Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1992, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1992. Menning Thór Barðdal myndhöggvari: í andstöðu við allt sem heitir tíska í myndlist Á laugardaginn voru opnaöar þrjár sýningar myndiistarmanna á Kjarvalsstöðum. Einn þeirra sem þar sýnir er myndhöggvarinn Thór Barðdal sem kemur með sýningu sína alla leið frá Portúgal þar sem hann býr og starfar: „Ég bý í Portúgal ásamt eiginkonu minni, Sigrúnu Olsen listmálara, en einmitt um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum hennar á veit- ingastaðnum Á næstu grösum. Ég geri öll mín verk í granít og marm- ara og þar sem segja má að Portúgal sé úr granít og marmara fæ ég auð- veldlega allt efnið mjög ódýrt miðað við ef ég væri hér hér heima. Skapar það mikinn aðstöðumun." - Þú ert tiltölulega nýfluttur til Port- úgals? Við höfum átt heima í Portúgal í eitt ár. Við bjuggum áður í fjögur ár í Texas en það var frekar óhentugt. Þaðan var langt og erfitt að komast heim, sérstaklega þegar þú varst með tonn af myndverkum í farangrinum. í Portúgal er gott fyrir myndhöggv- ara að búa. Þar get ég nýtt mér þann möguleika að nota granítið í undir- stöður og þannig sameinast verkið undirstöðunni. Ef ég væri hér heima að vinna úr sama efni hefði ég ekki efni á að nota svo stóran stein í und- irstöðu, yrði að höggva hann. Við keyptum sveitabýli og þegar við fluttum var það eins og að hverfa langt aftur í tímann að flytja í sveit- ina í Portúgal. Við höfum góða vinnuaðstöðu og höfum ræktunarað- stöðu, það fylgdu býlinu ein sextíu ávaxtatré sem við nýtum fyrir okk- ur.“ Fjórða einkasýningin „Verk mín á þessari sýningu eru Thór Barðdal myndhöggvari við eitt myndverka sinna sem hann kallar Eli- ment. DV-mynd S langflest unnin á síðasta ári eftir að ég flutti til Portúgals. Þetta er fjórða einkasýning mín en auk þess hef ég tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis." - Hefur orðið breyting á verkum þín- um frá því þú fluttir til Portúgals? „Já, að vissu leyti, en samt hef ég haldið mig á sömu braut. Ég vinn nánast aðallega út frá klassískum og huglægum hugtökum og er í raun í andstöðu við allt sem heitir tíska í myndhst. Ef ég er ánægður með verk eftir mig vil ég hafa það þannig að ég geti sýnt þau á hvaða tíma sem er og í hvaða þjóðfélagi sem er. Ég á auðvelt með að forðast tískustefnur þar sem ég sé fáar myndlistarsýning- ar og les ekki mynhstarblöð. - Er ekki erfitt að koma heim með sýningu? „Það er mikiö puð. Það þarf að pakka þessu inn, gera það sjóklárt og koma þessu á skipsfjöl, síöan tek- ur annað eins við þegar heim er kom- ið. Auk þess er þetta mjög þungt. Á þessari sýningu er þyngdin á verk- unum á annað tonn. - Var það ahtaf ætlun þín að vinna myndir úr granit og marmara. „Frá því ég gerði fyrstp verk mitt úr marmara féh ég fýrir efninu. Mér fannst eiginleikar marmarans faha vel að þeirri hugmyndafræði sem ég nota. - Ertu búinn að finna þinn framtíðar- stað í Portúgal? „Ég býst við því. Okkur hður ákaf- lega vel í sveitasælunni innan um bændafólkið sem vinnur á sama hátt og forfeður þess gerðu. Ég stefni á að halda sýningar í Portúgal, hef þegar tekið þátt í samsýningum, en þaö tekur ahtaf nokkur ár að skapa sérnafnínýjulandi. -HK Jón Nordal hlýtur heiðursfé Tónvakans Jón Nordal, tónskáld og fyrrver- andi skólasfjóri, hlýtur heiðursfé Tónvakans, tónhstarverðlaun Ríkis- útvarpsins 1992. Heimir Steinsson útvarpsstjóri mun afhenda honum verðlaunin á sérstökum hátíðartón- leikum 26. nóvember en verðlauna- upphæðin er 250 þúsund auk þess sem gerðar verða sérstakar útvarps- hljóðritanir á verkum Jóns á næsta ári. í reglum um tónhstarverðlaunin segir að heiðursfé skuh veitt tónhst- armanni fyrir áralöng og merk störf í þágu tónmenningar. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi auk þess sem dómnefnd starfaði, en hana skipuðu Guðmundur Emhsson, tónhstarstjóri Ríkisútvarpsins, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleik- ari, Bjöm Th. Ámason skólastjóri, Gunnar Kvaran sellóleikari, John A. Speight söngvari, Rut Magnússon söngkennari og Sigursveinn K. Magnússon skólastjóri. Á fyrmefndum hátíðartónleikum ieikur Sinfóníuhljómsveit íslands tvö verk eftir Jón Nordal: Chorahs (1982) og Leiðslu (1973), auk þess sem Bryndís Haha Gylfadóttir og sigur- vegari keppninnar um Tónvakaverð- launin leikur einleik með Sinfóníu- hljómsveitinni í Konsert fyrir sehó og hljómsveit í h-moh ópus 104 eftir Antonín Dvorák. Thomas Baldner stjómar. -HK Jón Nordal tónskóld situr fyrir miðju á myndinni, honum á sinn hvora hönd eru Heimir Steinsson útvarpsstjóri og Guðmundur Emilsson tónlistarstjóri. Á sýningu hjá Ástu Guðrúnu. Myndir tvær heita Lotus og Fantasía, Rabbabarar og frostrósir. Ásta Guðrún sýnir á Café 17: Huglægari form enáðurognýtt litasamspil Á Café 17 stendm- nú yfir málverkasýning Ástu Guö- rúnar Eyvindardóttur og hefur sýningin yfirskriftina Augnablik. Þar sýnir hún tíu olíumálverk sem öll eru máluð á þessu ári og því síöasta. Ásta sagði í stuttu spjahi aö viss breyting heföi orðið á málverkum henn- ar, þau væm lausari en áður og sterkari htir notaöir. Ásta sagði ástæðuna vera eitthvað sem skeði hið innra og aht sem var gott og ght brotnaói upp og út kæmi eitthvað ókunnugt, nýtt og krefjandi svar, huglægari form og nýtt hstasamsph. Sýning Ástu stendur th 19. nóvemberogeropináverslunartíma. -HK þekki Ragnar Bjamason lætur gamminn geisa í nýrri bók'sem væntanleg er frá Æskunni fýrir jólin. Það er Eðvarö Ingólfsson sem skráir bókina sem kemur til með að heita Lífssaga Ragga Bjama. Þar Iýsir Ragnar æskuár- um sínum, tónlistarferli, einkahfi: og ýmsu öðru. Ragnar sem er einn allra vinsælasti dægurlaga- söngvari sem við höfum átt er þekktur fýrir kímnigáfu og létt- leika en einnig lýsir hann á op- inskáan háttdekksta tímabhi ævi sinnar. Sigrún Eðvaids* dóttirá hljómleikaferð íJapan Sigrún Eðvaidsdóttir fiðluleik- ari er nú á hljómieikaferð í Jap- an, Hélt hún fyrstu tónleika sina af þremur í síðustu viku í Tokyo með Sinsei Nippon sinfóníu- hijómsveitinni. Aðrir tónleikam- ir vom í borginni Nagano. Þar lék hún ásamt píanóleikaranum Seiko Seki sem er þekktur píanó- leikari í Japan og kennari við tóniistarskólann í Toho. í hehd heldur Sigrún fimm tónleika og verða þeir síðustu í borginni Shizuoka sem er skammt frá Tokyo. Eru þaö einleikstónleikar. Ljóðlistarkvöld íallanvetur Fyrsta hvers mánaðar í vetur verða ljóðaupplestrar í Þjóðieik- húskjaharanum á vegum hóps ljóöskálda í samvinnu við Þjóð- leikhúsið. Fyrirhugað er aö átta skáld lesi úr verkum sínum hverju sinni. Fyrsta ljóðakvöldiö verður í kvöld ogþá munu koma fram Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son, Berglind Gunnarsdóttir, Guðlaug María Bjamadóttir, Jó- hann Hjálmarsson, Pjetur Haf- stein Lárusson, Þórður Helgason og Þorsteinn frá Hamri. Þá mun Erhngur Gíslason lesa úr þýðing- um Njarðar P. Njarðvík á ljóðum Thomas Tranströmer sem hlaut bókmenntaverðiaun Norður- landaráðs fyrir tveimur árum. Tónlistardagar Dómkirkjunnar í ellefta sinn eru nú tónlistar- dagar Dómkirkjunnar haldnir og vom fyrstu tónleikarnir í gær- kvöldi. Var þá flutt nýtt kórverk eftir Hróðmar Inga Sigurbjöms- son. Sérstakur gestur verður enski kórstjórinn Artliur Robson. Mun hann stjóma tónleikum Dómkórsins á föstudaginn í Krfstskirkju. Aðrir tónleikar i vikunni em á miðvikudaginn, þá heidur Hörður Áskelsson orgel- tónleika og á laugardaginn verða tónleikar Kirkjukórs Dalvíkur undir stjóm Hlínar Torfadóttur. Báðir þessir tónleikar em í Dóm- kirkjunni. Fólkiðí Rrðinum Á undanförnum ámm hefur Ámi Gunnlaugsson staðið að bókaútgáfu með myndum af eldri Hafiifirðingum og skrifaö texta um þá. Er þetta afrakstur áhuga hans á heimildum um samborg- ara sína sem fæddir eru um og kringum aldamótin. Árni hefur nú sent frá sér þriöja bindið um fólkið í Firðinum og er það jafn- framt lokabindi bókaflokksins. Myndimar í þessu bindi era flest- ar teknar á árunum 1980-1992 og eru 220 talsins og fylgir með æviá- grip 296 einstakhnga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.