Skírnir - 01.01.1957, Blaðsíða 261
Skírnir Ritfregnir 259
menntir og norræn fræði, fer vonsvikinn af fundi við prófessorinn i þess-
ari bók hans.
Málfar ritgerðanna er fallegt og tigið, gagnvandað; ódýr strengur aldrei
sleginn, og gætir þó hvergi tildurs eða of mikillar sundurgerðar. Þetta,
samfara spaklegri og djúpri hugsun, veldur því, að margar setningar bók-
arinnar verða spakmælum og orðskviðum líkastar að fegurð og mannviti.
Ég kann ekki að finna að þessari bók. Á henni eru sjálfsagt einhverjir
gallar eins og öðrum mannanna verkum, en ég held þeir gallar séu svo
gersamlega ofurliði bornir af kostunum, að þeir liggi sízt í augum uppi.
Við gamlir nemendur Einars Ólafs Sveinssonar eigum honum margt
að þakka. Við minnumst kennslustunda hans, lærdóms og Ijúfmennsku,
og þá ekki sizt, hvílíkur meistari hann var að prófa. Þar veit ég fáa
standa honum á sporði.
Nú eigum við einnig að þakka honum þessa góðu bók. Og ekki má það
minna vera en maður þakki fyrir sig.
Og öll þjóðin á hér góða gjöf að þakka. Ef hún les ekki og nemur því-
líkar bækur sem þessa, þá er hún illa fjarri þeim uppsprettum málfeg-
urðar, mannvits og fræða, sem henni er lífsnauðsyn að teyga af.
Gísli Jónsson.
Kennaratal á fslandi.
Þótt lesanda kunni að þykja fyrirsögn þessarar ritfregnar harla snubb-
ótt, getur hann ekki sakað höfund hennar um það. f bókinni er ekki getið
útgefanda, útgáfuárs, útgáfustaðar né höfundar. Þótt segja megi, að þessi
hæverska minni á Islendingasögur, get ég ekki dáðst að henni.
Af Kennaratali hafa þegar komið út tvö hefti í fjögra blaða broti. Nær
skráin yfir stafina A—f. Seinast er í seinna heftinu getið ísaks Jónssonar.
Hugmyndina að bókinni munu þeir hafa átt Ingimar Jóhannsson fulltrúi
og Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri, en Vilbergur Júlíusson kennari mun
hins vegar hafa komið því til leiðar, að Nemendasamband Kennaraskól-
ans átti frumkvæði að því, að í verkið var ráðizt. En auk Nemendasam-
bands Kennaraskólans eru Samband íslenzkra bamakennara og Lands-
samband framhaldsskólakennara aðiljar að útgáfunni. Sérstök nefnd hefir
skipulagt verkið, cg eiga þessir menn sæti í henni: Ólafur Þ. Kristjánsson,
Ingimar Jóhannsson, Guðmundur I. Guðjónsson og Vilbergur Júlíusson.
Nefndin hefir ráðið fyrirkomulagi öllu, en raunverulegur höfundur þessa
mikla verks er Ólafur Þ. Kristjánsson. Vilbergur Júliusson hefir safnað
myndum í siðara heftið, sem út er komið.
Á kápu Kennaratals er gerð nokkur grein fyrir því, hvernig efni þess
er takmarkað. Þar segir m. a. svo:
„Svo er til ætlazt, að í riti þessu verði æviágrip allra kennara hér á landi
frá því um 1800. Kennarar eru þeir taldir, sem stundað hafa eða stunda
kennslu við opinbera skóla, æðri sem lægri, hvernig sem námi þeirra eða