Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 90

Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 90
88 Þjóðmál HAUST 2010 Anarchy, State, and Utopia sem út kom árið 1975 . Í bók þessari setti Nozick fram heldur einstrengingslega kenningu um réttlæti sem leiðir af sér að öll skattheimta umfram það sem þarf til að halda uppi lögum og rétti sé ranglát og ríkisvald sem geri meira en þarf til að verja borgara sína gegn glæpamönnum eigi engan rétt á sér . Mér vitanlega hefur ekki verið reynt að framkvæma þessa kenningu um lágmarksríki nokkurs staðar . Samt lætur Kolbeinn að því liggja (á bls . 34) að kenning Nozicks og hugmyndir nýfrjálshyggju- manna um réttlæti séu eitt og hið sama og kemur það illa heim við yfirlýsingar hans um að þær hafi verið ríkjandi í stjórnmála- hugsun síðustu áratuga . Skömmu eftir að Kolbeinn hefur afgreitt kenningu Nozicks lýsir hann ný- frjálshyggjunni sem viðbrögðum „við þeim vanda sem vestræn ríki stóðu frammi fyrir á 8 . áratug 20 . aldar“ (bls . 36) . Þetta er eitt dæmi af nokkrum um hvernig hann teygir hugtakið yfir fjölbreytt og sundurleitt safn skoðana . Sannleikurinn er sá að ekkert ríki brást við vandamálum í hagstjórn fyrir 30 til 40 árum með því að laga stjórnarhætti sína að heimspekilegum skýjaborgum Nozicks . Hugmyndir Kolbeins um nýfrjálshyggj- una og áhrif hennar virðast líka í mismiklu samræmi við raunveruleikann hér á landi . Hann segir til dæmis að uppgangi ný- frjálshyggjunnar hafi yfirleitt fylgt niður- skurður eða aðhald í velferðarþjónustu og um leið og nýfrjálshyggjan „dregur úr aðkomu ríkisvaldsins að efnahagslífinu og samfélaginu þenur hún út refsikerfið, þ .e . lögregluna, dómstólana og fangelsin . Slíkum stofnunum ríkisvaldsins er svo beitt til að halda félagslegum vandamálum í skefjum með reglubundnu eftirliti, ofbeldi og fangelsun“ . (Bls . 26 .) Ef þetta er rétt þá hefur nýfrjálshyggja tæpast verið ríkjandi hér á landi áratuginn fyrir bankakreppu því aukning á ríkisútgjöldum (m .v . fast verðlag) til löggæslu, dómstóla og fangelsismála var um 46% á árabilinu 1998 til 2008 . Á sama tíma jukust samanlögð útgjöld ríkisins til almannatrygginga og velferðarmála um 50% og heildarútgjöld ríkisins um 82% (heimild: www .hagstofa .is) . Raunar hefur fjöldi fanga á hverja hundraðþúsund íbúa hér á landi breyst fremur lítið undanfarin ár . Hann var 44,0 árið 1996, hefur síðan lægstur orðið 25,3 árið 2000 og var 36,8 árið 2008 . Nýrri tölur eru ekki komnar á vef Hagstofunnar svo ég veit ekki hvort föngum hefur fjölgað eða fækkað síðan 2008 . Hvað sem því líður hlýtur öllum sem fylgjast með þjóðmálum hér að vera ljóst að kröfur um fleiri og þyngri fangelsisdóma koma frá öðrum en talsmönnum frjálshyggju, einkum femínistum . Þessi losarabragur á afmörkun hugtaksins og fáeinar glannalegar fullyrðingar sem mér virðast vera nánast út í bláinn spilla þeim tveim köflum sem Kolbeinn ritar . Eitt dæmi sem mér þótti skrýtið er í lokakaflanum þar sem hann segir: Tilraun nýfrjálshyggjunnar til að frelsa ein- staklinga undan valdi ríkisins er markverð í sjálfri sér en felur í sér misskilning á eðli valds . Vald er fyrir samfélagið eins og orka er fyrir efnisheiminn […] . Vald, eins og orka, eyðist ekki . Þegar við drögum úr valdi ríkisins eykst vald annarra, s .s . fjármagnseigenda og grennd ar samfélagsins . Slíkt vald hamlar frelsi ein staklinga ekki síður en vald hins opinbera . (Bls . 263) Þetta eru skringileg fræði . Það er eins og höfundur ímyndi sér að til sé einhver einn mælikvarði á magn þess valds sem menn eru beittir og þetta magn geti hvorki minnkað né aukist . Maður spyr sig: Til hvers var þá að afnema þrælahald? Hæpnar ályktanir eru líka nokkrar . Eitt dæmi er þar sem Kolbeinn dregur saman niðurstöður Stefáns Ólafssonar, sem ritar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.