fold, sem
er einmitt andstæða landsins, sjór. Þessi skáld vilja ekki
tjá veruleikann, heldur breyta honum í hugarburð, þau
gera vökuna að draumi. Draumur er þetta, settur saman
úr slitrum veruleikans, einmitt á þann hátt, sem þau eru
sett saman í draumi. Sami hluturinn er og er þó ekki —
í einu. Og undir niðri er önnur merking í öllu en virtist
á yfirborðinu. Það þarf að ráða þetta eins og draum. En
það er unnt, því að í þessum draumheimi drottnar föst
regla og rökvísi, þegar öllu er á botninn hvolft. Kenninga-
stíllinn er þegar fast mótaður um 900, bæði hvernig kenn-
ingarnar eiga að vera og um hvað eigi að hafa kenningar.
Endurnýjaðar eru kenningarnar fyrst og fremst með nýj-
2*