Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2014, Side 19

Náttúrufræðingurinn - 2014, Side 19
19 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Árstíðabreytingar í tíðni gróðurelda á Íslandi Náttúrufræðingurinn 84 (1–2), bls. 19–26, 2014 Þröstur Þorsteinsson Upplýsingum um gróðurelda á Íslandi var safnað með ítarlegri leit í rafrænum gagnasöfnum af fréttum, en fyrstu fréttir af gróðureldum voru frá 1943. Þá var leitað í gagnagrunni frá Mannvirkjastofnun fyrir árin 2003–2010 og frá brunavörnum Borgarbyggðar (2010). Flestir eldarnir eru litlir, en þó urðu tíu eldar þar sem yfir hektari lands brann á árunum 2007–2013, þar af sex sem voru stærri en 10 hektarar. Langsamlega flestir eldar kvikna vegna íkveikju (72%). Greinilegur árstíðamunur er á hvenær gróðureldar kvikna hérlendis, en langalgengast er að þeir verði á vorin (mars–maí, 70% gróðurelda), ef tekið er tímabilið 1943–2012, með hámarki í maí (29% af eldum ársins), þar á eftir í apríl (28%) og svo í mars (13%). Í janúar verða nokkuð margir eldar (6%) og kvikna þeir augljóslega oftast vegna flugeldanotkunar kringum áramót. Ekki eru til nógu nákvæm gögn til að meta nákvæmlega hvort tíðni gróðurelda hafi breyst síðustu áratugi eða hvort dreifing þeirra á árstíðir hafi breyst. Hins vegar virðist sem gróðureldar yfir sumarmánuði séu tiltölu- lega nýleg þróun. Hún fer saman við hnattræna hlýnun, aukna skógrækt og sumarhúsabyggð og minni beit, sem hefur aukið gróðurmagn víða á landinu. Þetta gefur ríka ástæðu til að fylgjast vel með, skrá á skipulegan hátt gróður- elda og undirbúa viðbragðsáætlanir og hættumat vegna þeirra. 1. mynd. Agnir í lofti vegna gróðurelda í Rússlandi í ágúst 2010. Kort af AOD (e. Aerosol Optical Depth) (A) í ágúst 2010 og (B) í ágúst 2011. – Aerosols from the wildfires in Russia, August 2010. Maps of Aerosol Optical Depth in (A) August 2010, and (B) in August 2011, show the impact of the wildfires. Ritrýnd grein / Peer reviewed Inngangur Gróðureldar eru vaxandi vandamál víða um heim og meðal helstu orsaka eru veðurfarsbreytingar og aukin byggð í og við skógarjaðra.1 Þurrkar hafa undanfarin ár valdið gríðarlega miklum gróðureldum, til dæmis í Rússlandi 20102, Ástralíu 20133,4 og víðar. Gríðarleg mengun fylgir gróðureldum og verður oft það mikið af ögnum í lofti að skyggni verður lítið og loftgæði spillast á stórum svæðum (1. mynd). Á Íslandi hef ur magn gróðurs víða aukist töluvert á undanförnum árum, sér í lagi á vestari helmingi lands- ins.5 Meðal ástæðna eru minnkandi beit, vaxandi skógrækt, sumar- húsabyggðir og hlýnandi veðurfar. Einnig hefur lúpína víða myndað stórar og þéttar breiður með miklum eldsmat. Samtímis hefur orðið veru- leg aukning ferðamanna og úti- vistar allt árið. Það eru því fleiri á B A

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.