Tíminn - 06.03.1945, Page 3
18. blað
TÍMUMV, þrigjndagiim 6. rnarz 1945
Páll Þorsíeinsson:
Sijórn og S'iefnut
i.
Frægasti sagnaritari íslend-
inga, Snorri Sturluson, skýrir
frá því, að Ólafur konungur
Haraldsson hafi spurt frænda
sinn ungan þeirrar spurningar
hvað hann vildi flest eiga. Hafi
pilturinn svarað því, að hann
vildi helzt eiga svo marga hús-
karla, að þeir ætu allar kýr
bróður hans að einu máli. Þetta
þótti konunglega mælt. Það
þótti aðalsmerki konungs og
kappa að eiga húskarla og her-
búnað eftir aldaranda þeirrar
tíðar. Hjörinn og hnefinn réðu
mestu og af því mótaðist stjórn-
arfarið. Svo hefir löngum verið.
Mannkynssagan er að miklu
leyti saga um átök þjóðhöfðingj-
anna um valdið yfir alþýðunni.
Það eru enn til menn, sem
vilja eiga húskarla og herskip,
ráða mörgum ríkjum, þjá og
þrælka þjóðir. Þeir láta sér ekki
nægja undirgefni og þjónustu
einnar þjóðar, heldur æða yfir
lönd annarra með slíku ógnar-
valdi, að það tekst að éta upp
allar kýr þeirra að einu máli.
Þótt dæmin um þetta séu deg-
inum Ijósari, er því stundum á
loft haldið enn í dag, að ein-
ræðið sé miklu sterkara stjórn-
arform en lýðræðið. E[já ein-
valdsstjórn sé fjör og festa. Ein-
valdinn geti með sönnu sagt: Ég
kom, sá og sigraði. En undir
einvaldsstjórn sannast það oft-
ast átakanlega, að það þarf þús-
unda líf í eins manns auð, eins
og aldir þarf gimstein að skapa.
Til þess að einvaldinn öðlist for-
ingjatign og ljómi frægðarinn-
ar leiki um nafn leiðtogans
þurfa þúsundir eða miljónir
manna að líða og lúta. Þegar
þetta er athugað, verður aug-
ljóst, að of miklu er fórnað fyrir
svo takmarkalaust vald leiðtog-
ans, virðingu hans og vegsemd.
Allt þarf að eigú sín ákveðnu
mörk. Sjálft frelsið er tvíeggjað
og reynist svo einkum, þegar
einstakir aðilar fá aðstöðu til að
misbeita því gagnvart öðrum.
Skörin er farin að færast upp
í bekkinn, þegar hagur heilla
þjóða er háður vilja einstaks
manns, duttlungar eins eða
örfárra ráða örlögum miljóna
manna um víða veröld, þegar
slíkt er ofurvald einstaklings, að
það megnar að raska friði og ró
allrar veraldarinnar og minnir
á frásögnina um Fenrisúlf:
„Gapa mundi hann meira, ef
rúm væri til“.
II.
Með lýðræðinu er stefnt að því
að gera áhrif og aðstöðu þegn-
1 anna jafnari en ella. Lýðræðis-
| formið veitir alþýðu réttindi,
jsem stundum eru of lítils metin
[af mörgum þegnanna, en vert
er að gefa gaum að, ekki sízt
' á þessum tímum, þegar frelsi
'heilla þjóða er drepið í dróma.
PÁLL ÞORSTEINSSON
En réttindum fylgja skyldur.
Lýðræðið reynir á áhuga, þekk-
ingu qg þroska þegnanna. Bregð-
ist þetta, getur það orðið skríl-
ræði. Þjóðfélagshættir mann-
anna verða aldrei fullræktaðir,
nema hvefr þjóðfélagsþegn erji
sinn eigin huga og kappkosti að
byggja viðhorf sitt til vanda-
málanna, stefna og stjórnmála-
flokka á vitrænu mati á mál-
efnum, og þeim stefnum, sem
stjórnað er eftir. Það er beinlín-
is grundvallaratriði lýðræðisins.
Lýðræði er allvíðtækt hugtak.
Innan ramma þess má hefla á
ýmsa vegu. Eins og það er höf-
uðatriði í leik, hvernig leikregl-
urnar eru, hvort menn þekkja
þær og hvernig þær eru haldn-
ar, svo ræður það mestu um far-
sælan árangur lýðræðisins, að
kjósendurnir kappkosti að meta
meginreglur þess réttilega og
þau grundvallaratriði, sem
greina menn í flokka. Hver sá,
er öðlast kosningarétt, hlýtur
um leið þá ábyrgð, sem því fylg-
ir að velja og hafna, vega og
meta, hvað rétt er og hvað
rangt.
III.
Lýðræði lægir ofurvald ein-
stakra manna, en það kemur
ekki í veg fyrir samkeppni. Und-
ir skipulagl lýðræðisins getur
þróazt veruleg samkeppni milli
þjóða og einstaklinga. Frjáls
samkeppni mótar meira að segja
vissa hagfræði- og þjóðmála-
stefnu. Sú stefna er grundvöll-
uð á þeirri kenningu, að frelsi
einstaklingsins til fjármálalegs
starfs eigi að vera sem mest.
Ríkið eigi sem minnst að eiga,
því að algert frjálsræði einstak-
linganna í athafnalífinu muni
hagfelldast fyrir þjóðina. Ríkið
eigi að vernda eignarrétt ein-
staklinganna, en leggja sem
minnstar hömlur á þegnana.
Þetta veitir frjálsræði, en
gallinn er sá, að það lyftir þeim
sterka, en lamar hinn veika.
Andstætt samkeppnisstefnunni
rís sósíalisminn, sem gerir það
að meginboðorði, að takmarka
beri eignarrétt einstaklinga og
afnema hann í sumum greinum,
þar sem vinnan ein eigi að gefa
tekjur. Þjóðskipulaginu þurfi að
bréyta. Ráðið sé að leyfa ekki
einkaeign eða einkarekstur á
framleiðslutækjum, heldur taka
öll framleiðslutæki, sem vanda-
lausir verkamenn vinna við, og
reka þau af ríkinu.
IV.
Samvinnustefnan þræðir með-
alveginn um lausn vandamál-
anna. Samvinnumenn vilja
neyta hófsamra úrræða til að
leysa hið viðkvæma vandamál
um eignarréttinn og skiptingu
arðsins í þjóðfélögunum. Þeir
vilja ekki leyfa, að hver ein7
staklingur olbogi sig áfram án
tillits til annarra uieð sjónar-
mið þrengstu eiginhagsmuna
sinna efst í huga. Boðorð sam-
vinnustefnunnar er ekki heldur
það, að fela ríkisvaldinu forsjá
alls og allra í smáu sem stóru
og afnema allar einkaeignir á
fasteignum og framleiðslutækj-
um, heldur að gera þær almenn-
ar og aðgengilegar í smáhlutum.
Það eru grundvallarreglur sam-
vinnustefnunnar að tryggja
hverjum kaupanda sannvirði
varanna og útiloka þar með ó-
þarfan verzlunarhagnað. Að
tryggja hverjum manni arð í
réttu hlutfalli við eigin framlög,
en ekki á kostnað annarra, með
því að reka hinn meiriháttar
atvinnurekstur sem framleiðslu-
félög á samvinnugrundvelli. Að
mynda jafnframt sameign, al-
menna sjóði, sem nota skal til
að hlynna að félagsskapnum og
efla almennar framfarir. Að
hver einstaklingur hafi að öðru
leyti fullt athafnafrelsi og svig-
rúm og að eignarrétturinn sé
lögverndaður. Og loks að félags-
skapurinn sé öllum opinn og
frjáls og að allir félagar hafi
þar jafnan rétt til atkvæða og
áhrifa, hvort sem þeir eru fá-
tækir eða rikir.
V.
Þessi þjóð hefir notið sældar-
daga síðustu árin fyrir atbeina
og aðgerðir annarra auðugri
þjóða meðan þær berast á bana-
spjót. Svo getur ekki staðið til
lengdar. Arðurinn, sem atvinnu-
rekstur þjóðarinnar gefur við
venjuleg skilyrði, verður að full-
nægja þörfunum. Það reynist
ekki hollt eða hagkvæmt, að fá-
einir einstaklingar eigi öll aðal-
framleiðslutækin, drottni einir
yfir þeim, en skammti mörgum
öðrum lífsbjörg sína. Það er
ekki heldur hægt til lengdar að
hlaða sí og æ nýjum gjöldum
á framleiðsluna og að þorri þjóð-
arinnar heimti af ríkinu betri
lífskjör og hærra kaup. Sam-
vinnustefnan leysir bezt þessi
miklu vandamál. Sem flestir
þegnar þjóðfélagsins þurfa að
fá aðstöðu til að eiga hlutdeild
í framleiðslunni í frjálsum fé-
lagsskap við aðra og uppskera
þann arð, sem framleiðslan gef-
ur í réttu hlutfalli við eigin
framlög.
Tímaritið D VOL
- Tólfti árgangurinn -
Tólfta árgangi Dvalar er lok- ,
ið fyrir nokkru. Er hann að
þessu sinni nær 300 blaðsíður í
sama broti og fyrr, og efnisval
mjög áþekkt og verið hefir —
meginefnið þýddar úrvalssögur,1
en auk þess frpmsamdar sögur, |
kvæði og greinar ýmislegs efnis.1
Sú nýbreytni hefir þó verið upp
tekin að birta framhaldssögu í [
ritinu, og var i þessum árgangi'
sagan „Litli-Rauður“ eftir John
Steinbeck, þýdd af Jónasi Krist- I
jánssyni.
Hófst hún í fyrsta heftinu og
lauk í því fjórða og síðasta.
Þekktustu íslenzku skáldin,
sem birt hafa sögur í þessum
árg., eru Kristmann Guðmunds-
son, Ólafur Jóh. Sigurðsson, Þór-
ir Bergsson og Þóroddur Guð-1
mundsson, auk Elísar Mar og j
Geirs Kristjánssonar, en ljóð
hafa þar meðal annars verið
eftir Guðfinnu frá Hömrum,
Guðmund Inga, Guðmund Dan-
íelsson, Grím Sigurðsson, Hall-
grím Jónasson, Heiðrek Guð-
mundsson, Jónas Tryggvason,1
Kára Tryggvason, Stefán Jóns-
son, Steingrím Baldvinsson, Þor-
móð Pálsson, Helga Sæmunds-
son, Böðvar Guðlaugsson og
Björn Dan. Greinar hafa meðal
annars skrifað Vigfús Guð-
mundsson, Þórunn Magnúsdótt-
ir og Hulda. Er margt af þessu
hið ágætasta efni.
Af hinum erlendu höfundum
smásagnanna skulu nefndir
finnska skáldið Juhani Aho,
Norðmaðurinn Otto Rung, Dan-
irnir Sigurd Elkjær og Johann-
es V. Jensen, Rússarnir Mikael
Zosthenko og Anton Tchekoff,
Somerset-Maugham, Guy Mau-
passant og Lion Feuchtwanger.
Þetta er orðin alllöng upp-
talning, en af henni má nokk-
uð ráða um hið margbreytilega
efni, er Dvöl hefir flutt lesend-
um síðasta ár. Mun þó ritstjór-
inn, Andrés Kristjánsson, hafa
hug á að ekki verði næsti ár-
gangur lakari. Hefir hann þeg-
ar tryggt sér liðveizlu ýmissa
ritfærra og þekktra manna, þar
á meðal sumra beztu rithöfunda
okkar. Væri vel þess vert, að
menn stuðluðu að aukinni út-
breiðslu Dvalar. Ritið á það skil-
ið, og menn fá áreiðanlega ekki
minna eða lakara lesmál fyrir
peninga sína með þvi en öðrum
bókakaupum.
Af efni 4. heftisins, er kom út
nokkru eftir áramótin, má sér-
staklega benda á hina ágætu
sögu Ólafs Jóhanns Sigurðsson-
ar, Hengilásinn, og kvæðið Þú
skalt segja honum það, eftir
Guðmund Inga. í því kvæði er
boðskapur, sem ungt fólk í land-
inu ætti að leggja eyrun við.
Með snjöllum orðum er reik-
ulum og sveimhuga mönnum
bent á, að „dagsbrún nýrra
tíma og farsæld þessa lands“
er komið undir hverjum eln-
staklingi, lífstrú hans, vilja-
festu og þrótti. Enn er þess kost-
ur að ganga sama veg og lands-
ins beztu synir fóru á liðnum
öldum. Skáldið ráðleggur mér
og þér og okkur öllum að segja
við sveimhugann — og okkur
sjálf:
Og þú skalt segja honum,
að ísland bíður enn
sem ævintýralandið, er þráir
sanna menn.
Og þeim er leiðin opin,
sem hafa vilja og von
áð vera landsins Eggert
og Skúli Magnússon.
Og þú skalt benda honum
á foss og mó og mið.
Svo margan auð og fegurð
er gott að búa við.
Þar blandast tign og auðlegð
í innilegri von
að eiga nýjan Jónas
og Tryggva Gunnarsson.
Þegar Rússar komu
síðast til Berlínar
Enn berast fregnir um stórorustur í Austur-Prússlandi,
og orðrómur er á sveimi um það, að Rússar séu að undir-
búa nýja sókn í vesturátt — og er þá takmarkið sennilega
höfuðborg Þýzkalands, Berlín.
Nú eru 185 ár' liðin síðan rússneskur her komst síðast til
Berlínar. Það var í sjö-ára-stríðinu, á dögum Friðriks mikla
Prússakonungs og Elísabetar Rússlandsdrottningar. En í
það skipti björguðu óvænnr atburðir prússneska herveld-
inu frá algerðu hruni, Elísabet drottning dó og Friðriki
mikla tkst að rétta sig við. En harla er líklegt, að auðna
Hitlers verði eins mikil og hins mikla prússneska herkon-
ungs átjándu aldarinnar.
Segir hypr frá komu rússneska hersins til Berlínar 1760
og aðdraganda þess. \
Fyrir 185 árum:
í minjasafni einu í Moskvu
hafa merkilegir gripir, sem
mikla athygli hafa vakið, verið
sérstaklega til sýnis síðan 1941.
Það eru tveir gríðarstórir lykl-
ar á silkisvæfli milli bliknaðra
fána. Þó er það einkum hina
síðustu mánuði, sem margir
hafa komið til þess að skoða
þessa gripi, enda er hér um að
ræða borgarlykla Berlínarborg-
ar og fána, sem teknir voru úr
hergagnabúrum hennar, þeg-
ar Rússar börðust síðast við
Prússa á svipuðum slóðum og
hörðustu átökin hafa átt sér
stað þessar síðustu vikur heims-
styrjaldarinnar.
Það var einmitt á þeim slóð-
um, sem rússneskur her barðist
við Friðrik II. Prússakonung ár-
in 1758—1760, og sigraði hann
af harðfengi og kænsku. Eftir
fyrsta sigurinn létu Rússarnir
undan síga um stund, en hófu
svo að nýju harðar árásir á
Prússa, er þá fóru hinar verstu
hrakfarir. Lauk þessum ófriði
með því að Rússar hertóku Ber-
línarborg, en alger tortíming
hins prússneska herveldis fórst
fyrir meðal annars vegna dauða
Rússlandsdrottningar og af-
brýðisemi bandamanna Rússa,
Austurríkismanna og Svía, sem
þóttu Rússar gerast full-um-
svifamiklir.
Þessi viðureign var einn þátt-
ur sjö-ára-stríðsins (1756—63),
þegar Austurríkismenn, Saxar,
Svíar, Rússar og Frakkar sam-
einuöust gegn hinu ískyggilega
herveldi Prússa.
Bretar, bandamenn Prússa,
áttu þá í ófriði við Frakka og
unnu úrslitasigra á herjum
þeirra við Plassey og Quebec og
tryggðu þar með brezka heims-
veldinu Indland og Kanada.
Þátttaka Rússa í þessari
styrjöld er ekki aðeins hálf-
gleymd saga. Hennar sést enn
merki á landabréfum Norður-
álfu. í byrjun árs 1758 náði rúss-
neski herinn Tilsit og héraðinu
umhverfis hana á sitt vald, og
11. janúar héldu þeir inn í Kön-
igsberg með lúðfaþyt, bumbu-
slætti og fánaburði. Engin mót-
spyrna var veitt, og yfirvöld
hers og borgar fengu Rússum
umyrðalaust í hendur lykla
Friðriksbergskastalans og Pil-
lauvígisins. Sögur herma, að
yfirhershöfðingi Rússa, Vil-
hjálmur Fermor, hafi sent ensk-
an liðsforingja úr her sínum,
Bruce greifa, með lyklana til
Elísabetar drottningar, dóttur
Péturs mikla. x
Hálfum mánuði síðar gaf
Fermor út þá tilkynningu, að
hermenn hans hefðu búizt um
í Königsberg, Tilsit og Gunn-
binnen.
í ágústmánuði þetta ^ár var
her Rússa kominn vestur gegn-
um Austur-Prússland og Pom-
mern að fljó'tinu Óder. Brauzt*
hann yfir það og hugðist að
setjast um Kustrin. Ekki tókst
Rússum þó að ná henni á vald
sitt, en í skothríðinni á virkin
kviknaði í kornbirgðum miklum,
sem Friðrik Prússakonungur
hafði látið draga þar saman og
nota átti til næstu herferðar.
Elísabet drottning var hin
ánægðasta yfir framgöngu hers-
ins. Hún skrifaði yfirhershöfð-
ingjanum 18. ágúst 1758:
„Það er ánægjulegt, meira en
ánægjulegt, hvernig hreysti og
hugrekki hersveita vorra hefir
skotið óvinaliðinu skelk í
bringu og kennt borgurum, með
sáru eignatjóni, er þeir hafa
beðið 1 borgum sínum, að treysta
fremur á vaskleik vorn/ en
ímyndaða vernd, sem her þeirra
fengi veitt þeim.“
Um svipað leyti bárust Fer-
mor fregnir um það, að prúss-
neskar liðssveitir væru komnar
yfir á eystri bakka Oder. Hann
hraðaði sér aftur austur yfir
fljótið með lið sitt og stefndi
niður með því til móts við þær.
Stóð hörð orrusta við Zorndorff.
„Við tókum 26 fallbyssur af ó-
vinunum“, skrifaði hershöfðing-
inn, „og það er ekki brotin hjól-
in undan nema einni, og þegar
á öðrum degi orrustunnar gát-
um við skotið á fjandmennina
með þeirra eigin fallbyssum."
Prússar voru orðnir svo að-
þrengdir eftir hið mikla tjón, er
þeir höfðu beðið, að Friðrik
þorði ekki einu sinni að ráðast
á baksveitir Rússa, þegar þær
sneru loks til baka í áttina til
aðalbækistöðvanna við Driesen.
Árið eftir skipaði Elísabet
hernum að hefja nýja innrás í
Pommern, Brandenburg og
Neumark, og ef ekki tækist að
ná allsherjarfriði, skyldi herinn
hafa veturvist á bökkum Oder-
fljóts.
Nú var nýr maður tekinn við
yfirstjórn rússneska hersins,
Pétur Saltykoff. Hann brá þeg-
ar við og hélt inn í suðurhluta
Neumark og hófst að koma liði
sínu á milli prússneska hersins
og Oderfljóts og vann á honum
mikinn sigur við Zullichan 12.
júlí 1759.
Viku síðar tilkynnti hann El-
Isabetu, að herinn væri eigi
nema fimmtán þýzkar mílur frá
Berlínarborg, og sex mílur frá
Frankfurt. (Þýzk míla var þá
rösklega 8 kílómetrar). Berlín
væri í yfirvofandi hættu og,
sóknaraðstaða Svía á hendur
Prússum mjög góð. En þegar til
kom, reyndust Svíar ekki á þeim
buxunum, en rússneski herinn
ekki svo öflugur, að honum
þætti treystandi til þess að ná
Berlín á sitt vald hjálparlaust,-
Hálfum mánuði síðar stóð þó
stórorrusta milli meginhers
Saltykoffs og sjálfs Prússakon-
ungs. Friðrik hafði farið yfir
Oder, skammt frá Kústrin, með
mikinn, óþreyttan her. Fundir
herjanna urðu í skógarhæðum
við Lunersdorf, ekki langt frá
Frankfurt. Hófst bardagi um há-
degisbilið og stóð þar til klukk-
an sjö um kvöldið, og/var ein-
hver mannskæðasta og grimmi-
legasta orrusta, er háð hafði
verið á þeim tímum.
í tilkynningu sinni til drottn-
ingarinnar lét Saltykoff sérstök
lofsyrði falla um herdeildir frá
Pétursborg, Novgorod, Belozéró,
Narva, Nijni-Noogarod, Voron-
ezh, Kazan og Síberíu, „ekki sízt
stórskotaliðið, sem hafði nýjar
byssur og lét skothríð dynja á
miðri fylkingu óvananna og
vann riddaraliði þeirra og fall-
byssustöðvum mesta grand.“
Tuttugu þúsund Prússar lágu
í valnum, og meira en fimm þús-
und menn, 150 fallbyssur og 30
fánar og hermerki féllu Rúss-
um í hendur, þegar Friðrik flúði
yfir Oder til Magdeburg. Þótti
honum nú sýnt, að Berlín yrði
eigi varin og sendi hraðboða til
ríkisráðs síns, er hann skipaði
að flýja borgina þegar.
„Ég er vansæll maður að vera
enn ofanjarðar,“ sagði hann í
bréfi til Finkensteins ráðgjafa
síns. „Af 48 þúsund manna her
eru nú aðeins þrjár þúsundir
eftir. Og þessar fámennu sveit-
ir eru allar á hröðum flótta, er
ég skrifa þetta bréf, og ég hefi
enga stjórn á þeim lengur. Satt
að segja held ég, að allt sé glat-
að.“
Hann skipaði Finkenstein að
bjðja Englendinga að hafa með-
algöngu um sættir, og það flögr-
að meira að segja að honum að
afsala sér völdum eða jafnvel
fremja sjálfsmorð.
Hollenzki sendiherrann í Ber-
lín tilkynnti stjórn sdnni, að
Berlín væri ofurseld fjand-
mönnunum. „Rússar verða
komnir hingað innan skamms
tíma.“
Rétt á eftir yfirgáfu yfirvöld-
in borgina og setulið bjó sig
undir að geta hörfað í skyndi,
þegar sameinaðar hersveitir ó-
vinanna nálguðust.
En þegar til kom, neitaði yf-
irhershöfðingi Austurríkis-
manna, ,Daun marskálkur, að
taka þátt í sókn til Berlínar, á-
samt herjum bandamanna
sinna. Afleiðingin varð sú, að
taka Berlínarborgar fórst enn
fyrir, Rússum til mikillar
gremju.
Næsta vetur hafðist mikill
rússneskur her við í Po'mmem
og heimtaði vistir og skatta af
landsbúum, en aðrar hersveitir
settust að suðaustan við Frank-
furt á vestri bakka Oder —
miðsvæðis í Brandénburg,
heimalandi óvinanna. Var þá
Fermor aftur tekinn við yfir-
stjórn hersins.
Hófust aftur hernaðaraðgerðir
sumarið 1760; Austurríkismenn
voru í Sílesíu og áttu Prússar
fullt í fangi með að halda þeim
í skefjum. Áttu Rússar því
hægra um vik en áður. Um
miðjan septembermánuð sendi
Fermor einn yfirforingja sinn,
Tottleben, gegnum Beeskov og
Fúrstenwalde beint til Berlín-
arborgar með þrjár húsara-
sveitir, þrjár Kósakkahersveit-
ir, tvær léttvopnaðar riddara-
sveitir. ^
Markmiðið með þessari sendi-
för var það, að eyðileggja vopna-
búé hergagnabirgðir, skotvirki,