Tíminn - 05.02.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: !>
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
30. árg.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargðtu 9 A
Símar 2353 og 4373
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Undargötu 9A
Siml 2323
AFGREIÐSLA, INNHE2MTA
Reykjavík, þriðjudagiuu 5. febr. 1946
22. bla»
Brezki herinn fer héöan alfar-
inn í næsta mánuði
Ameríski herinn verður hér fyrst um sinn með
samþykki ríkisstjúrnarinnar
Brezki herinn mun fara héðan til fullnustu í næsta mánuði.
Landherinn og: sjóherinn er þegar farinn héðan fyrir nokkru,
en flugherinn hefir haft hér um 2000 manna lið undanfarið.
Þetta lið verður flutt héðan í næsfci mánuði og verður þá ís-
lenzkum stjórnarvöldum afhentur Reykjavíkurflugvöllurinn, þar
sem brezki flugherinn hefir haft aðalaðsetur sitt hér frá því
íyrsta, enda er flugvöllurinn byggður af Bretum.
UNNRA kaupir
íslenzkar vörur
UNNRA, hjálpar- og endur-
reisnarstofnun sameinuðu þjóð-
anna, sem ísland er meðlimur í,
hefir fest kaup á um 400 smá-
lestum af ull hér á landi og
greiðir gott verð fyrir. Munu
ullarkaup þessi svara til að
verðmæti framlags íslands til
UNNRA.
Þá hefir komið fyrirspurn um
það frá UNNRA, hvort stofn-
unin muni geta fengið keyptar
hér á landi allt að 300.000
tunnum saltsíldar á þessu ári.
Er það nú til athugunar hvort
hægt verður að selja UNNRA
þessa síld.
Skjaldarglíma
*
Armanns
Skjaldarglíma Ármanns fór
fram síðastl. föstuda'gskvöld í í-
þróttahúsi í. B. R. „við Háloga -
land.
Keppendur voru 9 frá 3 félög-
um, Ármanni, K.R. og Umf.
Hrunamanna. Úrslit urðu þessÉ
1. Guðmundur Ágústsson, Á.
8 vinninga.
2. Guðm. Guðmundsson, Á.
7 vinninga.
3. Einar Ingimundsarson, Á.
6 vinninga.
4. Sigurður Hallbjörn.sson, Á.
5 vinninga.
(Framhald á 8. slöu)
Það mun hafa verið á síðastl.
hausti, er brezka stjórnin til-
kynnti íslenzku ríkisstjórninni
þessa fyrirætlun sína og óskaði
jafnframt eftir undirbúningi af
hálfu íslendinga til að taka
rekstur flugvallarins í sínar
hendur. Ríkisstjórnin skipaði
þá þriggja manna nefnd til að
semja*við Breta um flugvöllinn.
í nefndinni eru Erling Elling-
sen, flugmálastjóri, Gunnlaugur
Briem verkfræðingur og Gunn-
laugur Briem stjórnarráðsfull-
trúi.
Enn skortir mikið á það, að
íslendingar hafi nægilega marga
æfða menn til að geta tekið ein-
ir að sér stjórn flugvallarins.
Hefir því náðst samkomulag
um það við brezk stjórnarvöld,
að allmargir brezkir sérfræðing-
ar verði eftir hér á landi, þar
til íslendingar geta sjálfir tekið
að sér stjórn og rekstur vallar-
ins.
Enn mun ekkert ákveðið um
það, hvenær ameríski herinn fer
héðan eða hvenær íslendingar
taka við stjórn Keflavikurflug-
vallarins. Sveinbjörn Högnason
gerði fyrirspurn um þetta til
forsætisráðherra á þingfundi
rétt fyrir jólin og svaraði ráð-
herrann á þá leið, að stjórnin
sæi ekkert athugavert við þessa
dvöl hersins hér. Mátti vel
marka af þessum ummælum
hans, að ameríski herinn myndi
verða hér a. m. k. fyrst um sinn
með fullu samþykki ríkisstjórn-
arinnar.
Annars liggur fyrir Alþingi aö
ræða mjög bráðlega um öll þessi
mál í sambandi við þingsálykt-
unartillögu frá Gísla Sveinssyni
varðandi flugvellina. Þessi til-
laga var flutt alllöngu fyrir
þingfrestunina og vakti það tals-
verða furðu, að forseti' sameip-
aðs þings skyldi aldrei taka
hana, á dagskrá.
Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu
bæjarstjórnar Reykjavíkur
Framsókiiariiieiin fengu fulltrúa í fræðsluráð
ojí skúlanefnd Hiismæðraskúlans
Fyrsti fundur hinnar nýkjörnu bæjarstjórnar Reykjavíkur var
haldinn síðastl. laugardag. Fóru þar fram kosningar á borgar-
stjóra, bæjarráði og nefndum. Við allmargar nefndarkosningarn-
ar var samvinna milli Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins.
Framsóknarmenn fengu fulltrúa kosinn í fræðsluráð bæjarins,
Ingimar Jóhannesson, kennara, og í skólanefnd húsmæðraskólans,
frú Vigdísi Steingrímsdóttur.
í nokkrum nefndarkosning-
um, þar sem Alþýðuflokksmenn
og Pálmi Hannesson höfðu ekki
bolmagn til að koma manni að,
höfðu Alþýðuflokksmenn og
kommúnistar samvinnu. Pálmi
Hannesson skilaði auðum seðli
í þeim kosningum.
Sundhöll á ísafirði
Vegleg sundhöll var vígð á
ísafirði í síðastl. viku. Stærð
sundlaugarinnar er 16X8 m. og
dýpt frá 1—2 m., en stærð sund-
(Framhald á 8. síðu)
Sérstaka athygli vakti það,
að full samvinna var milU
gömlu bæjarstjórnarflokkanna,
þegar kosnir voru þrír menn í
bygginganefnd bæjarins og þrtr
endurskoðendur bæjarreikn-
inganna.
Bjarni Benediktsson var end-
urkosinn bæjarstjóri með at-
kvæðum íhaldsmanna, en and-
stöðuflokkarnir skiluðu auðum
seölum í þeirri kosningu.
Önnur mál en nefndarkosn-
ing lágu ekki fyrir fundinum.
Næsti fundur verður á fimmtu-
daginn og verður þá rætt um
fjárhagsástæður bæjarins.
Furðulegar aðdróttanir í Þjóðviljanum:
Eru foringjar Sjálfstæðisflokksins að reyna
að koma landinu undir erlend yfirráð?
Mynd þessi er af danska forsætisráðherranum, Knud Kristensen, konu
hans og barnabarni þeirra. Þann stutta tíma, sem Kristensen hefir veriS
forsætisráðherra, hefir hann unnið sér stórum aukið álit. Nýlega rcyndu
kommúnistar að efna til vcrkfalla gegn honum, er þeir létu frelsishreyf-
inguna beita sér fyrir, vegna ummæla, sem hann hafði látið falla um þá
og málefni pólitískra fanga í Danmörku. Verkfallsmenn hafa verið látnir
krefjast þess, að ráðherrann tæki ummæli sín aftur. Kristensen hefir svarað
því, að meðan hann ráði einhverju, verði kommúnistar ekki látnir segja
fyrir verkum. Vegna þessara átaka hefir frelsishreyfingin nú klofnað og
Christmas Möller o. fl„ sem eru andvígir þessum aðförum kommúnista,
gengið úr henni.
Fjársöfnun til bágstaddra barna
á meginlandi Evrópu
Rauða Krossi íslands hefir undanfarið borist átakanlegar
skýrslur af ástandinu í Mið-Evrópulöndunum, þar sem hungur-
dauði bíður þúsunda manna, ef ekki rætist úr með lífsbjörg Rauði
Kross íslands hefir því ákvcðið að beita sér fyrir fjársöfnun, og
verður því fé, sem safnast eingöngu varið til kaupa á meðalalýsi,
sem sent verður til fjögurra Mið-Evrópulanda, þeirra sem einna
verst hafa orðið úti, vegna styrjaldarinnar, en það eru Austurríki,
Pólland, Tékkóslóvakía og Þýzkaland. Verður því sem safnast
kann skipt jafnt milli allra þessara landa.
Rauði Krossinn hefir snúið
sér til nokkurra manna sem
heitið hafa söfnuninni stuðn-
ingi sínum og hefir verið skipuð
nefnd til að aðstoða við söfn-
unina í Reykjavík. Hafa þessír
menn heitið stuðningi sínum í
því sambandi: Ásgeir Þorsteins-
son framkvæmdastjóri, Ásgeir
Stefánsson forstjóri, Kjartau
Thors útgerðarmaður, Einar Ol-
geirsson alþingism., Loftur
Bjarnason útgerðarmaður, Egg-
ert Kristjánsson heildsali,
Sveinn Benediktsson útgerðar-
maður, Valtýr Blöndal banka-
stjóri, Vilhjálmur Þór forstjóri
S. í. S. og Finnbogi Guðmunds-
son frá Gerðum. Auk þess mun
Sigurður Sigurðsson formaður
Rauða Krossins og Lúðvík Guð-
mundsson skólastjóri aðstoða
við söfnunina.
Ætlast er til, að söfnunin
standi ekki lengur en til 20. þ.
m. því brýn nauðsyn er á því, að
það sem sent verður komist til
hinna nauðstöddu barna sem
fyrst.Næstu mánuðiverðurþörf-
in mest fyrir lýsið, þegar hinn
litll vetrarforði fólksins er að
þrotum kominn.
Rauði Krossinn hafði til at-
hugunar þegar í haust að hefja
þessa söfnun og hefir stjórn ís-
lenzka Rauða Krossins staðið í
sambandi við Rauða Kross
stofnanir erlendis um aö greiða
fyrir því, að hjálpin komist til
ákvörðunarstaðanna.
Rauði Krossinn mun leita til
allra rauðakrossdeilda á land-
inu um aðstoð Við söfnunina og
tilmælum um að þær beiti sér
fyrir söfnuninni. Auk þess að
afgreiðslur blaðanna taka á
móti gjöfum til söfnunarinnar,
(Framhald á 8. síðu)
Og hefðu kommimistar þagað yfir þessu
ef þeim hefði gengið vel í kosningunum?
í allmörgum greinum, sem hafa birzt í Þjóðviljanum eftir bæj-
arstjórnarkosningarnar, hefir því verið hiklaust dróttað að for-
ingjum Sjálfstæðisflokksins, að þeir hefðu landráð í huga og
stefndu markvisst að því að koma á erlendum yfirráðum á Islandi.
Því er m. a. haldið fram, að þessar landráðafyrirætlanir þeirra
liafi komið mjög glöggt fram á Alþingi í haust.
Þessar upplýsingar eru vissulega þannig, að þjóðin verður að
krefjast upplýsinga um, hvort þær hafa við nokkur rök að styðjast.
Sú krafa beinist ekki eingöngu til kommúnistanna, sem hafa
komið þeim af stað, heldur engu síður til forkólfa Sjálfstæðis-
flokksins, sem vissulega ættu ekki að liggja undir þessum aðdrótt-
unum samstarfsflokksins, ef þeir gætu hreinsað sig af þeim.
Hvað gerðist í sölum
Alþingis í hanst?
Ein af þessum aðdróttunum
Þjóðviljans í garð forkólfa
Sjálfstæðisflokksins, birtist í
blaðinu 1. þ. m. í grein, sem
nefnist: Áhöfn galeiðunnar.
Tilefni greinarinnar er mynd,
sem birtist í Mbl. af hinum nýju
bæjarfulltrúum íhaldsins í
Reykjavík. í greininni er reynt
að lýsa hugrenningum bæjar-
fulltrúanna og er lýsingin af
Gunnari Thoroddsen m. a.
þessi:
„Og síðan kemur röðin að
Gunnari Thoroddsen. Hvers
vegna er hann svona á- j
hyggjufullur? Hvers vegna'
hlær honum ekki hugur í
brjósti, þegar pípuhattarnir
hafa enn einu sinni sigrað
verkamenn og launþega?
Nei, það er ekki von að
Gunnar Thoroddsen iði af
kátínu og fjöri.
Hann veit nefnilega hvað
gerðist í sölum Alþingis
í október og nóvember.
Honum er Ijóst, að hefði
þjóðin fengið nákvæma vitn-
eskju af þeim furðulegu tíð-
indum, sem áttu sér stað á
þessu tímabili, þá hefði dóm-
ur hennar yfir forustuliði
Sjálfstæðisflokksins orðið
þyngri en nokkur getur gert
sér í hugarlund. Og hann
óttast, að fyrr en varir kunni
að reka að því, að hulunni
verði svipt burtu og forkólfar
peningavaldsins standi af-
hjúpaðir frammi fyrir alþjóð.
Þessi ótti hans hefir við rök
að styðjast — Það væru svik-
ráð við þjóðina að halda þeim
leyndum til langframa“.
Þessi ummæli Þjóðviljans eiga
vissulega að gefa til kynna, að
forráðamenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafi framið meira en lítinn
óhæfuverknað í sölum Alþingis
í haust. En þjóðin getur ekki
látið sér nægja aðdróttanirnar
einar. Hún verður að fá gögnin
á borðið og það ekki sízt fra
þeim, sem fyrir aðdróttunum
hafa orðið.
,.Lamlr;íðalýðiirinn.46
Þjóðviljinn hefir ekki látið
sér nægja aðdróttanir eins og
þær, sem að framan eru greind-
ar, heldur hefir hann enn hert
sóknina og gerzt djarfyrtari
með hverjum degi, sem liðið
hefir, án þess að aðdróttunum
hans hafi verið mótmælt af
Sjálfstæðisflokknum. í aðalfor-
síðugrein blaðsins 2. þ. m. segir
m. a. á þessa leið:
„Og hver er tilgangur þess- i
ara þokkapilta, sem þarna
eru að verki, — afdankaðra
1"--—------------—--------«—>
HEILDSALARNIR
SIGRUÐU
Það mun nú ákveðið af við-
skiptoráði að gera lítilsháttar
lækkun á heildsöluálagnin?-
unni. Lækkun þessi nær þó ekki
nema til fárra vara og yfir-
leitt ekki þeirra, sem mestu
skipta fyrir aimenning, t. «1.
ekki vefnaðarvara. Lækkunin
er líka í flestum tilfellum mjög
lítilfjörleg. Mun þetta skýrast
betur fyrir almenningl, þegar
hún verður auglýst.
Þessi úrslit í viðskiptaráði
sýna það vel, að enn hafa heild-
salarnir haft betur í átökunum
innan stjórnarflokkanna. Þessi
lítilfjörlega lækkun er aðeins
gerð til að vera ofurlítil skraut-
| fjöður í hatti jafnaðarmanna
og kommúnista, en hcildsala-
gróðann skerðir hún ekki svo
neinu nemur.
Vegna þessa nndanhalds við
heiidsalanna, verður enn hald-
ið áfram á þeirri braut að
þvinga fram grunnkaupshækk-
anir til að mæta vaxandi
dýrtíð í stað þess að
skerða milliliðagróðann og
gera það é lýrara að lifa. Stjórn
fi og trúnaðarmannaráð Dags-
brúnar mun hafa ákveðið að
bera fram á næstunni kröfu um
nær einnar krónu kauphækkun
á klst. og kemur til verkfalls ZZ.
þ. m„ ef þeim fæst ekki fullnægt.
Hversu lengi ætla launþegar
og atvinnurekendur að þola það,
að þannig sé haldið áfram á
braut dýrtíðar og verðbólgn,
þeim og flestum öðrum til ó-
hags, á sama tima og ckkert að
ráði er hróflað við milliliða-
gróðanum, er mestum ófarnað-
inum veldur?
nazista-agrenta, sem ekki g-eta
v þjónað Hitler lengur af því
völd nazismans eru brotin?
Tilg-angurinn er auðsær:
Landráðalýðurinn við Vísi
og: Morgunblaðið, sem alltaf
hefir verið reiðubúinn til
þess að selja landið því stór-
veldi, sem hann f svipinn hef-
ir bezt treyst til þess að nfð-
ast á íslenzkri alþýðu, vill nú
friáisar heridur til að geta
svikið ísland f hendur Banda-
ríkjanna."
Og enn segir 1 þessari sömu
Þjóðviljagrein:
„fslendingar! Verið á verði!
Peningaskríll Reykjavíkur,
sem hyggst að selja landið
Bandarfkiunum, Iætur nú
leigusveina sína við máltól
sín, Morgunblaðið og Vísi,
undirbúa landráðin af fullum
krafti!
Ef þjóðin ekki tafarlaust
tekur í taumana, er nýfengnu
fretoi voru hætta búin.
Ljáið landráðalýðnum ekki
(Framhald á 8. siðu)