Tíminn - 05.05.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81304
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 5. maí 1949.
89. blað
nir ætle að fiefia stor-
a
I-
auðæfum Græniandsmiða
Æiln a?§ foyggja l»ai* mörg frystilssis í sisíiiar
©g telja sig jíeta kepjít við allaa* aðrar 1
fíjoðlr á fiskimörkiiðHm.
Samkvæmt upplýsingum sem birzt hafa í dönskum blöö-
um œtla Danir nú að gera gangskör að því að hagnýta hin
miklu fiskiauðævi Grænlandsmiða. Eru þeir nú sem óðast
að skapa sér aðstöðu þar í landi til að hagnýta aflann og
þyggja frystihús víðsvegar á vesturströndinni. Hafa Danir
lýst því yfir, að þeir geti fullnægt öllum þörfum Evrópu
fyrir fiskivörur, er hagnýting Grænlandsmiða er komin 1
fullan gang.
Mikill úhugi fyrir Græn-
lenzkum fiskimiðum.
Margar þjóðir heims ráð-
gera nú fiskveiðar við Græn-
land i stórum stíl, á. sumri
komanda. Fiskimergðin við
Grænland undanfarin ár hef-
ir verið svo ævintýraleg að
slíks þekkjast ekki dæmi
neins staðar annars staðar í
veröldinni. — Þorsktorfurnar
hafa verið svo stórar, að sögn
sjómannanna, að í sjónauka
hefir ekki sézt út yfir
þær i allar áttir. Hefir fisk-
urinn synt þannig upp við
yfirborðið með bakuggann
upp úr.
Færeyingar fiskuðu á hand
færi siðastliðið sumar við
Grændland. Sögðu þeir að
ekki hefði þurft annað en
innbyrða fiskinn, önglarnir
hefðu verið teknir strax við'
yfirborð sjávarins og aðal-
vinnan hefði verið að gera áð
Ráðningar á þýzku
verkafólki Iiafnar
Þær muiui gtú takn
alllangan tíma «»
©kki víst hvena?r
Iiægt verður að
senda skip eftir
félkinu.
Blaðið átti í gær tal við
Steingrím Steinþórsson bún-
aðarmálastjóra og spurði
hann, hvað liði ráðningu
þýzka verkafólksins til land-
búnaðarstarfa, en eins og
kunnugt er fóru tveir menn
utan í þeim erindum fyrir
nokkru. Steingrímur sagði, að.
ráðningar væru þegar hafn-
ar, en hins vegar mundu þær
taka alllangan tíma og ekki
væri enn hægt að segja um
það, hvenær tímabært væri
að senda skip út eftir fólk-
inu. Framboðið af kvenfólki
er lika fremur lítið enn sem
komið er, en meira af karl-
mönnum.
og salta fiskinn. Grænlend-
ingar hafa eins og kunnugt
er svo til engan viðbúnað til
að hagnýta sér þessi fiskauð-
ævi og verða því að láta aðrar
þjóðir um fiskveiðarnar. Tveir
danskir fiskileiðangrar voru
við Grænland síðastliðið sum-
ar og fengu slíkan uppgripa
afla, að Grænlandsveiðarnar
hafa nú vakið almennan á-
huga í Danmörku og raunar
í öllum þeim löndum, sem á-
huga hafa fyrir veiðum í
Norður-Atlanzhafi.
Danir standa bezt að vígi.
En að sjálfsögðu standa
Danir þó betur að vígi um hag
nýtingu hinna Grænlenzku
fiskimiða en nokkur önnur
þjóða, sakir aðstöðu þeirra og
yfirráða yfir landinu sjálfu.
Nú er ráðgerð stórfelld dönsk
útgerð viö Grænland, sem
kemst af stað á þessu sumri.
Norðmenn senda um 70
skip á Grænlándsmið. Norsk-
ur floti verður gerður út frá
Færeyingahöfn á Grænlandi
i sámvinnu við Dani. Mun
dönskum fiskimönnum þykja
öryggi í því aö njóta leiösagn-
ar norsku fiskimannanna,
sem eru taldir með þeim beztu
og hugrökkustu í heimi, auk
þess sem Norðmenn hafa
langa reynzlu af veiöum á
Grænlandsmiðum.
Hverja sjófæra fleytu í Fær
eyjum er ráðgert að senda til
tFramtiald á 1. siðu).
Hinír frægu amcrísku sigurvegarar í badminton, Friedmans-hjónin
töpuðu í badmintonkeppni í líaupmannahöfn á föstudaginn langa
f.vrir Önnu Lisu Thorndahl og Jehn Nyborg. Hér sjást bæði sigur-
vegaiar oj; hin sigruðu.
Fepnarfélag Reykjaví
hefir mörg verkefni á
prjónunum
Ætlai* að gera svæðið austati Lækjjargötu
fiíiiíli Hankastrætis og' Amtmaniisstígs að
skriiðgarði í siiinar.
Stjórn Fegrunarfélagsins hefir haldið reglulega fundi
síöan á aðalfundi félagsins s. 1. haust. Stórnin hefir nú að
mestu gengið frá undirbúningi vor- og sumarstarfsins. Verk
efnin, sem fyrst verður unnið að eru þessi:
Gullfaxi kominn úr
fyrsta áætlnnar-
fluginu til London
Gullfaxi, millilandaflugvél
Flugfélags íslands, kom heim
úr fyrstu áætlunarflugferð
sinni til Lontíon í fyrrakvöld.
Með flugvélinni út voru um
40 farþgear, þar á meðal
fréttamenn útvarps og blaða,
sem félagið bauð í þessa för
í tilefni þes.s, að þessi nýja
flugleið var opr.uð. Flugferð-
ir þessar verða einu sinni í
viku og kemur flugvélin við
í Prestvík í báðum leiðum.
Fer hún héðan til London á
þriðjudögum og heim aftur á
miðvikudögum. Þessi fyrsta
flugferð gekk mjög vel.
Stefán Þorvarösson sendi-
herra tók á móti flugvélinni
á flugvellinum og síðar bauð
hann gestum flugfélagsins til
heimilis síns. Örn Johnson
framkvæmdastjóri Flugfélags
ins fór einnig með í þessa
fyrstu ferð.
Stofnskrá Evrópu-
ráðsins undir-
rituð í dag
Algert samkomulag hefir
oröið á ráðstefnu hinna 10
Evrópuþjóða í London um
stofnskrá Evrópuráðsins og
lög þess. Mun stofnskráin
verða undirrituð í London
klukkan 16 í dag og jafnframt
verður hún birt. Frumdrög
þau að skránni, sem undir-
búningsnefndin hafði samið
og lagt fyrir ráðstefnuna var
samþykkt nær óbreytt.
Skrúðgarður við
Lækjargötu.
Ákveðið er að fá nú þegar
í sumar breytt svæðinu aust-
an Lækjargötu á milli Banka-
strætis og Antmannsstígs,
gera það að einum samfeldum
skrúðgarði. Ríki og bær hafa
fallist á að skipta kostnaðin-
um við lagfæringu og ræktun
lóðarinnar og rikið lofað að
lagfæra og mála byggingar
þess, sem standa meðfram
svæðinu, en Kron að loka
portinu og lagfæra svæðið
bak við verzlunarhús sitt.
Fegrunarfélagið hefir hins-
vegar ákveðið að leggja á sinn
kostnað til höggmyndina
Vatnsberann cftir Ásmund
Sveinsson. Er ætlunin, að
styttan standi á eða í nánd
við þann stað, á umræddu
svæði, þar sem áður var eitt
af síðustu vatnsbólum bæjar-
ins.
i
Breytingar á Tjörninni.
1 Ákveöið hefir verið að
æskja tillagna bæjarbúa um
breytingar á tjörninni um um
hverfi hennar á þá lund, að
hún verði til enn meiri prýði
en hún nú er og að almenn-
ingur fái betri skilyrði, en ver
ið hefir, til að njóta fegurðar
hennar. Þá heíir félagið á-
• kveðið að fá á tjörnina 6
svani og er von á þeim næstu
j daga.
I Félagið hefir samþykkt að
beita sér fyrir því að umliverfi
Leifsstyttunnar verið hreins-
að, lagíært og tyrft.
Fyrir atbeina félagsins hef-
ir Landakotstúnið verið opnað
og munu nú verða lagðir um
það gangstígar.
Einnig hefir félagið fengið
samþykki forseta Alþmgis fyr
því að hinn fagri Alþingis-
hússgarður verið nú i sumar
opinn fyrir almenning á viss-
um tímum dag hvern.
Komið fyrir lista-
verkum.
Félagsstjórnin hefir farið
þess á leit við Einar Jónsson,
myndhöggvara, að fá leyfi til
þess að láta gera eftirmyndir
í málm af „Útilegumanni“
hans, „Öldu aldanna“ eða
öðrum verkum í því augna-
miði að koma þeim fyrir á
almannafærl.
Barnasólbaðstaður.
Reykjavíkurbær hefir í ár
veitt 50,000 krónur til undir-
búnings að barnasólbaðstaö i
Fossvoginum og hefir íélag-
ið þegar eignast nokkurn
sjóð, sem verja á til þess að
prýða svæðið eða hlúa að
börnunum þar á annan hátt.
Ágóði af væntanlegum há-
tíðahöldum 18. ágúst i sumar
rennur, að nokkru leyti, einn-
ig i þann sjóð.
St j órn Fegrunarf élagsins
(Framhald á 8. siðu)
Hægt að fá leigu-
bifreiðar kl. 6,30
Bifreiðastöðin Hreyfill tek-
ur nú upp þá nýbreytni að
opna klukkan 6.30 að morgni,
en ekki kl. 8, eins og verið hef
ir. Á þessum tíma er tölu-
verð eftirspurn fyrir fólksbif-
reiðar, t. d. vegna ferðafólks,
sem er að komast í flugvélar,
langferðabíla eða Laxfoss. —
Hefir slíkt fólk oft átt í erfið
leikum með þetta undanfar-
in ár, þar sem ekki hefir verið
hægt að fá leigubíla svo
snemma morguns.
Lögin um afnám
ferðabannsins
samþykkt
Frumvarp þeirra Björns
Ólafssonar og Lárusar Jó-
hannessonar um afnám ferða
bannsins svonefnda hefir nú
verið samþykkt í efri deild og
þar með sem lög frá Alþingi.
Samkvæmt þessum lögum
þarf ekki lengur leyfi við-
skiptanefndar til þess að ferð
ast til útlanda. Nokkrar breyt
ingar voru þó gerð'ar á frum-
varpinu i þinginu.
Frumvarp til laga
um fjárhagsráð
Emil Jónsson viðskipta-
málaráðherra hefir lagt fram
, á Alþingi frumvarp að laga-
bálki um fjárhagsráð og und
irnefndir þess. Ér þar gert
ráð fyrir allmiklum breyting
um á ráðinu og meðal ann-
ars þeirn, að viðskiptanefndin
j verði lögð niður, en ráðið
jsjálft annist störf hennar..