Morgunblaðið - 28.12.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. DESEMBER1985
33
Minning:
Þórhallur Jónas-
son Akureyri
í dag er jarðsettur frá Akur-
eyrarkirkju Þórhallur Jónasson
fyrrverandi bifreiðastjóri. Hann
lést eftir langa sjúkdómslegu á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Hann var mér ekki aðeins
góður afi heldur einnig félagi og
vil ég hér minnast hans í nokkrum
orðum.
Afi fæddist 3. mars 1909 í Syðri-
Villingadal í Saurbæjarhreppi,
Eyjafirði. Foreldrar hans voru
Jónas Tómasson frá Goðdölum í
Skagafirði og Margrét Valdimars-
dóttir frá Brekku í Eyjafirði. Afi
var fjórði af níu alsystkinum en
einnig átti hann tvær eldri hálf-
systur. Átta ára gamall fer hann
að Hleiðargarði í sömu sveit þar
sem hann dvelur fram yfir ferm-
ingu. Síðan er hann heima og í
vinnumennsku, eins og það gerðist
á þessum tíma. Um 1935 flyst hann
ásamt foreldrum að Leyningi þar
sem hann bjó í þrjú ár. Byrjaði
þá starfsferill hans sem bifreiða-
stjóri og keyrði hann vörubíl allt
fram til ársins 1977 og þar af á
vörubílastöðinni Stefni í 30 ár.
Eftir 1977 starfaði hann í rúm
þrjú ár hjá Iðnaðardeild Sam-
bandsins á Akureyri.
Árið 1941 flyst afi í Hafnar-
stræti 33 á Akureyri, þar sem hann
síðan bjó til æviloka. Hann gekk
að eiga Lilju Guðrúnu Þ. Guð-
laugsdóttur frá Ánabrekku, Mýra-
sýslu, árið 1944. Þau eignuðust
fimm börn: Margréti, Þórhöllu,
Valdimar, Gylfa og Eyþór.
Afi þótti hörkumaður, duglegur,
ósérhlífinn og lét sér ekkert vaxa
í augum.
Fyrstu kynni mín af afa eru
alveg frá því fyrst er ég man eftir
mér. Áður en ég náði skólaaldri
kom afi oft heim í Birkilundinn
og tók mig með sér í vörubílnum
í vinnuna. Þá fékk ég að fylgjast
með stórum vinnuvélum að starfi
eins og allir forvitnir drengir hafa
gaman af. En það sem ég hafði
meira gaman af í þessum ferðum
var afi. Við spjölluðum þá um
heima og geima og sungum ýmis
gömul barnakvæði. 1 kaffitímun-
um tók afi upp nestistöskuna og
það brást aldrei að þar var sérút-
búinn pakki og mjólkurflaska fyrir
mig. Er leið á daginn skilaði afi
mér heim og borgaði mér hundrað
krónur í laun fyrir daginn. Síðan
bað ég hann að koma aftur daginn
eftir.
Frá því ég varð nógu gamall til,
þá þótti mér fátt skemmtilegra en
að hlaupa niður í Hafnarstræti 33
og heimsækja afa og ömmu. Ég
kom þá ávallt niður brekkuna fyrir
ofan húsið þeirra. Þar á brekku-
brúninni staldraði ég oftast við og
athugaði hvort vörubíllinn hans
afa stæði ekki á bílastæðinu við
húsið og hvort amma sæist ekki á
sveimi fyrir innan eldhús-
gluggann. I þessum heimsóknum
var spilað á spil, teflt eða bara
rætt saman. Afi var þá ávallt hress
og kom mér ótal oft til að hlæja
með kímnigáfu sinni og léttri
stríðni. Þegar síðan leið á daginn
og það var komið framyfir hátta-
tímann hjá litlum drengjum keyrði
afi mig heim á vörubílnum.
Um 1980 komu nokkur skilnað-
artímabil er ég fluttist með for-
eldrum mínum til útlanda. En afi
og amma komu í heimsókn til
okkar fyrsta sumarið við mikil
fagnaðarlæti okkar systkina.
Rúmu ári seinna er ég kom einn
heim til íslands dvaldi ég hjá afa
og ömmu um jólin. Þá var afi
hættur að vinna og var hann ekki
eins hraustur lengur en þó var
hann jafn kátur og glaðvær eins
og ég mundi eftir honum. Síðan
sá ég ekki afa fyrr en tæpum þrem
árum seinna, sumarið 1984, þegar
við fluttum aftur til íslands. Þá
var mjög dregið af honum en samt
varð ég var við gömlu kímnigáfuna
og baráttuþrek hans.
Hann afi minn lést svo snemma
sunnudagsmorguninn þann 15.
desember síðastliðinn. Ég þakka
honum allar ánægjustundirnar er
við áttum saman. Megi guð og
gæfan styrkja elsku ömmu.
Þórhallur Hjartarson
t
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móöir, systir, tengdamóöir og amma,
GUÐRÚN AXELSDÓTTIR,
Grensásvegi 60,
lést í Landspítalanum aö kvöldi 23. desember.
Jarösungiö veröur frá Fríkirkjunni mánudaginn 30. desember kl.
10.30.
Ólafur Jón Sigurjónsson,
Rakel Guömundsdóttir, Helga Axelsdóttir,
Rakel S. Ólafsdóttir, Tómas Tómasson,
Sigurjón Ólafsson, Margrét Einarsdóttir,
Guömunda Ólafsdóttir, Sævar Gestsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
erusölu
'staðir okkar
Reykjavík:
Skátabúöin, Snorrabraut 60
Fordhúsið, Skeifunni 17
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Alaska, Breiðholti
Við Miklagarð
Við Vörumarkaðinn, Eiðistorgi
Á Lækjartorgi.
Garðabær:
Hjálparsveitarhúsið, v/Bæjarbraut.
Akureyri:
Stórmarkaður í Lundi, v/Viðjulund
Verslunarmiðstöð í Sunnuhlíð
Skúrv/Hagkaup
Skúr v/suðurenda á íþróttavelli.
ísafjörður:
Skátaheimilið.
Aðaldalur:
Hjálparsveit skáta, Aðaldal.
Fljótsdalshérað:
Slátursala K.H.B.
Olís, Fellabæ.
Vestmannaeyjar:
Skátaheimilið, Faxastíg 38
og í Gömlu Völundarbúð.
Dalvík:
Flugeldamarkaður, Gunnarsbraut 4-6.
Hveragerði:
í Hjálparsveitarhúsinu.
Njarðvík:
V/Sparisjóðinn, v/Reykjanesbraut.
Blönduós:
Hús Hjálparsveitar skáta, v/Melabraut.
Flúðir:
Hjálparsveitin Snækollur.
Kópavogur: Saurbæjarhreppur
Toyota, Nýbýlavegi 4 r .
Skátaheimilið, Borgarholtsbraut 7 • CyJclllíOI.
Kaupgarður, v/Engihjalla. Hjálparsveitin Dalbjörg.
Flugeldar - blys - gos - sólir - stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR
OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
A
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
r> ■ itölvugagna -"^peninga