Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 238
IV
Skírnir
Skýrslur og reikningar
ASalfundur 1947
var haldinn 31. okt., kl. 5, í fyrstu kennslustofu Háskólans.
Porseti setti fundinn og stakk upp á dr. Steingrími J. Þorsteins-
syni, docent, sem fundarstjóra, og var hann kosinn.
1. Síðan síðasta aðalfundi lauk hafði verndari félagsins, hans
hátign Kristján X., fallið frá. Hann andaðist 20. apríl 1947. Um
35 ára skeið hafði hann sýnt félaginu mikla góðvild og sæmt það
árlega stórri heiðursgjöf.
2. Síðan siðasti aðalfundur hófst, 23. nóv. 1946, hafði forseti
spurt lát 21 félagsmanns, en þeir voru þessir:
Agúst Þórarinsson, kaupmaður, Stykkishólmi.
Arni B. Björnsson, hirðgullsmiður, Reykjavík.
Arni Jónsson frá Múla, ritstjóri, Reykjavík.
Arni Þorvaldsson, menntaskólakennari, Akureyri.
Asmundur Gíslason, fv. prófastur, Reykjavík.
Einar Jónsson, mag. art., Reykjavík.
Einar Magnússon, kennari, Reykjavik.
Erlendur H. Guðmundsson, ritari, Reykjavík.
Garðar Þorsteinsson, hæstaréttarmálaflutningsmaður, Reykjavík.
Gísli Gíslason, oddviti, Lambhaga.
Guðmundur Bergsson, fv. póstmeistari, Reykjavík.
Guðmundur Guðmundsson, hreppstjóri, Þúfnavöllum.
Jens Ag. Jóhannesson, læknir, Reykjavík.
Jensen, Thor, stórkaupmaður, Lágafelli.
Johnston, Arthur Wintle, Welwyn Garden City, Herts., Englandi.
Kolbeinn Arnason, kaupmaður, Reykjavík.
Magnús Sigurðsson, bankastjóri, Reykjavík.
Ottesen, Morten, bankaritari, Reykjavík.
Páll Stefánsson frá Asólfsstöðum, fv. hreppstjóri, Reykjavík.
Utne, Sverre, Lofthus, Harðangri.
Þorkell Þorláksson, fv. stjórnarráðsritari, Reykjavík.
3. Forseti las upp rekstrarreikning og efnahagsreikning félags-
ins. Yoru þeir bornir undir atkvæði fundarmanna og samþykktir.
Enn fremur las forseti upp reikninga yfir sjóð Margr. Lehmann-
Filhés og afmælissjóð félagsins. Höfðu allir reikningarnir verið
endurskoðaðir án athugasemda.
4. Forseti skýrði því næst frá atkvæðagreiðslu félagsmanna
um breytingar á lögum félagsins; las upp eftirfarandi fundargerð:
Stjórnarfundur var haldinn 15. Ag. 1947, kl. 5, í Háskólanum.
Talin voru atkvæði um tillögur um breytingar á lögum félagsins.
Atkvæði féllu þannig: Við 1. gr. 95 já, 3 nei. Við 2. gr. 92 já, 6 nei.
Við 3. gr. 95 já, 3 nei. Við 4. gr. 93 já, 5 nei. Við 5. gr. 93 já, 5 nei.
Við 6. gr. 94 já, 4 nei. Lýst var yfir, að með atkvæðagreiðslu þess-
ari væri lögunum breytt á löglegan hátt (sbr. 27. gr.). Fundi slit-
ið. -— Nöfn forseta og fulltrúa rituð undir.