Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.10.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1986 5 Signrður Ingvi Snorrason leikur einleik á tónleik- um Sinfóníunnar í kvöld SIGURÐUR Ingvi Snorrason, klarinettleikari, leikur ein- leik með Sinfóniuhlj ómsveit íslands á tónleikum hennar í Háskólabíói í kvöld. Leikin verða verk eftir Schubert, Sibelius og Patterson og er það finnski hljómsveitarstjór- inn, Petri Sakari, sem stjórn- ar. Sigurður Ingvi er nú skóla- sljóri Tónlistarskóla Félags íslenskra hljóðfæraleikara. Hann er Reykvíkingur, fæddur árið 1950 og nam við Tónlistarskól- ann í Reykjavík og Tónlistar- háskólann í Vínarborg. Hann hefur leikið með Sinfóníuhljóm- sveit íslands, íslensku hljóm- sveitinni og tekið virkan þátt í tónlistarlífí hér á landi. Ökumaður Datsun-bifreiðaríimar fundiim: „Get ekki skil- ið að allsgáður maður geti gert svona lagað“ - segir Auður Halldórsdóttir um bílslysið LÖGREGLAN hefur nú fundið bifreiðina, sem ekið var á unga konu á Týsgötu • aðfararnótt sunnudagsins. Hefur 19 ára gam- all piltur viðurkennt að hafa ekið bifreiðinni um nóttina. Ekið var á konuna á Týsgötunni aðfara- nótt sunnudags með þeim afleið- ingum að hún hlaut slæmt lærbrot auk annarra meiðsla. Slysið varð með þeim hætti að maður konunnar var kominn út á götuna, þegar bifreið var sveigt inn á hana, en þau hjón voru þama á gangi ásamt Auði Halldórsdóttur og fleira fólki. „Þegar við vorum nærri því komin yfir Týsgötuna sáum við hvar hvítur Datsun kemur á fleygi- ferð. Bílstjórinn virtist leika sér að þvi að sveigja aðeins að okkur og strýkst við manninn. Ég var það heppin að vera skrefi á undan honum en sú sem lenti í þessu var aðeins skrefi á eftir mér. Þegar hún lenti á bílnum var hávaðinn svo mikill að það var eins og keyrt væri á vegg þannig að þetta gat ekki farið fram hjá neinum. Fólk kom meira að segja út úr næstu húsum við hávaðann. Bílstjórinn bremsaði ekki einu sinni heldur ók rakleiðis áfram. Þetta gerðist allt svo snöggt. Bílstjórinn hefur alls ekki gert sér grein fyrir því í hvaða stöðu við vorum þegar hann fór þama fram hjá. Hann hefði getað keyrt okkur öll niður - það munaði ekki nema skrefi. Ég get ekki skilið að alls- gáður maður geri svona hluti," sagði Auður. Norræna húsið Kvikmynda- sýning um Grænland DAGSKRÁ Norræna hússins um Grænlandstrúboðann Hans Egede verður fram haldið í kvöld með því að sýnd verður kvikmynd Knud Rasmussens um Grænland. Erindi Haraldar Ólafssonar um Grænland í dag verður hins vegar ekki fyrr en annað kvöld. Báðir dagskrárliðimir hefjast klukkan 20.30., en auk þess verða bækur um Grænland og Hans Egede til sýnis í bókasafni Norræna hússins þessa daga. Lögreglan leitaði að bifreiðinni eftir bifreiðaskrá, þar sem fólkið gat gefið góða lýsingu á henni. Skömmu fyrir miðnætti á þriðjudag fundu lögreglumenn bifreiðina, sem var greinilega dælduð á hægra fram- homi. Við yfírheyrslur játaði piltur- inn að hafa ekið á konuna, en hann kvaðst ekki hafa séð hana. Konan er nú á batavegi. Merki félagsins íslensk grafík: Samsýn- ingunni að ljúka ÍSLENSK grafík heldur nú stærstu samsýningu sína á verkum félagsmanna. Á sýn- ingunni eru 155 verk eftir 32 listamenn. Sautján ár eru liðin frá stofnun félagsins. í sýningarskrá kemur fram að íslensk grafík hafí haldið 6 félagssýningar til þessa, í Norræna húsinu. Nú er það húsnæði orðið of lítið fyrir sýningamar. Hagur grafíklist- arinnar hafi vænkast á undanfömum árum, því sam- fara stofnun gallería sem kynna þessa listgrein, aukist áhugi og þekking almennings. Á sýningunni á Kjarvalsstöð- um er áberandi hve mikið litanotkun hefur aukist á und- anfömum árum. Sum verk- anna nú birtast áhorfandanum einnig í þremur víddum. í fréttatilkynningu félagsins segir að sýningunni ljúki nk. sunnudagskvöld. Hún er opin daglega frá kl. 14.00 til 22.00. Siglufjörður: Opiðhúsfyrir eldri borgara Sigurður Ingvi Snorrason Sigiunrði: í KVÖLD, fimmtudag, verður opið hús á vegum Félagsmála- ráðs Siglufjarðar í samvinnu við kirkjuna. Ætlunin er að á hveijum fímmtudegi í vetur verði Safnað- arheimilið opið fyrir starf eldri borgara. Þar verður boðið upp á föndur, saumaskap, spil og reynd- ar það tómstundastarf sem eldri borgarar hafa áhuga á. Heitt verður á könnunni og umsjón með starfínu mun Hanna Snorradóttir hafa. Eins og kunnugt er hefur slíkt starf notið allmikla vinsælda um allt land og mjög víða í safnaðar- heimilum kirkjanna. Það er von Félagsmálaráðs og kirkjunnar að sem flestir líti inn í kvöld og taki þátt í því að móta starfíð í vetur. m.j. ÁHUGAMENN UM STJÓRNMÁL Greinasafn Eyjólfs Konráðs Jónssonar, alþingismanns „Út úr vítahringnum" á sér- stöku kynningarverði hjá Eymundsson, Austur- stræti. -c Stuðningsmenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.