Tíminn - 07.05.1949, Page 2
2
TÍMINN, laugardaginn 7. maí 1949.
97. blaffi
í nótt.
Næturlæknir er í læknaverðstof-
unni i Austurbæjarskólanum, sími
50,30, Næturvörður er í Ingólfs
auóteki, sími 1330. Næturakstur
annast Litla bilastöðin, sími 1380.
Utvarpið
í kvöld:
19.30 Tónleikar: Samsöngur (plöt
ur). — 20.00 Fréttir. — 20.30 Leik-
þáttur: „Útvarp og andatrú" eftir
Örnólf úr Vik. (Leikstjóri: Brynj-
ólfur Jóhannesson). — 20.55 Ljóð-
skálclakvöld: Upplestur og tónleik-
ar. -r- 22.00 Fréttir og veðurfregnir.
— 22.05 Dansl'g til 24.00.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Esja fer frá Reykjavík um há-
degi í dag vestur um land í hring-
ferð. Hekla er á Austfjörðum á
norðurleið. Herðubreið fór frá
Reykjavík um hádegi í gær til
Breiðafjaroar og Vestfjarða. Skjald
breið var á Húnaflóa í gær á norð-
urleið. Þ'yrill er 1 Rvík. Oddur átti
að fara frá Reykjavík síðdegis í
gær til Hornafjarðar.
Laxfoss
fer til Akraness og Borgarness á
morgun kl. 1 e. h. Til baka á suö-
urleið frá Akranesi kl. 7 síðd.
Einarsson & Zoega.
Foldin er í Hull. Spaarnestroom
Var væntanlegur til Amsterdam í
gær. Lingestroom er í Færeyjum,
væntanlegur til Reykjavíkur eftir
helgina.
Flugferbir
Loftleiffir.
Geysir fór til New York í gær-
kvöldi. Hekla fer til London á
morgun og kemur þaðan til baka
aftur strax um hæl.
í gær var flogið til Akureyrar,
ísafjarðar, Hólmavíkur og þrisvar
til Vestmannaeyja.
það er stór hluti af þeim áburði,
sem íluttur er inn.
Búast má við, að eitthvað af
hinum seinvirkari áburðartegund-
um, svo sem knlí o. f 1., verði tæp-
lega notaö í vor, vegna harðind-
anna, sem eng'inn veit enn, hve-
nær linna muni.
Brosleg barátta..
Aðalmálgögn auðvaldssinna og
kommúnista eru stöðugt í háa
rifrildi um þátttöku fólks í úti-
fundum á götum borgarinnur 1.
maí.
Birta þau á víxl myndir til að
„sanna“ mál sitt. Þegar Mbl. birt-
ir myndir af „kommunum", sézt
lítiö annað en auðar g‘tur og þeg;ar
Þjóðviljinh birtir myndir af sam-
komu þeirri, sem þeim er ógeö-
þekkari, sjást fáeinar hræður á
stangli umhverfis Lækjartorg!
Líklega gætu öll blöö birt mynd-
ir af fólksstrjálingi á rangli á
Reykjavíkurgötum, en heldur
myndu þær „sanna“ lítið um á-
gæti baráttu manna fyrir góðum
málefnum.
Grágrýti — Blásrvti
Miklar umræður höfðu orðið í
bæjarstjórn Reykjavikur í fyrra-
dag, hvort ekki væri betra að nota
blágrýti í götur bæjarins heldur
en grágrýti, eins og gert hefir ver-
ið. Höfðu menn mjög hneigzt áð
því, að blágrýtið væri betra.
Svona lcemur oft up)) úr kaíinu
einhverntíma síðar, að þaö, sem
Framsóknarménn hafa lialdið
fram, er bezt.
Eins og ýmsa rekur minni til.
vo:u margar rækilegar greinar birt
p" ”iri beita pfni f Tímanum fv-
ir mörgum árum og þar eindregiö
haldið fram blágrýtinu. En þetta
fékk auðvitað engan jarðveg þá
hjá þeim, er réðu bæjarmálunum.
„Drottning“.
Meðal þeirra áberandi frétta,
scm Morgunblaðið hefir flutt und-
anfarið, er frásögn hvað eftir ann-
að af því, að unglingsstúlka, dótt-
ir Ágústu og Thor Thors, hafi ver-
ið valin „drottning" á samkomu í
Virginiafylki vestra. Ekki nefnir
blaðið, vegna hverra verðleika
þessi heiður veitist unglingsstúlk-
unni og landi henna.r En senni-
lega er hún fríð sýnum eins og
íoreldrar hennar og líklegt, að þar
séu orsakirnar, er valda hinni
miklu gleöi hér úti á íslandi.
Húseignir til sölu.
Með meira móti ber á í aöal-
kaupmangarablaði bæjarins, að
húseignir séu til sölu þessa dag-
ana.
Munu ýmsar orsakir til þessa.
Oft þykir húsamarkaður einna
beztur rétt fyriv 14. maí eða 1.
október, þvi á þeim tímum þurfa
menn sérstaklega að sjá sér fyrir
húsnæði.
Ein orsökin til meira framboðs
á húsum mun vera sú, aö heldur
er aö þrengjast um peninga hjá
fólki og þörf vaxandi hjá ýmsum
fyrir lausafé. Og loks er það, að
þótt fæstir telji peninga trygga
eign, eftir því sem nú er allt í
pottinn búiö hér á landi, þá gera
rnenn ráð ‘fyrir, að í íramtíoinni
verði þó erfiðara að sélja hús, sem
nú eru yfiileitt teygö langt upp
fyiir allt sannvirði — einkum í
Pevkiavík.
Tvennskonar ávinningur
Flugfélag íslands.
Gullfaxi fór í morgun til Kaup-
mannahafnar með um 20 farþega.
Væntanlegur til baka á morgun. í
gær var flogið til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Kirkju-
bæjarklausturs og Hornafjarðar.
Úr ýmsum áttum
Vegirnir.
Af vegunum cr allt svipað aö
frétta og áður.
Á Hellisheiði hefir komið hik á
snjómoksturinn, vegna skafrenn-
ings og harðfennis.
Allir flutningar að austan fara
eftir Krýsuvíkurveginum og er
hann nú að verða sæmilegur aftur.
Hefir undanfarið verið gert við
verstu kaflana. Er hlé þessa dag-
ana á niði hjá ívari í Mbl. um
þennan margumrædda veg, sem
bjargaö hefir Reykvíkingum frá
mjólkurleysi mikinn hluta vetrar-
ins og gerir enn.
Norður.
Bifreiðar póststjórnarinnar fóru
norður. í fyrradag með póst og far-
þega. Ekki er þó akfært nema upp
í Norðurárdalinn. Búið er að moka
af veginum upp að Fornahvammi.
en skóf aftur í brautina. Farartæki
með pósti og farþegum var dregið
yfir Holtavörðuhciði og annar far-
ángur og farþegar komu að norð-
an frá Blönduósi í fyrradag og
suður í Fornahvamm, og svo hing
að suður í gær.
Áburður.
Áburðurinn til notkunar í vor
mun nú vera kominn til landsins.
En vegna mjög örðugra flutninga-
skilyrða liggur nær allur áburð-
úrinn enn í Reykjavík, sem fara á
tjl Suðurlandsundirlendisins. En
Þessi dagana lieyrist oft talað
um á förnum vegi liina nýju hækk-
un ú tóbaki og áfengi, sem í gildi
er að ganga. Er stjórninni bölvað
sárt fyrir ao vera að liækka þess-
ar „nauðsynjar" fólksins!
Sá, er þessar línur ritar, hefir
ekki fengið orð fyrir aö vera neitt
sérstaklega hrifinn af sköpun eða
lifi núverandi landsstjórnar.
En þarna held ég að hún hafi
gert rétt.
Bæöi er sjálfsagt að hafa tóbak
og áfengi drjúgar tekjulindir, úr
þvi leyiöur er ótakmarkaður inn-
flutningur og saia á þessum eit-
urvörum, og einnig er hátt verð
heldur vörn fyiir notkun þeirra.
Að minnsta kosti er betra að fá
upphæðina í ríkissjóðinn af sem
minnstu magni, þess minni skaða
gerir notkunin meðal landsmanna.
Ríkið hefir trassað fram að
þessu að hafa eins mikið upp úr
áfengissölunni og þaö hefði getað,
án þess aö útbreiða það meira
heldur en gert hefir verið. Það er
vitaö mál, að fjöldi manna, eink-
um í Reykjavík og reyndar víða
annársstaðar líka, hafa orðið stór-
ríkir á óleyfilegri áfengissölu.
Aðaltækifærin hjá þessum mönn
um hafa verið í Reykjavík á kvöld-
in, eftir lokun Áfengisverzlunar.
Heíir þarna mjög oft farið fram
fjörug okursala, cr gert hefir
marga menn að auðkýfingum á
fáum árum.
Til þess aö fyrirbyggja þetta að
mestu leyti og velta ágóða áfengis-
sölunnar inn í ríkissjóðinn, hefir
veriö og er eitt einfalt og ónotað
ráð, og þaö er. að Áfengisverzlun
ríklsins hafi opna áfengisbúð að
kvöldinu og fram á nótt — og jafn
vel á sunnudögum.
Selji hún þar svo hverja áfengis-
flösku 15—20 krónum tíýrari eítir
venjulegan sölubúðatíma.
Líklega yki þetta ekkert áfeng-
isnotkun, en útrýmdi hinum ógeðs
lega áfengis-svartamarkaði, því
eins og er, geta allir fengið keypt
áfengi eins og þeir vilja fram á
nætur.
Dragi hátt verð úr notkun tó-
baks og áfengis, gerir þaö þarft
verk.
Flestir vita eitthvað unr skað-
semi þessara vara á lireysti og vel-
ferð líkamans. Og óþrifnaður er
hinn mesti að þeim, einkum tóbak-
inu. Tóbaksreykingar í húsum inni,
þegar margir bræla, eru lítt þol-
andi fyrir þá, sem ekki eru orðnir
eitraðir. Svo er askan endemis ó-
þrifnaöur um allt, fyrir utan eld-
inn, er fylgir reykingunum og oft
veldur stórkostlegu tjóni.
Það er einkennilegt, hvað lítið er
yfirleitt gert til þess að vinna á
móti hinni ógeöslegu tóbaksnotk-
un, sem verst er þó í þeim and-
styggilegu sígarettureykingum. —
Jafnvel ýmsir kennaranna i skól-
unum bræla framan í nemendurna.
Og aumingja börnin og unglingarn-
ir halda, að „hvað höfðingjarnir
hafast að, hinum ætla sér leyfist
það“. Þó aö ekki sé álitlegt að
ganga í æfilangan þrældóm ein-
hverra eiturnautna, þá sýna verk-
in merkin, hve margir láta tælast
og ganga í þrældóminn á æsku-
skeiði.
Sýnist þó heldur. lítið lokkandi
við að sjúga þennan óþrifnað inn
í vit sín.
Notkun tóbaks og áfengis getur
treplega nokkurntíma annað en
valdið peningaeyðslu, óþrifnaði og
helísutjóni.
Vel sé þeim, sem vinna á móti
notkun þessara eiturvara — þó að
það sé máske óvart eða af annar-
legri ástæðum. V. Cr.
S.K.T.
Eldri dansarnir í G. T.-hiMnin
í kvöid kl. 9. — Húsinu lokað kl
10.30.
Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦.♦♦.♦«♦♦♦»♦♦♦-
S.G.T. félagsvist og dans
í:
H
♦ ♦
♦ ♦
g
H
H að Röðli í kvöld. SpilaÖ frá kl. 8,30 til 10.30
♦♦
H A
:: til kl. 2. Aðgöngumiðar frá kl. 8
S
2
S
8
2
Dans H
1
♦»♦»»♦»♦♦♦• ...Tj
-o-
U. M. F. R.
U. iM. F. R.
:
BARNASKEMMTUN
verður í Skátaheimilinu, í dag kl. 1,30 e.h. £
Mörg skemmtiatriði:
o Aðgöngumiðar kosta 5 kr. og verða seldir við i'nng.
Ungmennafélag Reykjavíkur.
Barnaskemmtun
í G. T.-húsinu í dag kl. 5 e. h.
Skemmtiatriöi:
1. Álfkonan í Selhamri. Leikrit í 2 þáttum eftir
Sig Björgúlfsson.
2. Söngur með guitar undirleik.
3. Kórsöngur.
4. Skrautsýning, guitarsóió o. fl.
Skemmtun verður endurtekin fyrir fullorðna með
nokkuð breyttri dagskrá á morgun kl. 5
Aögöngumiðar seldi í G. T,- húsinu í dag kl. 2
—6 og á morgun kl. 10—5.
Skemmtunin veröur ekki endurtekin oftar.
Ung.templararáð.
::
.. DANSLEIK
♦♦
♦#
|| heldur Félag frjálsl.vndra stúdenta í Breiðfirðingabúð
♦♦
♦♦
:: laugardaginn 7. maí kl. 9 e. h.
♦♦
♦ ♦
|| Aðgöngumiðar seldir á staönum kl. 6—7 e. h.
an»::::n:::::::K:»::::«:«::::::::K::t::::::::«::::::«sa::::«Ks:«:KS»:n«»::;
| Skrifstofa I
I Ríkisspítalanna
1 er flutt úr Fiskifélagsliúsinu í Ingólfsstræti 5. |
UHIIIDllllllllilllH
k«ks«:«:k::k:::k:::::«:::::::::::::k:::::::k:::::«::k««««kkk::::::::kkk:
« s
p -I
| Ljósmyndastofa Asis |
II :l
K er flutt úr Bankastræti 2 í Austurstræti 5. (Búnaðar- «
H bankahúsinu) H
« «
« H
Ljósmyndastofan ASÍS
n s
»♦♦♦»»»♦♦♦♦♦♦♦♦♦*>*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦‘♦•♦♦♦t*'*?
♦ »♦♦>♦'►♦»♦♦ »♦»»♦♦-#♦♦♦♦»♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦fr#* »♦«♦«♦*♦»♦»♦»»»>♦♦♦♦♦♦♦>♦»♦«*♦'*♦♦»»♦ »»»♦♦♦♦>»♦>♦♦•♦♦♦