Tíminn - 22.01.1949, Blaðsíða 7
15. blaö
TÍMINN, laugardaginn 22. janúar 1949.
7
‘AUGLYSING
:
frá Áburðarsölu ríkisins
um áburð
Þeir, sem kaupa ætla tilbúinn áburð á þessu ári,
þurfa aö koma pöntunum sínum til skrifstofu vorrar
fvrir 20. febrúar næstkomandi.
Áburðartegundir, seni væntanlega fást, eru:
Ammoniaksaltpétur;
Kalkammonsaltpétur
Þrífosfat
Kalí 60%
Kalí brennisteinssúrt
Tröllamjöl
Verðlag áburðarins áætlast þannig:
33.5% köfnunarefni
20.5% köfnunarefni
45 % fosforsýra
::
Ammoniaksaltpétur 45 kgr. kr. 44.00 |
Kalkammonsaltpétur 50 . — — 31.50 I
Þrífosfat 50 — — 43.00 í
Kalí 60% 45 — — 26.00 ♦
Kalí brennisteinssúrt 45 — — 30.00 ♦
*
A
Áburðurinn verður seldur sömu aðilum og áður.
Allar áburðarpantanir séu greinilegar, ákveðnar og
miðist við brýna þörf hvers eins og séu komnar.til skrif-
stofu vorrar fyrir 20. febrúar næstkomandi.
Reykjavík 15. jan. 1949.
Áburðarsala ríkisins
Miimingarorð
(Framhald af 3. síBu)
henni átti að færa öll hús.
Var Gunnar þegar búinn að
undirbúa að byggja fjós s.l.
vor, búinn að draga aö all
mikið efni o. fl.
En nú bilaði heilsan í ann-
að sinn. í maímánuði s.l. fór
aö gæta þess lasleika, sem
dró hann til dauða. Þegar
Gunnar fann, aö heilsan var
að bila í annað sinn, brá
hann búi, seldi jörðina á
leigu, en seldi búið. Móti því
þunga sj úkdómsstríði, sem nú
beið Gunnars, gekk hann
með sömu karlmennsku sem
að öðru, er hann hafði geng-
ið að, lengi vel trúaður á sig-
ur í baráttunni, en þótt hann
biði ósigur í þeirri viðureign,
var hann þess albúinn.
Þótt Gunnar hafi átt við
mikla erfiðleika að etja í líf-
inu, var hann gæfumaður.
Hann var ásamt yngri syst-
kinum sínum, foreldrum sín-
um stoð og styrkur síðustu
árin í búskap þeirra. Hann
gat látið tvö strá vaxa, þar
sem áður óx eitt. Hann gat
hafiö varanlegar umbætur á
hinu nýja ábýli sínu. Hann
átti systkini, sem voru þess
reiðubúin að hjálpa honum
á hvern þann hátt, sem hann
þurfti með og þeim var fært.
Hann gat komið börnum sín-
um yfir örðugasta hjallann.
Hann átti konu, sem reynd-
ist honum bezt, þegar mest á
reyndi. Hann átti samhug
allra sveitunga sinna í lífs-
baráttu sinni og heilsuleysi.
Hann átti hugrekki og þrek
til þess að berjast við lang-
vinnan og erfiðan sjúkdóm.
Fáir af sveitungum þínum,
Gunnar, gátu fylgt þér til
moldar, en góöhugur allra
sveitunga þinna fylgir þér,
með þakklæti fyrir störf þín
og samfylgdina. Ég þakka
þér, Gunnar, fyrir langt og
gott nágrenni og góða við-
kynningu. Ég finn til þess,
hve lítið ég gat orðið þér að
liði, þegar þú þurftir þess
mest með, og ég þakka þér
þá einlægni og það traust,
sem þú sýndir mér. Guð fylgi
þér, Gunnar. Guð varðveiti
og styrki konu þína og börn.
17. jan. 1949.
Sverrir Gíslason.
Orðsending frá
Samvinnutryggingum
Á s. I. ári fengu um 1000 bifreiðar, sem
tryggðar eru hjá oss, lækkuð iðgjöld,
þar sem þær höfðu ekki orsakað neina
skaðabótaskyldu í eitt ár.
Lækkunin nam um 40.000 krónum
Þessi upphæð er ekki aðeins verðlaun til
þeirra bifreiðastjóra, sem ekki hafa valdið
neinu tjóni, heldur einnig ávöxtur af sam-
tökurry sem stuðlar að bættum hag fólksins
SAMVINNUTRYGGINGAR eru trygg-
ingarstofnurL, sem tryggjendurnir eiga
sjálfir og hafa stofnað með sér til jbess
að efla hag sinn og öryggi.
Samvinnutryggingar
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Ilcimili aldraðra
sjóinaima
(Framhald af 4. síðu).
uð lög, að undir þessum kring
umstæðum ætti þessi stétt að
mega ganga í valið. Með hlið-
sjón á því mun hafa verið tek
ið að leita menntaskólanum
að öðrum stað, eftir að ósk-
in um Laugarnes var komin
fram — frá stjórnarnefnd
hins umrædda sjómanna-
heimilis.
En vegna þess eru þessar
línur ritaöar, aö ég heyrði
reyndan og greindan sjó-
mann ekki alls fyrir löngu
ræða þetta mál. Viðhorf hans
var það, að heimili aldraðra
sjómanna væri ekki vel sett
inni í Laugarnesi. Slíku heim
ili ætti ekki fyrst og fremst
að velja sögufrægan stað.
Eigi heldur stað, sem hefði
fagran sjóndeildarhring og
víða sýn yfir sjó. Líf og yndi
aldraðra sj ómanna væri
fyrst og fremst skipin, síðan
höfnin og það líf, sem þar
hrærðist. Enda sæjust upp-
gjafasjómenn, meðan þeir á
annað borð hefðu ferlivist,
yfirleitt ekki annarsstaðar en
þar. Þar mætti ganga að
þeim vísum.
Þessi reyndi og greindi
miðaldra sjómaður taldi, að
umrsett frambúðarheimili
hinna öldruðu sjómanna ætti
að reisa hið næsta höfninni
og hvergi annarsstaðar.
Að vísu eru nú uppi ráða-
gerðir um það, að byggja
þurfi nýja höfn, viðbótar-
höfn við þá, sem fyrir er í
Reykjavík. Óefað kemur að
því. En veröur ekki æði langt
þangaö til að slík höfn er
komin í framkvæmd
Leiddu þær athuganir, sem
að sjálfsögðu eru nauðsynleg
ur undanfari slíkrar fram-
kvæmdar, til þess, að hinni
væntanlegu viðaukahöfn yröi
valinn staður milli Rauðar-
ár og Laugarness, mætti
segja, að það legöist á sveif
með Laugarnesi í þessu
skyni.
Hinsvegar þótti viðhorf sjó-
mannsins, sem vitnað hefir
verið í um þetta mál, það at-
hyglisvert, að rétt þótti að
skýra frá því. G. M.
Húteiiit TítnaHH
Á skozku svcita-
hciiuili
(Framhald af 3. slðu)
ur um landbúnað á laugar-
dagskvöldum í útvarpinu olck
ar“.
Niðurgreiðslur og
j arðr æktarstyrkur.
Niðurgreiðslur til neytenda
tíðkast í Englandi og Skot-
landi á vissum vörum svo sem
eggjum og jarðeplum. Bænd-
ur fá þar líka jarðræktar-
styrk, 10 pund fyrir hvern
hektara nýræktar til dæmis.
Skotar reyndúst mér gest-
risnir og viðmótsgóðir, og föð
urlandsvinir miklir. Þeir fara
ekki dúlt með, að þéir eru
Skotar. Að kalla Skota Eng-
lending gengur næst æru-
meiðingum. Einn bóndi sagði
við mig til dæmis:
„England fer stjúpmóður-
lega með okkur og hefir allt-
af gert. Viö fáum bava að
vera með, þegar styrjcld er.
Nei. Við ættum að hafa okkar
eigin stjórn í Edinborg. Það
væri eitthvað annað.“
Annars varð Skotland ekki
hart úti í stríöinu. Einum
tveimur sprengjum var varp-
að á Glasgow og einni á Ed-
inborg. En skozku konurnar
hlutu að gráta menn sína og
syni eins og kynsystur þeirra
í Englandi.
Svíar hafa ekki mjög margt
að læra af landbúnaði Skota.
En til að skilja hvorir aðra
og þroska okkur sjálfa og
KRON-félagar
Skilið kassakvittunum frá
árinu 1848, sem allra fyrst.
Handavinnunára-
skeið Handíða-
skólans
Línsaumur, saumur drengja
fata, útsaumur, handavinna
stúlkna á gagnfræö’askóla-
aldri, leðurvinna, hanzka-
saumur. Umsóknir sendist
skrifstofu skólans, Laugavegi
118, opin 11—12 árd., sími
80807.
tengja bönd milli þjóðanna er
það æskilegt aö ungir menn
fari milli landa til stunaar-
dvalar.