Tíminn - 05.01.1945, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.01.1945, Blaðsíða 5
1. blað 5 Reykjavík, iöstndagmn 5. jan. 1945 lJm þetta leyi fi/rir 60 árum: Vilhelm M.oberg: Hoffmannsveðríð 1884 Eitt hið mesta og fáránlegasta slysadægur, sem komið hefir yf- ir sjómenn á Faxaflóa, var nótt- in milli 7. og 8. janúar 1884. Þá hurfu í hafið þrír tugir hinna vöskustu manna. Það var þá, sem hið mikla skáld, Matthías Jochumsson, orti, er hann leit yfir valinn: Faldar nú verða feigum höfðum beztu drengja byggðar vorrar; liristur sárgrimmur súða-bani hvikri um koil kjalar-vöggu. Æðir ósjór, öldur stríða heimi mót, lirynja faldar; vini vora í vota gröf dregur dröfn deyjandi sjálf. Svo er allt kyrrt, og sólin kyssir ástarblíð Ægis vanga; svo er allt kyrrt, í sömu andrá faðmast höggdofa himinn og sjár. Er skýrt er frá þessum vá- lega atburði, er fyrst að nefná til sögu mann þann, er Pétur hét Hoffmann. Hann var bú- settur á Akranesi, en ættaður af Snæfellsnesi, ungur maður og áræðinn og mjög harðfengur formaður. Hafði veður verið heldur umhleypingasamt um hátíðirnar þetta haust, en eigi að síður hafði Pétur tvívegis farið í hákarlaróður eftir nýár og aflað mjög vel. Er sagt að há- setahlutur hafi numið sem svar- aði 50 krónum í bæði skiptin, og var það engin smáræðis-upphæð i þá daga. Eins og nærri má geta flaug fiskisagan, og mun öðrum dug- miklum sjómönnum á þessum slóðum hafa þótt súrt í broti að hafast ekki að, þegar Pétur og menn hans mokuðu upp verð- mætum úr sjónum. Munu slíkir hákarlaróðrar þá hafa verið stöku sinnum tíðkað- ir af Akranesi um 25 ára skeið. En það telja fróðir menn' að fyrstur tæki upp þá venju Pétur Ottesen (afi Péturs alþingis- manns), er fluttist að Ytra- Hólmi um 1860. Að morgni hins 7. janúar var veður ágætt, en útlit þó iskyggi- legt. Er í frásögur fært, hve loft- þyngdarmælir stóð illa í Reykja- vík og hefði engum manni, sem til slíkra hluta þekkti, dottið í hug að fara á sjó þennan morg- un. En í þá daga var slíkum tækjum ekki til að dreifa í eigu sjómanna. Þennan óhappamorgun var þrem skipum ýtt úr vör á Akra- nesi. Fór fyrstur á sjó Ólafur Bjarnason á Litla-Teigi, á skipi, er „Hafrenningur" hét, með völdu liði. Þegar á eftir honum fór Pétur Hoffmann á sínu skipi með ellefu hina dáðrökkustu menn, og nokkru síðar Þórður Guðmundsson á Háteigi við sjö- unda mann. Voru á þessum skipum öllum hið bezta lið, ungir menn og harðfengir og sumir hinir mestu víkingar. Sunnan af nesjum fóru tvö skip. Var annað frá Hliði á Álftanesi og stýrði því Þórður Þórðarson, bóndi þar, ungur maður og stórhuga. Þeir voru ellefu saman, hinir vöskustu drengir. Hitt skipið var af Sel- tjarnarnesi og stýrði því Þórð- ur í Ráðagerði, hinn kunni for- maður og útvegsbóndi. í liði hans var einn, Ólafur bóndi og formaður í Bygggarði, er al- kunnur var á sinni tíð, sökum þess, hve afburða veðurglöggur hann var. Alls voru þeir níu. Nú segir ekki af ferðum skipa þessara, unz þau koma á há- karlamiðin. Magnaðist brátt blika í loöij, þótt veður héldist gott, og kemur þar, að Ólafur í Bygggarði reis upp og kveður ráðlegast að draga upp stjóra og hraða sér til lands, ef ekki ætti ver að fara. Þórður formaður vékst seinlega við þessu kvaðst Ólafur þá skera á stjórafærið, ef ráðum sínum sé ekki tafar- laust hlýtt. Var þá farið að vilja hans, enda öllum kunnugt, hve skyggn hann var á veður. Var heimróðurinn sóttur fast, og voru þeir komnir í landvar við Seltjarnarnes, er fárviðri mikið af suðaustri eða austri skall á. Komust þeir því heiíu og höldnu til lands. Akranesbátarnir þrír voru ná- lægir hver öðrum á hákarla- miðunum. Milli klukkan 5 og 6 um daginn tók Þórður á Há- teigi sig upp, enda var þá meira en sýnilegt, að voðaveður var að detta á. Nokkru síðar fór Pétur Hoffmann að dæmi hans, en Ól- afur á Litla-Teigi var þaul- sætnastur. Munaði þó litlu milli þeirra. - Er þeir Pétur og Ólafur voru nýlagðir af stað, skall á aftaka- veður. Urðu þeir þegar viðskila í hafróti og myrkri. Er síðan enginn til frásagnar um félaga hans, hina vösku drengi, né bar- áttu þeirra, sem vafalaust .hefir verið hörð. Ólafur formaður sá nú brátt, að engin tiltök voru að ná Akra- nesi í því veðri er var. Lét hann hafa uppi þau segl, er nauðsyn krafði til þess að báturinn léti að stjórn, og sigldi hæsta vind i átt til lands. Var veðrið hið ægilegasta, og munu flestir, sem þá voru á „Hafrenningnum" hafa það ætlað, að nú væri skammt ólifað. Samt æðraðist enginn. ájór var mjög vondur, en samt tókst formanni lengi vel að verja skip sitt áföllum, enda var hann dugmikill sjómaður og snjall stjórnari. En þar Som þó, að alda mikil reið yfir skipið. Tók út mann þann, er í stafni var, og spratt Ólafur þá upp. En í sama bili skaut þeim, er í sjó- inn hafði hrotið, upp rétt við borðstokkinn. Sá maður, er hét Sigvaldi Halldórsson, sat í aftur- rúmi. Hann þreif manninn um leið og honum skaut upp og (Framhalá á 7. síöu) Eiginkona FRAMHALD um um, og hann hafði þráð það svo ákaft, að hann hafði náð til hennar og látið sál hennar skjálfa í sælum unaði. Ef karlmaður hafði nokkurn tíma látið blítt að konu, þá var það hún. Hákon kom út úr myrkrinu.Og hún minntist eins a'f hin- um ljótu draumum.'sem hana hafði dreymt hvað eftir annað, aðeins í örlítið breyttri mynd: Hún hefir hleypt ókunnugum manni inn í bæinn. Hún skilur ekki, að hennl skyld’i detta í hug að gera það. Svo getur hún ekki komið honum út aftur. Maðurinn er ógn- legur og hættulegur, hún er dauðhrædd. Og hún hrópar á Pál og biður hann að koma og hjálpa sér; hún sér auðvitað, að gesturinn getur ráðizt á hana og tekið hana með valdi, hvenær sem vera skal. Páll kemur ekki, og hún æpir og ber honum á brýn, að hann heyri aldrei til hennar, þegar hún þarfnist hans mest. Nú getur hún náttúrlega ekki losnað við þennan ókunna mann, hún verður tekin nauðug .... En hún. vaknaði vanalega, þegar skelfingin hafði náð hámarki sínu. Og í gær hafði hún orðið hrædd við mann, sem hún þóttist ekki kannast við, og hún hafði einmitt verið komin á fremsta hlunn með að kalla á Pál, er hún komst að raun um, að þetta var ekki ókunnugur maður. Það kom ekki alveg heim við drauminn. Hákon hafði gengið fáein skref við hliðina á henni. Hún fann enn, hvernig mjöðmin á honum straukst við mjöðmina á henni, snerting fingurgómanna brann enn á handlegg hennar. Hvernig gat þetta átt sér stað — svona löngu seinna? Það er hrifmáttur karlmannsins, sem Margrét hefir nú fundið í fyrsta skipti. Vitaskuld hefir hún komið nálægt karlmanni áður, en hún hefir ekki skynjað það á þennan hátt. Og hún minnist þess, að svona hefir henni verið innan brjósts einu sinni áður, þótt óljósara væri. Maður tekur glóðarmola milli íingranna, en sleppir honum aftur, áður en hann nær að brenna. Á eftir dálítið eirðarleysi — þannig hafði henni verið innan brjósts. Hún hafði ekki hugsað um þessar kenndir né krafið sjálfa sig sagna um það, hvernig á þeim stóð. Nú veit hún í návist hvers hún varð þeirra vör. Karlmaður hefir snert hana í bæði skiptin, sem þetta kom yfir hana. Og nú er það komið á daginn, að hún hefir uppgötvað, hver þessi maður er. Og af því stafar það, að þessi morgunn er öðru vísi en'aðrir morgnar. * Margrét minnist þess líka, hver það er, sem verið hefir dag- legur gestur á þessum bæ. Páll leitaði eftir félagsskap Hákonar, og honum þóttu heim- sóknir hans góðar. Páli veittist torvelt að afla sér vinfengis hinna bændanna; í Hegralækjarþorpi var ekki þotið upp til handa og fóta og allar gáttir opnaðar strax og maður flutti þangað. Það var fyrst þrautreynt í langan tíma, hvers konar maður hann var. En Hákon var auðlaðaðri en hinir. Hann kom, án þess að hann væri beðinn um það — já, meira að segja oft smáerinda, sem hann hefði getað látið vinnukonuna reka ryrir sig. Hann rölti ekki framhjá, tortrygginn og þumbara- legur. Páll virti það við Hákon og neitaði honum aldrei um greiða, ef honum lá á. . Hann hafði rætt við konu sína um Ingjaldana og ætt þeirra, sem hafði verið rík, tign og alþekkt, jafnvel í Dynjandasóknum. Afi Hákonar reið sjaldan út úr byggðinni, nema láta vinnumann íylgja sér. Sonarsonur hans í Hegralækjarþorpi átti að sönnu býli, en þar var hvorki vinnumaður né hestur. Og gamall ætt- ingi hans flakkaði bæ frá bæ. Ingjöldunum var engin virðing veitt framar. Leti, drykkjufýsn og léttúð höfðu rænt þá eignum og áliti. Og Páll sá, að það var ekki þessi rétta taug í Hákoni. Hann var ekki samhaldssamur og þreyttist fljótt, ef eitthvað blés í fangið. En Hákon Ingjaldsson var Páli viðkunnanlegur félagi, því að hann kunni bæði að hlusta og tala sjálfur; en for- sjáll bóndi var hann ekki. En óhöpp, sem ekki er hæga að sneiða hjá, bera að höndum; í vetur var stolið alisvíni frá Hákoni. Og svo kom hann einn morguninn og sagði frá því, að hann hefði komið að einni kúnni sinni dauðri á básnum. Yngstu og beztu kúnni — kú 'að fjórða kálfi. Nú átti hann ekki eftir nema tvær kýr í fjósinu, og hvorug þeirra var mjólkandi. Hann var að koma frá því að draga belju- skrokkinn út í skóg og grafa hann. Hvernig er bónda innan brjósts, þegar hann er að gráfa grip? Páll veit það, því að hann hefir einu sinni misst uxa. Og hann vorkenndi Hákoni. Hann sagði: — Það er þó skárra en ekki, að sútarinn kaupir húðina. Hákon leit upp. Húðina! Svo sannarlega hefði hann gleymt að flá sjálfdauða kúna. Hann hafði gleymt því í gremju sinni mannskaði orðinn, er Ólafur var látinn í blóma lífsins. Ólafur Thorlacius var kvænt- ur Guðrúnu Oddsdóttur Hjalta- lín, og áttu þau tvo syni, Árna og Ólaf. Árni gerðist skipstjóri og útgerðarmaður, er honum óx aldur. Settist hann að í Stykkis- hólmi, og kemur þar mjög við sögu. Ólafur kvæntist Helgu Sigmundsdóttur frá Akureyjum, átti með henni nokkur börn, en dó á bezta aldri. Sonur hans var Ólafur A. Ó. Thorlacius, sem skipstjórapróf tók í Danmörku og varð loks útgerðarmaður á Bíldudal. Guðrún Thorlacius tók við miklum auði eftir mann sinn, jafnvel þótt fullyrt væri, að Ól- afur hefði tapað ógrynni fjár við bankahrunið í Kaupmannahöfn 1814. Mun dánarbúið hafa veri$ hið stærsta, sem þekkzt hefir á íslandi um langan aldur. Gerð- ist Bogi Benediktsson, síðar bóndi og fræðaþulur að Staðar- felli, forstjóri Bíldudalsverzlun- ar og fjárhaldsmaður bræðr- anna, sem báðir voru ungir og ómyndugir.Sögðu skæðar tungur að Bogi hefði naumast komið svo hreint fram í þeim málum sem skyldi. Hann var vændur um á- gengni og fjárdrátt og átti að hafa auðgazt drjúgum sjálfur, en síðar hugsað um velferð bús- ins. Lauk ráðsmennsku hans á þann veg, að hafin voru gegn honum hið víðtækustu mála- ferli. Sættir tókust þó að lokum Ineð þeim hætti, að Bogi greiddi þeim bræðrum, Ólafi og- Árna, ríflega fjárupphæð til að sleppa við lögsókn af þeirra hálfu. Þótti hann komast furðanlega úr klandri þessu, svo hæpinn sem málstaðurinn var, og var það einkum eignað Bjarna amt- manni Thorarensen, tengdasyni Boga. Guðrún Thorlacius sat tólf ár í ekkjudómi. Þá giftist hún Þor- leifi skipherra Jónssyni, sem áð- ur er nefndur. Um sama leyti tók hann við verzluninni á Bíldu dal, en hætti skipstjórn. Varð hann brátt framkvæmdamaður mikill, og rak útgerð opinna báta og þilskipa í allstórum stíl. yfir skaðanum. Hann hafði grafið skrokkinn eins og hann kom fyrir. Páll starði á hann, alveg orðlaus. Þarna sá hann, hve mikill búmaður Hákon var! En hann hefði þó að minnsta kosti átt að vera svo viti borinn að flá kúna. Hann hefði fengið tuttugu dali fyrir húðina. Og honum veitti ekki af því að halda utan að sínu. — Grafðu kúna upp! Nei, Hákon þekktist ekki heldur holl ráð. Það, sem einu sinni var komið niður í jörðina, það átti að fá að vera í friði og liggja þar, sem það var komið. Hvaða máli skipti um eina beljuhúð, þegar hann hafði tapað svona miklu? Sá, sem tók hina góðu mjólkurkú, gat þá eins vel hirt hana með húðinni á. Páll hristi höfuðið: Sá, sem svona talar, á hvorki gripi né jörð til lengdar. Hákon er ekki natinn við það að sjá heimili sínu farborða — hvernig var þá von, að honum farnaðist vel? Nú bað Hákon Pál að selja sér hálfpott af mjólk kvölds og morgna, því að hann fékk ekki dropa mjólkur úr sínu fjósi. Á morgnana sendi hann Elínu eftir mjólkinni, en á kvöldin .kom hann sjálfur. Bóndi, sem kaupir mjólk af öðrum — Páll vor- kenndi honum, þegar hann kom með skál sína. En honum mis- líkar líka atferli Hákonar: að hann skuli gefa sér tíma til þess að sinna svona snatti! Hann hefði heldur átt að brauka klukku- stund lengur á akrinum á kvöldin. Hákon sér ekki, hvað honum er hagkvæmast. Margrét hellir mólkinni vel mældri í skál hans, og Páll lætur sér vel líka, að hann fái rífan hálfpott. Sá bóndi í þorpinu, sem fyrstur vlldi gerast vinur hans, skal sannarlega njóta þess. Páll gefur gaum að og lætur sér annt um allt, sem verðmætt er, en granna, sem vill koma á heimili hans, ann hans þessa vel. Saqa barnanna: JÚLLl OG DtJFA Eitir JÓN SVEIWSSON. Freysteinn Gunnarsson pýddi I. UPPI í SVEIT. Á kvöldin fórum við oft í fjósið með mjaltastúlkun- um, horfðum á kýrnar éta, strukum þeim og klöpp- uðum og töldum þær á básunum. Þær voru allar svo meinlausar og vinalegar við okkur. Og þegar mjöltun- um var lokið, fengum við vænan sopa af spenvolgri ný- mjólkinni. Stundum fórum við líka með sauðamanni í eitt af fjárhúsunum. Þau voru kippkorn frá bænum og öll gríð- arstór, tóku yfir hundrað fjár hvert. Þar fengum við að hlaupa um kring og fara í felu- leik innan um dauðspakar sauðkindurnar. Það þótti okkur fjarskalega gaman. En margt fleira höfðum við fyrir stafni í fjárhúsunum. Stundum klifruðum við upp í garðann, sem lá eftir fjárhúsinu miðju og endilöngu. Hann var víst í kringum fjörutíu álnir á lengd. Þaðan sáum við allt féð í tveimur löngum röðum. Og kindurnar horfðu líka á okkur stór- um augum; yfir tvö hundruð augu störðu á okkur í einu. Þaðan hlupum við svo í einum spretti inn í heyhlöð- una; dyrnar á henni voru við endann á garðanum. Það var dimmt inni, og þar grófum við okkur niður í ilmandi heyið eða hlupum þar fram og aftur, fleygðum flyksum hvert í annað og ærsluðumst, þangað til sauða- maðurinn kallaði á okkur. Nú ætlaði hann að fara að gefa fénu, og það var ekki minnst^gamanið að horfa á þáð. Eins og örskot þutum við upp úr hlöðunni og fram endilangan garðinn. Kindurnar stóðu tilbúnar í tveimur löngum röðum, sitt hvorum megin við garðann, þær teygðu fram höf- uðin, þefuðu af okkur og bitu jafnvel fötin okkar, því að nú var heylykt af þeim, og það vakti löngun þeirra í ókkur. Við urðum að gæta okkar, svo að þær ætu okkur ekki, því að sumar spöruðu ekki tennurnar á okkur. Þegar lokið var að gefa, var lagt af stað heim í myrkr- inu, og réð þá sauðamaður ferðinni. Hann hafði ljósker í hendi, og fylgdum við honum fast eftir. Stundum þurfti hann þó ekki ljós, þá var svo bjart af norðurljósum, eins og um hádag væri; Þegar heim kom, hlupum við alltaf beint inn 1 bað- stofu, þar sem fólkið sat við vinnu sína, og einn var að lesa sögu eða kveða rímur. En því miður var okkur oft skipað í rúmið, áður en hætt var við söguna eða rímnakveðskapinn. Og þeirri skipun hlýddum við ekki með glöðu geði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.