Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 226
224
Tvær doktorsritgerðir
Skírnir
fyrirbæri er alkunnugt úr Skaftafellssýslunum báðum. Ég veit
ekkert um tíðni þess á Vestfjörðum. Eina vitneskja mín um
framburð þennan á þeim slóðum er sú, sem Blöndal greinir
um framburð orðsins þerrir.
Bls.99—100. Um breytinguna kyrr>kyr, þurr>þur, fyrr
>fyr farast höfundi svo orð:
Im Nisl. ist sie wohl in der Umgangssprache völlig
durchgedrungen (bls. 100).
Þetta er í öllum aðalatriðum rétt. En því má þó bæta við, að
meðal skólagengins fólks gætir nú æ meira framburðar með
löngu r í þessum þremur orðum, enda mun stafsetningar-
kennslan stuðla að því og yfirleitt áhrif ritaðs máls. Orðið
kyrr er t. d. ýmist borið fram [khjY:r], [khji:r] eða [khjir:].
Einnig mun koma fyrir framburðurinn [khjYr:], en hann er
áreiðanlega sjaldgæfur. En meðal alls þorra manna er al-
gengast, að fram sé borið stutt r í þessum orðum, eins og dr.
Bandle segir.
Bls. 120. Hér fjallar höfundur nokkuð um orð, sem orðið
hafa fyrir áhrifum frá dýrS, t. d. orðin dýrlegur (ritað stund-
um í Guðbrandsbiblíu dyrdligur) og dýrmætur (t. d. hid
dyrdmœta). Jafnframt getur hann þess, að sömu orðmyndir
komi fyrir í Nýjatestamenti Odds Gottskálkssonar og bætir
síðan við:
nisl. noch dýrSlegur neben dýrlegur, aber in der Aus-
sprache wohl durchwegs ohne ð, (Bls. 120).
Hér er ekki alls kostar rétt með farið. Hið sanna er, að hvor
tveggja framburðurinn, þ. e. [dirleqYr] og [dirðleqYr], er til
í nútímamáli, og finna má dæmi hvors tveggja ritháttarins.
Af orðum dr. Bandles verður helzt ráðið, að hann telji, að
dýrSlegur komi að vísu fyrir í ritmáli, en sennilega komi ein-
ungis fyrir framburðurinn dýrlegur, þ. e. [dirleqYr]. Mér er
nær að halda, að þessu sé því nær öfugt farið. Ég hygg, að
framburðurinn [dirðleqYr] sé tíðari, að minnsta kosti er ég
miklu vanari honum. Því til styrktar skal ég geta þess, að þeg-
ar ég var nemandi í menntaskóla, var mjög títt, að kennari
okkar, Sigurður Guðmundsson skólamcistari, leiðrétti rithátt-
inn dýrSlegur í stílum, því að hann taldi hann ekki eiga rétt