Tíminn - 29.12.1945, Qupperneq 7
98. blað
TÍMIM, laiigardaa'imi 29. des, 1945
7
Ofviðri veldur tjóni
víða um land
Fárviðri geysaði víða um land
um jólin og dagana fyrir þau.
Frétzt hefir um nokkurt tjón
sem orðiö hefir af veðrinu víðs
vegar á landinu.
Þrjá báta rak á land í Dýra-
firði, og brezkur togari strand-
aði þar á firðinum á jóladag.
Ekkert manntjón varð og er nú
unnið að björgun skipanna. Bát
rak einnig upp af legunni í Suð-
ureyri við Tálknafjörð.
Hinn 18. þ. m. sukku sex bát-
ar á legunni á Skagaströnd og
hefir aðeins einn þeirra náðst
upp. Bátarnir voru tveir upp-
skipunarbátar, tveir trillubátar
og tveir mótorbátar. Á Skaga-
strönd urðu einnig miklar
skemmdir aðrar af völdum veð-
urs, hafnarhús skemmdust, skáii
fauk, skemmdir urðu á íbúðar-
húsum og allmikið fauk af heyj-
um.
Miklar skemmdir urðu víða á
Norðurlandi. Mun því enn ekki
frétt um allar þær skemmdir,
sem hafa orðið í ofviðri þessu.
Flugfél. kaupir annan
Katalínubát
Flugfélag íslands hefir fest
kaup á einum Catalínaflugbát
í Kanada og er hans von hingað
innan skamms.
Jóhann Snorrason flugmaður
og Gunnar Jónsson fóru til Am-
eríku fyrir nokkrum vikum í
þeim erindum- að útvega félag-
inu flugvél. Hafa þeir nú fest
kaup á Catalínaflugbát hjá
kanadiska flughernum og verð-
ur flogið hingað strax og veður
leyfir.
Flugbátur þessi er þannig, að
hægt er að lenda honum bæði
á sjó og landi, og er að þvi leyti
frábrugðinn Catalína-flugbát
þeim, sem félagið á, en honum
er aðeins hægt að lenda á sjó.
Ýmsar fréttir
Viðskiptasamningur.
Nýlega hefir verið undirrit-
aður viðskiptasamningur milli
Finna og íslendinga. Gert er ráð
fyrir, að íslendingar geti selt
Finnum saltsíld, freðfrystan
fisk, þorskalýsi og síld, en fái
frá þeim pappír, eldspýtur og
sportvörur. Viðskiptin fara þó
eftir því, að samkomulag verði
um verð og vörugæði. Finnar
óska og eftir eins árs gjald-
fresti á síld og ull. Samningur-
inn gildi til ársloka 1946.
Skömmtun afnumin.
Tilkynnt hefir verið, að hætt
verði að skammta hér benzín
um næstu áramót.
Einnig hefir verið tilkynnt,
að mjölvöruskömmtunin falli
niður um áramótin.
Eftir áramótin verða því ekki
skammtaðar aðrar vörur en
sykur.
„Gullna hliðið“ verður sýnt
í Osló.
Konunglega leikhúsið í Oslo
hefir ákveðið að efna til sýn-
ingar á þessum vetri á leikriti
Davíðs Stefánssonar, „Gullna
hliðið“. Jafníramt hefir það
ráðið Lárus Pálsson til að ann-
ast leikstjórnina. Er hann far-
inn utan fyrir nokkru.
Foringjaskipti.
Fyrir nokkuru urðu yfir-
mannaskipti við ameríska setu-
liðið hér á landi. Stenseth bri-
gadier hefir látið af því starfi
og er farinn af landi burt. Við
starfinu hefir tekið Albert E.
Henderson ofursti.
Höfundur kemur í leitirnar.
Sigurður Nordal prófessor
hefir nú upplýst, að hann sé
höfundur leikritsins „Uppstign-
/lng“, sem Leikfélag Reykjavík-
ur hefir sýnt undanfarið, án
- þess að skýrt hafi verið frá
hver höfundurinn væri.
Minningarsjóður um
Kjartan Sigurjónsson
söngvara
Frú Bára Sigurjónsdóttir hef-
ir stofnað sjóð til minningar
um mann sinn, Kjartan Sigur-
jónsson söngvara frá Vík, og
hefir skipulagsskrá sjóðsins ver-
ið staðfest af forseta íslands.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja til framhaldsnáms efni-
lega, íslenzka söngvara, sem
eigi eru þess megnugir að kosta
nám sitt af eigin rammleik.
Úthlutun úr sjóðnum annast
þriggja manna nefnd, sem
skipuð er söngmálastjóra þjóð-
kirkjunnar, tónlistarráðunaut
Ríkisútvarpsins og organleikara
Dómkirkjunnar í Reykjavík. Þó
hefir frú Bára með höndum
alla stjórn sjóðsins meðan
hennar nýtur við.
Sjóðnum hefir þegar borizt
margar minningargjafit, og má
vænta þess, að ýmsir verði fús-
ir til að styrkja hann með fé-
gjöfum, stórum eða smáum, svo
að hann geti sem fyrst tekið
til starfa.
Minningarspjöld sjóðsins fást
hjá Sigurði Þórðarsyni skrif-
stofustjóra Ríkisútvarpsins,
Reykjavík, Valdemar Long,
Hafnarfirði, Bjarna Kjartans-
syni, Siglufirði og Sigurjóni
Kjartanssyni, kaupfélagsstjóra
Vík.
Vansmíði ,títuprjóna-
smiðsins
Títuprjónasmiður „unga
fólksins“ í Alþýðublaðinu hefir
undanfarið verið að gera tilraun
til að gera lítið úr samþykktum
þings ungra Framsóknarmanna
á Laugarvatni s. 1. sumar, í
sj ávarútvegsmálum.
Háttur sá, er hann hefir við-
haft, er að halda fram, að sú
ein tillaga í sjávarútvegsmálum
hafi verið samþykkt á þinginu,
er fjallaði um útgerðarréttindi
á Grænlandi og vill með þvi
sýna, að þingið hafi lítið þarf-
legt aðhafzt í þeim efnum.
Jafnvel þegar hann nauðugur
varð að éta ofan í sig þessi um-
mæli þá tók hann það ráð að
gera lítið úr þýðingu þess fyrir
íslendinga að eiga útgerðar-
réttindi á Grænlandi, sem
hvorki hann né flokksbræður
hans höfðu borið gæfu til að
láta sér detta i hug. í öfund
sinni heldur hann fram, að öðru
máli hefði verið að gegna, ef
í tillögunni hefði verið talað um
hafnarréttindi á Grænlandi.
Það er víst fyrir ofan skilning
þeirra útgerðarmannanna við
Alþýðublaðið, að útgerðarrétt-
indum fylgi hafnarréttindi,
enda er ekki annars að vænta.
þar sem þeir hafa nú um skeið
hrakizt í brotsjöum hins pólit-
íska hafs með brotna rá og slit-
inn reiða, sífellt leitandi að
höfn án þess að finna.
Alþýðuflokknum hefir orðið
ærið villugjarnt á miðunum um1
dagana og ber sjálfsagt margt
til. Það, sem einkum er talið út-
gerð almennt til tjóns, eru ó-
hæfir skipstjórnarmenn, ótrúir
hásetar eða illur farkostur. Skal
hér látið ósagt um, hvað £f
þessu þrennu á hér einkum
sökina, en sumir munu eflaust
segja, eins og sagt er í visunni:
„Kompassen om bord, den har
vi allri hatt ....“ enda er
stefnan eftir þvi.
(Grein þessi átti að birtast á
siðu S. U. F., sem er ^á öðrum
stað i blaðinu, en komst þar
ekki vegna rúmleysis).
Ferðamenn
Tilvalin og varanleg tækifær-
isgjöf handa frúnni og kærust-
unni, er litprentuð rós.
Handa bóndanum og unnust-
anum skipa-, dýra og landlags-
myndir.
Fyrir börnin flugvéla-, barna-
og dýramyndir.
Allt í vönduðum og fallegum
römmum.
Verð og stærð við allra hæfi.
Látinn laus.
Hinrik Guðmundsson einn
Esjufarþeganna, sem var kyrr-
settur í Kaupmannahöfn i vor,
hefir nýlega verið látinn laus.
RAMMAGERÐIN
HÓTEL HEKLU
(gengið inn frá Lækjartorgi).
Hreðavatn
Vegna marg ItrekaSra fyrir-
spurna og mísskilnings skal
þetta tekið fram: Ég á ékkert
í „Hótel Hreðavatn h.f.“ og get
engu svarað um það fyrirtœki.
Ég er að endurreisa H r e ð a-
v atn s skála við þjóðveginn
uppi undir eldgígnum. Þegar ég
reisti skálann fyrir 12—13 ár-
um (sem tilraun) á f 'ögrum eyöi-
stað, tryggði ég ekki nógu vel
lóðarréttindi. Verð þvi nú að
víkja um fáein hundruð metra
— á Brekkuland. Bóndinn ' á
Brekku er svo vinsamlegur að
lána mér blett til lífstíðar og
mun ég því gera nýja skálann
mun betri en þann eldri, þar
sem ég þarf ekki að óttast að
verða hrakinn á burt með hann.
Skiptavinum og góðkunningj-
um mínum þakka ég liðnar
stundir og vona að sjá þá sem
flesta á komandi árum í hin-
um nýja Hreðavatnsskála.
' Vigfús Guðmundsson.
1
(jleíileyt Hiját-í
'JarAœlt kctnaH<(i ár!
Samban.d ísi
samvin.nufélaga
Ríkisútvarpið
L ' , i
Takmark og ætlunarverk Ríkisútvarpsins er að ná til allra
þegna landsins með hvers konar fræðslu og skemmtun, sem þvi
ar unnt að veita.
lðalskrifstofa lítvarpsins
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samningagerðir
o. s. frv. Útvarpsstjóri er venjulega til viðtals kl. 2—1 síðd.
Sími skrifstofunnar er 4992. Sími útvarpsstjóra 4990.
Innheimtu afnotagjalda
annast sérstök skrifstofa. Sími 4998.
Útvarpsráðið
(Dagskrárstjórnin) hefir yfirstjórn hinnar menningar-
legu starfsemi og velur útvarpsefni. — Skrifstofan er opin*
til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4 síðd. Simi 4991.
F'réttastofan
annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlöndum. —
Fréttaritarar eru í hverju héraði og kaupstað landsins.
Frásagnir um nýjustu heimsviðburði berast með útvarpinu
um allt land tveim til þrem klukkustundum eftir að þeim
- er útvarpað frá erlendum útvarpsstöðvum. Fréttastofan
starfar í tveim de.Tdum; sími innlendra frétta 4994; sími
erlendra frétta 4845.
Auglýslngar.
Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna
með skjótum og áhrifamiklum hætti. Þeir, sem reynt hafa,
telja útvarpsauglýsingar áhrifamestar allra auglýsinga.
Auglýsingasími. 1095.
Verkfræðingur útvarpslns
hefir daglega umsjón með útvarpsstöðinni, magnarasal og
viðgerðarstofu. —
Viðgerðarstofan
annast um hvers konar viðgerðir og breytingar viðtækja,
veitir leiðbeiningar og fræðslu um not og viðgerðir út-
varpstækja. Sími viðgerðarstofunnar 4995.
< >
ijleíilegt Hifárf!;
SúHatarbanki ýdtahcfó !!
o
< >
<»
O
o
o
o
Tilkynning til félagsmanna
Félagsmenn KRON eru áminnur um að halda til haga öllum
kassakvittunum (arðmiðum) sínum. Þeim á síðan að skila í
lokuðu umslagi í skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg 12, strax
eftir áramótin.
Munið, að félagsréttindi yðar framvegis, eru bundin þvi skil-
Takmarkið er:
Útvarpið inn á hvert heimili! Allir landsmenn þurfa að yrði, að þér skilið kassakvittunum,
eiga kost á því að hlusta á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög
heimsins.
Kanpfélag Reykjavíknr og nágrennis.
Ríkisútvarpið
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á jólatrjám og greni:
Jólatré 1 m.. í heildsölu: kr. 15.85 í smásölu: kr. 23.00
do 1 Vz m. — 17.90 — 26.00
do 2 m. — 21.05 — 31.00
do 2V2 m. — 23.10 — 34.00
do 3 m. — 25.20 , — 37.00
do 4 m. — 33.35 — 50.00
do 5 m. — 41.70 — 62.00
do 6 m. — 45.85 — 68.00
do 7 m. — 50.00 — 75.00
Greni pr. kg. . . — 2.00 — 4.00
Reykjavík, 21. desember 1945.
Vcrðlagsstjórinn.
Stór bók um líf og starf og samtíð listámannsins mikla
Leonardo da Vinci
eftir rússneska stórskáldið Dmitri Mcrcskowsk'i, í þýðingu
Björgúlfs læknis Ólafssonar
er komin í bókaverzlanir
í.cotntrdo da rinci var furOulegur mafíur Hvar sem hann tr nefndur t bókuth. rr
étns og rnenji skorti orð lil þess að lýsa algerft hans og yfirburfíum. í „Encycioperdm
Dntaimica“ f 19U) er sagt, nð sagan nefni engan mann, sem %i hans /afmngi u svifíi
vlstndn og lista og óhugsandt sé, afí nokkur rnaður hefði enzí til að afkasta hundtafía*ta
parlt aj öllu frui, sept hann fékkst vifí.
l.eonardo da Vinct var óvifíjalnnnlegur málnri. En hann var tika uppfinningnmafíur
á vifí Edison, efílisfra:öingur, st(rrfífrirfíu\gui, stjömufr/rfíingur og hervétafrirfímgur
Hann fékkst vifí rannsóknir i Ifósfrtrfíi. liffirrafurði og stjórnfrafít. andlitsfall maunn og
fellingar i klafíum alhugafít hann vmidtega.
Söngmaðttr var Lennardo, gófíur og lék sjálfur á hl}ófífoTi. Enn fremur riiafíí hanu
kynslrin öll af dagbókum, en -
list hans hefir gefið honum orðstír, sem aldrei deyr.
Þesst bók um Leonnrdo dn Vinci er sngn utn mnnntutt, tr höfhajastur og nfkasta•
mcstur er lalinn allra mantui. er sögur Jnra nj. og etnn aj meslu lisinuiönnum vcraldtjr.
\ , \ I
í bókinni eru um 30 myndir af listaverkum.
\ H.F. LEIFTUR, Reykjavík.