Tíminn - 19.01.1945, Side 8
DAGSKRÁ er bezta tslenzka tímaritið um
þjjóðfélagsmáh
Þeir, sem vilfa kynna sér þjóðfélagsmát, tnn-
Iend og útlend, þurta að lesa Dagskrá.
Breytingarnar á gengislög-
unum um áramótin 1939-40
Andstæðingar Framsóknar-
flokksins liafa mikla löngun til
þess að kenna honum um vöxt
dýrtíðarinnar í landinu á síð-
ustu árum, en gengur erfiðlega
að finna röksemdir til stuðnings
því máli sínu. Er það að vonum
að þeim gangi þetta illa, þar
sem Framsóknarflokkurinn hef-
ir, eins og kunnugt er, gert
nokkrar tilraunir til að stöðva
verðbólguna, en hefir ekki kom-
ið þeim ráðstöfunum fram vegna
andstöðu annarra.
Eitt af því, sem stuðnings-
menn núverandi ríkisstjórnar
hafa nýlega haldið fram, við-
víkjandi þessum málum, bæði í
blöðum og þingræðum, er, að
Framsóknarmenn séu ámælis-
verðir í sambandi við þá ákvörð-
un Alþingis í ársbyrjun 1940, að
fella burt úr gengislögunum frá
4. apríl 1939 það ákvæði, að um
verðlag á kindakjöti og mjólk á
innlendum markaði skuli gilda
sömu reglur og um kaupgjald
verkamanna og sjómanna, sam-
kvæmt sömu lögum.
í tilefni af þessum ummælum
stjórnaíliða hefi ég íathugað
hvað þingtíðindin segja um af-
greiðslu þessa máls.
Á framhaldsþinginu haustið
1939 flutti ríkisstjórnin frum-
varp um breytingar á gengis-
[lögunum, sem samþykkt höfðu
verið í aprílmánuði þá um vor-
ið. (Alþt. 1939 A 261). Eftir að
frumvarp þetta hafði legið
nokkurn tíma fyrir neðri deild
þingsins, bar' fjárhagsnefnd
deildarinnar fram allmargar
breytingartillögur við frumvarp-
ið, eftir ósk ríkisstjórnarinnar.
Ein af þeim breytingartillögum
var um að fella niður 5. gr.
gengislaganna, sem fjallaði um
verðið á landbúnaðarvörunum
(Alþt. 1939 A 673 — 3 d.). Breyt-
ingartillaga þessi var samþykkt
í neðri deild þingsins 3. jan.
1940 með 23 samhljóða atkvæð-
um. (Alþt. 1939 B 694). Enginn
greiddi atkvæði á móti. Frum-
varpið var síðan afgreitt sem
lög frá þinginu næsta dag, 4.
jan. 1940.
Þannig var þetta mál afgreitt,
samkvæmt því sem þingtíðind-
in skýra frá.
Þegar mál þetta var til með-
ferðar í þinginu, mun þing-
mönnum hafa verið ljóst, að
vegna áhrifa stríðsins fóru
breytingar á framfærslukostn-
aði og framleiðslukostnaði ekki
saman. Þess vegna varð sam-
komulag um að gera þá breyt-
ingu á gengislögunum, sem hér
hefir verið nefnd.
Sk. G.
Viðskíptagjaldið leggst á neytendur
f ANNÁLL
Erlendur: JJ|J|
11. janúar, fimmtudagur:
Hásætisræða
Svíakonungs.
Svíþjóð: Sænska þingið var
sett. í hásætisræðu, sem Gustaf
konungur flutti var hann bjart-
sýnn um stríðslokin, en gat þess
þó, að þrátt fyrir hinar miklu
breytingar á meginlandinu gæti
enginn sagt um, með vissu, hve-
nær stríðinu lyki. í fjárhags-
áætlun stjórnarinnar er gert
ráð fyrir mun meiri kostnaði
við landvarnir en áður. Síðar
verða lagðar fram tillögur um
framlag Svía til alþjóðlegrar
hj álparstar fsemi.
Vesturvígstöðvarnar: Þjóð-
verjar hafa hörfað í skjóli hríð-
arveðurs í sóknarfleyg sinn í
Belgíu austur yfir ána Urt. í
Elsass hafa þeir gert árangurs-
litlar sóknartilraunir.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
hafa nú % Budapestar á valdi
sínu.
Jugoslavía: Pétur konungur
hefir lýst yfir því, að hann geti
ekki sætt sig við þá tillögu, að
„þjóðfrelsisráði" Titos verði fal-
in öll völd í Jugoslavíu. Konung-
ur vill, að allir flokkar fái þátt-
töku í stjórn landsins.
Grikkland: Jafnaðarmenn og
fleiri flokkar hafa sagt sig úr
Elassamtökunum.
12. janúar, föstudagur:
Rússar hcfja sókn
í Póllandi.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
hófu stórsókn í Suður-Póllandi.
undir forustu Konevs marskálks.
Stefna þeir henni til Krakár og
mun markmið þeirra að brjót-
ast inn í Slesíu.
Kyrrahaf svígstöðvarnar:
Bandaríkjamenn tilkynna, að
þeir hafi sökkt fjölda japanskra
skipa við strendur Indó-Kína.
Voru þau að flytja lið til Luzon.
Á Luzon hélt sókn Bandaríkja-
manna áfram.
Vesturvígstöðvarnar: Þjóð-
verjar unnu lítið eitt á í Elsass.
í Belgíu var lítið barizt vegna
ófærðar. Þjóðverjar halda á-
fram að hörfa í skjóli hríðar-
veðurs.
Grikkland: Vopnahlé náðist
milli Breta og Elasmanna frá
15. þ. m. að telja. Elasmenn yf-
irgefa alveg Aþenu, Saloniki og
stór landsvæði. Brezka stjórnin
hefir lýst yfir, að vopnahléið
geti þó ekki orðið varanlegt,
nema Elasmenn sleppi lausum
um 15 þús. gislum, sem þeir
hafa í haldi og vilja ekki sleppa.
JVýjn skattarnir.
(Framhald af 1. síðu)
skiptagjaldið gefi 9—10 milj. kr.
í tekjur.
Gjald á ísvarlnn fi.sk.
Annað frv. fjallar um gjald á
söluverð fisks erlendis. Samkv.
því skal leggja 2% gjald á heild-
arsöluverð þess fiskafla, sem var
veiddur í skip, er sigldi með
hann- sjálft til sölustaðar á ár-
inu 1944. Er gert ráð fyrir' að
þetta gjald gefi 2.1 milj. kr. í
tekjur.
Hækkun ýmsra gjalda
Eitt frv. fjallar um að inn-
heimta ýms gjöld með viðauka.
Samkvæmt því hækka ýms gjöld
um 100% á þessu ári, en inn-
lent tollvörugjald um 50%.
Tekjuaukana, sem af þessu
verða, reiknar stjórnin þannig:
Af vitagjaldi .... kr. 120000.00
— aukatekjum .. — 320000.00
— stimpilgjaldi .. — 680000.00
— leyfisbréfagjaldi — 50000.00
— lestagjaldi af
skipum ..........— 60000.00
— innl. tollvörugj. — 750000.00
— eignarskatti . . — 85.0000.00
Kr. 2830000.00
títbreiðlð Tímann!
TIIWAVS ^
Innlendur: | |
10. janúar, miðvikudagur:
Italir viðurkcnna
íslenzka lýðveldið.
Utanríkismálaráðuneytið til-
kynnir, að því hafi borizt orð-
sending frá ítölsku stjórninni
þess efnis, að hún viðurkenni
lýðveldið, er stofnað var hér 17.
júní sl. og óski jafnframt forseta
þess og þjóðinni allra heilla í
framtíðinni, með von um góða
samvinnu og samkomulag
beggja landanna.
11. janúar, fimmtudagur:
tsfisksalan.
Ríkisstjórnin birti auglýsingu
um verðjöfnunargjald og lág-
marksverð á fiski, sem seldur
er í skip til útflutnings.
12. janúar, föstudagur:
Rv. Helgafell'
bjargar vélbát.
Er botnvörpungurinn Helga-
fell frá Reykjavík var á heim-
leið frá veiðum á Halanum varð
skipstjóri var við vélbát í sjáv-
arháska. Var það báturinn Leif-
ur Eiríksson frá Dalvík. Hafði
komið óstöðvandi leki að bátn-
um, skömmu eftir að hann sneri
við vegna veðurs skammt undan
Látrabjargi, en hann var á leið
suður til róðra. Botnvörpungn-
um tókst að koma dráttartaug-
um í hinn sökkvandi bát og dró
hann til Patreksfjarðar, enda
gengu skipverjar vel fram við
austur. Menn sakaði ekki.
Kaupgjaldib fylgi
útflutningsverðinu.
(Framhald af 1. síðu)
og samþykkti fundurinn að
leggja bæri sérstaka áherzlu á
að ná því verði við væntanlega
samninga.
Á fundinum var’kosin þriggja
manna nefnd til þess að fara
.á fund ríkisstjórnarinnar og
skýra henni frá afstöðu fundar-
ins.
Samþykkt var að stofna sjóð
innan félagsins í því skyni, að
byggja eða styrkja byggingu á
kæliskipum til flutninga og
kæligeymslum erlendis.
Stjórn félagsins var heimilað
að senda erindreka til Bretlands
og annarra landa, þegar henni
þykir tímabært.
í lok fundarins var samþykkt
eftirfarandi tillaga:
Fjölmennur fundur hrað-
frystihúsaeigenda, haldinn 16.
janúár 1945, í Reykjavík, á-
lyktar að eins og viðhorf kaup-
gjalds og afurðaverðs er nú,
virðist þáð stefna að stöðvun
atvinnuveganna, og skorar því
á stjórn Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna að beita sér
fyrir því við þing og stjórn,
að útflutningsverðmæti afurð-
anna verði lagt til grundvallar
kaupgjaldi á hverjum tíma og
vísitalá kaupgjalds reiknuð
eftir því.
Auk þess voru rædd ýms fleiri
mál, er við koma starfrækslu
frystihúsanna.
tTR RÆIVUM
Skemmtisamkoma.
Skemmtun Framsóknarmanna i
Sýningaskálanum í kvöld byrjar kl.
8,30 með Framsóknarvist. Áríðandi er
að allir séu þá komnir að spilaborð-
unum og betra að hafa með sér blýanta
Aðgöngumiðar sækist á afgreiðslu Tím-
ans fyrir kl. 4 í dag.
Misprentazt
hafði í nokkru af upplagi síðasta
blaðs verðið á efninu í kjóla náms-
meyjanna á Hvítárbökkum. Átti það
að vera fimm krónur.
Leiðrétting.
í „Raddir nágrannanna" í siðasta
blaði misprentaðist föðurnafn Ólafs
Bjarnarsonar í Brautarholtl. Var hann
sagður Björnsson.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir hinn vinsæla sjónleik „Álfhól“,
eftir danska leikritaskáldið J. L. Hei-
berg, í 10. sinn 1 kvöld kl. 8.
(Framhald af 1. síðu)
græðir 1 milj. kr., vegna þess,
að það hefir haft háa álagningu.
Hitt fyrirtækið hefur sömu
veltu, en aðeins 100 þús. kr. í.
tekjuafgang. Viðskiptagjaldið
verður jafnhátt á báðum. Síð-
arnefnda fyrirtækið missir
þannig allar nettótekjur sínar í
viðskiptagjaldið og ekki nóg með,
það. Vegna þess að viðskipta-
gjaldið er ekki frádráttarhæft,
leggst tekju- og stríðsgróða-
skattur á þessar 100 þús. kr., sem
fóru í viðskiptagjaldið, og þann
skatt verður fyrirtækið að greiða
af eignum sínum, því að allar
nettótekjurnar eru farnar í við-
skiptagjaldið!
Hér er því eins og verið sé að
refsa þeim fyrirtækjum, sem eru
heiðarlegust og hóflegust í á-
lagningum. Er því vissulega ekki
ofsagt hjá Vísi, að þetta sé „ó-
sanngjarnasti skattur, sem lagð-
ur hafi verið á hér á landi.“
Iimlicimtubáknið.
í frv. um viðskiptagjaldið er
ákveðið, að innheimta skuli
gjaldið ársfjórðungslega. Þetta
þýðir aukið reikningshald,
vegna skýrslugjafa, hjá öllum
fyrirtækjum, sem gjaldið nær
til, og þó fyrst og fremst stór-
kostlega aukna vinnu hjá skatt-
heimtustofnunum ríkisins í
sambandi við eftirlit við allar
þessar skýrslugjafir og við að
áætla veltu þeirra fyrirtækja,
sem ekki gefa skýrslur. Má telja
víst, að þetta muni kosta stór-
lega aukið mannahald hjá þess-
um stofnunum og munu kom-
múnistar hugsa sér þar gott til
glóðarinnar, líkt og í sambandi
við nýbyggingarráð.
Enn er það ákvæði frv. mjög
athugavert, að fjármálaráð-
herra er veitt ótakmörkuð
heimild til að veita undanþágu
frá skattinum og getur slíkri
heimild vitanlega verið mjög
misjafnlega beitt.
Svik kommúnista
í skattamálum.
Það mun ekki sízt vekja at-
hygli i sambandi víð þessa og
raunar aðrar nýjar skattaálög-
ur stjórnarinnar, að þær ganga
fullkomlega í berhögg við þá
margyfirlýstu stefnu kommún-
ista og jafnaðarmanna, að
skatta eigi fyrst og fremst að
leggja á stórgróðann og helzt
eigi að afnema tolla og lækka
skatta á almenningi.
Af hálfu kommúnista hefir t.
d. verið mikil áherzla á það
lögð að lækka eða afnema toll-
ana og liggur fyrir frá þeim
þingsályktunartillaga um þetta
efni. Þá liggur fyrir frá þeim
frv. um hækkun persónufrá-
dráttar í sambandi við skatta-
álögur. Loks liggur fyrir frv.
frá þeim um afnám á varasjóðs-
hlunnindum stórgróðafélaga,
sem er mjög réttlátur skattauki
á stórgróðann. Þá hafi jafnað-
armenn margoft flutt’frv. um að
hækka skatta og útsvör á tekj-
um yfir 200 þús. kr. í samein-
ingu hafi svo þessir flokkar ver-
ið að berjast fyrir eignaauka-
skatti á stríðsgróðann.
Yfir öll þessi frv. og tillögur
er nú slegið svörtu striki og
þeim stungið undir stól. í stað
þess er lagt á viðskiptagjald, sem
er raunar ekki annað en al-
mennur neyzlutollur, tekju-
skattsviðauki, er ekki nær til
tekna yfir 200 þús. kr„ sím-
gjaldahækkun, sem fyrst og
fremst lendir á almenningi,
tollur á innlendar iðnvörur,
stimpilgjaldahækkun og nokkr-
ar aðrar álögur, sem leggjast
fyrst og fremst á almenning,
en snerta ekki stórgróðann.
Með þessum aðförum hafa því
kommúnistar og jafnaðarmenn
eins fullkomlega svikið sína
fyrri skattastefnu og framast
var hægt að gera það.
Frá sjónarmiði kommúnista
eru þessi svik raunar ekki ó-
eðlileg. Til þess að geta teygt
Ólaf Thors og félaga hans út á
þann hála ís, að láta dýrtíðar-
öngþveitið halda á-fram, hefir
þeim fundizt tilvinnandi að
hlífa stórgróðanum. Jafnframt
mun þeim ekki þykja óæskilegt
að geta bent á mikinn auð ein-
stakra manna og að ekki hafi
nægilegt verið gert til að jafna
fjármagninu, þegar þeim finnst
tími til kominn að hefja „upp-
gjörið“. Kommúnistar kæra sig
hvorki um Agnajö^nun né nein-
ar aðrar umbætur meðan núv.
þjóðskipulag helzt. Þess vegna
eru loforð þeirra um réttláta
skatta ekkert annað en fals og
blekking, sem þeir eru reiðu-
búnir til að svíkja í framkvæmd,
eins og hér er líka glögglega
fram komið.
Hvers vegna þarf
þennan skatt?
Þessi nýi tolur, viðskiptagjald-
ið, er næsta glögg sönnun þess,
hve háskalega er komið fjár-
hagsmálum þjóðarinnar, því að
annars hefði hann verið ger-
RMDOM » IIIMNARlKI MÁ
HARVEST RlÐA
RONALD COLMAN,
CREER CARSON. (Heaven Can Walt)
Sýnd kl. 6Vz og 9.
RÓSTUR Stórmynd í eðlilegum lit- um, gerð af meistaranum
Á BURMÁBRAUTINNI Ernst Lubitsch.
(A Yank on Burma Road) Aðalhlutverk:
BARRY NELSON, DON AM(CHE,
LARAINE DAY. GENE TIER.NEY,
Sýnd kl. 5. LAIRD CREGER.
Bönnuð yngri en 12 ára. t Sýnd kl. 4, 6,30 og 9.
DÁÐIR VORIJ DRVGÐAR Hugrekki
(Frist Comes Courage)
/ Saga Nólseyjar-Páls Spennandi amerísk mynd
og fleiri afreksmanna. frá leynistarfsemi Norð- manna.
er m e r k bók og BRIAN AHERNE, MERLE OBERON.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
skemmtileg. Bönnuð yngri en 14 ára.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Alfhóll
Sjónleikur í 5 þáttum eftir J. L. HEIBERG.
X
10. sýning i kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar verða seldir frá kl. 2 í dag.
samlega óþarfur. Ástæðan til
þess, að nú er bætt við þessum
nýja skatti og öðrum nýjum
skattaálögum, er sú, að núv. rík-
isstjórn hefir tekið upp aukna
eyðslustefnu í dýrtíðar- og fjár-
hagsmálum og^þarf þess vegna
stórum meiri tekjur til umráða
en fyrirrennarar hennar. Þrátt
fyrir þá skatta, sem voru á síð-
astl. ári, gat þáv. stjórn staðið
undir öllum útgjöldum og skil-
aði þannig af sér fjárhagnum,
að nettótekjur ríkisins munu að
minnsta kosti verða 10 miljónir
kr. eftir árið. Núv. shjórn nægja
ekki aðeins þessir sMttar, henni
nægja ekki aðeins þessar 10
milj. kr. afgangstekjur frá 1944
til viðbótar, hún þarf enn að
hækka skattana um 20—25 milj.
kr. þar að auki, og þó eru litlar
líkur til að reksturinn verði
hallalaus.
Öll þessi aukna eyðsla stjórn-
arinnar stafar af því, að stefna
kommúnista í dýrtíðarmálunum
hefir verið hafin til öndvegis.
Sjálfstæðisflokkurinn varð að
vinna það til fyrir stjórnarsam-
vinnuna að gefast skilyrðislaust
upp í dýrtíðarmálunum. Hann
varð að fallast á stefnu kom-
múnista þar. Þess vegna hefir
dýrtíðin, kaupgjaldið og launin
haldizt áfram að aukast með
þeim afleiðingum fyrir skatt-
begnana, sem hér kemur fram.
Það er afleiðing hinnar skilyrð-
islausu uppgjafar Sjálfstæðis-
flokksins, sem birtist í skatta-
frumv. Péturs Magnússonar.
Það má að sönnu segja, að
fyrir þessa skilyrðislausu upp-
gjöf Sj álfstæðisflokksins í dýr-
tíðarmálunum hafi hann fengið
ráðherradóm Ólafs Thors og
nokkur hlunnindi fyrir mestu
stórgróðamennina. Hætt er við,
að hinum almennu skattgreið-
endum þyki það litlar uppbæt-
ur!
Það sést nú alltaf betur og
betur, hve óhyggilegt það er, að
hafa ekki hafizt handa um nið-
urfærzlu dýrtíðarinnar og draga
úr ríkisútgjöldunum með þeim
hætti. Reynslan styður það allt-
af betur og betur, að sú stefna
Framsóknarflokksíns er ekki
aðeins rétt, heldur sú eina, sem
er fær til lausnar.
„Gjafir eru yður . . .
(Framhald af 1. síðu)
um, þar sem framleiðendur og
neytendur áttu jafnmarga full-
trúa. T. d. var fullt samkomu-
lag þessara aðila um þrjár af
fjórum mjólkurverðhækkunum,
seift urðu á árinu 1940, og sein-
asta þessara verðhækkana var
ákveðin eftir tillögu fulltrúa Al-
þýðusambandsins í mjólkurverð-
lagsnefnd. Má bezt á því marka,
hvort bændur eða fulltrúar
þeirra hafi sýnt ósanngirni í
þessum málum.
Þrátt fyrir það, þótt ráðherr-
ann væri þannig fullkomlega
knésettur í þessum umræðum,
hefir Mbl. eigi að síður gert sér
mikinn mat úr þessum ummæl-
um hans. Geta bændur ljósast
á þessu séð, að nýr siður kem-
ur með nýjum herrum, þegar
hinum nýja landbúnaðarráð-
herra er þannig teflt fram fyrir
skjöldu og hann látinn kenria
réttlátum leiðréttingum á af-
urðaverði þeirra um ófarnað-
inn í dýrtíðarmálunum. Væri
það næsta kynlegt, ef bændur
hugsuðu ekki í þessu sambandi:
gjafir eru yður gefnar, og minn-
ist þeirra þó síðar verði.
E. J. benti einnig á það, við
þessar umræður, að Framsókn-
arflokkinn væri sízt um að saka,
hvernig komið væri í dýrtíðar-
málunum, þar sem hann hefði
beitt sér fyrir festingunni haust-
ið 1941 og stutt gerðardómslög-
in 1942, auk margra annara til-
rauna til að stöðva dýrtíðina.
Hann benti og á, að ekki væri
nóg að finna hlutfall milli af-
urðaverðs og kaupgjalds, eins og
ráðherrann hefði talað um.
Samkomulag hefði orðið um
þetta hlutfall sumarið 1943 í
sexmannanefndinni, en dýrtíðin
hefði eigi að síður haldið áfram
að hæfcka síðan. Það, sem þyrfti,
væri fyrst stöðvun og síðan
niðurfærsla á dýrtiðinni, eftir
því, sem þörf krefði.
Aðstoðarbókavorður
Geir Jónasson magister hefir verið
ráðinn aðstoðarbókavörður við Lands-
bókasafnið.