Tíminn - 06.03.1945, Qupperneq 7
18. blaðf
TlMliyiy, þriðjMdagimt 6. marz 1945
7
Krlstján Bergsson:
Athugasemd við ritdom
í 7. tbl. Tímans skrifar Guð-
mundur Ingi á Kirkjubóli í Ön-
undarfirði um „Skútuöldina“ og
höfund hennar og lofar hvort
tveggja mjög.
Guðmundur Ingi og höfundur
„Skútualdarinnar" eru sveit-
ungar og að því er virðist æsku-
vinir og má vel vera að það
hafi rekið hann út á ritvöllinn,
þar sem'aörir ritdómarar höfðu
látið bókina liggja í þagnargildi,
og hefði hún því ffjótlega fallið
í gleymsku og höfundi hennar
vonandi tekizt að vinna sér
frægð sem rithöfundi, þó að
þetta bernskubrek hans hafi
mislukkazt.
Annars tel ég ekki rétt að ráð-
ast á höfund fyrir, hve hroð-
virknislega hún er látin koma
fyrir almennings-sjónir, heldur
á útgefandi bókarinnar þar alla
sök, þar sem hann krefst þess
af ungum höfundi, að hann
semji og láti frá sér fara á einu
ári rit, sem mundi útheimta
meðal mannsævi til þess að
leysa þolanlega af hendi, en ef
rithöfundar fara að láta það eft-
ir peningagráðugum útgefend-
um að hrúga saman einhverj-
um ófullkomnum sagnabrotum
um stórmerka þætti í atvinnu-
lífi þjqðarinnar, aðeins til þess
að fylla peningahít þeirra, þá
geta þeir ekki vænzt þess að
verða settir á bekk merkisrit-
höfunda, en höfundur bókar-
innar tekur það fram að útgef-
andinn hafi gert þá kröfu að
bókin væri búin til prentunar á
einu ári, og það á þeim tíma
þegar aðgangur að söfnum og
heimildarritum er að mestu lok-
aður.
Bókin er heldur ekki neitt
heildarverk, heldur að mestu
sundurlausir þankar og ber þess
of mikið merki að þar eru sam-
settar frásagnir ýmissra eldri
manna, sem ekki eru alltaf eins
minnugir og þeir halda sjálfir.
Er bókin því eins og skártflík,
saumuð úr afgöngum eða sýnis-
hornum. Af þessum toga mun
það vera spunnið, að víða í bók-
inni, þegar talað er um sjóslys
og nafn einhvers ákveðins
manns er nefnt, að aftan við
nafnið kemur svo „og var að
honum mikill mannskaði", eins
og að enginn mannskaði hafi
þá verið að öllum hinum. Hér
koma auðsjáanlega fram áhrif
frá þeim, sem er heimildarmað-
ur, og sama á sér stað víða, að
frásögnin verður vilhöll einstaka
mönnum.
Þá er það einnig fráleitt, að
láta frá sér fara slíkt rit sem
þetta og sleppa Sunnlendinga-
fjórðungi alveg úr, vegna þess,
að einhver annar ætli að skrifa
þann þátt í sambandi við eitt-
hvað annað,
Þegar maður því leggur bók-
ina frá sér að afloknum lestri,
er maður alveg jafnnær. Það er
ekki hægt að sjá, að „skútuöld-
in“ hafi markað nein spor í
atvinnulífi þjóðarinnar, eða lyft
þjóðinni neitt lengra á leið en
árabarningurinn á öldunum á
undan. Það er ekki heldur hægt
að sjá að hún hafi skilið eftir
neinar rústir eða auðnir í ver-
stöðvum þeim, sem fyrir voru,
þegar hún hófst, en svo mun
jafnan vera þegar um byltingu
á sviði atvinnuveganna er að
ræða.
Ég harma það mjög, að bókin
skuli vera komin út í svona ó-
fullkomnu formi, því að það má
búast við því, að það verði
þröskuldur í vegi þess að færari
menn eða jafnvel höfundur
sjálfur á lengri tíma og af meiri
þroska geri þessum stórbrotna
og gagnmerka þætti í atvinnu-
'sögu okkar fyllri skil.
Á víðavangi
(Framhald af 2. síðu)
Gróusögur kommúnista.
í sambandi við orðsending-
una, sem íslendingar fengu frá
Krímarfundinum, hafa alls-
konar sögusagnir verið breiddar
út, er þykja rekja ætterni sitt
til kommúnista. Ein er sú, að
Bretar hafi fundið þetta skil-
yrði upp til þess að útiloka ís-
lendinga og ætli þeir síðan að
koma því þannig fyrir á al-
þjóðaráðstefnunni, að íslend-
ingar verði útilokaðir af fisk-
mörkuðum og útgerð þeirra
þannig lögð í rústir. Önnur er
sú, að fiskverðið muni verða stór
lækkað í hefndarskyni, ef ís-
lendingar fari ekki í stríð, og
þeim neitað um vörur til fram-
færzlu sinnar. Yfirleitt _ ganga
þessar sögur út á það, að íslend-
ingar eigi raunverulega ekki
annars úrkosta en að fara í
styrjöldina.
Óhætt er að segja það, að all-
ar slíkar sögur eru hreinn kom-
múnistiskur uppspuni. Menn
geta líka verið vissir um það, að
kommúnistar hefðu ekki orðið
jafn áfjáðir um að verða við
áskoruninni, ef þeir álitu hana
ekki runna undan rifjum ann-
arra en Breta.
Skattfrelsi Eimskips.
íhaldsblöðin eru öðru hvoru
að hamra á því, að Framsókn-
armenn hafi breytt um stefnu í
Eimskipafélagsmálinu, þar sem
þeir hafi áður verið með því að
veita félaginu skattfrelsi, en
séu á móti því nú.
í nefndaráliti, er Bernharð
Stefánsson skilaði í efri deild,
er þessu atriði svarað. Segir
þar m. a.: í
„Þegar Eimskipafélagi ís-
lands var veitt skattfrelsi fyrir
rúml. 20 árum, tel ég, að það
hafi verið réttmæt og nauðsyn-
leg ráðstöfun af hálfu löggjaf-
arvaldsins, því að félagið barðist
þá í bökkum fjárhagslega og gat
ekki um mörg ár greitt hlut-
höfum síhum neinn arð. Lögun-
um um skattfrelsið var nokkuð
breytt 1928, og var þeim ætlað
að gilda um ákveðið tímabil, en
þau hafa jafnan verið fram-
lengd síðan. Það tel ég einnig,
að hafi verið réttmætt til þessa.
Að lögunum um skattfrelsi fé-
lagsins hefir aðeins verið ætlað
að gilda um ákveðið tímabil, en
ekki til frambúðar sýnir, að
löggjafinn hefir ætlazt til, að
skattfrelsið félli niður, ef hag-
ur félagsins breyttist mjög til
batnaðar eða f aðrar ástæður
gerðu félaginu auðvelt að greiða
skatt. Nú er hagur félagsins ger-
breyttur til batnaðar, sem betur
fer, og mun það nú vera auðug-
asta fyrirtæki á landinu. Þær
ástæður, sem á sínum tíma ollu
því, að félagið fékk þessi fríð-
indi, eru því ekki lengur fyrir
hendi“.
Þessi rök skýra það fullkom-
lega vegna hvers Framsóknar-
flokkurinn vill ekki veita fé-
laginu skattfrelsi áfram, þó,tt
þótt hann hafi gert það áður,
nema auknar tryggingar fáist
fyrir því, að félagið starfi með
þjóðarhag fyrir augum, en verði
ekki braskfyrirtæki, er okri á
landsmönnum, eins og reyndin
varð 1943.
Afneitun ungmenna-
félaganna
(Framhald af 4. síöu)
trúa minnis, framsækna hugar?
Hljóma þær ekki af glaðri lífs-
trú hins heilbrigða æskumanns?
Var ekki framtíðin fagur dagur
fyrir sjónum þeirra tápmiklu
ungmenna, sem skópu ung-
mennafélögin og var ekki sá
dagur fagur vegna þeirra mörgu
óleystu verkefna, sem biðu og
báðu um áhuga og átök?
Er ekki ennþá dagur fram-
undan, fagur dagur, sem biður
um starfskrafta og þarfnast
starfskrafta sv^jtaæskunnar
heima í átthögunum? Og er ekki
ljómi þessa dags því meiri en
fyrr, sem vænta má meiri hjálp-
ar frá tæknivísindum og fræðslu
stofnunum en áður?
Vissulega er dagur á lofti,
mikill starfsdagur fyrir íslenzka
æskumenn. En mönnum verður.
ávallt misjafnlega mikið úr
hverjum lfðandi degi. Engum
dylst, sem kunnugur er sveit-
um íslands, að mikið liggur eft-
ir þá kynslóð, sem þar hefir
staðið að starfi seinasta aldar-
fjórðunginn. Sá hinn sami hlýt-
ur að spyrja: Hvers vegna varð
henni svona óvenjulega mikið
úr verki? Svarið þarf kannski
að vera langt, svo að það sé
ýtarlegt, en mestur sannleikur-
inn getur þó falizt í fáum orð-
um. .— Hún ræktaði lýðinn.
Kenndi sjálfri sér að hugsa
sjálfstætt, hugsa djarft og
hugsa djúpt. Skýrði það fyrir
sjálfri sér að hún væri þjóðfé-
lágið og henni bæri því að skilja
málefni þess og vinna að þörf-
um þess eftir beztu getu. Þjálf-
aði sig í félagslegu samstarfi.
Lifði og vann í þjóðfélagsanda
samvinnuhugs j ónarinnar.
Eigi þeim, sem ungir eru í dag,
að verða mikið úr sínum eina
ævidegi, ætli þeir að halda uppi
merki og halda áfram verki
feðra sinna og mæðra, þá mega
þeir ekki afneita starfsaðferðum
þeirra við* ræktun lýðsins né
starfshugsjónum þeirra um
ræl0tun landsins.
Mioning nokkurra
Landmanna
(Framhald af 6. síöu)
missa 4 þeirra, öll uppkomin,
á tíu ára skeiði. Eftir lifir Magn-
ús bóndi í Stúfholti og dóttir í
Reykjavík. Gunnlaugiir í Stúf-
holti var afburðamaður að þreki
gildur maður að afli og svo vel
gerður maður andlega, að hann
hélt sinni léttu lund fram á
banadægur, þrátt fyrir þungar
raunir. Er hann minnisstæður
öllum, sem kynntust honum og
sakna þeir góðs drengs og „vor-
manns“, sem haustkuldinn náði
aldrei að nísta. Ókalinn á hjarta
mun hann hafa sloppið úr þessu
lífi.
Loks sé ég autt sæti Guðfinns
Jónssonar í Akbraut, sem and-
aðist 22. des. ’44. Hann fæddist
1877 í Akbraut og var þar alla
tíð síðan. Hann giftist 1916 Odd-
björgu Illugadóttur, dótturdótt-
ur Odds bónda í Þúfu á Landi.
Áttu þau saman einn son, Jón
að nafni. Guðfinnur í Akbraut
var meðalmaður vexti,svipheið-
ur og mildur í augum enda ljúf-
menni og ráðvandur „í igegn“.
Eigi var hann auðsæll og bjó
lengst af við skorinn skammt,
en átti þann auð, sem lífið má
ekki án vera, góðvild og mildi
í framkomu. Átti hann því „inn-
stæðu“ í brjósti sinna förunauta
og þá líka inni hjá guði. Er það
ekki nokkuð gott fyrir manns-
sálina, sem skilur nakin við
fallið hreysi, sem fer í moldina?
Eða er þetta hjátrú, úrelt á 20.
öld? Friður sé með öllum þess-
um framliðnu.
R. Ó.
„Dagslátta drottins“
(GOOD’S LITTLE ACRE)
eitir Erskine Caldweil,
er komín í bókabúðír
Þetta er bókin, sem átti að hindra útgáfu á í Bandaríkjunum, og
urðu út af því málaferli fyrir lögreglurétti New York borgar. Á-
litsgerð réttarins er prentuð aftan við bókina.
Fjöldamargir rithöfundar, fagurfræðingar og ritdómendur
Bandaríkjanna veittu höfundinum og útgefendunum lið í vörn
þeirra fyrir útgáfu bókarinnar.
Kaupið bókína og sanníæríst um bókmenntalegt gíldí hennar.
Erlent ylirlit.
(Framhald a) 2. síöu)
Afleiðing þessa hefir nú orðið
sú, að Radescu hefir farið frá
og Mikael konungur falið Stirby
prins stjórnarmyndun. Stirby
er kominn á áttræðisaldur.
Hann hafði áður allmikil af-
skipti af stjórnmálum og hefir
löngum haft tiltrú konungs-
fjölskyldunnar, enda var hann
sagður elskhugi hinnar frægu
Maríu drottningar, móðuf Car-
ols. Ekki er talið líklegt, að að
stjórn hans, þótt hún komist
á laggirnar, verði langrar líf-
daga auðið, því að kommúnistar
heimta að fá stjórnina að mestu
í sínar hendur og hafa jafnvel
haft á érði, að steypa Mikael
konungi af stóli. Er búist við
miklum tíðindum frá Rúmeníu
áður en langt um líður. Þótt
Bretar og Bandaríkjamenn eigi
fulltrúa t vopnahlésnefndinni,
þykir ðkki líklegt, að þeir geti
miklu ráðið um gang málanna
þar, eins og ástatt er.
Atburðirnir í Rúmeníu eru að
ýmsu leyti athyglisverðir fyrir
stjórnmálamenn annars staðar,
er kommúnistar styðja til valda.
Kommúnistar eira þeim aðeins
á meðan þeir eru að koma sér
betur fyrir. Síðan eru þeir
flæmdir frá ins og Radescu.
Ný bridgebók:
Vínarsagnkerfið
Árið 1936 kom Austurríkismaðurinn, dr. Paul Stern
fram með nýtt sagnkerfi í bridge. Kerfi þetta, sém
nefnt var Vínarsagnkerfið, vakti þegar í upphafi mikla
athygli.
Bók sú, sem nú liggur fyrir á íslenzku um Vínarsagn-
t C'
kerfið, er endursögð eftir bók, er út kom í London 1942
um kerfi dr. Sterns.
Fullyrða má, að þeir, sem læra sagnreglur
þessar vel og iata nákvæmlega eftir þeim, munu
aldrei verða í vandræðum með, hvernig réttast
( sé að segja á spilin.
BÓKAtíTGÁFA
Guðjóns 0. Guðjónssonar
Sími 4169.
Húseign í Vestmanna-
eyjum til sölu
Tilboð óskast í húseignina Eystri-Þorlaugargerði í Vestmanna-
eyjum ásamt miklum útihúsum, sem eru á jörðinní.
Seljandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Tilboðum sé skilað fyrir 10. apríl til MAGNÚSAR GUÐMUNDS-
SONAR, Helgafelli í Vestmannaeyjum, sem gefur allar nánari
upplýsingar.
Innilegustu þakkir færi ég öllum sveitungum mínum og
öðrum, er auðsýndu mér samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför mannsins míns,‘ »
Sveins Sveinssonar,
fyrrum bónda á Gillastöðum í Reykhólasveit. Guð blessi
ykkur öll.
VALGERÐUR BJARNADÓTTIR.
Öllum minum góðvinum, nœr og fjœr, sem glöddu
mig á áttrœðisafmœli mínu 14. ferbúar sl. með heim-
sóknum, stórgjöfum, vínsamlegum skeytum og á annan-
hátt, sendi ég mínar hjartans þakkir.
Guð blessi ykkur öll og launi.
Árbakka, 17. febrúar 1945
ÓLAFUR BJÖRNSSON
Ég þakka hjartanlega skylduliði minu og sveítung-
#
um fyrír heimsóknir, skeyti og gjafir á sjötugsafmœli
mlnu.
ÞÓRMUNDUR VIGFÚSSON, BÆ.
Höfum flutt
verzlun vora og saumastofu af Skólavörðustíg 19 á
Bergstaðastræti 28.
Mikið úrval af karlmannafötum nýkomið. — Einnig
drengjaföt.
Fataefni nýkomin. — Tökum efni í saum.
KLÆÐAGERÐIN
Ultíma h.f.
Bergstaðastræti 28. — Sími 3321.
Jörð til sölu
»
Jörðin Unhóll II í Djúpárhreppi, Rangárvallasýslu, fæst til
kaups og ábúðar frá fardögum 1945.
Kauptilboð séu send innan 1. apríl til Gunnars Árnasonar,
sími 2718, pósthólf 657 Reykjavík, er gefur nánari upplýsingar.
Áskilinn réttur að taka hvaða tilboði serfi er eða hafna öllum.
Raitækjavinnustof an Seliossi
framkvæmir allskonar rafvírkjastörf.
OBÐSENDING TIL KAIPEXDA TÍMANS.
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.