Tíminn - 17.04.1945, Blaðsíða 7
28. blað
TÍMEVX. jirigjndagiim 17. april 1945
7
Roosevelt
(Framhald af 2. síöu)
velt forseti hefir af hendi leyst.
Hæfileikar hans voru óvenju-
legir. Viljaþrekið og bjartsýnin
voru frábær, eins og sjá má á
þvi, að hann sigraðist á hinum
erfiðasta sjúkdómi og sinnti
hinum umfangsmestu stjórnar-
störfum í nær tvo áratugi, þótt
aldrei væri hann alheill á þeim
tíma. Glöggskyggni hans á úr-
ræði og starfsaðferðir og festa
hans og lægni í málafærslu eru
einsdæmi á sínum tíma. Aðrir
menn komust til mikilla valda
á þessum tíma, eins og Hitler
og Stalin, en þeir ruddu sér
brautina með ofbeldi og ólögum
og stjórnuðu síðan með þeim
hætti. Roosevelt vann alla sína
sigra á grundvelli lýðræðis-
ins, án valdboðs og þvingana,
og oftast með meginið af á-
róðurstækj um þ j óðf élagsins,
eins og blöðum og’ útvarpi, á
móti sér. Þess vegna á hinn langi
og farsæli stjórnarferill hans
ekkert sambærilegt dæmi í sögu
síðari ára.
Það væri vissulega með öllu
rangt að eigna hæfileikum
Roosevelts eingöngu þau afrek,
sem hann hefir unnið. Stefna
hans á þar annan meginþátt
inn. Hún aflaði honum álits og
trausts. Barátta hans fyrir
mannréttindum og félagslegum
framförum unnu honum fylgi
hinna fjölmennu vinnustétta
þjóðarinnar. Hann kom jafnan
fram sem ótrauður baráttumað
ur frelsis og jafnréttis og ákveð
inn andstæðingur kúgunar og
fátæktar. Honum var líka ljóst,
að mannsandinn myndi stöð-
ugt halda áfram framsóknar-
baráttu sinni, en eigi nema
staðar eða snúa til baka, en
hann vildi láta þessa framsókn
gerast með hóflegri og mark
vissri þróun. Þess vegna svaraði
hann á blaðamannafundi rétt
eftir áramótin seinustu, þegar
hann var spurður um, hver
stjórnmálastefna hans væri:
Hin sama og hún hefír alltaf
verið, örlítið til vinstri. Með
þessu átti hann við hina upp-
runalegu vinstri stefnu, sem
barðíst fyrir auknu frjálslyndi
og framsækni, en eigi kommún-
isma eða sósíalisma, er rang
lega hefir hlotið þetta nafn á
síðari árum. Þeim stefnum var
Roosevelt andvígur, eins og öll-
um yfirgangs- og einræðis-
stefnum, í hvaða mynd sem þær
birtust. Þess vegna lýsti hann
því yfir í forsetakosningunum
síðastl. haust, að hann afþakk
aði jafn eindregið stuðning
kommúnista og nazista við sig
í kosningabaráttunni. Hann var
sannur persónugervingur hinna
glæstu hugsjóna, frelsisins og
mannréttindanna, er mótuðu
fyrstu stjórnarskrá Bandaríkj
ana fyrir meifa en hálfri ann
arri öld síðan, og þá kveiktu þá
kyndla, er brátt lýstu um heim
allan og hafa gert æ síðan
Hann var tvímælalaust sá bezti
fulltrúi, sem hin frjálsa Banda-
rikjaþjóð gat valið sér á þeim
tíma, þegar trúin á einræði og
dýrkunina á einræðisherrunum
lögðu undir sig mikinn hluta
heimsins. Meðan Hitler og Stal-
in voru fulltrúar einræðisins
var Roosevelt fulltrúi lýðræðis-
ins og frelsisins, og færði heim
sanninn um, að lýðræðis gæti
ekki síður alið mikilhæfa stjórn
endur en einræðið.
Það má segja um Roosevelt.
að hann ha'fi fallið á hátindi
frægðar sinnar. Hann hafði ver
ið farsæll leiðtogi á friðartím
um og sigursæll foringi í styrj-
öld. Nýtt tímabil var að hefjast
í stjórnartíð hans. Framundan
var hið mikla verkefni „að
vinna friðinn.“ Sú trú, að það
myndi takast, þrátt fyrir alla
erfiðleika, var eigi sízt við það
bundin, að þessi margreyndi og
farsæli ’stjórnmálaleiðtogi skip-
aði voldugusta þjóðhöfðingja-
embætti heimsins. Hann hafði
dregið upp glæstar myndir af
hinum nýja heimi, og orka hans
öll var helguð því málefni. En
örlögin leyfðu honum ekki
meira en að sjá inn í „fyrir
heitna landið..“ Þau örlög eru
sár fyrir þá, sem treystu bezt
leiðsögu hans, og þess vegna
eiga nú vel við orð Jónasar, að
„nú reikar harmur í húsum og
hryggð á þjóðbrautum.“ En
„huggun er það harmi gegn“, að
merkið, sem Roosevelt reisti
stendur áfram og hugsjónirþessa
mikla frelsis- og mannvinar
A vídavangi
(Framhald af 2. síöu)
hugsun í það að reikna þetta
dæmi og J. J., og þeir munu
hvorki hafa látið hótanir eða
blíðmæli ráða niðurstöðunni,
Dótt J. J. ætli þeim þá lítil-
mennsku. Þeirra niðurstaða var
sú, að þjóðinni væri heppileg-
ast, bændum jafnt og öðrum, að
gerð yrði tilraun til niður-
færslu. Þess ívegna riðu þeir á
vaðið. Fordæmi þeirra hefir ekki
verið fylgt. Hér eftir munu
bændur því halda jafn óhikað
fram kröfum sínum og aðrar
stéttir. Tilraunin, sem þeir
gerðu, mun verða þeim öflug
stoð í þeirri baráttu.
Það er vissulega vont verk,
sem J. J. vinnur, þegar hann er
að ófrægja forustumenn bænda
fyrir framkomu þeirra á Bún-
aðarþingi. Bændastéttin þarfn-
ast nú annars en að þann-
ig sé reynt að skap^ ástæðu-
lausa tortryggni og sundurlyndi
innan vébanda hennar. Slíkt
tefur aðeins fyrir sameiningu
bændanna. Sem betur fer, virð-
ast bændur líka ekki hafa þessi
sundrungarskrif að neinu, og
seinasta Búnaðarþing bjó þá
undir að fylkja liði, ef þörf
krefði. J. J. ætti að leggja niður
árásirnar á Búnaðarþing, ef
hann vill styðja sameiningu
bænda af heilum hug.
Jrval smásagfna úr heimsbókmcnntnnnm á íslenzkn:
Nokkur „sannleikskorn“.
3.* ■t*.-
J. J. heldur því fram, að deilt
hafi verið á Ófeig fyrir að segja
sannleikann. Slíkar ásakanir eru
a. m. k. ekki komnar frá Fram-
sóknarmönnum. Hér skulu hins
vegar nefnd nokkur dæmi til
viðbótar því, er áður hefir verið
minnst á, þar sem eigi verður
komizt hjá að andmæla Ófeigi
af annari ástæðu.
1. Ófeigur gefur til kynna, að
tveir ónafngreindir menn, en
annan þeirra telur hann Al-
þýðuflokksmann, en hinn Fram
sóknarmann, hafi þegið mútur í
sambandi við Rauðkumálið svo-
nefnda. Hér er vissulega um
hina mestu ærumeiðingu að
ræða. Framsóknarmenn um land
allt munu áreiðanlega æskja
þess, að J. J. dragi a. m. k.
þennan Framsóknarmann fram
í dagsljósið, en ella verði að
skoða þessi ummæli hans til-
hæfulaus ósannindin.
2. Ófeigur segir, að Eysteinn
Jópsson hafi á fundi Framsókn-
armanna í Reykjavík í vetur
andmælt þeirri skoðun Vil-
hjálms Þór, að ekki ætti að fella
gengið. Ennfremur hafi E. J
stofnað skipulagsnefnd, er hafi
mælt með gengislækkun. Hvort
tveggja er tilhæfulaust.
3. Ófeigur segir, að Tíminn
hafi reynt að afsaka framferðj
kommúnista i Grikklandi. Þeir,
sem hafa lesið Tímann, geta
bezt dæmt um þetta.
4. J. J. segir, að Tímanum og
Degi hafi verið lokað fyrir
„frjálsar umræður, sérstaklega
fyrir því er snertir hættuna af
byltingastarfsemi kommúnista
Lesendur Tímans og Dags geta
bezt um það dæmt, hvort þessi
blöð séu lokuð fyrir umræður
um skaðsemi kommúnista! Hitt
er svo annað mál, þótt þau birti
ekki greinar, sem beinlínis miða
að því að skaða þann flokk, sem
þau eru málgögn fyrir! Þeir, sem
vilja skaða flokkinn, verða vit
anlega að nota sér ritfrelsið á
öðrum vetvangi, t. d. í Þjóðvilj-
anum, Mbl. og Ófeigi.
5. Ófeigur segir, að búnaðar
þingsmönnum hafi verið varnað
í haust að tala við forvígismenn
samvinnufélaganna. Forvígis
menn samvinnufélaganna vissu
vel um það mál, sem lá fyrir
Búnaðarþingi, enda eigi all
margir þeirra sæti þar. J. J
mætti t. d. vita, að búnaðar-
þingsfulltrúinn úr Suður-Þing-
eyjarsýslu á sæti í stjórn S. í. S
Það hefir ekki heldur borið á
öðru en að forráðamenn sam<
vinnufélaganna hafi yfirleitt
verið sammála Búnaðarþingi í
verðlagsmálunum.
Svona dæmi mætti mörg
nefna, þótt staðar sé numið að
sinni. Þessi nægja til að sýna,
að óþarft er að deila á Ófeig
fyrir of mikla sannsögli!
Vígi, sem mun standa.
Framangreindar leiðréttingar
á skrifum Ófeigs verða svo látn-
ar nægja að sinni. Það mun ó-
hætt mega segja, að þau skrif
J. J., sem hér hefir verið minnst
á, séu gömlum samherjum hans
hryggðarefni. Þeir hefðu áreið-
anlega vilja sjá þennan gamla
stríðsmann snúa vopnum sínum
fyrst og fremst gegn íhaldi og
kommúnisma, eins og hann
gerði áður fyrr. í stað þess
verða þeir að horfa á, þegar
Dessi tvö óheillaöfl hafa sam<
einast, að hann leggur megin-
stund á að vega að sínum fyrra
flokki og reynir ekki aðeins að
vekja sundrungu þar, heldur
einnig innan samvinnuhreyfing
arinnar og búnaðarsamtakanna,
eins og hér hefir verið sýnt
fram á. Yrði árangur af þessari
iðju hans myndi það eins verða
til að veikja viðnám byggðanna
og samvinnufélagsskaparins
gegn eyðingaröflunum. Slíkt
mun þó ekki verða, því að fyrri
samherjar hans munu aðeins
láta þetta verða til þess að skipa
sér enn betur um þau vígi sveit
anna og samvinnufélagsskapar-
ins, er hann hjálpaði til að
skapa. Þar munu fyrri verk hans
halda áfram að lifa, hvað sem
skrifum Ófeigs líður. Ánægju-
legt væri það samt, að ritstjóri
Ófeigs gæti komizt að raun um
að honum eru -hollari heilræði
Ingimars Eydals, en það hól, sem
honum er nú daglega sungið 1
Morgunblaðinu. Þess mætti
hann og vel minnast, að þessa
hóls gætti ekki i dálkum
Mbl. fyrr á árum og þá endur-
prentaði það ekki greinar hans,
þótt þær væru þá margfalt
snjallari en nú. Getur þessi
breytta afstaða Mbl. ekki verið
honum lærdómsrík áminning
um, hvar hann er á vegi stadd
ur?
munu halda áfram að lifa, þótt
sjálfur sé hann horfinn af
sjónarsviðinu. Meðal samherja
hans mun söknuðurinn eftir
hann látinn brátt snúast í þá
heitstrengingu að skipa sér vel
um stefnu hans og bera hana
fram til sigurs. Á þá leið voru
líka fyrstu orð hins nýja Banda
ríkjaforseta, er hann tók við
starfi sínu.
Konan -
heimilið
/börnín
M,
(Framhald af'>!Sf síðu)
félagið getur boðið það starfs
svið, sem sé ykkur samboðnara
eða betur við ykkar hæfi.
Sálir barna ykkar eru sá akur,
sem þið erum fyrst og fremst
fæddar til að sá í. Látið ekki
aðra taka hann frá ykkur fyrir
vanrækslu ykkar og tómlæti
— Sendið ekki sálir barna ykk'
ar, áður en nokkurt frækorn
hefir náð að festa rætur, inn í
stóriðju vélaframleiðslunnar.
ískjóli ykkar sjálfra eiga þau
að vaxa hin fyrstu bernskuár
— Engin á eins greiðan aðgang
að barnssálinni og sönn móðir,
En gætið þess þá lílŒt vel,
hvers konar fræi þið sáið í þenn
an milda, gljúpa og frjóa jarð
veg.
Við þurfum að hafa guð sjálf
an 1 verki með okkur, þá mun
starfið blessast, og þá ölum við
sjálfar okkur upp um leið, því
að hver sá, sem af fremsta megni
greiðir veg annarra, hann greið
ir veg sjálfs sín.
Lifum þannig lifinu, að við
þurfum ekki að leiðarlokum
lengi að grafa I jörðu til þess að
finna það pund, sem okkur var
í hendur fengið, til að ávaxta.
Hallormsstað í janúar
1945.
Nýir kaupendur
Nýir ,kaupendur að Tímanum
geta fengið síðasta jólablað
Timans ókeypis, meðan upp
lagið endist, láti þeir afgreiðsl
una vita að þeir óski þess.
í jólablaðinu er mjög margt
læsilegt: skáldsögur, ferðasög
ur, kvæði og ýmsar írásagnir
greinar og myndir. — 64 bls
alls.
Vimtið ötullega fyrir
¥
A ég að segja þér sögu
Safn beztu smá<
sagna helmsbók-
menntanna. — Þœr
eru hver annarri meira
snilldarverk, og hafa
heillað huga miljóna
manna um viða ver<
öld. Þar er Regn,
frægasta smásaga
Somerset Maugham,
sögur eftir Sigrid
Undset, Anton Ezche-
chow, Guy de Mau<
passant, Saki o.fl. o.fl
Ef þú vilt hvila þig
frá amstrl dagsins og
æsandi styrjaldar
fréttum, þá skaltu
taka þessa marg
breytilegu bók — og
hvila þlg við lestur
hennar.
Myndin, sem hér
fylgir, er úr kvik
myndinni Regn, eftir
sögu Somerset Maug-
ham.
Bækur tíl fermingargjafa
DON QUIXOTE
eftir Cervantes.
Eitthvert allra dáðasta og útbreiddasta verk heimsbókmenntanna, óviðjafn-
anlega skemmtilegt og sérstakt eftirlæti allra unglinga, einkum drengja. —
í fullar þrjár aldir hefir þetta ódauðlega skáldverk vérið yndi og eítlrlæti
lesenda hjá öllum menningarþjóðum. — íslenzka útgáfan er forkunnar vel
úr garði gerð og prýdd fjölda mynda eftir ameriskan listamann. — Verð bók-
arinnar er krónur 60,00 í skinnbandi.
SJ0 MÍLNA SKORNIR
eftir Richard Halliburton,
frægasta ^og vinsælasta ferðabókahöfund nútímans. Halliburton var ekki að-
eins frábær ferðamaður og mikill ævintýramaður, heldur einnig snjall rit-
höfundur, enda eiga bækur hans afburðavinsældum að fagna. — í þessari
bók segir frá íerðum hans víða um heim og margvislegum ævintýrum, sem
hann rataði i. Þar segir meðal annars frá hinni írægu reið hans á fílsbaki
yfir Alpafjöll, sem var aðalumræðuefni stórblaða heimsins árið 1936, og ótal
mörgu öðru. — Þetta er hrífandi bók og afburðaskemmtileg. Heppilegri bók
handa stálpuðum drengjum er vandfundin. — Verð ib. 44,00.
T0FRAGARÐURINN
eftir sama höfund og hin einkarvinsæla bók, Litli lávarðurinn. Mjög ákjós-
anleg bók handa unglingum, bæði drengjum og stúlkum.
Bókaútgáfa Pálma H. Jónssonar.
V.
Bókmenntir og listir
(Framhald af 3. síöu)
mönnum og elnni konu, er búa
langt inn í frumskógunum.
Tveir þeirra eru njósnarar í
þjónustu Þjóðverja, menn, sem
einskis svífast, þegar stundin
kemur. Frá viðskiptum þessa
fólks segir sagan á eftlrminni-
legan hátt.
Höfundurinn, Stuart Cloete,
fæddist í París, en ólst upp í
Englandi. Síðan fluttist hann
til Suður-Afriku og rak búskap
þar í fimmtán ár. En nú er hann
fluttur vestur um haf.
Jón Magnússon, fil. kand.,
hefir þýtt bókina og leyst það
verk prýðilega af hendi — og
hefir það þó sennilega ekki ver-
ið áhlaupaverk.
Bókin er 414 blaðsíður i stóru
broti og kostar 32 krónur ó-
bundin, en 45 krónur I shirtings-
bandi.
Vinir Tímans
Útvegið sem flestir ykkar einn
áskrifanda að Tímanum og lát-
ið afgreiðsluna vita um það sem
fyrst.
Tilkynning
um Tiðtalstíma
Framvegis verður viðtalstími minn frá kl. 10 til 12
f. h. alla virka daga.
Hins vegar mun ég einungis svara fyrirspurnum í
síma kl. 10—11.
Byggingarfulltrúi.
Túlípanar
Lækkað vcrð.
Blómabúdin Garður