Tíminn - 23.02.1949, Page 2
2
TIMINN, miðvikudaginn 23. febrúar 1949
41. blað
'Jtá hafi til heiia
I dag
- er 4. dagur í Góu. Sólarupp-
koma kl. 7.57. Sólarlag kl. 17.26.
í nótt.
. Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, sími 1760. Næturakstur
annast Hreyfill, sími 6633. •
ÚtvarplB
I kvöld.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla. — 19.00
Þýzkukennsla. 19.25 Þingfréttir.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Kvöldvaka: a) Gils Guðmunds
son ritstjóri flytur erindi: Afskipti
Björnstjerne Björnson af íslands-
málum; — fyrra erindi. b) Frú
Rannveig Schmidt flytur ferðaþátt:
Frá Noregi. c) Séra Jakob Jónsson
segir austfirzka þjóðsögu: Sending_
kveðin niður. d) Upplestur:
„Rispa“, kvæði Tennysons (frú Eiín
Ingvarsdóttir les). Ennfremur tón-
leikar. 22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Passíusálmar. 22.15 Óskalög.
23.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Leith 18. þ. m.
til Reykjavíkur. Dettifoss er í
Reykjavík. Fjallfoss er í Halifax.
Goðafoss er á leið til Reykjavíkur.
Lagarfoss er í Reykjavík. Reykja-
foss fór frá Hull 20. þ. m. til
Reykjavíkur. Selfoss er á leiö til
Ántwerpen. Tröllafoss er á leið frá
Reykjavík til New York. Katla er
á leið frá Reykjavík til New York.
Ríkisskip.
. Esja fer væntanlega frá Reykja-
vík seint í kvöid austur um land
í hringferð. Hekla er í Álaborg.
Herðubreið er í Reykjavík. Skjald-
breið var væntanleg til Reykjavík-
úr 'í gærkvöldi að vestan og norðan.
Súðin er væntanlega í Genova, en
þaðan fer hún til Neapel. Þyrill er
væntanlega í Aarhus, en þaðan fer
hann til Rotterdam. Hermóður var
í gær á leið frá Skagasdtrönd til
Elliðaeyjar á Breiðafirði.
Krýsuvíkurvegur.
Krýsuvíkurvegurinn hefir að und
anförnú verið ágætur yfirferðar,
mest af honum alauður. Dálítil
ófærð hefir þó komið öðruhvoru
á smáköflum, einkanlega við Kleif
arvatn. Er jafnan ein jarðýta og
dráttarvagn þár syðra, ásamt tveim
mönnum, sem hjálpa að laga veg-
inn og annað er með þarf við svo
mikla umferð. Jáfnvel Ólafur Ket-
ilsson er farinn að aka eftir Krýsu
víkurveginum og hlé er á rógi um
veginn í dálkum Morgunblaðsins.
Enda líka almenn ánægja í Reykja
vík yfir að fá venjulega nóga mjólk,
þrátt fyrir mikla snjókomu og hina
verstu tíð, sem hefir verið undan-
farið.
Norðurferðir.
Ráðgert er að reyna að fara með
póst og farþega norður með áætlun
arbifreiðum póststjórnarinnar í
fyrramálið. Holtavörðuheiði er þó
talin ófær bifreiðum og niður að
Hvammi í Norðurárdal. Fyrir Hval
fjörð er slarkfært og vegir í Borg-
arfirðinum sæmilegir.
Síðast þegar póst- og farþegabif-
reiðarnar fóru norður lögðu þær
af stað frá Reykjavík á þriðju-
dagsmorgún en komu loks tii baka
s.l. sunnudagskvöld. Það tók 6 daga
að komast norður á Sauðárkrók
og til baka aftur hingað, þrátt fyr-
ir samvalda dugnaðarmenn, eins
og bílstjórarnir eru, sem stjórna
norðanbilunum.
Eru margir farnir að tala alvar-
íega um það, að þessir bifreiða-
flutningar um hávetur fyrir Hval-
fjörð og norður yfir heiðar sé
hin mesta fjarstcða og ráðleysi.
Tíu ára afmæli.
Námsflokkar Reykjavíkur halda
tiu ára afmæli sitt hátíðiegt i
Tjárnarcafé í kvöld.
Snæfellingafélagið.
Snæfellingafélagið ætlar að hafa
árshátíð sína að Hótel Borg n.k.
laugardagskvöld. Hefst það með
snæðingi kl. 5.30 síðdegis. Má bú-
ast við skemmtilegu kvöldi hjá því
„vonda fólki“, því Snæfellingar
margir eru skemmtilegir og frjáls-
lyndir menn, sem kunna að
skemmta sér.
!
Notum gömlu skóna.
Skósmiðafélag Reykjavíkur aug-
lýsir í blöðum þessa dagana og
hvetur fólk að koma með skó sína
til viðgerðar meðan minna er að
gera að vetrinum.
j Nú í skóeklunni nýtir fó!k skó
sína eins og unnt er, en á sumrin
er oft erfitt að fá gert við þá,
: ve:na annríkis skósmiðanna. Þessi
auglýsing frá Skósmiðafélaginu er
því athygiisverðari fyrir almenning
heldur en margir kunna að gera
i ráð fyrir. Betra er að nota vel út
gömlu skóna heldur en ganga skó-
laus. ef ekki fást nýir skór.
Vörujöfnun.
Þeir, sem áttu leið um Skóla-
vörðustíginn s.l. sunnudag tóku
eftir stórum mannsöfnuði allgn
daginn við Kron stöðvarnar þar
á stígnum. Ástæðan var sú, að
Kron var að afhenda vörujöfnun-
arseðla viðskiptamönnum félagsins,
en þeir seðlar gefa vonir í lítils-
háttar úrlausn síðar af ýmsum vör
um. sem skortur er á í verzlunum.
Nú auglýsir Kron strax að við-
skiptamenn geti fengið dálitla úr-
lausn af/ bollapörum út á seðla
s:na og mun það óspart notað.
En með þessari vönpöfnun fæst
nokkur trygging að vörurnar skipt
ist með meira réttlæti á milli við-
skiptamanna, heldur en viða vill
viðgangast, þar sem sumir fá máske
eins mikið og þeir þurfa en aðrir
ekki neitt..
Votheysturnar.
Dagur segir frá því að það muni
verða reistir votheysturnar a. m. k.
á 22 jörðum í Eyjafirði næsta sum-
ar.
Segir Dagur að sænskur kunn-
áttumaður frá verksmiðjunni, sem
framleiðir turnamótin komi til
landsins í vor og muni kenna í
Reykjavík me>"sið mótanna. Sam-
vinnubyggingarfélag Eyjafjarðar
hafi nú ráðið mann til að stjórna
uppsetningu mótanna og muni
hann ásamt 2—3 öðrum mönnum,
er við verkið vinna, læra hjá Sví-
1 anum. Turnamótin verða flutt bæ
! frá bæ og er líklegt að það taki
vikutíma að byggja hvern turn.
LEIKFÉLAG REYKJAVIKUR sýnir
VOLPONE
í kvöld kl. 8. — Miðasala í dag frá kl. 2. — Sími 3191. {:
3191. Börn fá ekki aögang.
GLATT A HJALLA
KVDLDSÝNING
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30.
Aðgöngumiða má panta í síma 2339 frá kl. 10—12.
Pantanir óskast sóttar kl. 2—4. — Dansað til kl. 1.
11
Meban við bíðum
Sjónleikur í þrem þáttum eftir
JOHAN BORGEN
Frumsýning í íðnó fimmtudaginn 24. febr. kl. 8.
Aðgöngumiðasalan opin kl. 4—7 í dag. Sími 3191.
MM.lf............MV««mmiinnm«n«mmmnmninimíniii mmimuimuimmiimmmjimummimj
Vörubílstjórafélagið |
Þróttur
Framhaldsaðalfundur verður haldinn í húsi félags- |
ins við Rauðarárstíg miðvikudaginn 23. þ. m. kl. 8,30 e.h. f
FlugferBir
Loftleiðir.
Hekla fór til Prestvíkur og Kaup
mannahafnar í gærmorgun með 25
farþega. Er væntanleg til baka um
kl. 6 e. h. í dag. Ráðgerð er flug-
ferð til New York um næstu helgi,
ef nægjanleg þátttaka fæst. Munu
10—15 menn vera búnir að panta
far. en tæplega farið með minna
en 25—30 farþega.
Flugfélag íslands.
Gullfaxi er í Reykjavík. Skýfaxi
og Glitfaxi fóru til Akureyrar í
gær fullfermdir farþegum báðar
leiðir.
ÁrnaB heilla
Hjónabönd.
:Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af sr. Pétri Sigurgeirssyni
ungfrú Aðalheiður Valdimarsdóttir
og. . Óskar Ósvaldsson prentari,
Akureyri.
Einnig voru nýlega gefin saman
í hiönaband ungfrú Ingibjörg Páls
dóttir (Árnasonar á Reykjum) og
Gísli Ágústsson rafvirki, Selfossi.
Ennfremur ungfrú Jakobína Jóns
dóttir frá Grænavatni og Trausti
Eyjólfsson frá Vestmannaeyjum.
Úr ýmsum áttum
Andlát.
Frú Fjóla Stefánsdóttir Fjeld-
sted er nýlátin hér í bænum. Var
hún þekkt hæfileikakona — gift
Dáníel Fjeldsted lækni.
nýkomnir, mismunandi tegundir og stferöir
úr íslenzkum efnum í miklu úrvali,
Sendum gegn póstkröfu,
Sími 6465
Dagskrá:
J. Venjuleg aðalfundarstörf.
2, Samningarnir.
3. Önnur mál.
STJORNIN.
Ríkisráðsmaðurinn ög
skattþegnarnir
Fyrir alþingi liggur frumvarp um
ráðsmann ríkisins, sem á að hafa
hemil á mannahaldi og eyðslu rík-
isstofnana og ganga fram í því að
sameina stofnanir og leggja þær
níður, sem óþarfar eru.
Trú manna á nytsemi þessa nýja
embættis er mjög misjöfn. Margir
óttast, að í þetta embætti verði
sett einhver pólitísk dula, sem síð-
an verði höfð að skálkaskjóli fyrir
áíramhaldándi eyðslu og ráðleysi,
og er þá verr farið en heima setð.
En nú nýlega heyrði ég tillögu,
sem ætti að geta gerbreytt viðhorf-
unum, ef að henni væri farið. Hér
á landi eiga að rísa upp samtök
skattþegna. Þeirra er brýn þörf
fyrir margar sakir, og eitt af verk-
efnum þeirra ætti að vera að skipa
menn í embætti ríkisráðsmanns-
ins. Þá væri tryggt, að í því sæti
maður, sem hefði sífellt hvöt til
þess að gæta sparnaðar, fletta ofan
af því, sem miður færi og krefjast
úrbóta. Við og við myndi svo slík-
ur maður verða að standa samtök-
um skattþegnanna reikningsskap
gerða sinna, og ef hann reyndist
lítils nýtur í starfi sínu, myndi
hann innan skamms verða að
hröklast úr því. Skattþegnarnir
sættu sig ekki við ónýtan eða
gagns'.ítinn mann í þessu embætti.
Mér virðist það einsætt, að
svona ætti að skipa þessum mál-
um þegar í upphafi, og má það
vera mælisnúra á það, hversu
þeim, sem með umboð almennings
fara á alþingi, er annt um að
koma á sparnaði, hvort breyting-
artillaga í þessa átt kemur fram
og nær samþykki.
Nú mun einhver segja, að sam-
tök skattþegnanna séu engin til.
En þá er því til að svara, að ríkis-
ráðsmannsembættið er ekki enn
stofnað, og ætti ekki að þurfa að
taka lengri tíma að stofna skatt-
þegnafélögin og koma bráðab’irgöa-
skipulagi á þau en koma þessu
nýja embætti á laggirnar. Ég er
viss um, að ekki mun standa á
skattþegnum landsins, ef þeir
finna, að alvarleg ósk um að koma
á sparnaði býr á bak við frumvarp-
ið um ríkisráðsmanninn.
J. II.
Auglýsingasími Tímans 81300