Tíminn - 17.04.1945, Qupperneq 1
KITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEFFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Símar 2353 0B 4373.
PRENT8MIÐJAN EDDA hS.
RITSTJ ÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9A.
Simar 2353 Og 4373.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
Síml 2323.
29. árg.
Reykjavík, þriðjudagmn 17. april 1945
28. blað
Hín kommúnistiska óðld
í KRON færist í aukana
Tvœr utanbæjardeildir hafa óskað eftir
að fara úr félagiuu.
Deildarkosningunum í Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis
er nú að verða lokíð. Kommúnistum hefir tekizt að ná meirihlut-
anum í flestum þeirra, enda hafa þeir beitt fáheyrðari vinnuað-
ferðum en áður munu hafa þekkzt í nokkru félagi hér á landi.
I»eir hafa smalað inn í félagið fjölda af fólki, án. minnsta tillits
til aukinna viðskipta, t. d. látið alla meðlimi stórra fjölskyldna
ganga í félagið. Þeir hafa látið loka fundunum, þegar þeir töldu
yfirráð sín í hættu, og blað þeirra hefir flutt svívirðilegri um-
mæli og aðdróttanir um samvinnumenn en áður hafa sézt hér
á prenti.
Vafalaust er það, að þessí sundrungar- og niðurrifsstarfsemi
kommúnista, sem þeir sjálfir kalla þó einingu, hefir mjög ýtt
undir þá hreyfingu meðal utanbæjardeildanna að segja skilið við
Kron, enda hafa deildirnar í Keflavík og Hafnarfirði nú sam-
þykkt að óska skilnaðar. Hafa þær að vísu haft áhuga fyrir
því áður, en hin kommúnistiska óöld í félaginu hefir vitanlega
gefið skilnaðarstefnunni byr í seglin.
Starfsaðferðirnar.
í seinasta blaði Tímans var
nokkuð lýst aðferðum kommún-
ista í þessari kosningabaráttu.
Þegar þeim var ljóst eftir aðal-
fundinn síðastl. vor, að þeir
voru í minnihluta í félaginu,
byrjuðu þeir strax að safna
flokksmönnum sínum in í félag-
ið. Hins vegar sinntu þeir ekkert
um aukín viðskipti, enda minnk-
aði viðskiptavelta félagsins í
Reykjavík um eina milj. kr. síð-
astliðið ár, þótt félagsmönnum
fjölgaði um nokkur hundruð.
Eftir áramótin hertu kommún-
istar svo enn söfnunina í félag-
ið. Sigfús Sigurhjartarson tók
þá að sér yfirstjórn hennar og
hafði hann í þjónustu sinni
Guðberg nokkurn Kristinsson,
sem ekki sinnti öðru verki.
Þegar deildarfundirnir hóf-
ust, töldu kommúnistar sig
orðna fullvissa um yfirráðin í
félaginu. Þessar vonir þeirra
brugðust þó á öðrum fyrsta
deildarfundinum, enda gengu þá
nokkrir menn í félagið. Kom-
múnistar urðu þá ókvæða við og
létu strax halda fund í félags-
stjórninni, þar sem þeir kröfð-
ust að enginn maður yrði tekinn
inn í félagið fram yfir aðalfund.
Töldu þeir sig vissa um yfirráð-
in í félaginu, ef þetta yrði sam-
þykkt, vegna þess hve mörguir.
liðsmönnum sínum þeir höfðu
safnað inn í félagið fyrr um
veturinn. Þessi „lokun“ á félag
inu var vitanlega ekki samþ.,
þar sem hún virtist bæði stríða
gegn félagslögum og landslög'
um. Kommúnistar gripu þá til
þess ráðs, sem er einstætt í sögu
samvinnufélagsskaparins. Þeir
sendu þá út „neyðarkallið"
fræga og fyrirskipuðu flokks
(Framhald á 8. síðu)
Hátíðahöld Sumargjafar
á sumardaginn fyrsta
Barnavinafélagið Sumargjöf hefir nú í 21 ár unniff aff vel-
ferðarmálum reýkvískra barna. Sumardagurinn fyrsti hefir ár
hvert veriff fjársöfnunardagur félagsins, og hiafa hátíffahöld
barnanna jafnan sett svip sinn á daginn a. m. k. í Reykjavík.
Framkvæmdastjórn félagsins
skýrði í gær blaðamönnum frá
hinum fyrirhuguðu hátíðahöld-
um og samkomum félagsins á
fimmtudaginn (sumardaginn
fyrsta). Á morgun, miðvikudag,
verður blað félagsins „Barna-
dagsblaðið" selt á götunum og
kostar tvær krónur. í því er
m. a. kvæðið „ísland^ börn“,
sem Jóhannes úr Kötlum hefir
orkt fyrir Hátiðahöld barnanna
á sumardaginn fyrsta. Þetta er
1 12. sinn, sem „Barnadagsblað-
ið“ kemur út. Ritstjóri þess er
ísak Jónsson, kennari.
Á sumardaginn fyrsta verða
seld merki til ágóða fyrir félag-
ið, eins og undanfarin ár. Verða
þau seld á 2 krónur og 5 krónur
(með borða). Þann dag verður
ársrit félagsins „Sólskin“ selt á
götunum. Það er 1 16. sinn, sem
þetta sumarmálarit bamanna
kemur úti — Nú er „Sólskin"
óvenjulega fjölbreytt að efni
og prýtt mörgum fallegum
myndum. Vilbergur Júlíusson,
kennari í Hafnarfirði, hefir sýnt
Sumargjöf það drengskapar-
brago að safna efní í bókina og
sjá um útgáfu hennar. „Sól-
skin“ kostar aðeins 5 krónur og
er kærkomið lestrarefni barna.
Hátíðahöld dagsins hefjast
með skrúðgöngu barna kl. 12,45
kl. 1,30 flytur séra Jakob Jóns-
son ræðu og kl. 1,40 leikur
Lúðrasveit Reykjavíkur á Aust-
urvelli undir stjórn Albert
Klahn. Síðar um daginn verða
samkomur á vegum félagsins í
flestum samkomuhúsum bæjar
ins og hefir félagið aldrei haft
jafn margar og umfangsmiklar
skemmtanir. Alls verða 19
skemmtanir haldnar i 11 sam-
komuhúsum bæjarins með um
60 skemmtiliðum.
Þess skal sérstaklega getið, að
herstjórnin hefir sýnt félaginu
þann velvilja að lána þvi Tri
poli-leikhúsið á Melunum. Þar
mun bezta hljómsveit ameríska
hersins á íslandi leika. Ýtarleg
skrá yfir allar skemmtanir
dagsins er annars í „Barnadags-
blaðinu". Söngur og tónlist er
aðalþáttur skemmtananna.
Framkvæmdastjórn dagsins
þakkar öllum þeim, sem greitt
hafa fyrir með skemmtikrafta á
samkomunum.
Félagið rekur nú fjögur barna'
heimili: Grænuborg, Vesturborg
Tjarnarborg og Suðurborg
Starfsdagar allra heimilanna
voru á árinu 2274, en á heimilin
komu alls 618 börn. Dvalardag-
ar barnanna urðu alls 62.047
Þar af tilheyrðu leikskólanum
17.473 dvalardagar án fæðis.
Starfsemi Sumargjafar fer nú
vaxandi með ári hverju, á sein-
asta ári var byggt barnaheim.il-
ið Suðurborg, en við það jókst
starfsemin um helming. Félagið
getur samt sem áður hvergi
nærri fullnægt þörfinni fyrir
barnaheimili hér í bænum.
Úrrœdi samvinnunnar reynast utgerðinni bezts
Fískverðið verður hæst, þar sem
samlögin annast útflutninginn
ROOSEVELT FORSETI
Útvegurmn fær hvergi nærri 15'
uppbéf á fiskverðid, eins og stjórn-
arblöðín loiuðu I vetur
Þaff virffist komiff á daginn, að útvegsmenn og sjómenn fá hvergi
nærri þá 15% uppbót á fiskinn, sem stjórnarflokkarnir lofuffu
þeim, heldur verffur hún sennilega allt að helmingi minni. Fyrstu
útborganirnar úr verðjöfnunarsjóffi, sem nú eru aff hefjast, benda
a. m. k. í þá átt. Hafa menn hér því nýja sönnun fyrir því, hve
lítiff er aff byggja á loforffum núv. ríkisstjórnar.
Jafnframt er þaff fyllilega komiff í ljós, aff verffhækkunin á
fiskinum verffur talsvert meiri á þeim stöðum, þar sem samlög
annast flutningana. Sézt vel á því, hvort ekki hefði veriff hyggi-
Iegra aff taka upp þá stefnu, sem Framsóknarmenn börðust fyrir,
aff koma öllum . flutningunum í hendur samlaga er ríkiff
reyndi aff útvega skip meff hagkvæmum leigumála. f staff þess
aff taka upp þessa stefnu, lét ríkisstjórnin undan milliliffunum og
fyrirskipaffi hina svokölluffu „15% verffhækkun", er nú hefir sýnt
sig stórum óhagkvæinari fyrir útveginn en samlagafyrirkomu-
lagiff.
Eins og sagt var frá í seinasta biaði, andaðist Roosevelt forseti snögg-
lega síðastl. fimmtudagskvöld. Banamein hans var hellablóðfall. Forsetinn
var staddur á sveitasetri sínu í Warm Springs, er hann Iézt, og var eng
inn náinn vandamaður hans viðstaddur. Roosevelt var 63 ára, fæddur'
30. jan. 1882. Hann lauk iaganámi 1984. Hann stundaði fyrst málafærslu-i
störf, en 1913 gerðist hann starfsmaður í flotamálaráðuneytinu og varj
varaflotamálaráðherra á stríðsárunum. Hann var varaforsetaefni demo-j
krata i forsetakosningunum 1920, en féll. Árið 1921 fékk hann lömunar-J
veiki eftir að hafa unnið að því að slökkva skógareid. Hann vann að mestuij
bug á þessum hættulega sjúkdómi og hóf aftur opinber afskipti fjórum ár-'j
um síðar. 1928 var hann kosinn ríkisstjóri í New York fylki. Hann varj
kosinn forseti Bandaríkjanna 1932 og þrívegis síðan. Hann hefir því gegnt"
forsetaembættinu lengur en nokkur annar maður. Hann giftist frænku,
sinni, Anna Eleanor, 1905. Eiga þau f jóra uppkomna syni, sem allir eru
f herþjónustu, og eina dóttur. Nánar er sagt frá störfum og stefnu
Roosevelts á öðrum stað í blaðinu.
Fráfalls Roosevelts
minost
Minningarathöfn um
Franklin D. Roosevelt Banda-
ríkjaforseta fór fram í Dóm-
kirkjunni í ReykjQvík síffastl.
laugardag, aff viffstöddum for-
seta íslands og frú hans, rík-
isstjórn og fulltrúum allra er-
lendra ríkja.
\ # '
Herra Sigurgeir Sigurðsson
biskup flutti aðal-minningar-
ræðuna og mælti bæði á ís-
lenzku og ensku. Lýsti hann
þakklæti islenzku þjóðarinnar
til Roosevelts Bandaríkjafor-
seta, og kvað íslenzku þjóðina,
ásamt gervöllum heiminum,
syrgja hinn mikla leiðtoga.
August Borleis aðalherprestur
Bandaríkjamanna hér á landi
las bæn og ritningargreinar.
Dómkirkjukórinn söng sálminn
Víst ertu Jesús kóngur klár.
Páll ísólfsson lék undir á orgel.
Albert Basso, bandariskur her-
maður, söng einsöng, 23. sálm
Davíðs, en Henry Darling,
bandarískur hermaður, lék und-
ir á orgel.
Kirkjan var þéttskipuð ís-
lendingum og Bandaríkja-
(Framhald á 8. síðu)
Tveir menn faras!
á Hornafirði
Síðastl. föstudag vildi það slys
til á Hornafirði, að bát hvolfdi
og tveir menn drukknuðu.
Vont veður var og rak bátinn
að færeyskri fiskiskútu og
hvolfdi þar. Tveir menn drukkn-
uðu, þeir Júlíus Filippusson frá
Digurhálsi í Mýrdal, 25 ára að
aldri, ókvæntur, og Stefán
Bjarnason frá Norðfirði, 24 ára,
kvæntur og átti tvö börn.
Þriðja manninum tókst að
halda sér í fangalínu, þar til
honum var bjargað.
í gær var leitað að líkum
hinna tveggja sem fórust, en á
rangurslaust.
Ibúar Rvíkur 45,842
Samkvæmt skýrslum mann
talsskrifstofunnar voru 45.842
menn búsettir í Rvík á siðastl
ári eða 1744 fleiri en árið
áður, og 7623 fleiri en 1939. í
öllum þessum tölum eru þeir
taldir með, sem áttu lögheimili
utanbæjar, en þeir voru 1561 á
síðastl. ári.
Af íbúum Reykjavíkur á sið-
astl. ári voru 24.236 konur og
21.606 karlar.
VerSSuppbótin.
Þegar ríkisstjórnin birti aug-
lýsingu sína um að milliliðir
mættu kaupa fisk með 15%
verðhækkun frá því, sem áður
var, auglýstu stjórnarblöðin
þetta eins og um 15% verðhækk-
un á öllu fiskmagninu væri að
ræða. Tíminn benti þá á, að
þetta myndi vera ofmælt hjá
stjórnarblöðunum, eins og margt
fleira, þar sem þessi 15% verð-
hækkun yrði látin renna í sér-
stakan sjóð, og honum yrði síð-
an ráðstafað til verðuppbóta á
allt fiskmagnið, m. a. fiskinn,
sem hraðfrystihúsin fengju.
Stjórnarblöðin kölluðu þetta
hrakspá og öðrum slíkum nöfn-
um og drógu ekkert úr loforð-
unum um það, að 15% verð-
hækkunin myndi ná til alls fisk-
magnsins.
Úthlutunin úr verðjöfnunar-
sjóðnum, sem nú er að byrja,
mun skera bezt úr því, hvort
stjórnarblöðin eða Tíminn hafa
hér reynzt sannspárri. Útgerðar-
menn og sjómenn munu nú fá
að sjá, að þeir fá enga 15%
verðuppbót, eins og stjórnar-
blöðin hafa lofað þeim, heldur
verður hún miklu minni. Enn
verður ekki sagt um það með
vissu, hver hún verður til jafn-
aðar á allt fiskmagnið yfir ver-
tíðina, en svo virðist hæglega
geta farið, að hún verði helm-
ingi lægri en stjórnarblöðin lof-
uðu. Það fer m. a. mjög eftir því,
hve mikinn fisk frystihúsin
taka. Útvegsmenn og sjómenn
geta séð það mæta vel á þessu,
hve mikið er að byggja á loforð-
um stjórnarflokkanna.
Samlögm.
Annað atriði í þessu sambandi
mun þó vafalaust vekja enn
meiri athygli útvegsmanna og
sjómanna. Verðhækkunin mun
verða talsvert hærri á þeim
stöðum, þar sem milliliðir hafa
ast útflutninginn, en á þeim
stöðum, þar sem samlög ann-
keypt fiskinn samkvæmt 15%
verðhækkunarreglu stjórnarinn-
ar. —
Þegar þessi mál voru til um-
ræðu í vetur, mæltu Framsókn-
armenn eindregið með þeirri
stefnu, að öllum fiskflutningum
yrði komið í hendur samlaga og
Alþingi og stjórn gerðu sitt ýtr-
asta til að útvega þeim flutn-
ingaskip með hagkvæmum leigu-
kjörum. Kommúnistar þóttust i
fyrstu vera fylgjandi þessari
stefnu, en þeim reyndist ekki
vera það nein alvara frekar en
endranær, þegar um raunhæf
umbótamál er að ræða. Leikar
fóru því svo, að sjávarútvegs-
málaráðherra kommúnista lét
að óskum milliliðanna í Sjálf-
stæðisflokknum. Horfið var frá
þeirri stefnu að koma öllum fisk-
flutningum 1 hendur samlaga,
heldur var milliliðunum veittur
kostur á að kaupa fisk með
framangreindum kjörum. Það
var að vísu nokkur bót frá því
að láta málið alveg afskipta-
laust, en hins vegar stórum
verra úrræði en samlagafyrir-
komulagið, eins og nú er líka
komið í ljós.
Það er því vissulega furðulegt,
að stjórnarblöðin skuli þykjast
geta deilt á afstöðu Framsókn-
armanna í fisksölumálunum,
þar sem það hefir þannig sýnt
sig, að úrræðið, sem þeir börð-
ust fyrir, hefir gefizt útvegin-
um bezt. Útgerðarmenn og sjó-
menn á þeim stöðum, þar sem
ekki hafa starfað samlög, munu
líka áreiðanlega harma það, að
stjórnin skuli ekki hafa tekið
upp þessa stefnu Framsóknar-
flokksins í fisksölumálunum,
heldur látið að óskum millilið-
anna og þvi farið inn á leið,
sem reynzt hefir stórum óhag-
kvæmari en samlagafyrirkomu-
lagið.
trræðí, sem ekki má
láta ónotað.
Sú reynsla, sem hér hefir
fengizt, ætti að vera útvegs-
mönnum og sjómönnum ný
sönnun þess, að þeim sé bezt og
hagkvæmast að hagnýta sér úr-
ræði samvinnunnar í miklu rík-
ara mæli en hingað til. Fyrir
næstu vertíð ætti að vera búið
að koma á þeirri skipun, að allir
fiskflutningarnir væru í hönd-
um samlaga. Þá þarf að vinna
enn betur að því en áður að
koma upp olíusamlögum og
öðrum innkaupasamlöguín fyrir
(Framhald á 8. síðu)
I DAG
birtist & 3. síða grein eftir GuS-
rúnu Pálsdóttur húsfreyju aS
HailormsstaS um konuna, börn-
in og heimiliS.
Á 4. síðu er fyrri hluti bréfs
ur Húnaþingi, þættir um nútíS
og framtfS.
1