Tíminn - 05.01.1945, Síða 7

Tíminn - 05.01.1945, Síða 7
1. blað TÍMIM, föstadagmn 5. jan. 1945 7 Kátir voru karlar 2. „Báfft er að Uenna gönilum hundi að sit$a“ Vamban: Nú, hvað er þetta! Vildi Leifi ekki fara i? UMW — Leppur: Hann sagði bara: Fussum, fei! Skreppur: Hann þverneitaði bara! \ Vamban: Hvað meinarðu eiginlega með því að vilja ekki klæðast eins og heldri manni sæmir? Farðu nú í garmana, Leifa-tet- ur, og vertu ekki að þessari heimsku. Leifi langi: Fussum, fei! Sjötug: Guðný Magnúsdóttir Háalelli 30. des. s. 1. varð Guðný hús- freyja að Háafelli í Skorradal 70 ára. Guðný er Magnúsdóttir Eggertssonar frá Eyri í Flókadal. Var hann talinn m. a. mark- glöggasti maður um Borgarfjörð um langt skeið og annálaður fjármaður. Guðný ólzt upp að Tungu- felli í Lundarreykjadal, en gift- ist nokkru fyrfr aldamótin Ben- óný Helgasyni. Byrjuðu þau bú- skapinn svo að segja með tvær hendur tómar. En með ráðdeild og dugnaði hefir þeim búnast vel og komið upp sex mannvænleg- um börnum, sem öll eru á lífi: Helgi, Halldór, Ólafur, Eggert, Halldóra og Guðrún. Guðný er greind og dugleg húsfreýja og búforkur. Hún er ein í hópi hinna hljóðlátu hús- mæðra, sem lítið ber á, en sem vinná sitt mikilsverða dagsverk með prýði, landi og lýð til far- sældar. Vinir Guðnýjar óska henni til hamingju nú þegar hún heldur yfir á áttunda áratuginn. G. Jólalelkiu* Leikfélagsins. (Framhald af 3. síðu) hlusta á hina hrífandi hljóm- list, sem þar er flutt í leiknum. Því er óhætt að spá, að þessi leikur verður vinsæll og vel sótt- ur hér, ekki síður en í heima- landi sínu, enda á hann og þeir, sem að uppfærslu hans hafa starfað, það fullkomlega skilið. Ntulkur óskast til fiskflökunar eftir áramótin. Hátt kaup. Frltt húsuæði. Hraðfryslíslöð Vestmannaeyja Simi 3. Hoffmannsveðrið. (Framhald af 5. síðu) kippti honum upp í bátinn í einu vetfangi. Enn var sá maður á skipinu, er Björn hét, Ólafssop, hetja hin mesta og frábær for- maður. Hann spratt á fætur, er hann sá hverju fara gerði, setti hnefa á matarkistil sinn, svo að lokið brotnaði, og dró upp úr honum brennivínspytlu. Setti hann hana á munn sér og drakk nær niður til miðs, settist síðan við stjórn. Stýrði hann skipinu síðan og var það lengi rómað, af hvílíkri snilli hann hefði stjórn að þessa voðanótt. Gekk nú vindur til suðurs og útsuðurs og jók þá stórum sjó, en eigi að síð ur tókst Birni að verja skipið áföllum. Náðu þeir félagar landi heilu og höldnu skiammt frá Melum í Melasveit. Voru þeir þó allhætt komnír í uppsiglingunni. Björguðu þeir skipl sínu undan sjó og fóru síðan að leita bæja. Komust þeir allir heim að Mel- um um kl. 5 að morgni. Voru þá flestir mjög þjakaðir orðnir eftir hið mikla volk og mann- raunir. Voru nú menn frá Melum sendir á fjörurnar til þess að vita, hvort fleiri bátanna hefði borið þarna að landi. Sú var og raunin á. Er leitarmenn höfðu eigi langt farið, fundu þeir skip Þórðar á Háteigi. Lá það í fjör- unni og var fallið undan, en lík þeirra félaga allra á dreif í kringum það. Slík hafði orðið þeirra hinzta sigling. Þarna fór- ust í einu allir fulltíða karlmenn, sem þá voru heimilisfastir á Háteigi, nema einn, er setið hafði í landi í þetta sinn sökum sjúkleika. Var það Ásmundur, bróðir Þórðar formanns, er síðan var þar nafnkenndur útvegs- bóndi um langan aldur. Af skipi Péturs Hoffmanns spurðist ekkert, og mun aðeins fátt eitt hafa rekið úr því. Svip að er að segja um Þórð á Hliði og félaga. Þeir hurfu allir í haflð, án þess að vitnast, með hvaða hætti það bar að. Loks fórust í Tílkynning irá Víðskíptaráðínu Til 20. Janúar 1945 heimilast toUstjór- iiin og umboðsmönnnm peirra, að toll- afgreiða vörur, sem konrnar eru til landsins, gegn innflutningsleyfum er gilda til 31. desember 1944. ^Gegn samskonar leyfum og tU sama tíma heimilast bönkum að afhenda inn- flutningspappíra yfir vörur, sem komn- ar eru til landsins. Eftir 1. janúar 1945 er óheindlt að stofna til nýrra vörukaupa og yfirfæra gjaldeyri í sambandi við þau, gegn leyf- um er falla úr gUdi 31. desember 1944, » # nema því aðeins, að þau leyfi hafi áður verið endurnýjuð af Viðskiptaráðinu. Reykjavík, 30. desember 1944. Viðskiptaráðið Askorun um Iramvísun reíkninga Siúkrasamlag Reykjavíkur beinir þeirri ákveðnu ósk til þeirra manna, félaga og stofnana, bæði hér í bænum og annars staðar á landinu, sem eiga reikn- inga á samlagið frá síðastliðnu ári, að framvísa þeim i skrifstofu þess, Tryggvagötu 28, hið fyrsta og eigi síðar en fyrir 20. þ. m. Sjiúkrasamlag Regkjjavíkur. Samfærsla byggðar- innar. (Framhald af 4. síðu) kerfi, rafveitu og annað, er nauðsynlegt má telja, svo að hægt sé að reka menningarbú- skap, og skulu þær jarðir ekki koma til greina við framkvæmd- ir, er gerðar verða eftir ákvæð- um þessara laga“. Með þessu frumvarpi er lögð á það megináherzla að efla ræktunina í heild, svo að þeir aðilar, er minnst bolmagn hafa, verði ekki útundan. Þess vegna segir svo í frumvarpinu: „Jafn- framt skal þess gætt, að ekkert byggðarlag á sambandssvæðinu verði útilokað frá þátttöku í ræktunarsamþykkt". Þessi. setning er Sósíalista- flokknum þyrnír í augum. Fyrir því er flutt tillaga af hálfu flokksins um að fella þetta á- kvæði úr frumvarpinu. Með því er sagt, að það eru ekki áðeins einstök býli einangruð, heldur heil byggðarlög, sem 'flokkurinn vill svipta aðstoð þjóðfélagsins til umbóta og leggja í eyði. þessu sama veðri tveir menn, er voru á ferð á Hvalfirði, báðir ungir menn og dugandi. Það var þungur skattur, sem Ægir heimti af byggðunum við Faxaflóa þessi janúardægur, líkt og oft áður og sár sá harmur, er þá var að svo mörgum kveðinn. En eins og skáldið Matthías segir, þegar hann hefir lýst hamförum sjávarins og bana hinna vösku sjómanna og hinni sönnu sorg, er reis í brjóstum þeirra, sem heima sátu og horfðu yfir valinn: Glóa likngeislar, glitra tárperlur, spekist manns hjarta, speglast guðs himinn. Það er hið blessaða, líknsama lögmál, sem lægir allar sorgir. Sextugnr. (Framhald af 6. síðu) áður, mótuð af dugnaði, fram- sýni og trúmennsku. Er sú saga enn að gerast og verður ekki hér rituð að sinni. Þórhallur er kvæntur Krist- björgu Sveinsdóttur frá Fagra- dal í Vopnafirði, hinni ágætustu konu. Eiga þau átta börn, fjórar dætur og fjóra syni. Eru þau nú öll uppkomin. Þau hjónin hafa jafnan hald- ið heimili með fágætri rausn. Mega menn þó nærri getá, að oft hefir á reynt í þeim efnum. Það vita þeir a. m. k., sem til þekkja í verzlunarstöðum, þar sem margt manna sækir að, en gistihús engin. Þeir eru margir, sem eiga hug ljúfar endurminningar frá heim- ili þeirra hjóna og frá samstrfi við þau. Það hefði orðið þröng á þingi í gær á heimili þeirra, ef þangað hefðu allir komizt, sem vilja hefðu til þess að færa fram þakkir sinar og hamingju óskir. En flestir hafa orðið að láta kveðju nægja, og margir hugskeytin ein. Nú er Þórhallur sextugur, og fáir munu þeir, sem meira hafa starfað að jöfnum aldri en hann. Það er þó mest um vert, að á þessum tímamótum getur Þór- hallur minnzt þess, að með starfi sínu í þágu samvinnustefnunn- ar hefir hann átt öflugan þátt í því að létta lífsbaráttu fjölda manna og gera mönnum lífið ánægjulegra. Og þegar allt kem- ur til alls, þá er mest um það vert, að vera þess megnugur, að láta gott af sér leíða. Slík hamingja fellur þeim 1 skaut, sem af alúð og ósérplægni rækja störf í þjónustu almennings. f slenzkir samvinnumenn senda Þórhalli sérstakar kveðjur, og þeir vonast eftir því, að sam- vinnustefnan eigi enn eftir að njóta starfa hans um mörg ár. E. J. Innilega þakka ég öllum, fjær og nær, sem sýndu mér samúð við andlát og jarðarför konunnar minnar, frú Jónínu S. Eiríksilóttur frá Tóarseli. Reykjavík, í september 1944. Guðjón Jónsson. Guðmundur Jónsson, Skjaldvararfossi, Barðaströnd, andaðist að heimili sínu þann 31. desember síðastliðinn. AÐSTANDENDUR. Gleðilegt nyar Þökk fyrir það liðna. Framfarasjóður B. H. Bjarnasonar, kaupm. Umsóknir um styrk úr ofannefndum sjóðl sendist undirritaðri stjórnarnefnd hans fyrir 7. febrúar 1945. Til greina koma þeir, sem lokið hafa prófi í gagn- legri námsgrein og taldir eru öðrum fremur efni- legir til framhaldsnáms, sérstaklega erlendis. Þeir umsækjendur, sem dvalið hafa við framhaldsnám erlendis, sendi auk vottorða frá skólum hér heima, umsögn kennara sinna erlendis með umsókninni, eft- ir þvi sem unnt er. • Reykjavík, 3. Jan. 1945. Agúst H. Bjjamason, Vilhjjálmur Þ. Gíslason. Helgi H. Eiríksson. Ljóðabókin Flugeldar eftir PÉTUR JAKORSSON er koinin á bókamarkað- inn og fæst hjá öllum bók- sölum. Innihald bókarinnar skiptist í þrjá aðalkafla, sem eru: Ljóðaflokkur helgaður stofnun lýðveldisins, afmælis- og tækifæriskvæði og söguljóðið Mjallhvlt. — Þetta er fjórða bók höfundar. Útgefandinn. Reykjavík. Sími 1249. Simnefni: Sláturfélag. Reykhús. — Frystibús. ' b Nlðursuðuverksmiðja. — BjágnaferS. Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niður- soðitf kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alla- konar áskurö á brauö, mest og bezt úrval á landinu. Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gseði. FrosiÖ kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútímakröfum. Verðskrár sendar eftár óskum, og pantanir afgreiddar um allt land. \ \

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.