Skírnir - 01.01.1947, Blaðsíða 35
Lárus Sigurbjörnsson
Leikfélag andans
Þáttur úr menningarsögu Reykjavíkur.
1.
Lítið atvik kom fyrir í húsi í Reykjavík haustið 1861.
Það fannst seðill í húsinu, á glámbekk, með einhverju lítt
skiljanlegu kroti. Ekki er þess getið, hvað á seðli þessum
stóð, eins líklegt, að það hafi verið háskaleg fullyrðing
eins og: „Maðurinn er dýr í öllum skilningi orðsins“, laus-
leg athugasemd eins og: „Allt er þetta narraskapur", eða
hrein og bein fyrirsögn: „Samband ljóss og myrkurs“,
„Fegurðin“, „Ö1 er innri maður, öl er annar maður“. Eitt-
hvað hefur fólkinu í húsinu orðið starsýnt á seðilskömm-
ina, því að laugardaginn næstan á eftir er haft orð á þess-
um óskilaseðli á fundi í félagi einu í bænum. Þar er fært
til bókar, „að einn af seðlum þeim, er í félaginu hafa ver-
ið gefnir, hafi fundizt í vissu húsi í bænum, og gæti það
verið miður heppilegt, að þess konar seðlar flyttust út úr
félaginu“. — Þetta var raunar fundur í leynifélagi, og
leynifélagið hét „Leikfélag andans“, og það var stofnað
veturinn áður af nokkrum ungum mönnum, sem „hafa
fundið hjá sér þörf og löngun til að safnast saman ein-
stöku sinnum eftir dagsins erfiði til þess að lífga anda
sinn á þann hátt, er samboðinn sé andlega og siðferðis-
lega menntuðum ungmennum“. Seðillinn, sem í húsinu
fannst, var með umræðuefni í félaginu, og þetta laugar-
dagskveld er samþykkt að skila forseta félagsins öllum
slíkum seðlum í fundarlok, svo að almenningi berist ekki
njósn af félaginu þann veg.
Annað atvik sýnir, hve annt félagsmönnum var um, að
ekkert bærist út úr félaginu. Á vorfundi 1864 var rætt
um Ingólfsvarða, fyrr og síðar mikið áhugamál í félag-
3