Tíminn - 22.03.1949, Qupperneq 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstj&ri:
Jón Helgason
Útgefandii
Framsólcnarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasimar:
81302 og 81303
AfgreiOslusími 2323.
Auglýsingastmi 81300
PrentsmiOjan Edda
33. árg.
Reykjavík, þriðjudaginn 22. marz 1949.
63. blað
Ráðh
errarnir
ko
mnir neim
h
P úr vesturförinni
Yiöíal við Eystein Jónsson meimtamála-
ráðherra
Ráðherrarnir þrír, Bjarni Benediktsson, Eysteinn Jónsson
og Emil Jónsson, komu heim úr Vesturheimsíör sinni í gær-
morgun, eftir sex daga dvöl vestra. Var för þessi farin, sem
kunnugt er, til þess að afla fullkominnar vitneskju um eðli
liins fyrirhugaða Atlantshafssáttmála og komst að raun um,
hvaða réltindi og skyldur myndu fylgja hugsanlegri aðild
íslendinga að honum, þar eð vitað var að þeim yrði boðin
þátttaka, eins og nú er líka komið á daginn.
Tíðindamaður frá Tíman-
um átti í gær tal við Eystein
Jónsson menntamálaráð-
herra, skömmu eftir að hann
kom til Reykjavíkur.
Skýrslur næstu daga.
— Á þessu stigi málsins get
ég sagt það eitt, mælti ráð-
herrann, að við gerðum marg-
víslegar fyrirspurnir til Ach-
esons, utanríkismálaráðherra
Bandaríkjanna, og ráðgjafa
hans og fengum greið svör af
þeirra hálfu. Mun þetta mál
áreiðanlega liggja ljósar fyr-
ir þingi og þjóð, þegar við höf
um skýrt frá þeirri vitneskju,
sem við öfluðum okkur. Að
þessu sinni get ég ekki skýrt
frá einstökum atriðum, en í
dag og í kvöld munum við
sitja fundi með ríkisstjórn-
inni og þingflokkunum.
Næstu daga verður þingi og
þjóð skýrt frá öllum máls-
atriðum, varðandi vesturför-
ina.
Hver þjóð ræður sínu
framlagi.
Ég vil nú aðeins vekja at-
hygli á einu atriði, sem raun-
ar kemur ótvírætt fram í
tveimur greinum samnings-
ins, er birtur hefir verið, sagði
ráðherrann ennfremur — því
atriðí, að hver þjóð um sig á
að ráða því sjálf, hvað hún
leggur að mörkum.
Eitt þúsund lestum af fiski
landað í Eyjum á einum
sólarhring
Verðinæti þessa aflamagns til litflutnings
ncmur um tveimur miljúnum króna
Síðastlíðinn laugardag og nóttina þar áður barst óhemju
mikill fiskafli á land í Vestmannaeyjum. Var það hvorki
meira né minna en um það bil eitt þúsund smálestir af fiski,
sem landað var í Eyjum á einum sólarhring. Mestur hlut-
inn af afla þessum kom frá botnvörpubátuhum, sem stunda
veiðar frá Eyjum, en margir þeirra eru aðkomubátar. Sann-
ast það nú sem fyrr að Vestmannaeyjar eru óumræðilega
þýðingarmikil miðstöð fyrir bátaútveginn, bæði fyrir báta,
sem þaðan eru gerðir út og auk þess gerir sú aðstaða, sem
aðkomubátar fá í Eyjum þeim mögulegt að notfæra sér hin
auðugu fiskimið, úti fyrir Suðurlandi.
Nú um alllangt skeið hefir
verið ágætur afli á öll veiðar-
færi hjá Vestmannaeyjum.
Einkum hefir aflinn verið mik
ill hjá þeim bátum er veiðar
stunda með botnvörpu. En
það eru bæði margir Eyjabát
ar og auk þeirra fjöldinn all-
ur af aðkomubátum, víðs veg
ar að af landinu, sem leggja
upp afla sinn í Eyjum og taka
þar vistir og aðrar nauðsynj-
ar.
Netabátar hafa aflað sæmi
lega nema um tíma að nokk-
Brotizt inn í yfir 40 sumar
hustaði viö Þingvallavatn
EYSTEINN JONSSON
menntamálaráðherra
Einn þilfarsbátur
aflar svipað og
sjö opnir
Prá fréttaritara Tímans
á Hellissandi.
í vetur hafa verið stirðar
gæftir frá Hellissandi, enda
ekki hægt að gera þaðan út
nema litla báta vegna hafn-
leysis, sem stendur fram-
gangi þorpsins fyrir þrifum.
Auk gæftarleysisins bætist
það við, að langsóttara hefir
verið á fiskimið í vetur en að
undanförnu og hafa litlu
opnu bátarnir þvi ekki get-
að stundað sjóinn, sem
skyldi.
Frá Hellissandi er gerður
út einn þilfarsbátur sextán
lestir að stærð. Þó að hann
sé ekki stærri, er það þó eft-
irtektarverð staðreynd, að
eins mikið hefir aflazt á þenn
an eina sextán lesta bát og
alla opnu bátanna til sam-
ans, en þir eru sjö gerðir út
frá Sandi.
Hellissandsbátar byggja
framtíðarvonir sínar á höfn-
inni í Rifi, sem byrjað var að
vinna við í fyrrahaust og telja
það höfuðnauðsyn fyrir fram-
tíð staðarins að því verki
verði lokið næsta sumar, svo
hægt sé að gera stóra vélbáta
út á hin auðugu fiskimið,
þarna úti fyrir nesinu.
ur afturkippur kom í veiði
þeirra, en ekki til frambúðar.
Afli línubáta er einnig góður
yfirleitt, en fáir af Eyjabát-
um stunda nú orðið línuveið-
arnar, efns og jafnan er þeg-
ar líða tekur fram undir vor-
ið.
Þó að»oft hafi borizt mikill
afli á land í Eyjum, það sem
af er þessum mánuði, en þann
tíma hafa gæftir verið stöð-
ueastar, það sem af er ver-
tíðinni, þá hefir samt aldrei
(Framhald á 8. síðu)
Spellvirkjarnir voru bónlr aO vera tín
<laga í sumarbóstaðahverííinum
Á sunnudaginn voru handsamaðir í Hagavík við Þingvalla-
vatn tveir spellvirkjar, sem brotizt höfðu inn í meira en
fjörutíu sumarbústaði við Þingvallavatn. Ilöfðu þeir farið
sér hvergi óðslega, því að þeir voru búnir að vcra þarna tíu
daga og lifðu konunglegu lífi á mat og drykk, scm þeir fundu
í bústöðunum. Tómstundir þær, sem þeim veiitust frá inn-
örotum og matseld, höfðu þeir notað til þess að smíða sleöa,
er þeir drógu siðan á þýfi suður með vatninu.
Helíkopterflugvélin
á leið til landsins
Björgunarflugvéhn, sem
Slysavarnarfélag íslands ætl-
ar að fá til reynslu í þrjá
mánuði, er á leið hingað tiL
lands með TröllafossL Með
vélinni koma tveir amerískir
menn, flugmaður og véla-
maður, og eiga þeir að kenna
íslendingum að stjórna
henni
Menn þeir, sem hér voru að
verki, eru báðir röskelga tvi-
tugir, Óskar Óskarsson, til
heimilis að Nesi á Seltjarn-
arnesi, og Gudmar Midjord,
Færeyingur. Þekkir lögreglan
í Reykjavík þá báða frá fornu
fari, en ekki hafa þeir þó fyrr
drýgt meiri háttar afbrot, svo
að kunnugt sé.
Álitnir eigendur sumarbú-
staða eða gestir.
Kumpána þessara varð
fyrst vart í Þingvallasveit eft
ir miðja síðustu viku og
fimmtudaginn 10. marz sáust
þeir við Leirvogsvatn í Mos-
fellssveit. En þeir komu
hvergi til bæja, heldur héldu
sig í sumarbústöðunum, og á-
leit fólk, sem sá þá, að þetta
væru eigendur einhverra af
sumarbústöðunum eða gisti-
vinir þeirra. Vakti það þvi
engar grunsemdir, þótt til
þeirra sæist frá Vatnskoti,
Þingvöllum og fleiri bæjum.
Kemst upp um spellvirkin.
Síðastliðinn fimmtudag
varð Thor Brand-Jensen, um
sjónarmaður á Þingvöllum,
þess var, að búið var að
brjóta upp skúr, sem er við
Þingvallaveginn uppi á barmi
Almannagjár. Tóku þá að
vakna grunsemdir, og á laug-
ardag fór umsjónarmaðurinn
út í sumarbústaðahverfið,
sem er næst Þingvöllum, og
sá, að víða hafði verið farið
inn í húsin. Sendi hann á
fund hreppstjórans, Guð-
bjarnar Einarssonar á Kára-
stöðum. Brá hann sér þegar
niður í Kárastaðanes og sá,
að þar hafði verið brotizt inn
í fjöldamarga sumarbústaði.
Símaði hann þá þegar til Páls
Hallgrímssonar, sýslumanns
á Selfossi.
Aðförin.
Páll Haligrímsson sýslu-
maður skýrði Tímanum svo
frá í símtali í gær:
— Ég lét þegar á sunnudags
morgun flokka manna fara
að leita spellvirkjanna. Fóru
þrír menn frá Selfossi yfir
Þingvallavatn. Þrír fóru úr
Þingvallasveit suður með
vatninu að vestan, og þrír úr
Grafningi norður með því. í
leitarfiokknum úr Grafningi
voru menn frá Króki og Vill-
ingaholti, og komu þeir fyrst-
ir að spellvirkjunum. Voru
þeir þá í sumarbústað Helga
Tómassonar læknis i Haga-
vík. Tóku þeir þá þegar hönd
um, og veittu þeir enga mót-
spyrnu, enda ekki undan-
komu auðið.
Spellvirki og þjófnaður.
Sumarbústaðir þeir, sem
þessir dánumenn heimsóttu,
voru yfir fjörutíu. Höfðu þeir
í tíu daga lifað á niðursoðn-
um mat, sem þeir stálu,
drukkið áfengi, er þeir fundu
og fluttu sig hægt og sígandi
suður með vatninu. Jafn-
framt stálu þeir ýmsu laus-
legu og höfðu með sér á sleða,
sem þeir höfðu smíðað. Með-
al þýfsins voru tveir rifflar,
sem þeir höfðu notað til inn-
anhússkotæf., þar sem þeir
voru síðast, og valdið miklum
skemmdum. Marga fleiri sum
arbústaði skemmdu þeir, en
fáa mjög mikið, að talið er,
þótt það sé ekki enn fullrann
sakað.
Fluttir á Litla-Hraun.
Mennirnir voru báðir flutt
ir að Litla-Hrauni, og eru þeir
þar nú báðir í vörzlu, þar til
málsrannsókn hefir fram far-
ið.
Sumarbústaðaeigendur bíða
með óþreyju að komast
austur.
Margir þeirra, sem sumar-
bústaði eiga við Þingvalla-
vatn, bíða þess með óþreyju,
að komast austur, svo að þeir
geti sannfært sig um, hvort
þeirra sumarbústaður hefir
hlotið heimsókn af hálfu þess
ara miður ánægjulegu ferða-
langa, og sjá, hvaða hervirki
þeir kunna að hafa unnið
þar.
BevintilWashington
1 Bevin utanríkisráðherra
Breta leggur af stað vestur
um haf til Washington með
Queen Mary á föstudaginn
kemur. Erindi hans er sem
kunnugt er að undirrita sátt-
, mála Atlantshafsbandalags-
i ins.