Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 90
88
Hákon Hamre
ákírnir
m > dn, því að framburðurinn dl í stað ll (og rl) þekkist
ekki vestan til á Valdresi og í Haddingjadal og aðeins í
nokkrum sveitum á Vestur-Ögðum.
Breytingin ll > dl á eftir löngu sérhljóði í stofni í karl-
kynsorðum, eins og t. d. í íslenzku aodl í staðinn fyrir cdl,
stoudl í staðinn fyrir stóll, kemur fram í færeysku í orð-
myndum eins og ddlur, stodlur, sem til eru samhliða hin-
um venjulegu orðmyndum dalur, stoulur o. s. frv. í Noregi
er d(-framburður í slíku sambandi einskorðaður við Hörða-
land innan og sunnan til og Rogaland að undanskildum
syðstu mállýzkunum. Dæmi: ádl, stödl o. s. frv.
1 áherzlulitlum atkvæðum í fornu endingunum -ill, -all,
-ull þekkist dl ekki í færeysku. I Noregi tíðkast það aðeins
á Rogalandi og í syðstu sveitum á Hörðalandi, enn fremur
í Harðangri, á Vors, um Norður-Hörðaland innanvert og
Sogn innanvert. Dæmi úr norsku: ongedl (< pngull kk.),
hevedl (< hefill kk.), gamadl lo., o. s. frv. Sérnorskt
fyrirbrigði, en afleiðing sömu tilhneigingar í málinu, er
framburðurinn dl á upprunalegu Id, en þar hefur ll hlotið
að vera millistig í þróuninni. Fyrirbrigði þetta þekkist
aðeins á Norður-Hörðalandi utanverðu, en þar tíðkast
orðmyndir eins og sidl fyrir sild (kvk.) og kv^dl fyrir
kveld kk. (= ísl. kvöld hvk.), o. s. frv.
I nánu sambandi við hljóðbreytingar þær, sem hér hafa
verið nefndar, standa fyrirbrigði eins og framburðurinn
bl á upprunalegu fl og bn á upprunalegu fn. Þessar breyt-
ingar mega einnig teljast til einkenna þess málsvæðis, er
hér hefur verið rætt um, en eru nokkuð mismunandi eftir
landsvæðum.
Ekki skulu hér fleiri atriði rakin. En þau einkenni, sem
þegar hafa verið talin, nægja fyllilega til að skýra hið
innra samband, sem enn helzt í máli manna vestan fjalls
í Noregi og eyjunum vestan hafsins, þrátt fyrir þúsund
ára aðskilnað. Varla verður lögð stund á sögu hljóðbreyt-
inga og á málssögu eins þessara mála, nema jafnframt sé
höfð fyrir sjónum þróunin í hinum málunum í sama flokki.
En málvísindin eru ekki til orðin eingöngu sjálfra sín