Tíminn - 07.09.1945, Blaðsíða 5

Tíminn - 07.09.1945, Blaðsíða 5
67. blað TÍMIM, föstndaginm 7. sept. 1945 5 Hamsun og skoðanir hans (Framhald af 4. síðu) lesið erlendar bókmenntir, var hrifið af Viktoríu: Hinir sælu dagar, sem horfnir eru allrar veraldar veg, Hamsun, hið norska skáld — hve sárt, hve ljúfsárt hefir hann ekki saknað þeirra, hve unaðsleg hefir hon- um ekki verið minningin? Og sko! Raunin er þessi: Við eldra fólk hér á íslandi finnum, að hann hefir fundið til svipað og við, dreymt í æsku svipað og við, þrátt fyrir allt, sem sýnist í fljótu bragði ólíkt! . Já, ég hygg, að lestur Viktoríu hafi brugðið hjá mörgum manninum — komnura af æskuskeiði — ljóma yfir heim unglingsáranna. Frásagnarhátturinn — strax grípur hann, sem undur, fram- andlegur, ævintýralegur, en þó raunar látlaus, já, svo sem þar hafi verið leystur úr læðingi tónn, sem búið hafi í brjósti les- andanum sjálfum. Dýrð og dul- töfrar náttúrunnar, þrá æsku- mannsins eftir því, sem er feg- urra og furðulegra en það, sem unglingurinn á við að búa; órar hans um mikla og glæsilega sigra, tilbeiðsla hans á gyðju draumanna, drottningu fram- tíðarinnar — allt er það þarna. . og svo miklu, miklu meira — ósegjanlegt, ótáknanlegt, en. samt þarna í blæbrigðum máls- ins — eða eins og það virðist: milli línanna, jafnvel bak við orðin. Svo: Jóhannes og Viktoría — hve fast eru þau ekki mótuð í hug unglingsins, sem las þessa bók, þá er hún kom út, — svo nálæg og náttúruleg og þó yfir þeim blámóða fjarlægðar, já, og einhver furðutíbrá ... Og einmitt hinn meðaldra lesandi, sem las Viktoríu ungur, hann skilur það nú svo mætavel, að Viktoría, dteiumgyðja unglings- áranna, hlaut að deyja. Annað héfði ekki verið í samræmi við veruleikann, þann veruleika, sem við þráum að breyta, en verður svo lítið ágengt með breytingar á ... gengur svo grátlega seint að flytja draummyndirnar af austurlofti æskuáranna niður á þær steinstéttir raunveruleik- ans, sem við göngum á mann- dóms- og elliárum, þó að við máske fáum skapað okkur nýjar myndir í vestri. Eins og menn muna, vakti þýðing Jóns Sigurðssonar á Viktoríu mikla athygli þeirra manna, sem báru gott skyn á slíkt. Ég hygg, að varla hafi áður verið lögð eins samfelld og mikil rækt við að þýða þannig erlent skáldrit í óbundnu máli, að saman færi allt þetta: Fögur íslenzka, rétt þýðing og hinn upprunalegi stílblær. Hamsun fer mjög sínar eigin leiðir um meðferð máls, setningaskipun og orðaröð — hefir alltaf gert það. Hann hefir stundum teflt á tæp- ustu nöf, svo að þótt hefir leika vafi á, að leyfileg væri sú með- ferð tungunnar, sem hann hefir viðhaft á stöku stað í skáldsög- um sínum. En Jóni frá Kald- aðarnesi hefir tekizt ótrúlega vel að sigla hið mjóa sund milli þeirra skerja, sem hættulegust hafa verið á leið hans: Annars vegar tilslökun á kröfunni um sem mesta nákvæmni í blæ- brigðum og meiningu, hins veg- ár brot á lögmálum íslenzkrar tungu. Það hefir farið svo, að ég hygg óhætt að segja, að þýð- ingar Jóns frá Kaldaðarnesi á skáldsögum eftir Hamsun — og þá einkum Viktoríu og Pan — hafi haft gildi fyrir bókmenntir okkar á síðustu áratugum, gefið ýmsum kjark til þess að fara út af troðnum brautum í meðferð málsins til þess að ná sérstökum blæbrigðum — án þess þó að hætta sér lengra en góðu hófi gegnir. Þýðing Halldórs Kiljans Laxness á Vopnin kvödd eftir Hemingway er að ýmsu mjög merkileg og verð athygli, því að Halldór Laxness er mikill snill- ingur á mál og stíl og hefir lagt á það hina mestu áherzlu að fara sem næst orðalagi og setn- ingaskipun Hemingways til þess að ná sem allra bezt hinum mjög svo sérstæða stíl hans. Stundum hefir Laxness lánast tilraunin, þannig að saman fer trú þýðing og raunar máske hæpin íslenzka, en þó ekki afskræmd. En mjög oft verður útfallið það, að með- ferð þýðandans á móðurmálinu varðar við lög, þau lög, sem ekki verða rofin án víta. Og vítin hafa reynzt þau, að hin ágæta skáldsaga, Vopnin kvöád, hefir alls ekki náð eðlilegum vinsæld- um — og þýðingin ekki — svo að ég hafi orðið þess var — haft neitt gildi fyrir þróun íslenzks ritmáls, og efast ég þó ekki um, að ef Halldór Laxness hefði álíka vel kunnað sér hóf og Jón frá Kaldaðarnesi, þá hefði þýðingin reynzt ungum höfundum vegvís- ir til nýrra möguleika . . . Eins og áður er á drepið hefir Jón Sigurðsson gert stöku breyt- ingar á þýðingu sinni, þá er hann undirbjó þessa útgáfu á Viktoríu. Ég hefi ekki borið út- gáfurnar saman frá orði til orðs, en ég þykist þess viss, að Jón hafi breytt til bóta. Hins vegar rek ég mig strax á það í fyrstu setningum sögunnar, að mér hefir verið orðið svo kært orða- lag fyrri útgáfunnar, að ég sakna þess, það verið svo sem samgróið þeim blæ, sem sagan hafði á sér í minningunni. Ég vona — vona, segi ég, að Viktoria verði eins og áður svo kærkomin, jafnt heimasætunni á dalabænum sem unglingnum í hásetaklefa fiskiskipsins á mið- um úti, að þau sjái jafnvel ekki eftir að eyða nokkru af takmörk- uðum hvíldartíma sínum í að lesa hana sem vandlegast. Guðmundur Gíslason Hagalín Bókmenntir og listir (Framhald af 3. síðu) mátti vænta. Er verulegur feng- ur að bókinni, og mun hún sóma sér hið bezta í bókaskápum ís- lenzkra bókamanna. Fundur norrænna blskupa (Framhald af 4. síðu) Sjálandsbtskup. Þetta er stað- reynd, sem ekkert haggast við það, þótt sums staðar gæti ef til vill nokkurra sárinda meðal Dana út af sambandsslitunum og skilnaði íslands og Danmerk- ur. Ég vil svo ljúka þessu rabbi, sagði biskupinn að lokum, með því að minnast aðeins á se.ndi- sveitirnar okkar í Kaupmanna- höfn og Stokkhólmi. Þar . er unnið mikið verk og þarft, \og mætti okkur hér heima vera það hugfast. Fólkið, sem þar vinnur, á áreiðanlega skilið þakklæti okkar allra. Tilkynning til bifreiðaeigenda Bifreiðaeigendur eru hér með áminntir um að tilkynna tafarlaust hingað í skrifstofuna, er eigendaskipti verða á bifreiðum, sem skrásettar eru í lögsagnarumdæmi Reykja^ víkur. Þeir, sem vanrækja að tilkynna eigendaskipti, verða látnir sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum. Lögreglustjórinn í Reykjavík 3. september 1945. LARS HANSEN: Fast ibeir sóttu sjóinn FRAMHALD mínútu, heldur en þær gömlu á heilum klukkutíma. Ég bprgaði áttatíu og þrjár krónur og fimmtíu aura fyrir hana — já, átta- tíu og þrjár krónur og fimmtíu aura út í hönd. En hún er lika svo mikilvirk, að fleytan hefir ekki við að leka — er orðin skrá- þurr á svipstundu. Meðan hann Kristófer sagði þetta hafði ákavítið gengið á milli þeirra Karls Lúlla og Nikka á Bakkanum, er nú rétti veitandan- um flöskuna og sagði: — Mér er engin launung á því, að það hefir ekki þótt neinn barnaleikur að stunda veiðar við Lófót á öðrum eins dalli og „Nor- egur“ er og hefir verið, að minnsta kosti síðustu árin. En það gegnir allt öðru máli, ef þú ert búinn að fá ameríska dælu, þvi að það veit ég sjálfur, að þetta er eins og heilt vatnsfall streymi í gegnum þær. En það er eitt, sem ekki má gleyma: Þessar ame- rísku dælur eru margar stórar, og þessi hlýtur að vera stór, fyrst hún kostaði áttatíu og þrjár krónur og fimmtíu aura, og það þarf mörg hestöfl til þess að knýja þær áfram. — Þetta er víst alveg rétt hjá Nikka, sagði þá Lúlli. Og það vitum við allir, að Noregur er ævinlega orðinn hálfur af sjó eftir örstutta stund, svo að dælan verður að vera í gangi nótt og dag því er nú miður. — Þið þekkið nú hann bróður minn, sagði Kristófer — hann Jakob stóra í Kverkinni. Ég er búinn að ráða son hans, tvítugan strák. Eins og þið vitið, hefir faðir hans lengi verið sterkasti maðurinn hér nærlendis. Strákurinn heitir Þór, og hann er miklu sterkari heldur en Kobbi var, þegar hann var upp á sitt bezta, svo að ég býst ekki við, að okkur verði skotaskuld úr því að nota dæluna, þó að hún sé dálítið þung í vöfum. Og ég kom þá ekki heldur til þess að grátbæna ykkur að vera hjá mér á þess- ari vertíð. Ég kom til þess að láta ykkur vita, að ég er ekki' bú- inn að ráða alla mennina og vil láta ykkur sitja fyrir. Ákavítisflaskan gekk frá manni til manns. Þeir voru búnir með meira en helminginn. — Er það satt, Kristófer, að þú hafir gefið honum Hans Mik- jálssyni allar línurnar þínar? Hann Kristófer saup vænan teyg úr flöskunni, áður en hann svaraði þessari spurningu. Það var ekki mikið eftir. Þegar hann náði andanum, sagði hann: — Eins og þið rennið grun í, þá hefir þessi vetur orðið honum Hans þungur í skauti — þessi sífelldu veikindi í honum og börnunum og allt þetta læknisstand og lyfjasull. Og henn hefir ekki getað unnið sér inn svo sem tíu krónur í marga mánuði. Þið munið nú, hvað hann hefir verið óheppinn með aflabrögð upp á síðkastið — hann kom heim tómhentur, bæði af sumarvertíðinni og eins utan úr Þórsvogi í haust. Ég sá ekki, hvað fyrir honum lá annað en sveitin, ef ég hefði ekki hlaupið undir bagga. Haldið þið kannske, að við getum ekki útvegað otojcur veiðarfæri, ef við komumst til Lófót á annað borð? Þið hafið nú báðir verið með mér áður. Meðan hann Kristófer rausaði þetta hafði hann Nikki á Bakk- anum tæmt flöskuna. En nú þögðu þeir allir um hríð. Það var hann Lúlli, sem rauf þögnina: — O—jæja, við rekumst svo sem á einhvern þrjót, sem á það skilið að missa línustubb. Og veiðarfæralaus lét Kristófer úr höfn í Tromsö. „Noregur" brunaði léttilega fram með byggðinni. Nokkrir íshafsskipstjórar stóðu frammi á Prestsbótun,um — fyrir utan brennivínssöluna. Einn þeirra benti á skútuna, sem sigldi hjá í rjúkandi byr, svo að annar borðstokkurinn lá í sjó, og sagði: ’ — Þar leggur hann Kristófer af stað til Lófót. Þeir horfðu á eftir skútunni. Svo sagði einn: — Mér þætti gaman að vita, hvort hann hefir fengið menn eða lagt einn í hann. Það kom stormhviða með dimmu éli innan úr Þrymsdalnum. Kafaldsrokurnar voru eins og gormar, sem undu sig áfram, unz þær náðu „Noregi,“ sem lagðist hér um bil flatur á sjóinn um leið og hann beitti upp í vindinn. Hvítt löðrið lamdi stefnið, og hann dró langa, hvita rák á eftir sér, er hann kom aftur út úr kafaldssortanum. — O—nei, hann Kristófer er áreiðanlega ekki einn á dallinum, sagði einhver. Þeir eru báðir með honum, Lúlli og Nikki á Bakkanum, og þar að auki kvað hann hafa náð i bróðurson sinn, hann Þór í Kverkinni — sterkur eins og björn og eftir því rumur — stór og sver. — Það er auðvitað hann, sem á að vera við dæluna. Þá kemur það sér fyrir hann að hafa krafta í kögglum, gall einhver við. En annar sagði: — Ég væri ekki fíkinn í að vera við Lófót i sumar, fyrst hann Kristófer hefir þá Lúlla og Nikka á Bakkanum með sér. Ég vildi að minnsta kosti ekki sækja sömu miðin og þeir á „Nore|gi“ Þeim varð litið út yfir sundið. Þeir horfðu allir á eftir „Noregi“. Þeir voru bersýnilega lagðir af stað til Lófót. Þótt skútan væri komin alllangt út á sundið, sáu þeir það greinilega, að hann Sterki-Þór hafði þegar tekið sér stöðu við amerísku dæluna, sem spúði frá sér sjó í löngum, hvítum bogum. Skútan flaug áfram, eins og eitthvert dularfullt afl væri að verki. — Það gæti nú allt eins vel komið fyrir, að þeir sykkju, áður en þeir kæmust alla leið til Lófót, heyrðist sagt í einum hópnum. En annars svaraði samstundis: — Sykkju? A-nei, sei-sei nei. Þeir sökkva sko ekki. Hann er einn af þeim, sem ekki geta sokkið. Þið sannið til, að hann kemur til Svalbarða í sumar með allan ræningjaflokkinn. „Noregur“ varð nú aðeins eins og lítill depill þarna úti á milli fannbarinna fjallanna, og þegar skútan hvarf í næsta él, sagði einn skiptjóranna: — Þið getið sagt það, sem yl^kur líkar, um hann Kristófer. En hann er sjómaður — þeir gerast ekki betri. Þá dró hann Kristófer Kólumbus heilflösku af ákavíti upp ANNA ERSLEV: Fangi konungsins » (Saga frá dögum Loðvíks XI. Frakkakonungs). Sigríður Ingimarsdóttir þýddi. Georg skreið nú út að veggnum gegnt fletinu og gætti ytrustu varkárni. Þar lágu fangarnir tveir og ekki var og sárt við lagði, að ekki skyldi hnn dvelja lengur en í hönd hans og ungi greifinn hvíslaði: „Þú ætlar að hjálpa okkur?“ „Uss, uss, talaðu ekki svona hátt! Já, ég vil hjálpa ykkur. Ég er sjálfur fangi og hefi lengi þráð að komast í burtu.“ Nú hófust hvíslingar miklar milli fanganna þriggja. Hinrik var ekki í neinum vafa um það, að faðir hans rnyndi greiða fjárhæð þá, sem krafizt yrði, en hann sór hann fyrr kominn til þeirra en hann fann að gripið var nauðsynlegt væri hjá óbótamönnunum. Og hann áleit að ekki væri nauðsynlegt að dvelja þar lengur en til þess dags, er þeir gætu flúið. Berthold gaf þeim aftur á móti þær furðulegu upp- lýsingar, að hann ætti engan móðurbróðir 1 Pálsklaustr- inu við Marseille — ekki einu sinni nokkurn ættingja, sem vildi eða gæti greitt lausnarfé fyrir hann. Hann kvaðst aðeins hafa sagt þessa sögu um ábótann til þess að teygja tímann. Emka móðurbróðir hans var bláfátækur skósmiður. „Þetta var snjallræði, en heiðarlegt getur það varla talizt,“ umlaði Hinrik. „Er flóttinn þá ekki ákveðinn eins fljótt og auðið er?“ hélt Berthold áfram og lézt ekki heyra athugasemd Hinriks. „Auðvitað,“ svaraði Hinrik hressilega, en Georg hristi höfuðið. „Þetta er ekki eins auðvelt og þið haldið,“ svaraði hann og sagði þeim nú frá öllum þeim öryggisráðstöf- unum, sem ætíð væru hafðar um hönd þar í hellinum. „Nei,‘ sagði hann svo, „við erðum að bíða eftir hent- ugu tækifæri. Annað getum við ekki gert í bráð. Ræn- ingjarnir hljóta að fara einhverntíma í burtu allir sam- an Þá verðum við að reyna á einn eða annan hátt að forðast svefnlyfið. Lofið mér aðeins einu. Verið rólegir báðir tveir, og-reitið þá ekki til reiði! Þið getið verið vissir um, að ég þrái frelsið engu síður en þið.“ T ilkynnmg frá Fiskimálanefnd Fiskimálanefnd hefir lokið við að reikna út verðjöfnunargjald fyrir marz-mánuð, og er verðuppbótin sem hér segir: 1. svæði: Faxaflói: Verðjöfnunarsjóður kr. 450.634,68. Verðuppbót 6,08%. 2. svæði: Brciðafjörður, að Bíldudal: Verðjöfnunarsjóður kr. 39.469.03. Verðuppbót 4,13%. 3. svæði: Vestfirðir: Verðjöfnunarsjþður kr. 139.614.02. Verðuppbót 8,5%. 4. svæði: TVorðurland: .Enginn útflutningur. 5. svæði: Austfirðir: Verðjöfnunarsjóður kr. 33.481.44. Verðuppbót 12,3%. 6. svæði: Vestmaimaeyjar, Stokkseyri og' Eyrarbakki: Verðjöfnunarsjóður kr. 300.074.15. Verðuppbót 10.08%. Fiskimálanefnd. Raffækjavinnustofan Selfossi framkvæmir nllskouar rafvirkjastörf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.