Dagblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978. Fjórir norrænir listamenn að Kjarvalsstöðum Nýstárlegt sýningarform Um þessar mundir stendur að Kjarvalsstöðum allóvenjuleg sýning, í þeim skilningi að þar er vestursalurinn nú notaður á nýjan og óvæntan hátt. Þegar komið er inn í sýningarsal, þar sem sýnd eru myndlistarverk, beinast augu okkar ósjálfrátt að veggjunum, svo vön erum við þvi hefðbundna sýningarformi. Það kemur jafnvel fyrir að skúlptúrum, sem auðvitað er ætlað að sjást frá öllum sjónar- hornum, er ýtt upp að vegg þannig að ekki er hægt að ganga i kringum þá. Nú eru veggir vestursalarins auðir að mestu, fyrir utan myndröð Ólafs Lárussonar. önnur verk standa úti á gólfi og er þetta óneitanlega skemmti- leg tilbreyting því hið rúmgóða fjala- gólf býður upp á nýja möguleika og einhvern veginn virðist loftið margumtalaða ekki eins áleitið fyrir bragðið og dregur þvi minna frá verkunum. Sýningin er hingað komin fyrir tilstilli Sonju Heine og Niels Onstad safnsins „Hövikodden” i Noregi og Norræna menningarmálasjóðsins og hefur farið víða um Norðurlönd. Sú var tiðin að heimurinn þekkti Sonju Heine sem skautadrottningu og þar af leiðandi síðar kvikmyndastjörnu og lék hún m.a. í stórfurðulegri mynd sem hét „Iceland” sem ekkert tengdist Islandi, nema hvað hún gerðist víst mestöll á skautasvelli meö dönsum og gleðskap i Hollívúdd-stíl og örlitlum keim af Noregi. Upphaflega voru þessir fjórir samnorrænu listamenn Daninn Björn Nörgaard, Norðmaður- inn Viggo Andersen, Svíinn Anders Áberg og landi okkar, Ólafur Lárus- son, valdir á hinn þekkta Æaku- biennal í París árið 1977, en þangað er jafnan boðið þeim listamönnum sem ekki hafa náð 35 ára aldri og þykja standa framarlega á sviði nýlista. Eru það gagnrýnendur sem ráða valinu en ekki opinberar nefndir I hverju landi. Fjórar andstæður Hægra megin I salnum er verk Björns Nörgaard sem „blandað er á staðnum „úr hraungrýti, möl, gifsi og leir ásamt tiibúnum hlutum, svo sem húsgögnum, sjónvarpi og leirmunum ýmsum ásamt íslenskum póstkortum sem dreift er um verkið, væntanlega til þess að tengja það við lsland. Ekki man ég til þess að hafa séð póstkort úr Reykholti til að tengja verkið Snorra- Eddu sem listamaðurinn segir að sé hugkveikjan að þessu verki. Lista- maðurinn biður áhorfandann að taka ekki nema mátulega mikið mark á orðum sinum þar sem hann I sýningarskrá kynnir litillega hvernig verkið hefur orðið til og meginþræði þess en mælist til þess aö áhorfandinn treysti fyrst og fremst sínum eigin skilningarvitum, sem ætti reyndar að liggja í augum uppi. En það er nú svo að margur vill fá skýringar höfundar- ins eða einhverja leiðsögn um hvert maðurinn sé lað fara þegar áhorf- andinn sér ekki fídusinn í því. Bjöm Nörgaard segist hafa endur- lesið Snorra-Eddu og islenskar fornsögur og hefur orð á því að þær séu sneisafullar af myndum, og þurfti nú engann Dana til að segja okkur það, en erfitt er að fylgja manninum eftir þegar hann tengir Snorra-Eddu við kaffibolla sem tyllt er á hraun- grýti. Að vísu fer það ekki á milli mála að við erum mikil kaffiþjóð, án þess að það komi fram i Snorra-Eddu af augljósum ástæðum. Það hefði kannski verið forvitnilegra fyrir okkur íslendinga að sjá eitthvert annað verk eftir þennan gest okkar þar sem hann hefði beitt hæfileikum sínum við að vinna í umhverfi og að hugmynd sem hann þekkti betur en við. Ekki get ég neitað þvi að ólíkt athyglisverðara þótti mér verk Svíans Anders Áberg sem er gríðarstór líking af harmónikku, að mestu leyti gerð úr viði, klædd ýmsum efnum. „Hægt er að setjast inn í harmónikkuna og er hún þar hvítklædd og á hvita dúkinn eru skrifuð ljóð á sænsku sem vel hefði mátt þýða I sýningarskrá, ef ekki klæða nýjum dúki og skrifa þar íslenska þýðingu ljóðsins vegna þess að ljóðin auka við gildi verksins að mínum dómi. Fyrst hélt ég að mynd- listarmaðurinn væri lika Ijóðskáldið en sá i erlendu sýningarskránni að svo er ekki, heldur er ljóðið ort af öðrum Svia, og ennfremur er getið í skránni um tónlist sem annar hefur samið fyrir verkið, en sú tónlist heyrðist ekki í þau skipti sem ég kom inn á sýninguna, kannski hefur spólan gleymst heima. Viðurinn hefur löngum verið Svium hugleikið efni til listrænnar tjáningar og sú grein alþýðulistar sem náð hefur hvað mestum vinsældum þar I landi. Ofan á hinum stóra tréskúlptúr Anders Áberg, Töfraharmónikkunni, er landslag og í því stendur dæmigert rauðmálað sænskt tréhús sem getið er I ljóðinu, sem eru endurminningar frá barnæsku skáldsins, heldur dapurlegar. „1 viðarskúrnum við skógarjarðarinn stendur harmónikkan hans pabba ogá milli terpentinu- flasknanna á hillu hefur hann falið brennivínsflöskuna.” Húsið kemur heim við þá einmana- kennd sem gengur í gegnum Ijóðið þvi húsið stendur eitt sér og enginn úti nema drengur á hjóli. Hinu megin á harmónikkunni, aðeins sýni- legt þeim megin, er mexíkanskt þorp og það er þá væntanlega harmónikkan sem tengir þessa tvo heima saman. Ágætur myndlistarmaður stakk því að mér að þetta verk visaði . kannski til skáldskapar trúbadúrsins sænska, Everts Taube, sem flæktist sem sjómaður um öll heimshöf og orti m.a. um Mexikó, og spilaði á harmónikku og samdi ljóð og texta einsogÁsi okkari Bæ. Þá er ótalið verk Norðmannsins Viggo Andersen og læt ég hér fylgja ummæli hans um framlag hans til sýningarinnar, sem er i raun afmarkaður heimur innar veggja salarins: „Ég ákvað að byggja hér her- bergi, þegar ég hafði grandskoðað sýningarsalinn hér að Kjarvals- stöðum, þar eð ég sá að þau verk sem ég hafði áður sýnt á þessari sýningu mundu hreinlega hverfa í það gímald. En til að undirstrika sérkenni mins herbergis, þá byggi ég það á ská í salnum og þræði hvítan kaðal ennfremur niður i herbergið, en hann fylgir hlutföllum salarins og beinir auga áhorfandans strax að stöðu her- bergisins i salnum sem heild.” Landi okkar í þessum hópi er Ólafur Lárusson sem sýnir þarna ljósmyndir af fólki og athöfn og má segja að myndirnar leyni á sér því að í einfald- leika sinum býr í þeim Ijóðræn hugsun og heimspekileg hugvekja. Ólafur hefur sýnt með SÚM-hópnum og hefur sá hópur átt nokkra myndlistar- menn sem hafa kosið að nota mynda- vélina til að tjá ljóðrænar hugdettur sínar, koma mér þá i hug menn eins og Sigurður Guðmundsson og Hreinn Friðfinnsson, en allir yrkja þessir þrír menn hver með sinum hætti. Get ég ekki annað séð en að við megum vel una við framlag tslands á þessari farandsýningu og að Ólafur Lárusson komi ásamt Svianum sterkast út úr þessari sýningu. Vonandi tekur Ólafur það ekki illa upp hjá mér þó ég amist við ummælum hans á ensku i erlendu sýningarskránni, meðan hinir listamennimir tjá sig hver á sinu móðurmáli. Mér finnst það alltaf furðulegt þegar íslendingar bregða fyrir sig ensku í norrænu samhengi. Hefði ekki verið hægt að prenta textann á islensku með þýðingu á einhverju hinna Norðurlanda- málanna? Þessi nýstárlega sýning stendur fram til sunnudagsins 23. júlí. Hrafnhildur Schram í Verzlun Verzlun Verzlun J Spira Vaighi.B9.8Wr Verð kr. 55,000 JSb Sóf i og svef nbekkur f senn. íslenzkt hugverk og hönnun. Á.GUÐMUNDSS0N Húsgagnaverksmiflja Skemmuvegi 4. Simi 73100. Skrifstofu SKRIFBORD VönduÓ sterk skrifstofu skrif- borð i þrem stærðum. Verðfrá kr. 108.000 Á.GUÐMUNDSSON Húsgagnavorksmiflja Skommuvogi 4. Sími 73100. sniBm smm IsltuttHtqiiltiHninrii STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af stuðlum, hillum og skðpum, allt eftir þörfum á hverjum stað. SVERRIR HALLGRÍMSSON Smiðastofa h/i .Trönuhrauni 5. Sími 51745. ALTERNATORAR á/12/24volt í flesta bila og báta. VERÐ FRÁ 13.500. Amerfsk úrvalsvara.i — Póstsendum. Varahluta- og viðgerðaþjónusta. Rafmagnsvörur i bila og báta. BÍLARAF HF. Utanhússmálning Perma-Dri Þetta er olíulímmálning sem ekki flagnar né springur. Reynsla fyrir Perma-Dri á íslandi er 11 ára ending. Ath. að tveir litir eru til á gömlu verði og að allir litir eru á sama verði. Perma-Dri hentar mjög vel á allan stein, bárujárn, asbést, á hvers konar þök o.fl. og er í algjörum sérflokki hvað gæði snertir. Sigurður Pálsson byggingam., Kambsvegi 32 Reykjavík. Simar 34472 og 38414. Hollenska FAM ryksugan, endingargóð, öflug og ódýr, hefur allar klær úti við hreingerninguna. Verð aðeiifs43.100.- meðan birgðir endast. Staðgreiðsluafsláttur. HAUKUR & ÓLAFUR Ármúla 32 Sími 37700. STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550 Býöur úrval garðplantna og skrautrunna. Opiö virka daga: 9-12 og 13-19 sunnudaga lokaö Sendum um allt land. Sækiö sumariö til okkar og flytjiö það meö ykkur heim. FORSTOFU HÚSGÖGIM Vorð Itr. 100.900* Verð kr. 119.500 Á.GUÐMUNDSSON Húsgagnaverksmiðja, Skommuvogi 4 KöpavogL Simi 73100.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.