Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2014, Qupperneq 8

Náttúrufræðingurinn - 2014, Qupperneq 8
Náttúrufræðingurinn 8 4. mynd. Sjávarhiti (°C) á 50 m dýpi í Íslandshafi í júlí 2006. – Sea temperature (°C at 50 m) in July 2006 in the Iceland Sea. eina tegundin sem greindist í öllum sýnum. Tíu algengustu tegundir og hópar voru rauðáta, pílormar, Oi- thona spp., Pseudocalanus spp., Oncaea spp., póláta (C. hyperboreus), Metridia longa, götungar, Microcalanus spp. og ísáta (C. glacialis), allt krabbaflær nema pílormar og götungar. Af fiskum fundust 32 tegundir í 138 togum með flotvörpu í júlí 2006 (39 tog), ágúst 2007 (44 tog) og ágúst 2008 (55 tog). Loðna greindist í 52,9% toga, þorskseiði (Gadus morhua) í 42,8% og ýsuseiði (Melanogrammus aeglefinus) í 25,5% toga. Kolmunni, lýsuseiði (Merlangius merlangus) og ískóð (Boreogadus saida) fundust í 10,1%, 8,7% og 8,0% toga og síld í 5,8%. Aðrar tegundir greindust í 0,7–5,1% toga (5. mynd c). b) Vistfræðileg gerð og virkni Landfræðileg útbreiðsla og árstíða- bundinn breytileiki eru mikilvægir þættir í gerð og virkni vistkerfis. Hér er þessum þáttum lýst með tilliti til næringarefna, blaðgrænu og átu. Enn fremur er fjallað um útbreiðslu helstu fisktegunda. Í austanverðu Íslandshafi var nítrat á 0–30 m dýpi (6. mynd a) og fosfat (ekki sýnt) ekki fullnýtt í yfir- borðslögum í júlí 2006, en uppurið Lífríkið a) Líffræðileg fjölbreytni Líffræðilegri fjölbreytni er lýst með tíðni tegunda hjá átu og fiskum, en með fjölda fruma hjá hópum svifþörunga (5. mynd). Vöxtur svifþörunga hófst í apríl en var mjög dreifður niður á 100 m dýpi í ólagskiptri vatnssúlunni sam- kvæmt mælingum á blaðgrænu og in vivo blaðgrænu. Vorhámark kísil- þörunga var í síðari hluta maí (5. mynd a). Í apríl bar mest á smáum kísilþörungum en í maí voru kísil- þörungar af ættkvíslunum Chaetoc- eros og Thalassiosira algengastir. Í júlí fannst lítið af kísilþörungum í efsta lagi sjávar (<30 m) enda var magn kísils lágt ofan við sterka lagskiptingu sem takmarkaði vöxt þeirra. Smáir þörungar (<10 µm) voru algengir yfir allan gróður- tímann en þó í minnstum mæli við vorhámark kísilþörunga í maí. Skoruþörungar greindust í svipuðu magni yfir sumarið. Alls var 101 tegund eða flokkunar- fræðilegur hópur átu greindur í 247 háfsýnum (5. mynd b). Allmargar tegundir voru sjaldgæfar og 24 tegundir fundust í aðeins einu sýni. Rauðáta (Calanus finmarchicus) var hafi, vestan Kolbeinseyjarhryggjar. Yfirborðslög sjávar voru hlýrri 2007 og 2008 en árin 1951 og 1987 og svokallaður „millisjór” (Atlantískur sjór á 100–300 m dýpi) var tæplega 0,7°C hlýrri 2007 en 1987 (3. mynd). Þetta fer saman við hámarkshita í Vestur-Svalbarðastraumi 2006.32 Sjávarhiti á 50 m dýpi í júlí 2006 endurspeglaði skiptingu efri laga Ís- landshafs í þrjár sjógerðir (4. mynd). Vestantil var kaldur og ferskur pólsjór Austur-Grænlandsstraums. Sunnan og austan til var hlýrri og saltari Atlantssjór, sem kemur inn í Íslandshaf um Grænlandssund og suður af Jan Mayen. Miðsvæðis, yfir og austan við Kolbeinseyjarhrygg, var svalur, arktískur yfirborðssjór, svokallaður svalsjór, sem er blanda fyrrnefndra sjógerða. Hitastig og selta í yfirborðslögum voru svipuð í sumarleiðöngrunum þremur, en þó var hlýrra sunnan og austan til í ágúst 2008 heldur en í ágúst 2007 og júlí 2006. 3. mynd. Fjórir dýpisferlar hita á stöð Íh í miðju Íslandshafi á eftirfarandi tímum: 17. ágúst 1951 (blá lína), 22. september 1987 (svört lína), 19. ágúst 2007 (græn lína) og 15. ágúst 2008 (rauð lína). Sjótakagögn árið 1951 en sondugögn (CTD) önnur ár. – Four profiles of temperature on station Íh in the central Iceland Sea): 17 August 1951 (blue line), 22 September 1987 (black), 19 August 2007 (green), and 15 August 2008 (red). Interpolated water sampler data for 1951, ctd data for other years. Pólsjór <0° Atlantssjór >3° Svalsjór 1-2°
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.