Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 214
212
Sigurður Guðraundsson
Skímir
og að því var eg í 5 daga. Þann sama dag beiddi eg hann
aftur að fylgja mér til einhvers íslendings, en hann kvaðst
enga þekkja.
Daginn eftir kom hann til mín og sá kláðabólu á hend-
inni á mér og gaf sér það að orsök til að reka mig burtu
og kvaðst ekki vera þurfandi fyrir neina kláðadrengi,
þegar eg vildi ekki læra það sem hann kenndi, og setti
mig og allt mitt niður til Gúdmanns. Gúdmann varð illur
við það og undir eins ráðalaus, og urðu það hans úrræði,
að hann setti mig til einnrar íslenzkrar þvottakonu þann
11. Október, og var eg þar fram á miðja jólaföstu lítt
haldinn og hafði ekkert að vinna. En að tilstuðlun Kon-
ráðs Gíslasonar var talað við myndasmið Jeríkó og hon-
um sýnt það, sem eg hafði gert, og líkaði honum það vel
og bauð mér til sín fyrir ekkert, og teiknaði eg þar á dag-
inn fram undir jól, og vóru það mannshöfuð.
Einn dag kom þar prófessor Hets, sem er einn sá æðsti
yfir öllum íþróttaskólum í bænum; þá var eg að teikna
mannshöfuð; hann leit á hjá mér og sagði það væri mikið
vel gert og helzt af mér, sem ekkert þekkti þær reglur,
sem þar til þyrfti, og bauð mér strax á teikningaskólann
fyrir ekkert, og var eg sá eini sem fékk það fyrir ekkert.
Þangað ganga menn 2 tíma á hverju kvöldi.
Litlu fyrir jólin sagði prófessor og myndasmiður Jeríkó
til mín, að það væri ekki til neins, að eg væri hjá sér, því
hann gæti ekki kennt mér það betur en aðrir og það væri
líka of kalt fyrir mig að standa þar (því það var kuldi
mikill), en hann gat ekki látið mig vera hjá sér í því sama
húsi, því það var of lítið, en þeir tveir þar inni, hann og
málari, og fór eg þá þaðan og var einungis á skólanum, og
hefi eg átt þá síðan fyrir góðkunningja, og er það betra
en ekki, því Jeríkó er haldinn einhver sá bezti myndasmið-
ur, sem uppi er.
Eitt kvöld æði löngu þar eftir kom prófessor Hets upp
á skólann að sjá hjá okkur; hann leit á hjá mér og sagði
það væri mikið gott og leit framan á mig og spurði mig að,
hvort eg væri sá sami, sem hefði verið hjá Jeríkó ; eg sagði