Skólavarðan - 01.02.2005, Blaðsíða 15
15
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005
FRÉTTIR
Eiríkur Jónsson formaður KÍ fór til Palestínu
í byrjun janúar ásamt Ögmundi Jónassyni
formanni BSRB og Borgþóri Kjærnested
frá samtökunum Ísland-Palestína en þau
skipulögðu ferðina sem stóð í eina viku.
Þeir félagarnir hittu m.a. forsvarsmenn
stéttarfélaga í Palestínu og fulltrúa ýmissa
hjálparsamtaka sem starfa þar.
Meðal staða sem þeir heimsóttu voru
Nablus, Hebron og Ramalla. Að sögn Eiríks
var það mikil lífsreynsla að koma á þessa
staði og hitta fólkið sem þar býr, oft og
tíðum við afar slæmar aðstæður en sýnir
þeim, sem heimsækja þá, einstaka hlýju
og gestrisni. Eiríkur sagði að stéttarfélag
kennara í Palestínu væri í rúst en nú stend-
ur til að endurvekja það. „Það er von mín
að Kennarasamband Íslands muni leggja
sitt að mörkum til að það takist,“ sagði
Eiríkur. „Skólahald er einnig í bágbornu
ástandi og dæmi eru um að það liggi niðri
mánuðum saman vegna ófriðarins.“
Í næstu Skólavörðu mun Eiríkur segja
frá heimsókninni til Palestínu.
GG
Formaður KÍ til Palestínu
Kennarasamband Íslands gæti aðstoðað við að
endurvekja stéttarfélag kennara í Palestínu
Eiríkur Jónsson, Ögmundur Jónasson og Borgþór Kjærnested við hinn ill-
ræmda kynþáttamúr í þorpinu Qalqiliya. Bændur hafa kost á því að fara
inn fyrir múrinn þrisvar á dag á hálftíma bili til að komast á akra sína.