Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2014, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 2014, Page 40
Náttúrufræðingurinn 40 Menn hafa reynt að skýra hátt- ernið sem áfanga í aðlögun að gagnkynhneigðum lífsháttum, eins konar kynlífsfræðslu, en í mörgum tilvikum eldist það ekki af dýrunum. Kynhegðun er allvel þekkt hjá tveimur norður-amerískum tegundum villtra klaufdýra, ameríku- vísundi (Bison bison) (6. mynd) og hinum stórhyrnda klettafjallasauði (Ovis canadensis). Þar fara tarfar og hrútar upp á kynbræður sína í endaþarmsmökum árið um kring – og aldrei meir heldur en á fengitíma, þegar völ er samt á tilkippilegum kúm og ám! Það vilja menn skýra með auknu karlhormóni á þessum árstíma. Ljóst virðist að sá sem undir er lætur sér kvenhlutverkið vel líka, í það minnsta leggur hann halann til hliðar og auðveldar hinum að- komuna. Einnig er þekkt er meðal- bæði kven- og karlljóna að þau sýni samkynhneigða hegðunb (7. mynd). Lítið fer hins vegar fyrir lesbískum tilburðum hjá kúm og ám þessara villtu tegunda, trúlega af því hve kynhvötin er dauf mestan hluta ársins. Hjá orrabukk (Kobus kob), antílópu sem lifir víða í Afríku sunnan Sahara og sést í skjaldarmerki Úganda, fer engum sögum af samkynhegðun hjá törfunum, en hindirnar, sem bera kálfum á öllum tímum árs, virðast allar auk þess lesbískar (höfundur þessa pistils minnist þess sem kúasmali í æsku hversu kýrnar í hjörðinni nutu þess að leika hlut- verk nautsins þegar einhver þeirra var yxna). Blettahýena (Crocuta crocuta), sem lifir víða í Afríku sunnan Sahara, er um það frábrugðin öðrum spen- dýrum að snípur kvendýrs líkist reðri karldýrs og er nær jafnstór (8. mynd). Þetta er talið afleiðing þess að kerlurnar hafa í sér óvenjumikið af karlhormónum, enda eru þær stærri og aðgangsfrekari en karl- arnir og ráða mestu í félagshópum dýranna. Slík líkamsgerð hentar vel til lesbískra samkynsmaka, sem nokkuð er um hjá blettahýenu. Hjá ýmsum dýrum þekkjast hópar þriggja einstaklinga (þrennur) – og stundum fleiri – þar sem sam- kynhegðun tengir að minnsta kosti tvö dýr. Stundum eru öll dýrin af sama kyni, svo sem tarfar vísunda, afrískra fíla og ýmissa hjartardýra. Á fengitíma leysast þessir karla- klúbbar upp og tarfarnir leita maka í hjörðum kvendýra. Í öðrum tilvikum eru félagarnir af báðum kynjum. Þetta er þekkt meðal margra fugla, þar sem tveir fuglar af sama kyni stofna til sambúðar en eðla sig auk þess, annar eða báðir, með þriðja fuglinum í þrennunni og allir þrír annast svo egg og unga. Meðal grágæsa er til dæmis nokkuð um að tveir steggir taki upp sambúð og taki svo til sín staka gæs sem eignast egg með öðrum eða báðum. Saman sinnir öll þrennan svo eggjum og ungum. Hjá snjógæs og kanadagæs þekkist samkyns sambúð aðeins hjá kvenfuglum, sem geta að vonum ekki ungað út eggjum nema með fulltingi steggs. Hjá kanadagæs verður stundum úr þessu varan- legur þrennubúskapur. Þrennusambúð af ýmsu tagi þekkist einnig hjá ýmsum vaðfuglum, máfuglum, svartfuglum og spör- fuglum og nokkrum fuglum öðrum. Meðal ýmissa gásfugla þekkjast pör lesbía eða homma. Tveir steggir b Bagemihl, B. 1999. Biological exuberance. Animal homosexuality and natural diversity. St. Martin's Press, New York. 752 bls. 9. mynd. Ýfilbjalla (Scarabeus sacer). Þessi teikning af tveimur körlum í pörun er frá árinu 1896 og er sennilega elsta mynd sem gerð hefur verið af samkynshegðun dýra.b 11. mynd. Ástralskur svartsvanur; tveir karlar í tilhugalífi. Svartsvanir í homma- sambúð koma oft upp ungum úr eggjum sem þeir verða sér úti um.b 10. mynd. Stokkandastekkir láta vel að hvor öðrum. Ljósm. Norbert Nagel (Þýskalandi). 7. mynd. Karlkynsljón láta vel að hvort öðru. Ljósm./Photo: Darren Gardiner www. iDStyle.com (2006). 6. mynd. Amerískur vísundur. Ljósm./ Photo: Jack Dykinga. 8. mynd. Blettahýena. Ljósm./Photo: Liaka ac.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.