Tíminn - 06.03.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzha timaritið um
þj óðfél aqsmál.
8
REYKJAVÍK
Þeir, sem viljja hynna sér þjóðfélagsmál, inn-
lend og útlend, þurfa að lesa Daqshrá.
6. MARZ 1945
18. blað
f MNÁLL
1. marz, fimmtudagur:
M.-Gladbach tekin.
Vestururvígstöðvarnar: Ní-
undi herinn tók Miinchen-
Gladbach, (200 þús. íbúa). Fyrsti
herinn nálgaðist Köln. Þriðji
herinn brauzt inn í Trier. Litlar
breytingar urðu á vígstöðvum
Breta og Kanadamanna, en þar
var mótspyrna Þjóðverja líka
hörðust.
Austurvígstöðvarnar: Her Ro-
kossovkis sótti fram í Pommern.
Þjóðverjar tilkynntu, að þeir
hefðu í febrúar flutt 650 þús.
manns frá Austur-Prússlandi
sjóleiðis.
Bandaríkin: Þingið hefir sam-
þykkt tilnefningu Henry Wal-
lace, fyrv. varaforseta, serfi
verzlunarmálaráðherra.
2. marz, föstudagur:
Krcfeld og Trier
tckuar.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn tóku þýzku borgirnar
Krefeld (170 þús. íbúar) og
Trier (70 þús. íbúar) og hol-
lenzku borgirnar Venlo og Roer-
mund. Varnir Þjóðverja vestan
Rínar á vígstöðvum Kanada-
manna, Breta og 9. og 1. hers
Bandaríkjamanna, voru sagðar
komnar í mola og her þeirra
hraðar sér austur yfir fljótið.
Austurvígstöðvarnar: Her Ro-
kossovskys hefir rofið þjóðveg-
inn milli Stettin og Danzig og
hefir því að mestu einangrað
Danzig.
Frakkland: De Gaulle skýrði
frá því markmiði bráðábirgða-
stjórnarinnar, að atvinnuveg-
irnir í Frakklandi myndu háðir
ströngu ríkiseftirliti á komandi
árum.
i . ■- ' ' ■
Nýsköpunin og ijármálin
(Framhalct, af 1. síðu)
bætast svo við stóraukin fram-
lög til framfaramála, ef úr ný-
sköpuninni á að verða, en þrátt
fyrir hin miklu ríkisútgjöld í ár,
eru engin framlög veitt í þessu
skyni, svo neinu verulegu nemi.
Þegar þetta er athugað, sagði
Eysteinn, geta menn gert sér
ljóst, hvort stjórnin getur afsal-
að sér sköttum, ef hún ætlar
ekki að gerbreyta um fjármála-
stefnu. Menn geta einnig gert
sér Ijóst, að ríkið verður alveg
vanmáttugt um að leggja nokk-
uð til framkvæmda og einstakl-
ingarnir munu ekki verða fúsir
til þess undir þessum kringum-
stæðum.’Að því hlýtur að koma
með slíku áframhaldi, að ríkið
tekur að safna skuldum, at-
vinnuvegirnir dragast saman og
atvinnuleysið leggst eins og
mara á þjóðina.
Þetta, sem hér hefir verið
nefnt, ætti að gera mönnum
ljóst, að nauðsynlegt þefði verið
að breyta um stefnu nú þegar,
en .í stað þess verður allt dregið
til hausts, þegar erfiðleikarnir
við lausn málsins verða orðnir
enn meiri. í sumar verður flotið
sofandi að feigðarósi.
Stjórnarsinnar gera sér nokk-
urt far um það, sagði Eysteinn
að lokum, að halda því fram, að
óeðlilegt sé, að Framsóknar-
flokkurinn sé á móti veltuskatt-
inum, þar sem hann hafi fylgt
flestum, jafnvel öllum þeim út-
gjöldum, er þingið hefir sam-
þykkt. Flokkurinn hafi því átt
að samþykkja skattinn eða
benda á aðra tekjuöflfcn. Þessi
málflutningur á engan rétt á
sér. í fyrsta lagi hefir flokkur-
urinn alltaf bent á þá leið sem
aðalúrræði, að dýrtíðin yrði
færð niður, og hefði því ráði
verið fylgt, hefði ekkj þurft að
afla ríkissjóði tekna með þess-
um hætti. Þessi leið er líka sú,
sem skylt er að fara nú þegar. í
öðru lagi fer því fjarri, að Fram-
sóknarflokkurinn hafi léð öll-
um þeim útgjöldum, sem eru
fyrirhuguð, samþykki sitt og er
þar skemmst að minna á launa-
lögin.
Jakob Möller talaði næstur og
hvað Framsóknarmönnum illa
farast að tala um háa skatta,
þar sem þeir hefðu barizt allra
manna mest fyrir þeim áður
Pétur Magnússon talaði á eft-
ir Jakob og hélt alllanga ræðu.
Hann sagði, að Framsóknar-
menn hefðu hingað til viljað
skattleggja heildsalana, en nú
brigði svo kynlega *við, að þeir
vildu það ekki. Hann sagði, að
það sýndi tvísöng hjá Fram-
sóknarmönnum að telja skattinn
ýmist toll eða skatt. Hann sagði,
að telja mætti alla skatta rang-
láta, veltuskattinn líka. Hann
hvað þá fjármálastefnu, sem
væri fylgt, ekki vera stefnu núv.
ríkisstjórn’ar, heldur væri hún
arfur frá fyrry. stjórn. Hann
kvaðst fúslega viðurkenna, að
ekki væri hægt að fylgja þessarí
fjármálastefnu áfram, ef ný-
sköpun sú, sem fyrirhuguð væri,
ætti að komast í framkvæmd.
Hins vegar kvaðst hann ekki
geta bent á, a. m. k. ekki að
svo stöddu, hvaða stefnu, setti
að fylgja til að komast út úr
ógöngunum.
Eysteinn Jónsson svaraði þeim
Pétri og Jakob i ýtarlegri ræðu.
Hann kvað Framsóknarmenn
vissulega ekki andmæla því, að
heildverzlanir væru skattlafeðar,
en þeir vildu haga þeirri álagn-
ingu þannig, að hún miðaðist
við efni og ástæður, en þær
verzlanir yrðu ekki helzt skatt-
lagðar, er sízt skyldi, eins og
stefnt væri að með veltuskatt-
inum. Hann kvað það engan
tvísöng, að veltuskatturinn
leggðist ýmist sem tollur á vör-
urnar eða skattur á fyrirtækin.
Hann taldi furðulegt að rétt-
læta skattinn með því, að aðrir
skattar gætu líka verið rang-
látir. Samkvæmt þesSu ætti það
ekkert að vera aðfiríhsluvert að
fremja mikið ranglæti, ef menn
hefðu framið eitthvert smávægi-
legt ranglæti áður! Hann taldi
það. einnig skrítna röksemd
hjá Jakob Möller að ekkert væri
við skattinn að athuga, vegna
þess, að Framsóknarmenn hefðu
lagt á skatta áður! í -fyrsta lagi
hefðu Sjálfstæðismenn talið
skattana þá óþolasidi, þótt þeir
hefðu verið miklu lægri þá en
nú, og í öðru lagi þyrfti að hafa
hér einhver takmörk og þeim
hefði Framsóknarflokkurinn
talið náð, þegar undan væri skil-
inn eignaaukaskattur, niður-
felling varasjóðshlunninda og
bætt skattaeftirlit.
Þá er sú röksemd, sagði Ey-
steinn, ekki síður furðuleg, að
fjármálastefnan, sem fylgt er, sé
ekki stefna núv. ríkisstjórnar.
Vitanlega er sú stefna, sem fylgt
er á hverjum tíma, stefna þeirr-
ar stjórnar, sem með völdin fer.
Þegar stjórnin kom til valda,
átti hún um þrjár leiðir að
velja: í fyrsta lagi að færa nið-
ur dýrtíðina, er var bezta úr-
ræðið, í öðru lagi að stöðva dýr-
tíðina, er var næstbezta úrræð-
ið, og í þriðja lagi að auka dýr-
tíðina, sem var ekkert úrræði.
Þessa síðustu stefnu valdi
stjórnin sjálfviljug og fúslega,
eins og stjórnarsamningurinn
sýnir*bezt. Þar er lofað kaup-
hækkunum' „til samræmingar",
launalögum með miklum hækk-
unum og fleiru, sem eykur dýr-
tíðina. Það er því ekki hægt fyrir
stjórnina að eigna öðrum þessa
stefnu.
Þegar Framsóknarmenn bentu
á það, er stjórnin var mynduð,
að þessi leið væri ófær, ef koma
ætti fram nokkurri nýsköpun og
afstýra fjárhagslegu hruni, voru
þeir kallaðir hrunstefnumenn,
fjandmenn framfara og ný-
sköpunar og öðrum slíkum
nöfnum. Nú hefir fjármálaráð-
herrann sjálfur játað þetta rétt.
Nýsköpunin verður ekki fram-
kvæmd, nema breytt verði um
stefnu.
Það, sem mér finnst langsam-
lega furðulegast af öllu því, sem
V
Þingíausnir
Forseti sameinaðs Alþíngis
minnist lýðveldisstofn-
unarinnar
Þinglausnir fóru fram síð-
astl. laugardag, kl. 5 síðdegis.
Forseti sameinaðs Alþingis,
Gísli Sveinsson, gaf þar yfir-
lit um þingstörfin, og flutti
síðan stutta ræðu, þar sem
hann minntist sérstaklega
iýðveldisstofnunarinnar.
Forseti minntist þess fyrst, að
menn myndu deila um ýms störf
þingsins. Síðan sagði hann:
„En hvað sem þessu viðvíkur,
og ýmsu því öðru, er löggjafar-
þingið hefir haft með höndum
að þessu sinni, þá er þó eitt
mál — „mál málanna“, — er
ris eins og klettur úr hafinu í
sögu Alþingis nú og um allan
aldur og standa þar allir að með
glæstum sóma, eins og því lykt-
aði, alþingismenn og íslend-
ingar aðrir: Það er lausn sjálf-
stæðismálsins, skilnaðurinn frá
Danmörku og stofnun lýðveldis
á íslandi. Þessi afrek mun bera
hæst, þegar minnst verður árs-
ins 1944, dagsins 17. júní og
alls aðdraganda þeirra úrslita.
Hafa og allir mælt um þetta á
sömu lund. — Vér minnumst
þess einnig nú með maklegu
þakklæti, að ágæt þjóðríki er-
lend hafa í þessu" veitt oss
stuðning og viðurkennt máls-
stað vorn, og vonum vér, að
önnur skipti vor og þeirra megi
á líka leið fara.
Ég vil svo láta þ'ess getið að
síðustu, sem niðurlagí þess, er
ég hefi greint, að eldraunin er
eftir, þótt þessari veigamestu
frelsisbaráttu vorri fram að
þessu sé nú lokið með sigri, —
raun, sem að vísu er þegar
byrjuð og íslendingar eiga að
standast. Með sama hætti og
aðrar þjóðir, stríðandi og líð-
andi hafa það nú fyrir sér aug-
ljóst, að eftir „unnið stríð“
verður að „vinna friðinn“, eins
og komist er að orði, þ. e. tryggja
öllu fólki í öllum löndum frið
og öryggi, — eins ber oss hér í
voru frjálsa föðurlandi að
„vinna“ oss hið sanna frelsi,
og treysta, en hvergi veikja, af-
komumöguleika þjóðarinnar í
hvívetna, meff ráðum og dáff,
svo að hún geti óvefengjanlega
staðið föstum fótum á sinni
eigin jörð, sem ekki verður nema
með heilum hyggindum og ó-
eigingjarnri atorku, samfara
frjálsmannlegri festu gagnvart
öllu, sem að höndum ber. Vér
höfum öðlazt frelsiff, til þess aff
halda því aff fullu í heiffri“.
Þegar forseti þingsins hafði
þessi orð mælt, las forseti ís-
lands upp forsetabréf um þing-
lausnir og þingmenn hrópuðu
ferfallt húrra fyrir fósturjörð-
inni.
Þing þetta hefir orðið lengsta
þingið í sögu AlþingLs. Það var
sett 10. jan. 1944 og sat alls að
störfum í 256 daga. Fyrir það
voru lögð 293 mál. Samþykkt
voru 114 lög og 78 þingsálykt-
anir. Yfir 100 mál voru felld
eða fengu ekki afgreiðslu.
hér hefir komið fram, sagði Ey-
steinn að lokum, er sú yfirlýsing
fjármálaráðherra, að ekki verði
hægt að fylgja ríkjandi fjár-
málastefnu áfram og þó gerir
hvorki hann eða stuðnings-
flokkar hans neitt til þess að
breyta um stefnu. Eftir að
hafa komizt að slíkri niðurstöðu,
er það vitanlega sjálfsögð skylda
fjármálaráðherrans að gera sitt
ýtrasta til að knýja fram stefnu-
breytingu tafarlaust eða fara
frá. í þess stað er þinginu frest-
að í marga mánuði og mál þessi
verða stöðugt óviðráðanlegri
með hverjum deginum, sem
líður.
Pétur talaði ekki aftur. Við
lokaatkvæðagreiðsluna var
framannefnd tillaga Framsókn-
armanna felld og frv. samþykkt.
Hefir áður verið sagt frá at-
kvæðagreiðslunni um það hér
í blaðinu.
\
Axel Thorsteínsson
fimmtugnr
Axel Thorsteinsson átti fimm-
tugsafmæli í gær. Hann er fyrir
löngu þjóðkunnur maður fyrir
rit- og fréttastörf og nú á síð-
ustu tímum fyrir erindi sín í út-
varpinu..
Axel er fæddur og uppalinn í
Reykjavík, sonur Steingríms
skálds, en varð ungur elskur að
sveitabúskap og sveitalífi og
lauk m. a. búfræðinámi, 19 ára,
við bændaskólann á Hvanneyri.
Síðan fór hann út I lönd og
dvaldi þar alllengi. Gerðist hann
þá sjálfboðaliði í her Ameríku-
manna í hinni fyrri heims-
styrjöld og var kominn í stríðs-
lokin, 1918, á vígvellina í Ev-
rópu sem hermaður. Eftir heim-
komuna hefir hann aðallega
unnið ýms fréttastörf við
fréttastofu blaðanna, „Vísi“ og
Ríkisútvarpið, en jafnframt
fengizt við sagnagerð í tóm-
stundum. Alltaf mun samt ís-
lenzkt sveitalíf hafa átt sterk-
an þátt í Axel, og trúað gæti ég
að ennþá. væri honum kærast
að vera bóndi uppi í sveit, ef
aðstæðurnar leyfðu það.
Axe^ hefir viðkvæma skap-
gerð, er yfirlætislaus, en traust-
ur og góður drengur.
Sá, er þessar fáu línur ritar,
minnist Axels frá gömlum sam-
verustundum á skólabekk og í
annarri stærstu heimsborginni,
sem eins hins prúðasta og bezta
drengs, er ávallt vildi gera allt
sem réttast var og öðrum til
góðs. V. G.
Smjjörverðið
(Framhald af 1. síðu)
Framkoma stjórnarflokkanna
í þessu máli sýnir næsta vel,
hvernig þeir búa að atvinnu-
vegunum. Fyrir styrjöldina var
ísienzka smjörið miklu meira
en samkeppnishæft við erlent
smjör, hvað verðlag snerti.
Vegna dýrtíðar þeirrar, sem
þessir flokkar hafa skapað er
það ekki lengur samkeppnis-
fært, og þá er gripið til þess
ráðs að flytja inn erlent smjör
og selja það með lægra verði,
svo að íslenzka smjörframleiðsl-
an hverfi alveg úr sögunni. Slík-
ir fj ármálahættir munu ekki
aðeins stöðva smjörframleiðsl-
una, heldur alla framleiðslu
landsmanna fyrr en varir.
Frá Keflavík
(Framhald af 1. slðu)
Keflavík að tilhlutun hrepps-
nefndarinnar. Var þar stofnað
hlutafélag með almennri þátt-
töku þorpsbúa um að koma upp
skipastól til útgerðar.
Bráðabirgðastjórn var kosin
á fundinum -til að semja lög
fyrir félagið. Skipa hana Alfreð
Gíslason lögreglustjóri, Valtýr
Guðjónsson, Snorri Þorsteins-
son, Ragnar Guðleifsson og
Valdimar Björnsson. Hlutafjár-
loforð nema nú um 80 þúsund
krónum og' eivætlunin að auka
það allverulega, enda virðist.
almennur áhugi ríkja meðal
Keflvíkinga fyrir þessu nýstofn-
aða hlutafélagi. Framhaldsað-
alfundur verður haldinn bráð-
lega
— Hvaff geturffu sagt mér, í
stuttu máli, um atvinnuhorfur
og framtíffarfyrirætlanir Kefl-
víkinga?
— Afkoma Keflvíkinga bygg-
ist algerlega á sjávarútvegi.
Aðaláhugamál þorpsbúa er þvi
að búa í haginn fyrir aukna út-
gerð, en þar eru hafnarbætur
þýðingarmikill þáttur. Höfnin
í Keflavík er ófullkomin og þarf
— —GAMLA BÍÓ-—■—
ELSKHUGI A
LEIGU
(Her Cardboard Lover)
Norma Sherarer,
Robert Taylor,
George Sanders.
Sýnd kl. 7 og 9.
Arás rauðskinna
(Apache Trail)
Lloyd Nolan,
Donna Read.
Sýnd kl. 5.
Bönnuð innan 12 ára.
nýja bíó —■ — . — >
VORT ÆSKULtF
ER LEIKUR
(„Mister BIG“)
Fjörug söngva- og gaman-
mynd. — Aðalhlutverk:
V
Gloria Jean,
Peggy Ryan,
Donald O’Connor.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
1 \
dAðir
VORU DRVGÐAR
Saga Nólseyjar-Páls
^g fleiri afreksmanna.
er m e r k bók og
skemmtileg.
TJARNARBÍÓ
SAGAX AF
WASSEL LÆKCVI
(The Story of Dr. Wassell) I
Cary Cooper,
Laraine Day.
1 Sýnd kl. 6,20 og 9.
Bönnuð fyrir börn.
A mararbotni
(Minesweeper)
Hetjusaga um tundur-
duflaveiðar:
Richard Arlen,
Jean Parker, «
Russell Hayden.
Sýnd kl. 5.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
| Álfhóll
ÍSjónieikur í 5 þáttum eftir J. L. HEIBERG.
Sýning til ágóða fyrir fátæk dönsk börn
annað kvöld kl. 8.
■tv
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 í dag.
ATH:. Allir þeir, sem starfa að þessari sýningu hjá
L. R. hafa ákveðið að gefa kvöldkaup sitt.
Verð aðgöngumiða er kr. 22,00, en að sjálfsögðu er
j hverjum þeim, er þess æskir, heimilt að greiða meira.
Ú R B Æ N U M
Samkoma.
Skemmtisamkoma Framsóknar-
manna í Sýningaskálanum sl. fimmtu-
dagskvöld var að venju mjög ánægju-
leg. Fyrst var spiluð Framsóknarvist
á öllum borðum, sem til voru í saln-
um, en síðan úthlutað verðlaunum til
sigurvegaranna. Þá flutti Jens Hólm-
geirsson ágæta ræðu og svo var sung-
ið og dansað af miklu fjöri fram
eftir nóttunni.
Kjartan Ó. Bjarnason kvikmyndaði
vistina og mun sjást á sínum tíma,
hvaða fólk það er, sem sækir Fram-
sóknarskemmtanir í Reykjavík. Hafa
einstaka öfundarmenn þeirra reynt að
breiða út missagnir í þeim efnum.
M. a. sést ekki ölvun á manni á
þessum skemmtunum og er það frek-
ar fátítt um stærri samkomur nú á
dögum. Helduj var þröngt í Sýninga-
skálanum í þetta sinn og var þp
fjöldamörgum neitað um aðgang vegna
rúmleysis.
Frumsýning
á leikriti Menntaskólanemenda verð-
ur haldin næstkomandi föstudag og
hefst í Iðnó kl. 8 um kvöldið. Leik-
nauðsynlegra endurbóta við,
enda er það ætlunin að lengja
hafnargarðinn um 40 m. á
næstunni. Mun höfnin þá verða
nokkurn veginn öruggt lægi fyr-
ir vélbáta. Auk þessarar leng-
ingar á hafnargarðinum er
nauðsynle^t að byggja 3—4
bátabryggjur fyrir vélbátana til
að landa aflanii.
Keflvíkingar eru í þann veg-
inn að hefja, eða eru þegar byrj-
aðir á ýmsum framkvæmdum,
sem skapa þorpsbúum aukin
þægindi og bætt lífsskilyrði. Má
þar til nefna raflögn frá Sogs-
virkjuninni, skolpleiðslu, vatns-
veitu og sjúkrahússbyggingu.
Byggingafélag verkamanna
var stofnað fyrir nokkru og er
í ráði að hefja byggingarfram-
kvæmdir í vor. Formaður félags-
ins er Valtýr Guðjónsson.
Keflavík hefir vaxið ört und-
anfarin ár og á mikla framtíð
fyrir sér sem útvegsbær, sökum
sérstaklega góðra skilyrða til
sjósóknar.
ritið heitir „Kappar og vopn“ og er
Eftir Bernhard Saw. Leikendur eru
allir úr Menntaskólanum en Lárus
Sigurbjörnsson hefir æft leikinn og
mun hafa leikstjórn á hendi. Hann
hefir einnig snúið leikritinu á íslenzku.
Fært austur um Mosfellsheiffi.
Nú um helgina varð vegurinn aust-
ur yfir Mosfellsheiði fær bifreiðum
að nýju, en hann hefir um nokkurt
skeið verið ófær vegna snjóa. Hefir
því tekizt að koma nægri mjólk til
bæjarins.
Stuldur.
Seinastl. sunnud. var farið ínn í
ólæsta íbúð í Vesturbænum og stolið
þaðan peningakassa, sem í var verð-
mæti fyrir um 70 þús. kr. Gömul
kona var ein heima í íbúðinni og var
að hlusta á útvarp, en varð ekki
neinna mannaferða vör.
Drengur verffur undir bfl.
Sá Ijóti leikur tíðkast meðal barna
hér í bæ að 'hanga aftan í bifreið-
um. Nýlega varð slys vegna þess á
Öldugötu, er tíu ára drengur, Örn
Tyrfingsson að nafni, til heimilis við
Öldugötu 52, varð undir strætisvagni
og lézt af völdum þess. Hafði dreng-
urinn hangið aftan i vagninum á-
samt fleiri börnum.
Bálför Björns Ólafssonar.
Frá Edinburgh Crematorium er til-
kynnt, að bálför Björns Ólafssonar,
fyrrv. símritara, hafi farið fram þann
21. febrúar. (Frá Bálfarafél. íslandsj.
Hraunbúinn.
Skátafélag Hafnárfjarðar hefir gefið
út blað, sem nefnist Hraunbúinn. Rit-
stjóri þess er Vilbergur Júlíusson
kennari. Blaðið flytur nokkrar greinar
um skátafálagsskapinn, þýdda sögu,
félagsfréttir, leiki, þrautir, gátur og
ýmsar skemmtanir. Hraunbúinn er 30
síður í stóru broti, prýddur fjölda
mynda og á allan hátt hið vandað-
asta blað.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af séra Garðari Svarssyni ung-
frú Guðbjörg Guðbjartsdóttir frá
Hjarðarfelli i Miklaholtshreppi og
Helgi J. Halldórsson stud. mag. frá
Kjalvararstöðum i Reykholtsdál. Heim
ili þeirra er á Hrísateig 16.