Tíminn - 17.04.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRA er bezta íslenzka tímaritið um
þjóðfélagsmál.
Þeir, sem vlljja kynna sér þfóðfélatjsmál, inn*
lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
8
REYKJAVÍK
17. APRÍL 1945
28. blað
? MNÁLLTÍMMS ^
Efnileg söngkona
Hin unga söngkona, Guðrún Á. Símonar, hefir haldið alls fimm söng-
skemmtanir, jafnan fyrir fullu húsi áheyrenda. Er langt síðan, að nokkur
söngkona hefir hlotið hér jafn glœsilegar móttökur. Búast má við, að hún
haldi fleiri söngskemmtanir siðar, en hún mun á nœstunni syngja ein-
söng á söngskemmtunum Karlakórs Reykjavíkur. Hér á myndinni sést
Guðrún á sviðinu í Gamla Bíó og er hún að hneigja sig fyrir áheyrendum.
12. apríl, fimmtudagur:
Lát Roosevelts.
Bandaríkin: Roosevelt forsetl
andaðist að sveitasetri sínu í
Georgíu. Hann hafði dvalið þaf
nokkra daga sér til hressingar.
Hann var vel frískur og hress
um morguninn, en fékk heila-
blóðfall síðari hluta dagsins og
andaðist skömmu síðar. Enginn
nákominn ættingi var viðstadd-
ur dauða hans. Kona hans, $em
var stödd í Hvíta húsinu, kvaddi
Truman varaforseta þangað og
vann hann forsetaeið sinn
skömmu síðar.
Vesturvígstöðvarnar: Amer-
ísku hersveitirnar, sem brutust
að Elbe daginn áður norður af
Magdeburg, fóru austur yfir
fljótið. Bandamenn tóku borg-
irnar Weimar, Schweinfurt og
Erfurt. Barizt ákaft við Bremen
og í Hollandi, þar sem Kanada-
menn unnu á.
Austurvígstöðvarnar: Þjóð-
verjar vörðu enn lítið hverfi í
Vín. Rússar hertu sóknina til
Brunn í Tékkóslóvakíu.
Kyrrahafsstyrjöldin: Mikil
loftárás var gerð á Tokyo.
13. apríl, föstudagur:
Vín tekin.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu, að þeír hefðu nú alla
Vínarborg á valdi sínu.
Vesturvígstöðvarnar: Tilkynnt
að Bandamenn hefðu sótt aust-
ur fyrir Halle og Leipzig og ættu
eftir 65 km. til Dresden. Mest
var barizt við Bremen, í Braun-
schweig og Magdeburg.
Argentína: Stjórnin 1 Argen-
tínu var viðurkennd bæði af
Bretum og Bandaríkjamönnum.
(Framhald af 1. slðu)
mönnum sínum að láta konur
sínar og börn ganga í félagið.
Hafa þeir stundum lagt um nær
200 inntökubeiðnir í eina deild
'sama daginn og fundurinn þar
átti að haldast. Með þessum
hætti hafa þeir unnið í flestum
kosningunum.
Starfsháttum þeirra er þó hér
eigi lýst til fulls. í einni deild-
inni þóttust þeir sjá, að meiri-
hluti þeirra væri að verða tví-
sýnn og alltaf bættust við nýir
fundarmenn, er voru á móti
þeim. Til þess að tryggja sér
sigur í kosningunni, létu þeir
loka húsinu, og urðu allmargir
félagsmenn að hverfa frá lok-
uðum dyrum. Með þessum hætti
unnu kommúnistar kosningarn-
ar - í þessari deild.
Lið það, sem kommúnistar
hafa haft sér til stuðnings í
KRON er næsta blandað, og
hefir yfirleitt verið þekkt að á-
huga fyrir öðru en samvinnu-
málum. Má þar t. d. nefna Svein
Valfells heildsala, Loft Gunn-
arsson kaupmann (þekktan
nazista) og Alfred Guðmunds-
son, einn aðalforvígismann í fé-
lagi Sjálfstæðisverkamanna og
fyrrv. ráðsmann í Dagsbrún,
þegar íhaldið hafði þar völd.
Tvær félagsdelldlr
óska brottfarar.
Meðal allra samvinnumanna
hafa þessir starfshættir kom-
múnista vakið hreinustu and-
styggð. Samvinnumönnum
hefir orðið það enn ljósara en
áður, að samvinnuhreyfingunni
væri það fyrir beztu að losna við
„einingar“-starfsemi kommún-
ista. Vafalaust hefir sú hugsun.
ráðið nokkru um það, að bæði
félagsdeildirnar í Keflavík og
Hafnarfirði hafa á fundum sín-
um samþykkt að leita eftir úr-
göngu úr KRON. Var þetta
samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta i báðum deildunum.
Allmikill áhugi hefir að vísu
verið fyrlr því áður í þessum
deíldum að skilja við KRON, en
vitanlega heflr þessi óöld komm-
14. aprfl, laugardagur:
Bayruth tekln.
Vesturvfgstöðvarnar: Banda-
menn hafa sótt vestur að Elbe á
breiðu svæði, en þar sem þeir
hafa farið austur yfir fljótið
geisa miklar orrustur. Banda-,
menn tóku Bayruth, sem er 30
km. frá landamærum Tékkó-
slóvakíu. Þeir voru 11 km. frá
Chemnitz. í Ruhrhéraði var
vörnum Þjóðverja alls staðar
lokið, nema í Dusseldorf. Barizt
ákaft við Bremen og í Hollandi.
Bandamenn tóku von Papen til
fanga.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
tilkynntu, að þeir hefðu sótt 50
km. vestur frá Vín.
15. apríl, sunnudagur:
Þýzkur her
innlkróaður.
Vesturvígstöðvarnar: Kanada-
menn sóttu til strandar hjá
Zeeuwarden í Hollandi og inni-
króuðu þannig mikinn þýzkan
her. Þeir tóku borgirnar Arnhem
og Groningen. Bandamenn unnu
á austan Elbe, þrátt fyrir harða
mótstöðu og eru komnir 10 km.
austur fyrir fljótið. Sótt var að
Niirnberg úr austurátt og áttu
hersveitirnar ófarna 10 km.
þangað. Við Bremen var vörn
Þjóðverja mjög hörð. Síðan 1.
apríl höfðu Bandamenn tekið
500 þús. þýzka hermenn til
fanga. Þjóðverjar tilkynntu að
þeir hefðu skipt herstjórninni
þannig, að Kesselring stjórnaði
vörrhnni i Suður-Þýzkalandi og
Busch í Norður-Þýzkalandi.
Austurvígstöðvarnar: Þjóð-
verjar héldu áfram sókninni í
Austurríki og Tékkóslóvakíu.
únista 1 félaginu nú ýtt urtdir
hann.
Telja má víst, að skilnaður
þessara deilda við KRON nái
fram að ganga, enda virðist það
veita beztu tryggingu fýrir því,
eins og komið er, að samvinnu-
hreyfingin fái að vaxa í ffiði á
þessum’ stöðum. Það voru þess-
ar deildir, er mest juku viðskipti
sín á seinasta ári.
Skrif Þjóðviljans.
Skrif Þjóðviljans um KRON-
kosningarnar eru næsta gott
sýnishorn um það andlega á-
stand, sem einkennir forsprakka
kommúnista. Auk margvíslegra
ósanninda, sem er engin leið að
elta ólar við, er þar hrúgað upp
slíkum svívirðingum um þá, sem
ekki vilja láta að vilja þeirra, að
slíks munu fá dæmi.
4 seinasta sunnudagsblaði
Þjóðviljans er t. d. rifjuð upp
gamla lygasagan, að Sveinbjörn
Högnason hafi óskað eftir að
geta neitað Reykvíkingum um
mjólk. Síðan segir:
„Nú brjótast flokksbræður
Sveinbjamar og samherjar
þeirra í Alþýðuflokknum um á
hæl og hnakka til þess að ná ó-
skoruðum yfirráðum í KRON,
sennilega til þess, ef verða
mætti, að þeir geti í framtíð-
inni einnig fengið ánægjuna af
því að neita húsmæðrunum í
Reykjavík um kartöflur, kaffi og
sykur, svo og aðrar nauðsynjar
eftir því sem við verður komið.
Þessu mega húsmæðurnar i
Reykjavík búast við, ef bægsla-
gangur Framsóknarbroddanna
ber þann árangur, sem þeir ætl-
ast til.“
í laugardagsblaði Þjóðviljans
er þó kveðið enn sterkara að
orði. Þar segir:
„Það er áríðandi fyrir alla al-
þýðu bæjarins að hún geri sér
Ijósa þá hættu, sem í því felst
fyrir hana, bæði hagsmunalega
og pólitískt, ef sundrungaröfl-
unum tekst að eyðileggja KRON,
fyrir utan hvað það er mann-
skemmandi fyrir alþýðuna að
verða undir í baráttu við VER-
UR, SEM ERU ÞANNIG INN-
Flskverdið
(Framhald af 1. síðu)
útgerðina annaðhvort í sam-
bandi við önnur samvinnufélög,
eða sem sjálfstæðum félagsskap.
Smáútgerðarmenn og sjómenn
eiga ekki að þola það lengur, að
alskonar milliliðir, hvort heldur
þeir flytia út fisk eða selja olíu
eða aðrar útgerðarvörur, geti
dregið sér drjúgan hluta af
verði útgerðarinnar. Þá þurfa
útgerðarmenn að koma upp við-
gerðarstöðvum, ýmist með bein-
um samtökum eða aðstoð hlut-
aðeigandi sveita- og bæjarfé-
laga, til þess að útiloka það ok-
ur, sem víða viðgengst í þeim
efnum. Þá er ekki síður nauð-
synlegt að efla ýms aukin sam-
tök um hagnýtingu aflans. Hag-
ur útgerðarmanna og sjómanna í
framtíðinni mun vissulega fara
mikið eftir því, hve vel þeir hag-
nýta sér úrræði samvinnunnar.
Því betur sem þeir gera það, því
betri mun hagur þeirra verða.
RÆTTAR, AÐ ÞEIM HÆFÐI
BEZT AÐ SKRÍÐA Á KVIÐN-
UM.“
Bæði þessi tilvitnuðu blaða-
skrif lýsa hugsunarhætti, sem er
áreiðanlega framandi öllum
meginþorra íslenzkrar alþýðu.
Það er vissulega ósamrýman-
legt íslenzkum hugsunarhætti
að bera andstæðingnum það
á brýn, að hann vilji neita
fólki um lífsnauðsynjar og að
honum hæfi það bezt að skriða
á kviðnum. Slíkur málflutning-
ur er í ætt við hinar verstu er,-
lendu ofbeldisstefnur og minn-
ir glöggt á framferði nazista,
er hafa haft sér til skemmtunar
að láta andstæðinga sína skríða
á kviðnum, unz þeir voru orðnir
svo sárir, að þeir gátu það ekki
lengur. Sá andlegi skyldleiki
milli kommúnista og nazista,
sem framangreind ummæli bezt
íýsa, mætti verða mönnum lær-
dómsrík sönnun þess hvers-
konar andstæðing þeir eiga hér
í höggi við og hvað mikið hann
þorir að bjóða sér til að æsa
upp og afvegaleiða það fólk, sem
hefir látið blindast af múg-
sefjun hans. Þessa verða ís-
lenzkir samvinnumenn vel að
minnast. í þeirri baráttu fyrir
samvinnufélagsskapnum, sem
nú er hafin gegn sundrungar-
og niðurrifsstarfi kommúnista.
TÍMINN
Þeir, sem fylgjast vilja með
almennum málum verða að lesa
Tíniann.
Flugferðir vestur
í fréttatilkynningu, er ríkis-
stjórnin hefir nýlega sent blöð-
unum, segist hún hafa unnið að
því að útvega íslendingum far
með flugvélum milli Ameríku og
íslands til að bæta úr þeim örð-
ugleikum, er sköpuðust við missi
Goðafoss og Dettifoss. Stjórnin
segir, að hlutaðeigandi amerísk
hernaðaryfirvöld, ásamt sendi-
ráði Bandaríkjanna í Reykjavík,
hafa sýnt mikinn skilning og
góðan samstarfsvilja 1 þessum
efnum. Að undanförnu hafa 32
íslendingar fenglð flugfar vestur
til Ameríku. Þá^Tefir utanríkis-
ráðuneytinu borizt símskeyti frá
sendiherra íslands í Washing-
ton, þar sem hann skýrir frá
því, að hann hafi fengið loforð
War Department fyrir því að
60 íslendingar fái flugfar frá
Ameríku til íslands á tímabilinu
frá apríl til júníloka. Sendiherr-
ann segir, að þetta leysi í bili
algjörlega flutningsörðugleika
íslendinga, sem dvelja vestra.
Símstððin sfækkar
Nýlega eru komin til landsins
nokkur tæki og vélar frá Svíþjóð
í sjálfvirku símastöðina í Rvík,
þannig, að hægt verður að
stækka stöðina um 500 númer.
Fengust tækin loksins flutt loft-
leiðis yfir til Englands og það-
an sjóleiðis hingað, en 1 Svíþjóð
höfðu þau legið alllengi tilbúin.
Verið er nú að vinna að upp-
setningu þessara tækja í stöð-
inni og verður því verki vænt-
anlega lokið á miðju sumri.
Vélar til frekari stækkunar
um 1500 númer hafa verið
pantaðar og verða tilbúnar jafn-
skjótt og skipaflutningar hefj-
ast frá Svíþjóð.
Fráfall Roosevelts
(Framhald af 1. síðu)
hermönnum. Athöfnin fór mjög
virðulega og hátíðlega fram.
Daginn eftir að fregnin um
andlát Roosevelts barst hingað,
voru fánar í hálfa stöng um all-
an bæinn. Mun fráfall erlends
þjóðhöfðingja aldrei hafa vak-
ið jafnmikla hryggð hér á landi,
enda hafði framkoma Roose-
velts í garð íslendinga unnið
honum miklar vinsældir þeirra.
Þess mun lengi minnst, að
Roosevelt varð fyrstur allra
þjóðhöfðingja til að viðurkenna
stofnun islenzka lýðveldisins.
Óöld kommúnista í KRON
' ’ G A M L A B 1 Ó • >
MORÐSÉRFRÆÐ-
DíGlIRIM
(Kid Glove KUIer)
Spennandi amerísk leynilög-
reglumynd.
Van Heflin,
Marsha Hunt,
Lee Bowmann.
£ýnd kl. 5, 7 og 9.
! Bönnuð börnum innan 12 ára.
♦>im.l.nimuiuHH,lo —
vNÝJA B f Ó <3>
DROTTWEVG
RORGAREVIVAR
(„The Woman of the Town“)
Tilkomumikil og spennandi
mynd.
Aðalhlutverkin leika:
Claire Trevor,
Albert Dekkar,
Barry SulUvan.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
TJABNARBÍÓ"
ATLAJVTS ÁLAR
(Western Approaches)
Kvikmynd í eðlUegum Utum
um.þátt kaupskipa í orrustunni
um Atlantshafið, leikin af
brezkum farmönnum.
Aukamynd:
ÍlVorsk myrnl
frá Jau Mayen
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurinn í F eneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir Willíam Shakespeare.
Sýning annað kvöld kl. 8
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag.
ATHS. Ekki svarað í síma fyrr en eftir kl. 4yx.
Aðgangur bannaður fyrir börn.
BERTV SKURREK
OG
ÆSKUÞREK,
hin vinsæla ævisaga
Winston ChurchRls
forsætisráðherra Breta,
hefir nú verið send til
flestra bóksala á landinu.
Aðeins fá eintök eru til.
Ú R B Æ N U M
Samkoma.
Framsóknarfél. í Reykjavík héldu
síðustu samkomu sína á vetrinum í
Sýningaskálanum s.l. föstudagskvöld.
Sóttu hana um 300 manns og urðu
margir frá að hverfa vegna rúmleysis.
Formaður Framsóknarfélags Reykja-
víkur, Ólafur Jóhannesson lögfræð-
ingur, flutti m. a. ræðu og hvatti
Framsóknarmenn til starfa og dáða,
hvar sem þeir væru og að láta ekki
á sig fá ósanngjarnan áróður and-
stæðinganna úr ýmsum áttum. Stjórn-
andi samkomunnar, Vigfús Guðmunds-
son, minntist Bandaríkjanna og hins
látna stórmerka forseta þeirra, með
stuttri en mjög vinsamlegri ræðu. Að
henni lokinni risu allir samkomugestir
úr sætum sínum og stóðu í þöguli
lotningu á meða hljómsveit Bjarna
Böövarssonar lék þjóðsöng Bandaríkj-
anna. Mikið var sungið á samkomunni,
bæði tvísöngur með gítarundirleik og
almennt sungu samkomugestir öðru
hvoru framsóknar- og ættjarðarsöngva
Öll var samkoman þátttakendum til
sóma og ánægju.
Frú Barbara Árnason
listmálari
sýnir þessa vlku nokkrar barna-
myndir á heimili sínu, Lækjarbakka
við Sundlaugarveg. Sýningin verður
opin frá 2—7 síðd. daglega og kostar
aðgangur 5 kr. Allur ágóðinn renmu
til norskra og franskra barna.
Hnefaleikamót Ármanns
fór fram síðastl. föstudagskvöld.
Þessir urðu sigurvegarar: Fluguvigt:
Friðrik Guðnason. Fjaðurvigt: Gunn-
laugur Þórarinsson. Veltivigt: Stefán
Jónsson. Bantamvigt: Mateinn Björg-
vinsson. Léttvigt: Arnkell Guðmunds-
son. Millivigt: Bragi Jónsson. Létt-
þungavigt: Gunnar Ólafsson. Þunga-
vigt: Hrafn Jónsson.
Fjalakötturinn
hefir í kvöld frumsýnlngu á leik-
ritinu Maður og kona. Leikstjóri er
Indriði Wáage. Leikritið hefir verið
stytt, en ekki er talið að sú stytting
skerði efnið. Lárus Ingólfsson hefir
málað leiktjöldin og séð um búninga.
Kynnisfarir menntaskólanema.
í vetur hafa menntaskólarnir tekið
upp þá nýbreytni, að efna til kynnis-
ferða nokkurra nemenda milli skól-
anna. í vetur fóru nokkrir nemendur
úr Menntaskólanum í Reykjavík til
Akureyrar, ásamt Pálma Hannessyni
rektor og nú nýlega komu til Reykja-
víkur í boði menntaskólans nemendur
úr Menntaskólanum á Akureyri, ásamt
Sigurði Guðmundssyni skólameistara.
Norðannemendurnir voru: Anna Jó-
hannesdóttir frá Seyðisflrði, úr 6. b.,
Kristbjörg Jakobsdóttir (Karlssonar)
Akureyri, úr 5. bekk, Sigurður Helga-
son 6. bekk, Helga Skúlasonar augn-
læknis, — en hann er nú dux skól-
ans, Ingvi Ingvarsson, umsjónarmaður
skólans, 6. bekk, hann er Rangæingur,
Ólafur Halldórsson, 5. bekk frá Króki
1 Flóa. — Ólafur er formaður Mál-
fundafélagsins Huginn, sem starfar
innan skólans.
1000 krónum stolið.
Nýlega var brotizt inn í ibúðarskúr
í kálgörðum bæjarins í Kringlumýri
og stolið þaðan 1000 krónum. Maður
sá, er 1 skúrnum býr, er einsetumaður
og var hann i vinnu hér í bænum er
innbrotið var framið.
Víðavangshlaup í. R.
fer fram næstkomandi fimmtudag,
(sumardaginn fyrsta). Er þetta 30.
víðavangshlaup sem haldið hefir ver-
ið. Þátttakendur eru skráðir 15 frá 3
félögum. Sjö frá Ármanni, fimm frá
ÍJR. og þrír frá K.R. Hlaupið hefst uppl
á Öskjuhlíð og lýkur fyrir framan Mið-
bæjarskólann. Er það 4,1 km. vega-
lengd.
Berklaskoðunin.
Alls hafa nú verið í Reykjavík
berklaskoðuð rúmlega þrjátíu og tvö
þús. manna. En síðan hin reglulega
berklaskoðun hófst, hafa verið skoð-
uð í röntgendeild Landsspitalans 20,180
manns. Síðastliðna viku voru skoðuð
1818.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman 1 hjóna-
band ungfrú Guðrún Stephensen,
Bræðraborgarstíg 24 og stud. jur. Páll
S. Pálsson, Stúdentagarðinum.
Hjónaband.
Síðastl. laugardag voru gefin saman
í hjónaband ungfrú Ása Snæbjörns-
dóttir frá Miðfelli, Þingvallasveit og
Magnús Helgason, starfsmaður hjá
verksm. Vífilfell h.f., til heimllis við
Bragagötu 23.
Útvarpsiíffindi,
1. hefti 8. árg. eru komin út, fyrsta
heftið, sem hinir nýju ritstjórar Út-
varpstíðinda, Vilhj. S. Vilhjálmsson og
Þorsteinn Jósefsson, senda frá sér. Af
efni þess má nefna. Framtíð Útvarps-
tíðinda, Hið helzta úr dagskránni
næstu tvær vikur, ísland á Stuttbylgj-
um, Víðtal við Bjarna Guðmundsson,
blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar, Gunn
ir kunni að græpa, smásaga eftir Jón
H. Guðmundsson, Halló, ég skipti,
Hlustað í elnangruðu landi, viðtal við
3igurð Jóhanness. verkfræðing. Hvers
konar tæki fáum við eftir strið? Út-
varpstækl á hverjum bæ í Landmanna-
hreppi, dagskráin, sindur o. m. fl.