Tíminn - 05.05.1949, Qupperneq 6
6
TÍMINN, fimmtudaginn 5. maí 1943.
89. blað
Iftjja Síc
FoxsetÉin frá
Harrow.
(The Foxes of Harrow).
Örlagaglettur
r Tilkomumikil amerísk stórmynd I
I byggð á samnefndri skáldsögu |
| eftir Frank Yerby, sem komið =
1 hefir út í isl. þýðingu.
(CZARDAS)
I Bráðskemmtileg ungversk kvik-
| mynd. — Aðalhlutverk:
Aðalhlutverk:
Rex Harrison
Maureen O’Hara
Victor McLaglen
I Bella Bordy \
|. Ladislaus Palóczi \
| Háskólakór Budapest syngur. i
Sýnd kl. 5 og 9.
cMifiiiuiiimiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiuiiiiiimiiiimiMiiiiui
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
iiiiiiiiiiiimu/mmimimmimi iiiimiiiiiiimmii.iimii
Or
Ráðskonan á
Grund
(tlnder falsk Flag)
STÓRMYNDIN
■ ÍADÍLET
Byggð á leikriti William Shakes- i
peare. — Leikstjóri Laurence |
Olivier. — Myndin hlaut þrenn i
Oscar verðlaun, sem bezta kvik §
mynd ársins 1948. i
Aðalhlutverk:
Laurence Olivier
Jean Simmons
Basil Sidney
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 1 e. h.
Simi 6444
■linniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiminiiiiiii
f Hamlet er fyrsta talmyndin, f
i sem sýnd er á íslandi með ís- \
f lenzkum texta. f
Sýnd kl. 5 og 9.
f Engin sýning kl. 5 og 7.
ÍHiiiiiiiiiliiiliiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiMiiíi
1 Hafaatfáariafbíc § S?cœjarífic
I 1 HAFNARFIRÐl |
Leyndaruiál =
Snjartans Leikfélag Hafnarfjarðar i
| Framúrskarandi góð amerísk [ sýnir revýuna
| mynd, listavel leikin og hríf- \ í
| andi efni. — Aðalhlutv. leika: [ Gullna leiðin
Claudette Colbert \ 1
| l í kvöld kl. 8.30.
Walter Pidgeon i =
June Allyson Sími 9184. \
| Sýnd kl. 7 og 9. — Sími 9249. i UPPSELT. 1
SIÐASTA SINN. * : =
•Mlllllllllllllllllllllllllllllllllllll*lfllllllllllllll|llllllllllll iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. síBu).
Banatilræði við Titó hafa heldur
ekki tekizt vel fyrir erindreka Kom
informs. Kominform hefir ekki
fjölmennt lið i landinu, en það er
djarft og vel skipulagt. Leynistarf-
semi þess er rekin með nýjum að-
ferðum til að gera lögreglunni sem
erfiðast fyrir.
Makedonía er þrætueplið.
Mest hafa þessir andstæðingar
Titós um sig í Makedómíu, en þar
hefir löngum verið góður jarðveg-
ur fyrir hvers konar ofbeldisstarf-
semi og ólög. En auk þess er það
Makedonía, sem valdið hefir ósam-
komulaginu milli Titós og Rússa.
Þetta ósamkomulag, sem Zdanov
gerði heiminum Ijóst, og reynt hef-
ir á þolrif allra kommúnistaflokka
í Evrópu, mótast af tveimur sam-
hliða línum. Önnur er öllum auðsæ
enjhin er ósýnileg, en ekki þýðing-
arminni fyrir því. Það er ekki Tító
einn, sem hér er hafður fyrir sök-
um. Kominform hefir harmað það,
að„Titó hafi tekizt að vekja hreyf-
ingu Trotzkyista í Albaníu, Búlg-
aríu og Ungverjalandi. Á fjallstíg-
um þeim í búlgörsku, júgóslavnesku
og grísku Makedoníu, sem ópium-
smyglarar fara nú, ganga líka full
trúar. Titós og Kominforms. Það,
að Kustöv o. fl. áberahdi búlgarskir
kommúnistar eru fallnir í ónáð, tal
ar líka sínu máli. Það, sem Rússum
þykir vera að Tító, er landfarssótt,
sem geysar víðsvegar um Balkan-
skaga, án þess að Rússar hafi fund
ið nokkuð öruggt meðal á móti.
Höfuðsök Títós.
Mörg bréf hafa verið samin
vegna deilu Titós og Moskvu-
manna. Skjöl og ávörp hafa verið
samin til varnar og sóknar. Það er
þó diægt að draga þetta allt saman
í eitt höfuðsakarefni.
Tító neitaði að við'urkenna,
að Kommúnistaflokkur Rússlands
hefði einkarétt til að skýra Marx
og sósíalismann. Afieiðingin af þess
ari uppreisn gegn hinum rússneska
páfadómi varð mótmæli Títós
gegn fyrirætlun Rússa um grísku
Makedoníu.
Borgarstyrjöldin í Grikklandi
fékk stuðning frá Rússum og öllum
Balkanþjóðunum. Rússar væntu
þess, að sjálfstæðishreyfing vakn-
aði í grísku Makedoníu og gæti
það orðið til þess, að vbnir Dimi-
trovs um ríkjasamband á Balkan-
skaga mættu rætast. Hann vildi
hafa Búlgariu, Júgóslavíu, Alban-
íu og sjálfstæða Makedoníu í því
sambandi og ætti þá Titó að gefa
llilllillllli
(ja?nta Síc
iiiiuiiiiii
i Draumaey|aii i
(HIGH BARBAREE) \
I Spennandi og tilkomumikil ame §
= rísk kvikmynd af skáldsögu \
\Charles. Nordhoffs. og .Jamesl
| Norman Halls.
Van Johnson f
| June Allyson
Thomas Mitchell
Marilyn Maxwell
| Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Illllllllllll
Ifripcli-ltíc
f RauSa rnerkið f
(The Scarlet Club)
\ Afar spennandi amerísk leyni- \
= lögreglumynd um leynilögreglu- I
= manninn Charlie Chan. =
= Aðalhlutverk:
Sidney Toler
Manda Moreland
| Ben Cater
= Sýnd kl. 5, 7 og 9.
| Bönnuð börnum ýngri en
f 16 ára.
SÍMI 1152.
Vardarhéraöið laust við Makedoníu
ríkið. Það vildi Titó ekki. Hann
studdi því Markos í því, að reyna
að láta Makedóníumálið ekki
blandast inn i baráttu hægri og
vinstri aflanna í Grikklandi.
Markos vildi ekki fyrir nokkurn
mun standa undir þeirri ásökun
íhaldsmanna í Grikklandi, að hann
hefði afhent öðrum ríkjum Make-
doníu, hvorki Júgóslavíu, Búlgaríu
né Rússlandi. En Rússar sáu í sam
bandi við Makedoníu hylla undir
tækifæri til að fá mótleik gegn inni
lokun Bandaríkjanna. Frá Make-
doníu var stutt leið til Saloniki og
Eyjahafs.
Markos er fallinn og eftirmenn
hans þjást hvorki af þjóðernisleg-
um ástríðum né Titósvillu. Þ'eir
hafa nú hertekið á ný vegina frá
Albaníu og fá fyrir það óþökk er-
indrekanna frá Moskvu. En Make-
doníuævintýrið i Vestur-Þrakíu
lánast ekki fyrr en Tító hefir verið
: rutt úr vegi.
j Bæði gríska stjórnin og amerísk-
I ir ráðunautar hennar hafa séð sam
bandið milli falls Markosar í aðal-
stöðvum grískra kommúnista og
deilu Titós við Kominform.
Fasteignasölu-
miðstöðin
Lækjargötu 10B. Sími 6530.
Annast sölu fastelgna,
sbipa, biíreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. i
umboðl Jóns Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h.f. Viðtaístimi alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tlma eftir samkomulagi.
Köld borð og
heitui* veizlumatur
sendur út um allan bæ.
SÍLD & FISKUR
ir í kringum munninn, þegar honum barst til eyrna gól
úlfanna, sem æddu fram og aftur inni í skógarleynunum.
Hinn tók af sér vettlingana, beit í þá og hlóð byssuna í
snatri.
Þessu næst tók hann hníf sinn og fló úlfinn, sem hann
hafði skotið. Að því búnu tók hann að hluta elginn sundur.
Úlfarnir ráfuðu nasandi í kriiigum rjóðrið. Kjötið, sem
þeir höfðu rifið í sig, hafði aðeins ært upp 1 þeim sult. Við
og. við sást glitta í rauðglóandi augu þeirra milli trjá-
stofnanna, og ýlfrtn, sem þeir ráku upp, færðust sífellt
nær og nær.
En maðurinn lét þetta ekki á sig fá. Hann var líka soltinn,
og heima átti hann lítil börn, sem kannske höfðu hrokkið
upp af óværum stefni til þess að biðja um maifc, Hann skar
kjötið af beinunum, og þegar hann hafð náð eins miklu og
hann gat framast borið, snaraði hann byrðinni á bak sér.
Þó var mikið eftir af kjöti. En því varð ekki bjargað frá
úlfunum. Þeir komu auðvitað æðandi jafnskjótt og hann
var horfinn af sviðinu. Hann hossaði byrðinni á baki sér.
Þetta voru að minnsta kosti eitt hundrað og sextíu pund,
og hann hafði hvorki bragöað þurrt né vott síðan eld-
snemma um morguninn. Hann gat verið hróðugur, ef hann
draslaði þessu heim. Hann var í þann veginn að slengja
skinninu af úlfinum um öxl sér, þegar geigvænleg hljóð
bárust honum til eyrna.
Langt í burtu heyrðust margrödduð ýlfur úlfa. Úlfarnir í
skóginum svöruðu.
Maðurinn þreif byssu sína og skaut á tvÖ glóandi augu,
sem störðu á hann úr kjarrinu. Hann gaf sér ekki tíma til
þess að hlaða byssuna aftur, heldur snaraði frá sér byrð-
inni og stökk inn í kjarrið. Þar var mikið úlfatraðk. En
hann sá hvergi úlfinn, sem hann hafði skotið á. Hann hafði
sýnilega komizt undan.
Þetta síðasta skot hræddi úlfana brott í svipinn. En sult-
urinn rak þá fljótlega til baka. Nú heyrðist í öðrum úlfa-
flokki, svo sem hálfan kílómetra í burtu. Tugur hungraðra
villidýra hljóp yfir hjarnið og stefndi beint á rjóðrið, þar
sem valurinn var. Eðlisávísunin sveik ekki þessa gráu varga.
Maðurinn handlék byssuna litla stund, en svo hélt hann
af stað út í kjarrið og stefndi nú heim á leið. Hann var allt
of þreyttur til þess, að hann treysti sér í nágvigi við stóran
flokk sársoltinna úlfa. Líf hans gat legið við, áð hann flýtti
sér brott. Væri hópurinn stór, segði reytan af elgnum lítið.
Skíðin sukku í lausamj öllina í skóginum, og byrðin vár
þyngri en manninn hafði grunað. En Lars Páisson var van-
ur því að einbeita kröftum sínum. Innan lítillar stundar
kom hann á slóð, er lá heim að Tröllafellsbyggðinni.
Þegar hann var kominn á slóðina, nam hann staðar og
hlustaði. En í næstu andrá stakk hann skíðastöfunum fást
niður og brunaði af stað. Ýlfrandi og gólandi úlfarnir höfðu
veitt honum eftirför....
★
í nyrsta bjálkakofanum í Tröilafellsbyggðinni sat kona
um þrítugt við hlóðir. Hún var mögur i andliti, og í brúnum
augunum brann einkennileg glóð, sem virtist magnast, í
hvert skipti sem hljóð heyröist úr stóra rúminu, þar sem börn
in sex lágu í hnipri.
Það var skuggsýnt inni í kofanum — ekki önnur birta
en bjarminn frá daufum glæðunum í hlóðunum og tungl-
skinsglætan, sem þrengdi sér inn um einn lítinn glugga.
Við og við gekk kona að gluggakytrunni, andaði á héluna,
unz ofurlítið auga myndaðist, og skyggndist þar út. Hún
varð þeim mun þreytulegri og daprari sem hún stéig þessi
spor oftar.
Allt í einu fór eitt barnanna að gráta. Þaö var minnsti
drengurinn, og konan tók hann upp, setti hann á hnén
hlóðirnar og dró fram annað brjóstið. Litli anginn saug svo
ákaft, að konuna sárverkjaði.
Það var engin mjólk í brjóstunum — ekki dropi. Og barn-
ið hætti að sjúga. Fyrst fór ofurlítill titringur um munninn
á litla krílinu, og í næstu andrá k-vað við sár grátur. Konan
reri fram í grátið og sussaði. En barnið lét ekki huggast
Þjáningarsvip móðurinnar varð ekki með orðum lýst.
Það var ekki annað en blekking að leggja barnið á brjóst.
Það var heill mánuður síðan dropi af mjólk hafði myndazt