Breiðfirðingur - 01.04.1997, Page 42
40
BREIÐFIRÐINGUR
anna Garpsdals og Gilsfjarðarmúla, svo var auðvitað kunningj-
um og vinum gefíð eins og þeir vildu en ekkert af þessu var selt.
En það flýgur fiskisagan eins og máltækið segir. Þegar Sum-
arliði Guðmundsson, smiður og bóndi á Gróustöðum, frétti
þetta og það sáust enn þá hvalir innan til á Gilsfirði, fékk hann
til liðs við sig nokkra menn og fékk síðan lánaðan mótorbát hjá
Kaupfélagi Króksfjarðar til þess að fara inn á Gilsfjörð og reyna
að reka eitthvað af þessum hvölum á land. Menn þeir sem
Sumarliði fékk til liðs við sig voru: Kristmundur Jónsson
póstur, Svarfhóli, Óli Hallsson bóndi Litlu-Brekku og Eyjólfur
Hallfreðsson Bakka. Svo lánaði Ólafur E. Ólafsson þáverandi
kaupfélagsstjóri mótorbát sem áður segir. En Sumarliði var með
þennan bát þegar skipa þurfti upp og kunni því að fara með vél
og bát. Strax nóttina eftir að hvalurinn festist á skerinu í Garps-
dal fóru Sumarliði og félagar hans, sem gárungarnir kölluðu
Milljónafélagið, sem leið lá á sjó inn í Gilsfjörð og ráku þeir
fimm hvali á land eða grynningarnar við Teiga á Múlahlíð, tvo
á Mávadalseyrar og mig minnir að tveir færu að landi við Ólafs-
dalseyrar eða Forvaða, sem er innan til á Holtahlíð, sunnan
Gilsfjarðar. En hvort þeir voru dregnir þangað yfir þori ég ekki
að fullyrða. Eflaust hafa Saurbæingar nýtt sér þessa hvali.
Nú var Jón Daðason, bóndi á Miðhúsum í Reykhólasveit,