Tíminn - 29.12.1945, Síða 8
KosrLLngaskrifstofa Framsóknarmanna
er í Edduh.úsinu. Sími 6066.
8 | REYKJAVÍK
FRAMSÓKNARMENN!
Komið í kosningaskrifstofuna
29. DES. 1945
98. hlað
AIVHfÁIÆTÍMAIVS
12. desember, miðvikudagur:
Iran: Stjórnin sendi nýja
áskorun til Breta, Bandaríkja-
manna og Rússa um að flytja
her sinn úr landi.
Bretland: Brezka stjórnin,
sem hafði ákveðið að flytja her
sinn frá Iran íyrir 1. marz, til-
kynnti að h|ún myndi ekki flytja
hann í burtu meðan rússneskur
her væri í landinu.
Finnland: Finnskum blöðum
bannað að birta varnarræðu
Ryti og áheyrendum bannað að
hlusta á síðari hluta ræðunnar.
13. desember, fimmtudagur:
Bretland: Neðri málsstofan
samþykkti að Bretar tækju am-
eriska lánið með 345:98 atkv.
Hún samþykkti og þátttöku
Bretlands í Bretton Woods
samkomulaginu með • 314:50
atkv.
Danmörk: Horfur á þingrofi
í Danmörku, því að stjórnin
vildi ekki fallast á kröfu hinna
flokkanna um 21 árs kosninga*-
aldur í væntanlegum sveita- og
bæjarstjórnarkosningum.
Sýrland: Náðist samkomulag
milli Breta og Frakka um brott-
flutning á herjum þeirra þaðan.
Fámennt herlið verður þó' eftir.
14. desember, föstudagur:
Tyrkland: Tyrknesku stjórn-
inni barst orðsending frá rúss-
nesku stjórninni, þar sem hún
mótmælti kröfugöngu tyrk-
neskra stúdenta, er hafði beinzt
gegn Rússum. Óttast er að hér
geti skapazt alvarlegt ágrein-
ingsmál.
JÞýzkaland: Belsenfangaverð-
irnir, sem höfðu verið dæmdir
til lífláts, hengdir.
15. desember, laugardagur:
Bretland: Undirbúningsnefnd
Öryggisstofnunarinnar nýju á-
kvað, að hún skyldi hafa sama-
stað í austu^fylkj um Banda-
ríkjanna.
Búlgaría: Flest blöð stjórnar-
andstæðinga bönnuð.
16. desember, sunnudagur:
Rússland: Hófst í Moskvu
fundur utanríkisráðherra Breta,
Bandaríkjamanna og Rússa.
Ungverjaland: Stjórnin leysti
upp ungverskt-rússneskt verzl-
unarfélag, sem hafði verið
stofnað fyrir kosningarnar.
17. desember, mánudagur:
Bandaríkin: Þingið sam-
þykkti 1300 milj dollara lán til
UNNRA.
Iran: Iranstjórnin birti yfir-
lýsingu, þar sem hún færði rök
að því, að sjálfstæðishreyfingin
í Norður-Iran starfaði á vegum
Rússa.
18. desember, þriðjudagur:
Kína: Kommúnistar friðmæl-
ast við Chang Kai Shek og hafa
sent nýja samninganefnd til
viðræðna við hann.
Bretland: Lávarðadeildin
samþykkti ameríska lánið með
90:8 atkv.
19., desember, miðvikudagur:
Þýzkaland: Bretar hafa tekið
stjórn kolanámanna í Ruhr í
sínar hendur.
Bretland: John Amery tekinn
af lífi. 1 ^
Bandaríkin: Truman sendi
þinginu orðsendingu um nauð-
syn þess að hafa öflugan her og
flota.
20. desember, fimmtudagur:
Rússland: Rússnesku blöðin
birtu grein eftir sagnfræðinga,
þar sem leidd voru rök að því,
að Rússar ættu tilkall til nokk-
urra tyrkneskra héraða.
Danmörk: Danska stjórnin
fékk því framgengt að kosninga-
aldurinn við syeita- og bæjar-
stjórnarkosningar yrði ekki
lækkaður. Kemur því ekki til
þingrofs.
21. desember, föstudagur:
Tyrkland: Utanríkismálaráð-
herrann lýsti yfir því á þing-
fundi, að Tyrkir myndu ekki
láta af hendi þumlung af landi.
Þýzkaland: Patton hershöfð-
ingi lézt af völdum bílslyss.
Bretland: Stjórnin lagði fram
frv. um ríkisrekstur á flugferð-
um.
22. desember, laugardagur:
Bretland: Stjórnin bannaði
útflutning á hvers konar vopn-
um til Spánar.
Austurrílci: Stjórnin tilkynnti,
að hún myndi aðeins krefjast
hluta af Tyrol.
23. desember, sunnudagur:
Jugoslavia: Bandaríkin og
Bretland viðurkenndu hið ný-
stofnaða lýðveldi.
Finnland: Tanner og þrír
mennpðrir, sem höfðu verið á-
kærðir fyrir stríðsglæpi, en hafði
verið leyft að ganga lausum
meðan rannsókn málsins stæði
yfir, voru fangelsaðir aftur.
Fullvíst þykir, að Rússar hafi
krafizt þess.
24. desember, mánudagur:
Bandaríkin: Fraser, forsætis-
ráðherra Nýja Sjálands, sem er
staddur i Washington, sagði, að
Ný-Sjálendingar og fleiri myndu
krefjast þess, að stórveldin
fengju ekki óskoraðan synjun-
arrétt í Öryggisráðinu.
Rússland: Horfur eru taldar
á samkomulagi á ráðherrafund-
inum í Moskvu.
/ *
25. desember, þriðjudagur:
Rússland: Talið er fullvist, að
samkomulag sé orðið um það
milli stórveldanna, að halda
allsherjar friðarráðstefnu fyrir
1. maí næstk.
Java: Talið er horfa vænlegar
um samkomulag þar.
Bretland: Hollenzki forsætis-
ráðherrann kom til London til
að ræða við ensku stjórnina um
Javamálin.
26. desember, miðvikudagur:
Bandaríkin: 24. þjóðir undir-
rituðu í Washington Bretton
Woods samþykktirnar, er fjalla
um stofnun alþjóðabanka, og
margvíslega alþjóðlega sam-
vinnu i fjárhagsmálum.
Rússland: Lauk ráðherra-
fundinum í Moskvu.
Frakkland: Stjórnin lýsti yfir
verðfellingu frankans.
27. ^esember, fimmtudagur:
Rússland: Birt var skýrsla um
árangurinn af ráðherrafundin-
um. Samkomulag hafði náðst
úm mörg mál, en öðrum var
frestað, t. d. Irandeilunni.
Frakkland: Franska stjórnin
birti kröfu þess efnis, að hún
fengi að vera þátttakandi í öll-
um ráðstefnum um Balkanmál-
in, en ráðherrafundurinn hafði
orðið sammála um, að þríveldin
ein skyldu gera friðarsamninga
við Balkanríkin.
JL
þahtear öllwm stuðninfismönnum sínum fyrir
samstarfið ú liðna úrinu otf óstear þeim ofi
/
öðrum viðsteiptavinum sínum ffleðilefis nýúrs.
Maður myrtur
í Reykjavík
áannan dagjóla
A annan jóladag gerðist sá at-
burður í Reykjavík, að maður
var myrtur í auðum hermanna-
skála niður við höfn, skammt
frá Sænska írystihúsinu. Var
það Kristján Guðjónsson prent-
ari í Gutenberg. Hann var 53
ára að aldri.
Skömmu eftir miðnætti að-
faranótt síðastl. fimmtudags
kom maður inn í lögreglustöð-
ina í Reykjavík og sagðist hafa
íundið lík í mannlausum skála
niður við höfn. Lögreglan brá
þegar við og fann manninn
liggjandi í blóði sínu innanvert
á skálagólfinu. Lá maðurinn,
sem reyndist vera Kristján Guð-
jónsson, á gólfinu og virt-
ist auðsýnilega hafa verið
hreyfður til, eftir að hann
féll til jarðar. Illræðis-
maðurínn hafði fært hann úr
jakkanum, þannig að ermarnar
höfðu snúizt við og lá jakkinn á
borði fram við dyr með blóð-
ugum fingraförum morðingj-
ans, sem hafði leitað í vösum
að peningum og verðmætum
munum. Sú leit hans mun þó
ekki hafa borið neinn árangur,
því að vitað var, að Kristján
heitinn var enga peninga með á
sér daginn, sem hann var myrt-
ur.
Við rannsókn á líkinu kom í
ljós, að morðingjarnir hafa
slegið Kristján heitinn þungt
högg á munninn, því að tenn-
urnar voru lausar og brotnar,
er sennilegt talið að það hafi
verið hnefahögg. Siðan hefir
hann verið sleginn með barefli
nálægt báðum eyrum. Talið er
ljós, að morðinginn hefir
ekki notað eggjárn við illræðið,
enda hefir ekkert slíkt vopn
fundizt.
Myrkur mun hafa verið í
skálanum, því að búið var að
skera niður alla ljósaþræði og
lágu þeir á borðum, sem eru
meðfram veggjum skálans.
Kristján heitinn hafði farið
að heiman frá sér nokkru eftir
jhádegi á annan í jólum og ætl-
Kristján \ Guðjónsson
aði að fá sér stutta gönguferð.
Honum mun svo hafa dvalizt úti
við og smakkað áfengi, og gefið
þrem amerískum hermönnum í
staupinu með sér.
Um ferðir hans eftir klukfcan
hálf fimm um daginn er ekkert
vitað, fyrr en líkið fannst í skál-
anum laust eftir miðnætti. Þeg-
ar lögreglan kom á vettvang um
15 mín. yfir miðnætti var likið
stirðnað.
Morðinginn hefir ekki enn
fundizt en bæði íslenzka og am-
eríska lögreglan gera allt sem
hægt er til að upplýsa þetta
ógeðslega morðmál og hafa
hendur í hári illræðismannsins.
Samkvæmt nýjum upplýsing-
um hefir all-mikilvægt vitni
komið fram í málinu, en ekki
er að svo stöddu talið tímabært
að greina frá framburði þess, né
frekari rannsókn málsins.
Seytján ár eru liðin síðan
: morð var síðast framið í
| Reykjavík.
Kosningaskrifstofa
Framsóknarmanna
til undirbúnings bæjarstjórnarkosninga í Reykjavik
er í Edduhúsinu við Lindargötu. Opin daglega kl.
2—7 og á sunnudögum kl. 5—7.
Sími 6066
Kjörskráin liggur þar frammi og ættu sem flestir
að athuga hvort þeir, eða kunningjar þeirra, eru á
kjörskrá.
—
of this Ciean, Family Newspaper
The Christian Science Monitor
from crime and sensation.il tiews . . . Free from political
bias . .. Free from "special interest” control . . . Free to tell you
the truth about world' events. Its own worid-wide staff-of corre-
spondents bring ycu dn-the-spot news'and its meaning to you
and your family. Each issue filled with unicue self-help features:
to clip and keep.
■ The Christir.n Sclencc Publislilng: Soclety | One, Nonvay Street, Boston 15, Mass. j j Pleasc scitd samþle copies I—1 of Tbe Christian Scicnce Monitor.
1 ^ .
! City. Zone Sfate.... I PB-3 , I—í trial subscription. I eti- close $1
PnwUwíjcm CtUa L £
(jatnla &íóK
„ÞRfR KÁTIR
KARLAR“
(The Three Caballeros)
Litskreytt söng- og teikni-
mynd eftir snillinginn
WALT DISNEY
í myndinni koma fram söng-
konurnar
Dora Luz og
Aurora Miranda
og dansmærin
Carmen Molina.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
—------------ - - -----------
Wýja Síc
HEIMA ER REZT
AÐ VERA
(Home in Indiana).
Falleg og skemmtileg mynd í
eðlilegum litum. Aðalhlutverk
leika hinar nýju „stjömur"
Lon Mc Callister,
Jeanne Crain
ásamt
Charlotte Greenwood
og
Walter Brennan.
Sýningar kl 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1 e. h.
Leikfélag Reykjavíkur
it
♦♦
♦♦
♦♦
«
::
SKÁLHOLT
JÓMFRÚ RAGNHEIÐUR
Sögnlegur sjónleikur í 5 þátturn
eftir
Gubmund Kamban
Sýning annað kvold (sunnudag) kl. 8.
Aðgöngumiðasala í dag kl. 2—5 e. h.
ATH. Tilgangslaust er að biðja leikendur eða starfs-
, \ ' i
fólk Leikfélagsins að panta aðgöngumiða.
U R B Æ N U M
Skemmtun.
Næsta skemmtisamkoma Framsókn-
armanna í Reykjavík verður í Lista-
mannaskálanum föctudaginn íjórða í
nýári. Hefst hún kl. 8,30 með hinni sí-
gildu Framsóknarvlst.
Fundur.
Framsóknarfélag Reykjavíkur hélt
fund í Baðstofu iðnaðarmanna rétt
fyrir jólin. Formaður félagsins,
Sigurjón Guðmundsson, setti fundinn
með nokki-um orðum og síðan var
fundarttjóri kosinn. Valinn var Vigfús
Guðmundsson en fundarritari Kristján
Friðriksson. Bygginga- og húsnæðis-
mál Reykjavíkur voru aðalumræðu-
efnið og tóku til máls þeir Guðlaugur
Rcsinkranz, Sigurður Baldvinsson, Ey-
steinn Jónsson, Guðjón F. Teitsson,
Egill Sigurgeirrson, Jens Hólmgeirs-
son, Guðm. Kr. Guðmundsson og Guð-
brandur Magnússon. Umræðurnar
voru fjörugar og margt mjög athyglis-
vert, er kom fram* í þeim. Margir nýir
félagsmenn bættust í félagið og allur
var fundurinn hinnn ánægjulegasti.
í viðtali við Guðjón Ó. Guð-
jónsson,
sem birtist' á 6. síðu í seinasta blaði,
féll niður ein bók, sem Guðjón sagði
tíðindamanni blaðsins frá. Er það bók-
in „Fjallamenn" eftir Guðmund Ein-
arsson frá Miðdal. í þeirri bók eru
ferðasögur, og er bókin skreytt með
um 100 ljósmyndum og 100 málverk-
um sem höfundurinn hefir gert.
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands
var haldinn fyrir nokkru síð-
an. Gefin var skýrsla um starfsemi
félagtins á liðnu starfsári. Á aðalfundi
félagsins í fyrra var kosin nefnd til
að gera breytingar á tilhögun skóg-
ræktarfélagartna, sem í voru Hákon
Bjárnason, dr. Helgi Tómasson, Her-
mann Jónasson alþm., Ingvar Gunn-
arsson og Jón Pálmason. Nefndin
skilaði áliti á fundinum og lagði til
að Skógræktarfélag íslands yrði í
framtíðinni sambandsfélag skógrækt-
arfélaganna, enda verði þá stofnað
sérstakt skógræktarfélag fyrir Reykja-
vík. Félagið hefir afhent Reykjavíkur-
bæ girðingarefni til að afgirða Heið-
mörkina og vonast félagið eftir að
verkið verði framkvæmt á næsta vori.
:
Aðalfundur Þjóðræknis-
félagsins,
var haldinn nýlega. Á fundinum
kom fram tillaga, sem samþykkt var,
þess efnis, að starfsemi félagsins væri
færð út og komið á sambandi milli
þess og annarra félaga íslendinga er-
lendis. Stjórn félagsins var falið að
athuga málið. Á fundinum fluttu er-
indi Vestur-íslendingarnir Valdimar
Björnsson og Árni Helgason. í stjórh
Þjóðræknkfélagsins elga nú sæti: Éig-
urgeir Sigui'ðsson biskuþ, ívar Guð-
mundsson blaðamaður, Henrik S.
Björnsson deildarstjóri, Ófeigur Ó-
feigsson læknir og Ingl H. Bjarnason
efnafræðingur.
Herluf Clausen »
stórkaupmaður varð fimmtugur 28.
þessa mánaðar.
Pétur Benediktsson
sendiherra íslands í Moskvu, er ný-
lega kominn hingað til lands.
Knútur Arngrímsson
skólastjóri við Gagnfræðaskóla Reyk-
víkinga lézt hér í bænum á annan dag
jóla. Banamein hans var hjartabilun.
Hann var 42 ára gamall.
Nýr læknir,
Friðrik Einarsson hefir tekið til
starfa í Reykjavík of hefir opnað
lækningastofu í Túngötu 3, sími 3751.
Friðrik hefir stundað læknisfræðinám
og síðan starfað sem læknir í Dan-
mörku.
Veðurstofan flytur.
Um þessar mundir er veðurstofan að
flytja úr húsnæði þvi, sem hún hefir
verið í í Landssímahúsinu undanfarin
mörg ár. Flytur stofnunin starfsemi
sína í hið nýja hús Sjómannaskólans
óg fær þar rúmgott húsnæði til afnota.
Kíghóstí breiðist út.
Kíghósti gengur nú í bænum og hef-
ir héraðslæknir varað fólk við að láta
börn, sem ekki hafa fengið kíghósta,
fara á * jólatrésskemmtanir og aðrar
hópsamkomur. Hann telur þó út-
breiðslu veikinnar ekki öra og veik-
ina yfirleitt væga. Seinustu dagana
hefir þó borið meira á veikinni en
áður og virtist vera kominn meiri
skriður á útbreiðslu hennar.
Byggingarfélag stofnað.
Byggingafél. barnakennara í Rqykja-
vík var stofnað hér i bænum s. 1.
laugardag. 30 kennarar gerðust þegar
félagar. Framhaldsaðalfundur verður
haldinn í dag í Miðbæjarskólailum.
\
Stúlka rænd.
27. þ. m. tilkynnti stúlka hér í bæn-
um lögreglunni að hún hefði farið út
úr herbergi sínu og verið fjarverandi
i fimm mínútur, en þegar hún kom
aftur var horfin taska, er hún átti og
í voru 650 kr. í peningum, tvær brjóst-
nælur úr gulli, silfurarmband og fleiri
hlutir.
Hjónaefni. /
Á Þorláksmessu ^pinberuðu írúlofun
sina ungfrú Þórdis Eiríksdóttir frá
Gunnólfsvík og Kristvin Kristinsson
bifreiðastjóri hjá Mjólkursamsölunni.