Tíminn - 05.01.1945, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.01.1945, Blaðsíða 8
Þeir, sem tnlja Uynna sér þfóðfélagsmál, tftn- Iend o?jf útlend, þurfa að lesa Ðatfshrá. 5. JAN. 1945 1. blað Algert öngþveitl . . . (Frarr\hald af 1. síðu) hafa leigt færeysk skip til flutninga, en enn er þó eftir að fá leyfi færeyska lögþingsins fyrlr þeirri leigu. Hefði vissulega ekki veitt af því, að séstakur sendimaður hefði farið til Fær- eyja til samninga um þetta mál, ,en stjórninni hefir láðst það eins og annað. Loks hefir svo stjórnin látið gera skrá um þau skip, sem nota mætti til flutninga, en alveg er eftir að tryggja leigu þeirra. Þannig er þetta mál enn í fullkomnu hálf- káki, þegar vertíðin er að hefj- ast og flutningaskipin þyrftu að vera tilbúin. Ábyrgðin á Faxaflóa- fiskmum. Það eina jákvæða, sem stjórn- in hefir gert í þessum málum, er að láta Fiskimálanefnd bjóða útvegsmönnum við Faxaflóa að annast fyrir þá útflutning ísfisks og greiða fyrir hann sama verð og í fyrra meðan núverandi hámarksverð helst í Bretlandi, og svo uppbót, ef gróði verður á flutningunum. Á Austfjörð- um, í Vestmannaeyjum 'og á ísa- firði er ætlaát til að samlög út- gerðarmanna annist flutninginn sjálf, án nokkurrar þeirrar verð- tryggingar, sem stjórnin hefir boðið útgerðarmönnum við Faxaflóa. Fyrir öllum öðrum ver- stöðvum hefir ekkert verið hugs- að. Hejmann Jónasson sagði í umræðunum, að hann skyldi síður en svo mótmæla því, að útgerðarmenn og sjómenn þyrftu sama fiskverð og í fyrra. En það væru alveg ný vinnubrögð af ríkjsstjórninni að bjóða slíka ábyrgð, án samráðs við þingið, því aþ hún skapaði mikla á- hættu fyrir ríkið, þar sem eng- in vissa*yæri um hagstæða sölu í Bretlandi. Þar í landi væri uppboðsverð á fiski og verðlagið færi því alveg eftir eftirspurn- inni, sem enginn gæti sagt um fyrirfram hver yrði. Þótt Norð- firðingum hefði heppnast þetta vel í fyrra, gæti enginn sagt um, hvernig það yrði í ár. Það væri líka alveg óhjákvæmileg afleið- ing, ef nokkrum hluta smáút- gerðarinnar væri boðin verð- trygging, yrði að veita allri smá- útgerðinni hana. Annað væri óþolandi misrétti. En þegar til þess væri komið, að veita allri smáútgerðinni slíka verðtrygg- ingu, og hún þyrfti hennar líka með, þá sæu menn bezt í hvílíkt öngþveiti fjárhags- og dýrtíð- armálunum væri komið. í umræðunum upplýstist, að þetta tilboð ríkisstjólrnarinnar hefði verið gert í eins konar samkeppni við Landsisamband útvegsmanna, er hefði viljað taka að sér fiskflutningana við Faxaflóa. Lúðvík Jósefsson upp- lýsti ennfremur, að tilboð ríkis- stjórnarinnar væri eingöngu miðað við að flytja út fisk eftir því, sem skip fengjust, og yrði því óvíst, að Fiskimálanefnd gæti flutt út, nema lítinn hluta Faxaflóaaflans. Hitt yrðu út- vegsmenn að láta i frystihús, salta eða sjá fyrir á annan hátt. Fór vissulega mesti glansinn af þessari samkeppni ríkisstjórnar- innar við Landssamband útvegs- manna, þegar þetta upplýstist. Það, scm þnrfti að gera. Eins og hér hefir verið lýst, einkennast störf ríkisstjórnar- inar í þessum málum af sinnu- leysi og seinlæti, nema þegar rokið er til að keppa við samtök útvegsmanna, en þá eru í óða- goti gerð glæsileg boð, sem síð- an er svo upplýst, að ekki verði sennilega staðið við nema að takmörkuðu leyti, og með þess- um boðum er útvegsmönnum og fiskimönnum algerlega mis- munað, þar sem þeim er sums staðar heitið verðtryggingu, en annars staðar ekki. — Allt þetta sýnir, hve stjórnin er fullkom- lega ófær til að fást við þessi mál. Það, sem átti að gera, var þetta: Senða 6trax sendimenn til Bretlands, þegar kunnugt varð tR BÆIVUM Skemmtanir. Framsóknarfélögin í Reykjavík höfðu skemmtisamkomu í Sýningaskálanum milli jóla og nýárs. Var jólatrésfagn- aður fyrir börn að deginum en ein- 'söngUr (Guðrún Ágústsdóttir), upp- lestur, almennur söngur og dans fyrii- fullorðna að kvöldinu. Ánægjuleg sam- koma eins og samkomur Framsóknar- manna eru þekktar fyrir að vera — Næsta skemmtisamkoma (Framsóknar- vist þá) verður 19. þ. m. Þrjár bækur Nýlega komu á bókamarkað- inn frá ísafoldarprentsmiðju, þrjár nýjar bækur eftir íslenzka höfunda. Bækurnar eru: Smá- sagna safn eftir Guðmund Dan- lelsson skáld frá Guttarmshaga, er hann nefnir Heldri menn á húsgangi. í bókinni eru 12 smá- sögur, hver annarri snjallari. Bókin er um 240 bls. að stærð. Þetta er fyrsta smásagna safn- ið, er Guðmundur lætur frá sér fara, en áður hefir hann gefið út 7 stórar skáldsögur og eina kvæðabók. Hann er því orðinn einn af mikilvirkustu rithöfund- um okkar. 1 Hafið bláa, skáldsaga eftir Sigurð^Helgason. Eftir hann hafa áður komið út 4 bækur, frum- samdar. Sigurður er talinn efni- legur rithöfundur. Hann velur söguefni sín úr lífi alþýðufólks á íslandi.'Bókin er um 240 bls. að stærð. Þriðja bókin er Frá yztu nesj- um, vestfirzkir sagnaþœttir, er Gils Guðmundsson hefir skráð og safnað. Eins og kunnugt er, þá er Gils einn þeirra manna, er mest fást við söfnun og skrán- ingu þjóðlegra fræða. Bókin er um 190 bls. að stærð og prýdd nokkrum myndum af söguhetj- um og sögustöðum. Þessi bók er annað hefti sagnaþátta með þessu nafni. Er það ætlunin, að í framtíðinni verði „Frá yztu nesjum" timarit fyrir alls konar vestfirzkan fróðleik og komi út einu sinni á ári. í hverju hefti munu venjulega verða fimm flokkar, saga vestfirzks höfuð- bóls, vestfirzk ættfræði, ævi- söguþættir, úr eldri handritum og loks alþýðukveðskapur. ♦ um uppsögn fisksölusaming- anna, og fá sem fyrst endanleg- ar niðurstöður. Sérstaka áherzlu bar að leggja á sölu hraðfrysta fisksins og saltfisksins og að Bretar leigáu skip til ísfisks- flutn^nga, ef þeir vildu ekki kaupa fiskinn hér áfram. Vinna að stofnun fisksölusam- laga á þeim stöðum, þar sem þau voru ekki fyrir, og styðja þau til að annast útflutninginn. Setja lög um leigunám flutn- ingaskipa og hámarksleigu og fela Fiskifélaginu að skipta þeim milli útgerðarstaðanna. Reyna jafnframt eftir megni að útvega erlend skip til flutn- inganna. / Gera sérstakar ráðstafanir til að tryggja afkomu útvegsins á þeim sjöðum, sem lakast eru settir. Allt þetta hefir verið van- rækt. Hinir miklu möguleikar til að koma nú á víðtækum sam- tökum útvegsmanna um fisksöl- una, hafa verið látnir óhagnýtt- ir. Það hefir meira að segja sums staðar verið farið í sam- keppni við útvegsmenn, þar sem þeir hafa reynt að skipuleggja útflutninginn, í stað þess að reyna að koma þessum samtök- um á réttan grundvöll, ef honum hefir í fyrstu verið ábótavant. Annars er það,-sem nú er að gerast í þessum málum, gleggsta sönnun þess að knýjandi nauð- syn ber til að snúa sér að því að lækka dýrtíðina, þ. e. kaup- gjald og verðlag, og þar með framleiðslukostnaðinn. Með öðru m‘óti verða þessi mál ger- samlega óviðráðanleg þegar svo er komið, að verðlag aðalút- flutningsvaranna hrekkur ekki fyrir kostnaði, og ríkisábyrgð á margföldu fyrirstríðsverði sjáv- arafurðanna er talin nauðsynleg til þess að útgerðin ekki stöðv- ist. Stórkostleg verdiagsbrot sannast á 2 heildverzl. (Framhald af 1. síðu) til þess vopns, þar sem það ræð- ur ekki yfir annari refsingu. Eig- endur þeirra geta lagt þau nið- ur og stofnað önnur ný og haft ýms önnur ráð til að gera þá' refsingu að engu. Vafasamt er •líka, að þeirri refsingu verði nokkuð beitt eftir breytingu þá, sem varð á viðskiptaráði nú um áramótin/ því að hinir nýju stjórnarfulltrúar hafa þar meirahluta með fulltrúa heild- salanna, og er ókunnugt um af- .stöðu þeirra til málsins. Aðal- atriðið er, að sekt heildsalanna verði upplýst til fullnustu og þeim refsað samkvæmt því að lögum. En þetta verðurjvart tryggt án ströngustu opinberrar rannsóknar. Það veltur því allt á því, hvað ríkisstjórnin gerir í þessum efnum, hvort nokkuð hefst upp úr þeirri baráttu gegn þessari og annari okurstarfsemi milliliðanna, sem verðlagsráð hefir hér hafið með allgóðum árangri. & Kommimistar umlir- biia undanbaldið. Framkoma Þjóðviljans í þessu máli, gefur fullkomna ástæðu til að halda, að kommúnistar séu reiðubúnir að láta undan þeim þrálátu óskum íhaldsafl- anna, að opinber rannsókn fari ekki fram í málinu. í stað þess að fordæma verulega framferði heildsalanna og heimta fyllstu rannsókn málsins, reynir Þjóð- viljinn eftir megni að gera Vil- hjálm Þór, Björn Ólafsson og verðlagsráðsmenn tortryggilega fyrir framkomu þeirra í þessum málum. Einkum reynir Þjóðvilj- inn að veitast að Vilhjálmi og telur að hann hafi verið að bera hagsmuni S. í. S. fyrir brjósti. Er þetta einhver ósvífnasta að-r dróttun, er nokkuru sinni hefir verið fram borin, því að S. í. S. hefir síður en svo haft nokkurra hagsmuna að gæta í þessum efn- um og hefir gert sér sérstakt far um að fylgja öllum verðlags- reglum, enda mun það eitt af fáum eða eina fyrirtækið, sem hefir útibú vestra, er alltaf hef- ir afhent frumreikninga. Hags- munir S. í. S. eru að geta sýnt meðlimum sínum, að það geri sem hagstæðust innkaup og þess vegna væri slík starfsemi og hér ræðir um gagnstæð hags- munum þess. Þjóðviljanum tjáir því ekki að ætla að gera Vil- hjálm grunsamlegan í þessum efnum, þótt hann sé fyrv. kaup- félagsstjóri og varaformaður S. í. S. Um Björn Ólafsson má réttilega segja, að það hafi verið yfirsjón að treysta á reikning- ana frá útibúunum, en hitt má þó viðurkenna, að þegar misfell- ur fóru ,að koma í ljós, sam- þykkti hann þá ákvörðun verð- lagsráðs að heimta frumreikn- ingana. Verðlagsráð " virðist jafnan hafa reynb að gera sitt ítrasta í þessum málum, en örð- ugleikarnir við að afla sannana 'hafa verið miklir, eins og að- stöðu þess og valdsviði er hátt- að. Fyrir þess atbeina er þó nú fenginn sá árangur, sem er góð- ur grundvöllur fyrir allsherjar- sókn og sigri í málinu, ef núver- andi stjórn fýlgir á eftir með op- inberri rannsókn. En núv. stjórn virðist því mið- ur ekki þess sinnis að fylgja málinu eftir, epda hefir áhugi hennar ekki verið meiri en það, að frá henni mun verðlagsráð enga örfum hafa fengið í þess- um málum síðan hún kom til valda og sá árangur, sem það hefir náð, er á engan hátt fyrir hennar tilstilli. í stað þess að .stjórnin fyrirskipi nú opinbera rannsókn og gangi röggsamlega fram í málinu, virðast kommún- istar fúsir að vinna það til fyrir vinfengið við íhaldið, að málið lognist út af vegna ónógrar rannsóknar. Til að undirbúa þessa ömurlegu lausn málsins, reyna kommúnistar að þyrla upp rykskýi um meira og minna ó- skyld atriði til að draga at- hyglina frá því, sem nú, er aðal- atriðið, en það er opinber rann- sókn málsins. Hvað verður um Ólaf Jobnson? Það sýnir bezt, hve stjórnin tekur þetta mál af miklu alvöru- leysi, að annar aðaleigandi ann- ars brotlega firmanapg sá mað- ur, er stjórnar unbúinu, er gaf hina fölsku reikninga, Ólafur Johnson, er enn lát- inn halda sæti sínu í Inn- kaupanefnd ríkisins vestan hafs, þótt stjórninhi hafi verið það vel kunnugt um nokkurt skeið, að útibúið undir stjórn hans hafi þannig gerzt brotlegt við verðlagslögin. Er slíkt vitan- lega hið fyllsta hneyksli og er vissulega ekki mikils að vænta af ríkisstjórninni í þessu máli meðan hún gerir sér þannig far um að hossa einum heild- salanum, sem kærður er, í á- byrgðarmikilli trúnaðarstöðu fyrir landið. Þess verður að krefjast, að Ól- afur Johnson verði tafarlaust látinn víkja úr þessari stöðu. Dómsmálaráðherrann lieflr valdið. Skrif Þjóðviljans hafa þegar sýnt, að kommúnistum er vel trúandi til að verða við þeim bænum íhaldsins að reyna að láta þetta mál falla sem mest niður, en vitanlegt er, að það vinnur nú að ,því öllum árum. Kommúnistum finnst það vel tilvinnandi gegn því, að dýrtíðar öngþveitið haldizt áfram, og þeir eru farnir að undirbúa þessa afstöðu í málinu með þvf að reyna að beina athyglinni að öðrum atriðum. En það eru hins vegar ekki þeir, heldur Alþýðu- flokkurinn og þó einkum annar ráðherra hans, Finnur Jónsson, er hefir úrslitavaldið í sínum höndum. Hann hefir dómsvaldið og getur því fyrirskipað opinbera rannsókn, sem er eini mögu- leikinn til að fá þessi mál rann- sökuð til fulls. Ef hann er trúr stefnu sinni, eins og hún kom fram í olíumálinu 1 fyrra, er enginn vafi um, hvað hann gerir. Þá fyrirskipar hann rannsókn. Bogni hann aftur á móti fyrir á- róðri íhaldsaflanna og hinu nýja vinfengi við Kveldúlfana, verður engin opinber rannsókn. Og þá er lítil von um, að nokkuð veru- legt verði úr þessu stóra tæki- færi til að koma viðurstyggi- legri okurstarfsemi á kné. Þjóðin heimtar að engin lin- kind né undanhald verði sýnt í þessu máli. Hún heimtar jafn- ítarlega rannsókn. og refsingar og framast er kostur. Sú krafa hennar skal verða studd í þessu blaði, eins og frekast er unnt. jafnframt og reynt verður að upplýsa fleiri þætti þessara ljótu mála, eftir því, sem auðið veröur. Greinargerð viðskiptaráðs . . . (Framhald af 1. síðu) Eftirlit með því, þvort fyrir- mælunum um að reikna umboðs- mönnum í Ameríku aðeins 5% væri hlýtt, var að ýmsu leyti mjög erfitt, , enda höfðu ýmis fyrirtæki erlenda umboðsmenn. Var þó á ýmsan hátt reynt að fylgjast með þessu m. a. með því að athuga, hvort sambærilegar vörur væru dýrari hjá þeim, sem hefðu fasta umboðsmenn í Bandaríkjunum, en öðrum. Kom í ýmsum tilfellum í ljós, að svo virtist, þótt ógjörningur væri að færa sönnur á, hver orsökin kynni að vera, í september 1943 komsí verðlagseftirlitið svo að raun um mjög gildar líkur fyrir því, að ákveðið fyrirtæki í Reykjavík léti útibú sitt reikna sér hærri umboðslaun en heim- ilt er. Var nú hafinn víðtækur undirbúningur að rannsókn þessa máls, m. a. með aðstoð ræðismanns íslands í New York. í október var ákveðið, að verð- JAMLA BÍÓ- Konan mín er engill (I Marrieð an Angel) Amer. söngvamynd með Jeannette Mac Donald, Nelson Eddy, Edward Everrett Horton. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ► KÝJA Bi,Ó. Sjáið hana systur mína („His Butler Sister") Söngvamynd með: DEANNA DURBIN, FRANCHOT TONE, PAT O’BHIEN. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bezta bókin: Bernskubrek og æskuþrek, sjálfsævisaga Winstons Churchills forsætisráð- herra Bretlands, er nú komin í bókaverzlanir. Góð bók er gulli betri. Snœlandsútgáfan. »———« TJARNARBtÓ Þjóðhátíð (Knickerbocker Holiday) Nelson Eddy, Charles Coburn, Constance Dowling. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Álfhóll Sjónleikur í 5 þáttum eftir J. L. HEIBERG. HÁTÍÐASÝNING verður suimudaginn 7. janúar kl. 2.30 e. h. í tilefni af 50 ára leikstarfsafm. frk. Gunnþ. Halldórsdóttur. # l’ráteknir aðgöngumiðar að þessari sýningu sækist kl. 1—2 á morgun (laugardag). — Þeir aðgöngumiðar, sem eftir eru, verða seldir eftir kl. 2 á morgun. Samssrii verður haldið sunnudaginn 7. janúar kl. 8.45 síðdegis í Iðnó í tilefni af 50 ára leikstarfsafmæli frk. Gunnþórunn- ra Halldórsdóttur. — Þeir, sem þegar hafa tilkynnt þátt- töku sína, vitji aðgöngumiða sinna kl. 3 síðdegis á morgun (laugardag). lagsstjórinn, sem yar á förum til Bandarikjanna, skyldi einnig athuga þessi mál þar. Kom hann aftur til landsins í febrúar 1944. Skömmu síðar gaf ráðiö út fyr- irmæli um þáð, að óheimilt sé að byggja verðlagningu á vöru- reikningum íslenzkra borgara í Bandaríkjunum, og litlu síðar var öllum innflytjendum, sem verðlagt höfðu vörur á grund- velli reikninga frá íslenzkum umboðsmönnum eða útibúum, síðan fyrirmælin um 5% um- boðslaun voru sett, fyrirskipað að senda verðlagseftirlitinu frumreikninga frá erlendum seljendum til þess að hægt væri að ganga úr skugga um, hvort þeir hefðu reiknað sér meira en 5%, enda hafði verðlagseftirlitið nú mjög sterkar líkur fyrir því, að um slíkt hefði verið að ræða. Þegar frumreikningarnir tóku að berast, kom í ljós, að grunur verðlagseftirlitsins hafði við rök að styðjast. Hins vegar hafa ým- is fyrirtæki ekki enn orðið við þessum fyrirmælum, þrátt fyrir ítrekanir og alllangan frest, og hefir Viðskiptaráðið því ekki séð sér annað fært en að tilkynna þeim, að þeim muni framvegis ekki verða veitt innflutnings- leyfi, hafi þau ekki fullnægt fyr- irmælum fyrir 20. febrúar n. k. Að svo komnu máli verður því ekki sagt með vissu, um hversu almenn verðlagsbrot er hér að ræða. Sést það ekki, fyrr en öll umrædd gögn eru komin í hend- ur verðlagseftirlitsins. Á þessu stigi málsins er þó komið í Ijós, að umboðsmenn tveggja fyrir- tækja í Reykjavík hafa reiknað sér hærri umboðslaun en þau 5%, sem heimiluð eru, og hafa mál þeirra verið afhent saka- dómaranum til meðferðar. Frlent yfirlií. (Framhald af 2. síðu) inni við hlið Bandamanna. Frá Síberíu væri langsamlega auð- veldast að sækja Japani heim, og þótt Rússar gerðu ekki annað en að leigja Bandaríkjamönnum bækistöðvar, myndi það mjög flýta fyrir úrslitunum. Enn hafa ekki sézt nein merki þess, að Rússar muni veita Bandamönn- um slíka liðveizlu. Hins vegar hafa þeir sýnt merki þess, að þeir ætli sér góðan skerf af her- fanginu. M. a. er nú verið að æfa her Koreumanna í Síberíu, en Bandamenn hafa lýst yfir því, að þeir muni veita Koreu- mönnum sjálfstæði eftir styrj- öldina. Þykja þessar heræfing- ar Rússa benda til þess, að þeir hyggist að koma þar á kommún- istisku skipulagi. Bæði i Bandaríkjunum og Bretlandi hefir það verið til- kynnt, að stórlega verði dregið úr hergagnaframleiðslunni strax og Evrópustríðinu lýkur, einkum bó í Bretlandi. Styrjöldin við Tapani krefst vitanlega miklu minni hergagnaframleiðslu en 5tyrjöldin bæði við þá og Þjóð- verja. Frakkar og Hollendingar hafa lýst yfir því, að þeir muni berj- ast gegn Japönum við hlið Breta og Bandaríkjamanna eftir að Evrópystcíðinu lýkur. GÆFAN fylffir trúlofunarhringunum frá SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4. » SendlB nákvæmt mál. Sent mót póstkröfu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.