Tíminn - 09.11.1945, Blaðsíða 6
6
IÍ>11N\. föstMdaglim 9. »óv. 1945
85. bla3$
DATVARMINMNG:
Þuríður Þorvaldsdóttir
frá Melstað.
Þann 17. okt. var til grafar
borin Þuríður Þorvaldsdóttir,
húsfreyja á Bessastöðum.
Hún var fædd á Melstað 25.
maí 1892. Foreldrar hennar voru
Sigríður Jónsdóttir og síra Þor-
valdur Bjarnason á Melstað.
Var hann prestur þar til dánar-
dags. Hann var mikill fræði-
maður og mælt var, að hann
kynni 18 tungumál. Átti hann
bókasafn, sem flutt var frá Mel-
stað eftir lát hans á átján hest-
um.
Af börnum séra Þorvalds mun
þessi dóttir hans hafa verið lík-
ust honum í skapgerð. En hæfi-
leikar sem hans eiga erfiðara
með að njóta sin hjá konum
en karlmönnum. Hennar miklu
gáfur hafa aldrei fengið að
njóta sín.
Strax á unga aldri ól hún í
brjósti mjög ríka menntaþrá.
Hún stundaði nám við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og síðar á
kennaraskóla; gerðist kennari
við barnaskólann í ísafirði og
síðar í Sveinsstaðahreppi. Þar
kynntist hún íyrri manni sín-
um, Þorsteini Björnssyni. Þau
eignuðust fjögur börn, og eru
þau á lífi nema .yngsti sonurinn,
sem hún unni mjög, dó á unga
aldri.
Samvistir þeirra Þuríðar og
Þorsteins urðu ekki langar. Þau
áttu ekki skap saman og skildu
eftir nokkurra ára sambúð.
Þá hugðist Þuríður að leggja
stund á það starf, sem hún
þráði mest, en það var hjúkrun.
Hún byrja&i á hjúkrunarnámi
en var neitað um réttindi hjúkr-
unarkvenna vegna ólæknandi
sjúkdóms í augnahvörmunum.
Hún sagði mér frá þessu sem
einu mesta áfalli í lífi sínu.
Þegar ekkert varð úr hjúkr-
unarstarfinu, tók hún aftur til
við barnakennsluna og stundaði
hana, þar til hún giftist eftir-
lifandi manni sínum/Bjarna
Björnssyni á Bessastöðum.
Þuríður var fluggáfuð, vel
menntuð og skemmtileg kona.
Ég heyrði stundum til hennar,
þegar hún kenndi i barnaskól^,
á heimili mínu. Ég er viss um
það, að sumir fslands-sögutím-
arnir hennar hefðu verið full
boðlegir í gagnfræðaskóla. Hún
var heilsteypt islenzk kona, ör-
lynd, viðkvæm og hjartagóð,
skilningsgóð og viðkvæm fyrir
kjörum annarra, bæði andlega
og líkamlega. Oft hjúkraði hún
veikum og sagði hún mér, að
ekkert starf félli sér betur eða
gæfi meiri gleði. Ég undraðist
það, að henni, svo glaðnæmri
konu, þætti svo skemmtilegt að
vera hjá sjúkum. Þá sagði hún:
Það er ekkert ánægjulegra en
það, þegar mikið veikur sjúk-
lingur er í afturbaata og snýr
aftur til lífsins.
Hún var mikill menntavinur,
kirkj uvinur og bindindisvinurj
og dró ekki dul á þær skoðanir
sínar á mannfundum eða í
heimahúsum. Vegna sinna and-
legu yfirburða átti hún vini og
kunningja méðal mennta-
manna. Hún sagði mér frá því,
að það hefðu heimsótt sig tveir
menntavinir og andans menn.
Ég undraðist að henni væri á-
nægja í því, að fá heimsókn
þessara manna, þegar hún hafði
lítinn kost vista, sem sjálfsagðir
þykja í hverjum mannfagnaði.
Hún svaraði: „Ég bar á borð
fyrir þá það bezta, sem ég átti
til, svo reyndi ég að vera svo
skemmtileg sem ég gat.“
Síðustu ár ævi sinnar þjáðist
hún mjög af sjúkdómi þeim, er
dró hana til dauða. Hún kvart-
aði aldrei, en bar sinn kross.
Við fráfall Þuríðar er stórt
skarð höggvið í hóp húsfreyj-
anna í Húnaþingi. Við söknum
hennar og minnumst með þakk-
læti.
Hún unni mjög æskustöðvum
sínum og •æskuheimili á Melstað.
Nú er hún komin heim í kirkju-
garðinn á Melstað. Fjölmenni
það, sem mætti við jarðarför
hennar, sýndi vinsældir þessarar
ágætu konu.
J. S. L.
Þættir úr stjórnmálasögu
(Framhald af 4. síðu) ,
mikilvægasta embættið í land-
inu, hafði verið kjörinn dr. Raúl
Menocal, fylgismaður dr. Graus,
og jafnvel bróðir Batista, Fran-
cisco, hafði fallið við borgar-
stjórakosningar í einu af út-
hverfum Havana.
Batista og Saladrigas heim-
sóttu Grau og óskuðu honum
til hamingju með sigurinn. Síð-
an hélt Batista ræðu af svölum.
forsetahallarinnar og fór við
það tækifæri mörgum orðum
um það, hve mikil ánægja sér
væri að því aö lúta eindregnum
vilja fólksins. Bætti hann því
við, að hvenær sem Kúbumenn
óskuðu aftur eftir þjónustu
sinni, væri hann reiðubúinn til
þess að leggja krafta sína
fram. Þessi síðustu orð þóttu
samt dálítið tvíeggjuð, og var
sumum ekki grunlaust um, að
Batista kynni að ætla sér að
hundsa þjóðarviljann, sitja
kyrr í forsetaembættinu „vegna
þjóðarnauðsynjar“ og efna til
nýrra kosninga, er yrði hagrætt
á þann hátt, sem honum kæmi
bezt. En þessi grunur reyndist
ástæðula!us, því að Batista hafði
látið af embættinu og fengið
hinum nýja forseta völdin í
hendur áður en vikan var liðin.
En það voru ekki allir ánægðir
með þessa niðurstöðu. Sendi-
herra Bandaríkjanna á Kúbu
hafði komizt á snoðir um það,
að yfirmaður lögregluliðsins í
landinu, Manuel Benitez hers-
höfðingi, var að undirbúa sam-
særi. Var ætlun hans að hand-
taka bæði Batista og Grau og
setja síðan á laggirnar einræði,
er stutt væri með hervaldi —
setjast annaðhvort sjálfur á
forsetastólinn eða láta hinn
handtekna forseta halda tign-
inni að nafninu til og stjórna
svo í hans nafni. Sú aðferð er
alls ekki fátíð í Suður-Ameríku.
En í þetta skipti mistókust
i byltingaráformin. Braden gerði
Batista aðvart, og Benitez var
vikið úr embætti sínu og rekinn
í útlegð til Miami.
Fram til þessa hefir Batista
reynzt lýðræðisstefnu sinni trúr.
Það er engin ástæða til þess að
gruna hann lengur um græsku,
og ótrúlegt, að hann muni hér
eftir seilast eftir einræði, sem
sem hann hefir afsalað sér af
frjálsum vilja. Ef til vill hefir
hann þó ekki búizt við, að Grau
og hreyfing hans myndi sigra
stjórnarsinna í frjálsum kosn-
ingum, en því fremur sýndi það
einlægni hans að sætta sig við
orðinn hlut, er kosningaúrslitin
urðu kunn, tíar eð nóg voru
fordæmin um það, að slíkar
kosningar hefðu verið hundsað-
ar, bæði á Kúbu og meðal ná-
grannanna að sunnan. En hrós
það, sem hann hefir hlotið fyrir
afstöðu sína meðal engilsax-
neskra manna er þá líka sára-
bætur, ef honum hefir þótt fyr-
ir þvi að leggja niður völdin.
Hann óx í augum umheimsins
og skapaði sér meiri frægð með
þessum aðgerðum heldur en
honum hefði auðnazt, þótt hann
hefði setið langan aldur að völd-
um. Þetta hefir hann líka ó-
spart notað sér, því að hann
hefir lengst af síðan verið á
ferðalagi um Bandaríkin, flutt
þar fyrirlestra og rætt við máls-
metandi menn. Hann er enn að-
eins tæplega hálffimmtugur, og
má vel vera, að hann hugsi sér
aftur til hreyfings í næstu for-
setakosningum, sem fram eiga
að fara að forfallalausu árið
1948.
Stjórn dró Graus virðist ætla
að verða einstæð í sögu Kúbu.
Hann er mikill hugsjónamaður,
en jafnframt gæddur mikilli
lífsreynslu. Og hann virðist
vera maður, sem býr yfir næg-
um krafti til þess að gera hug-
sjónir sínar að veruleika.
LISTER
Dieselrafstöðvar
Eigum væntanlegar til landsins á næstunni hinar heimsfrægu
töldum stærðum:
3 HK. 1.75 K.W. 32 Volta DC
5 HK. 3.0 K.W. 32 Volta DC
7 HK. 4.0 K.W. 110 Volta DC
7 HK. 4.0 K.W. 220 Volta AC
9 HK. 5.0 K.W. 220 Volta AC
10 HK 6.0 K.W. 220 Volta AC
14 HK. 8.0 K.W. 220 Volta AC
14 HK. 8.0 K.W. 110 Volta DC
18 HK. 10.5 K.W. 220 Volta AC
27 HK. 16.0 K.W. 220 Volta AC
38 HK. 22.0 K.W. 220 Volta AC
LISTER dieselrafstöðvar
Auk þess fáum við mjög ódýrar benzinrafstöðvar 750 Vatta, 1000 Vatta og 1500 Vatta 32 Volta DC.
Athugið eftirfarandi:
Að löng reynsla er fengin fyrir öryggi LISTER ljósavélanna.
Að LISTER er útbreiddasta ljósavélin hér á landi.
Að ávallt eru fyrirliggjandi nægar varahlutabirgðir í LISTER ljósavélar.
Að LISTER er stærsti framleiðandi í heimi í litlum dieselvélum.
VÉLASALAN H.F. _ ,t.,sui„,.K.i"'15401
2
Stór bók um líf og starf og samtíð listamannsins mikla
Leonardo da Vinci
eftir rússneska stórskáldið Dmitri Mereskowski, í þýðingu
Björgúlfs læknis Ólafssonar
er komin í bókaverzlanir
Leonardo da Ifinci var furðulegur maOur. Hvar stm hann er nefndur í bóhurh, er
ems og raenn skorti orO til þess aO lýsa atgerfi hans og yfirburOufn. I ,,Encycíopcedia
Britanmca’* (1911) er sagt, u0 sagan nefni cngan mann, sem sé hans jafningt ó si-iAi
visinda og lista og óhugsandi sé, að nokkur maður hefði enzt tíl að afkaslo hundiaðasta
parti af öllu þvi, sepi hann fékkst við
Leonardo da Vina var óviðjafnanlegur málari. En hann var lika uppfinningamaður
d viO Edison, eðlisfrœðingur, stanrðfrœðtngut, stjömufraðingur og hervélafraöingur
Hann fékkst við rannsóknir i Ijósfraði, lífftrrafraði og stjómfraÖi, andlitsfall matma og
fellingar i klœðnm athugaði hann vandlega.
SÖngmaður var Leonardo, góOur og léh sjdlfur á hljóðfan Enn fremur 'ritaöí hann
kyrutrin öll af dagbókum, en -
list hans hef ir gef ið honum orðstír, sem aldrei deyr.
Pesst bók trm Leonardo da Vtnci er saga nm manmnn, er fjölhafastur og afkasta■
mtstur er talinn allra manna. er sögur fara af. og etnn af mestu listamðnnum veraldQt.
í bókinni eru um 30 myndir af listaverkum.
HJ? LEHFTUR, Reykjavík.
FJALLIÐ EVEREST
*
er bók með stórfenglegum og hrífandi frásögnum um
tilraunir manna til að komast upp á hæstu gnípu jarðar.
Bókin skiptist í kafla sem hér segir:
Fyrri hliiti: Baráttan við Everest
I. þáttur: Hugmyndin vðerður til
II. — Tilraunin
III. — Lokaatlagan
IV. — Árangurinn
V. — Förin 1936 og framtíðarhorfur
VI. — Þýzkir Ieiðangrar
VII. — Brezkir leiðangrar
VIII. — Fólkið, sem byggir Himalaya
Síðari hluti: Himinfjöll
IX. þáttur: Í faðmi náttúrunnar
X. — Pílagrímsför til Himalaya
XI. — Fjallið helga
XII. — Undir stjörnum
Höfundur:
Sir Francis Younghusband.
Þýðandi:
Skúli Skúlason ritstjóri.
Tuttuf/u off tvœr ffullfallcffur heUsíðu-
ntffndir prtj&a bóhina.
Verð í handi hr. 30.00. — Heft hr. 22.00.
Fáist bókin ekkl í næstu bókaverzlun,
getið þér pantað hana beint fra
útgáfunni.
Snælandsútgáfan h.f.
Limlargötu 9 A. — Reykjjavík. — Sími 2353.
Samvinnumenn!
Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna nálega í
hvert sinn óvátryggðir innanstokksmunir.
Frestið ehhi að vátryffffja
innbú yðar.
Síldarsöltunarstöð
á Skagaströnd
Þar sem ýmsir hafa óskað eftir að fá aðstöðu til síldarsöltunar
á Skagaströnd, óskar hafnarnefndin eftir leigutilboðum fyrir
söltunarstöð fyrir allt að 25 þús. tunnu söltun, ásamt tilheyr-
andi geymsluplássi og verkafólksíbúðum.
í leigutilboðum sé framtekið leigugjald og skipafjöldi, sem
aðilar hafa tryggðan til síldarupplags.
Líklegt má telja, að stöðin verði ekki tilbúin til afnota fyrr en
sumarið 1947.
Nefndin áskilur sér tillögurétt um sameiningu umsækjenda í
félagsskap, ef ástæða þykir til.
Réttur er áskilinn um val og höfnun tilboða.
Tilboðum sé skilað til hafnarnefndar Skagastrandar fyrir 1.
janúar n. k.
Ilafnarnefnd Skagstrandar.
Orfoeh((iHg
til innheimtumanna Tímans
innheitntutnenn Títnans, setn ehhi hafa
ennþá sent shilatfreinar fyrir þetta ár9
eru vinsatnleya beðnir að yera það hið
allra fyrsta.
IMHEIMTA TÍMAHS.