Tíminn - 21.11.1944, Qupperneq 6

Tíminn - 21.11.1944, Qupperneq 6
406 TfMEVTV, frrigjndaginn 21. n»v. 1944 98. Mað Sextngnr: Helgi Eiríksson Þórustöðum Helgi Eiríksson, bóndi á Þóru- stöðum í Kaupangssveit, varð sextugur 12. júli s. 1. Hann fæddist í Helgárseli I Öngulstaðahreppi ög ólst þar upp hjá foreldrum sínum og vann á búi þeirra fram undir tvítugsaldur. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jósefsdóttir og Eiríkur Jóhannesson, er lengi bjuggu í Helgárseli. Úr föðurgarði fluttist Helgi að Eyrarlandi til Einars Árnason- ar fyrrv. alþm. Skömmu síðar var hann einn vetur ' i Gagnfræðaskólanum á Akureyri, hvarf síðan heim í sveit sína, stundaði barna- kennslu í sjö vetur, en vann að öðru leyti á búi Einars. Árið 1913 kvæntist Helgi Hólmfríði Pálsdóttur á Þóru- stöðum, dóttur hjónanna Páls Jónssonar og Jónínu Guðmunds- dóttur, er þar bjuggu þá. Er Hólmfríður ágæt kona og mynd- arleg húsfreyja; enda er hún af góðu bergi brotin i báðar ættir. Þau hjónin hafa eignazt átta börn — fjórar dætur og fjóra sonu —, sem öll eru á lífi. — Tvær dæturnar eru innan ferm- ingaraldurs. — Tveir bræðranna eru gagnfræðingar og tveir stúd- entar, og er annar þeirra nú kennari í Gagnfræðaskólanum á Akureyri. Má af þessu marka nokkuð um hyggju þeirra hjóna og mann- dóm. Fyrstu búskaparár sín bjuggu þau hjónin á x/3 jarðarinnar Þórustaða, en síðar fengu þau hálfa jörðina til ábúðar, og hafa þau búið á þeim hlúta síð- an. — Brátt hófst Helgi handa um framkvæmdir. Reisti hann íbúð- arhús á jörðinni í félagi við mót- býlismann sinn og nafna, er giftur var Þuríði systur Hólm- fríðar, endurreisti peningshús, gerði túnasléttur og túnauka, svo að nú er tvöfölduð túnstærð. Fjármaður er Helgi góður og hefir nú í milli 10 og 20 ár haft fjárkynbótabú með nokkrum styrk frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar og Búnaðarfélagi íslands. Helgi er einn af stofnendum U. M. F. Árroðans í Kaupangs- sveit, er stofnað var árið 1907, og var hann um langt skeið i stjórn félagsins. Nú hefir hann látið stjórnarstörfin i hendur sér yngri manni, en var kjörinn heiðursfélagi Árroðans 1944. Skömmu eftir tvítugsaldur- inn átti Helgi þess auðveldan kost að gera verzlunarstörf að ævistariji sínu. Opin leið lá hon- Helgi Eiríksson, Þórustöðum. um og til annarra starfa í kaup- stað. ikeiri auðsvon var þá vissulega í þeim garði búlausum manni með tvær hendur tómar en í kaupavinnu í sveit á sumr- um og við barnakennslu á vetr- um. En Helgi var ekki á tveim áttum um starfsval. Sveitin átti allan hug hans. Þaðan var hann upprunninn. Þar hafði ættstofninn staðið. Á þeim vett- vangi vildi hann starfa. Gott er Helga heim að sækja. Hann er maður gestrisinn og greiðvikinn, drengur góður og glaðlyndur svo að af ber. Kann hann á mörgu góð skil, því að hann les mikið og á.gott bóka- safn. Vinsæll er Helgi mjög, eins og sjá mátti á sextugsafmæli hans. Heimsótti hann þá fjöldi manns. Ættingjar og vinir færðu honum góðar gjafir. U. M. F. Árroðinn fylkti liði heim til hans með heillaóskir og gjöf sem þakklæt- isvott fyrir langt og gott starf í þágu félagsins. Ræður voru fluttar afmáelisbarninu og sung- ið. — Var öllum gestum veitt af rausn þeirra hjóna og fagnað hið bezta. Vinir Helga vænta þess og óska, að hann megi enn um langt skeið starfa að búi sínu og áhugamálum og vera áfram öfl- ugur 'Styrktarmaður allri menn- ingarlegri starfsemi sveitar sinnar og héraðs. E. Þ. ILand framtíðar- innar kallar. (Framhald af 4. síðuj búnaðarskilyrðum óg geta lagt miörgum þúsundum fólks til þær landbúnaðarvörur, sem þarf að framleiða skammt frá neyzlustað. Það er atriði, sem líka á að gefa gaum í þessu sambandi. Það er skylt að gæta þess. Það er staðreynd, að á Vest- fjörðum eru verðmæt jarðefni. Menn getur greint á um það, hversu mörg þeirra svari kostn- aði að vinna. Hitt er þó stað- reynd, að undanfarið hefir verið unnin kolsýra og kalk úr vest- firzkum jarðefnum. Sú vinnsla fer ekki fram á Vestfjörðum, heldur austur á Akureyri, af því, að það er kostur á raforku. Skipsfarmur eftir skipsfarm en fluttur þangað frá Vestfjörðum og hálfum farminum kastað sem úrgangsefnum að vinnslu lokinni. Menn géta litið á þetta sem einsdæmi á iðnaðarsviðinu, ef þeir erú trúlausir á frekari vinnslu vestfirzkra efna, og þarf þó hörð bein til. En jafnvel tJó að menn gerðu það, er þetta dæmisaga, sem er sönn mynd af því, sem á sér stað um fiski- veiðarnar. Sandurinn er tekinn óunninn í fjörunum og fluttur langt í burtu til vinnslu. Fisk- urinn er veiddur úti fyrir fjörð- unum og fluttur óunninn langt í burtu fram hjá höfnum þeirra. Þar er líka séilst um þvert bak. Vestfirðir eiga margt duglegra sjómanna, góða iðnaðarmenn og dugandi útvegsmenn. AlJLt þetta fólk bíður rafmagnsins. Það er fullvíst, að ef rafmagnsmálið yrði leyst myndi atvinnnulíf- héraðsins blómgast mjög af sjálfu sér, án frekari aðgjörða ríkisvaldsins. Raforkan á Vest- fjörðum hlyti að skapa atvinnu og góð afkomuskilyrði fyrir þús- undir manna. Því er það þjóð- arnauðsyn, sem hér kallar að. Land framtíðarinnar kallar. Á að trjla því, að nokkur dauf- heyrist við því kalli? tiii ... I FREMSTU LINU! O Tryggið skip yðar, veiðarfæri og farnn hjá „SJÓVÁ" Sjóvátnjqqiiqarfélaq íslandsi Til auglýsenda Þcir, sem ætla að auglýsa í jólablaðl Tímans, eru vinsamlega beðnir að senda auglýsingarnar hið allra fyrsta. Samþykktir bygging'a- málaráðstefnunnar. (Framhald af 4. síðu) e: Athugun sé gerð á iðnlög- gjöf, samningum um nema- fjölda, og öðrum þeim atriðum, sem ætla mætti að gætu tor veldað, að nægilegt vinnuafl verði til þeirra stórfelldu bygg- ingarframkvæmda, sem gera má ráð fyrir að stríðinu loknu.“ Ennfremur var þessi tillaga samþykkt: „1. Þegar sé hafizt handa með víðtækari rannsóknir en orðið er, sem skeri úr um alhliða gildi byggingarefna,, sem notuð eru eða líkleg eru til notkunar víð húsagerð hér á landi. 2. Að þegar sé hafið mat eða flokkun á byggingarefnum er- lendum sem innlendum. 3. Að settar verði reglur um lágmarkskröfur um blöndun sements í efni til bygginga, bæði með tilliti til burðarþols og ein angrunar, um efnisval sands og malar, vikurs, gjalls, reiðings- torfs til húsagerðar, sements, kalks, og gibs, um húsaplötur, béttiefni í sementshúðun, máln ingu og önnur byggingarefni, er geta haft afgerandi úrslit um verð og gæði húsa. 4. Að rannsakað verði gaum- gæfilega hvers konar hitunar tæki gefist bezt, og hvers konar eldsneyti sé hagkvæmast til notkunar með tilliti til stað hátta. 5. Rannsakað sé nú þegar með rðstoð Atvinudeildar Háskólans, istand nokkurra húsa, eldri og yngri af ýmsum gerðum, með tilliti til hollustu, stofn- og reksturskostnaðar. 6. Öllum sé heimil rannsókn byggingarefna eða húsa, að fengnu áliti nefndar, er skipa 5kal 1 þeésu augnamiði, helzt af A.lþingi.“ Þá var rætt um næstu bygg ingarmálaráðstefnu og lagt til, að hún yrði haldin snemma á irinu 1946. Þess var farið á leit við iðnaðarmálaráðherra, að hann fæli sjö manna nefnd áð undirbúa ráðstefnuna og yrði nefndin þannig skipuð, að full- trúar helztu stéttasamtakanna, er þessi inál varða, ættu sæti í henni. í HAUST var mér undirrituð- um dregið hvítt hrútlamb með mínu marki: Stýft hálftaf fram- an hægra. Lamb þetta á ég ekki. Réttur eigandi vitji andvirðis þess til mín og semji við mig um markið. Guffmundur Jónsson, Harðarbóli, Dalasýslu. Uiidirföt, & TVáttkjólar, Náttjakkar. 11. Toft Skólávörffustíg 5. Sími 1035. Jarpt merhryssi veturgamalt, mark: tvístýft aft- an vinstra„er í óskilum á Set- bergi við Hafnarfjörð. Simi 9221. Sambund ísl. samvinnufélaga. SAMVINNAN er komin út. * Flytur hún m. a. eftirfarandi greinar: Sannir samvinnumenn, eftir Jónas Jónsson. Fimm hús, eftir Þóri Baldvinsson. Samvinnufræðsla, eftir Hjört Hjartar. Meiri almenn fræðsla um samvinnumál, eftir Friðjón Stefánsson. .. Samvinnan er málgagn samvinnuhreyfingar- innar. — Kaupiff hana og lesiff. Gott útíhurðaeíní (Albarco). Cellotex-þilplötur. Asbest-ceineutsplötur. Steindur þakpappi (rauður og grænn) fyrirliggjandi. Jón Loftsson h. S. Stnlkiir óskast til fiskflökunar eftir áramótin. Hátt kaup. Frítt húsnæði. Hraðírystístöð Vestmannacyja Sími 3. ^ Vlnnið ötullega fyrir Tímann. §paðkjötið er koiiiid Kútar kosta kr. 175,00 Hálftunnur — — 326,00 —■ / i Héiltunnur — — 690,00 Samband ísL samvinnufélaga Sími 1080. Ilélskóílan h.i. Höiðatún 2. Sími5652 Tökum að oss alls konar t jarðvinnu. Til alls konar mannvirkja- framkvæmda leigjum vér vélar, svo sem: Vélskóílur, Loitbora, Steypublöndunarvélar, Vatnsdælur o. ÍL 011um fyrirspurnum svarað um hæl. I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.