Tíminn - 15.07.1949, Side 4
TÍMINN, föstudaginn 15. jiílí 1949
147. blaff
Afstaða stjórnarflokkanna
til kommúnista
í öllum löndum vestan j árn-
tjaldsins er gengi kommún-
ísta á hraðri niöurleið. Við ný-
afstaðnar kosningar í Belgíu
hafa þeir tapað helmingi
þeirra þingsæta, er þeir áður
höfðu. Þetta er vel skiljanlegt.
Lýðræðissinnaðir menn sjá æ
betur, að stefna kommúnista
i öllum löndum er í því fólgin
aö þjóna skilyrðislaust og í
fulikominni blindni heimsyf-
irráðastefnu valdhafanna í
Moskva, lúta þeirra vilja í
óllu, þó að það komi í bága
við hagsmuni og velferð þeirra
eigin þjóða. Þjónar Stalins
hér á landi eru ekki eftirbát-
ar annarra samherja sinna
um þrotlausa hlýðni og þræls-
iega undirgefni gagnvart fyr-
lrskipunum frá Moskva. Það
sýhir m. a. hamslaus barátta
þeirra gegn þátttöku íslend-
mga í Atlantshafsbandalag-
ínu og aðstoð þeirri til þraut-
pindra þjóða, sem kennd er
við Marshall.
★
F'orvígismenn Sjálfstæðisfl.
.ganga þess ekki duldir, að yf-
irgnæfandi meiri hluti ís-
ienzkuþjóðarinnar er með öllu
andvígur hinni óþjóðhollu
stefnu kommúnista og bar-
áttuaðferðum . þeirra. Þess
vegna leggja þeir nú mikla
áherzlu á að láta líta svo út,
að þeir séu sjálfkjörnir til að
berjast gegn kommúnista-
flokknum hér á landi og
kyeða hann niður. Þess vegna
er Morgunblaðið dagsdaglega
látið flytja háværar og stór-
yrtar skammagreinar um
kommúnista, sem ætlazt er til
að sýni baráttuhug Sjálfstæð-
isflokksins til þessara þjóna
Stalins. „Sendið mig í málma-
gný móti þessum fjanda“, er
undirtónninn í . skamma-
greinum aðalmálgagns Sjálf-
stæðisflokksins um kommún-
ista.
Andstæðingar kommúnista,
hvar í flokki sem eru, harma
l)að að vísu ekki, að Mbl. segi
kommiinistum rækilega til
syndanna í dálkum sínurn.
Það er út af fýrir sig góðra
gjaldavert. Þó er enn þyngra á
metunum, að Mbl. og Sjálf-
stæðismenn yfirleitt sýni and-
úð sína gegn kommúnistum í
verki, en ekki aðeins í orðum,
en á þetta hefir mjög skort á
undanförnum árum og gerir
enn. — Skal þetta nú rök-
stutt hér á eftir.
•k
Þann 20. febr. 1942 farast
Mbl. svo orð um kommúnista:
„Kouimúnistum er það Ijóst
ekki siður en öðrum, að því
meir'i sem dýrtíð verður í land
inu, því erfiðara verður
■björgunarstarfið, og ef ekkert
er J aðgert, er allsherjarhrun
óumflýjanlegt. En það er
' einmitt það, sem lcommúníst-
ar sœkjast eftir, því að þá er
von til þess, að jarðvegur fá-
ist' fyrir undirróðurs- og bylt-
ingastarf þeirra.“
Þessi ujnmæli Mbl. er ótví-
ræður vitnisburður um það,
að leiðtogar Sjálfstæðisflokks
ins vissu í ársbyrjun 1942, að
tilgangur kommúnista var að
koma á allsherjarhruni hér á
iandi. Forvígismenn Alþýðu-
flokksins sáu þetta einnig.
Um þessar mundir gaf Mbl.
kommúnistum þann vitnis-
Kiísílóriaaargi^eiia átr Bs;gl
burð, að þeir væru „ger-
sneyddir allri ábyrgðartilfinn-
ingu og ættu engan tilveru-
rétt.“
í þingræðu 1942 lýsti Ólaf-
ur Thors hinu ægilega á-
standi, er vaxandi dýrtíð
myndi skapa. Að því loknu
sagði hann-
„En kommúnistar vilja
þetta. Þeir skilja það hvað i
vændum er, ef þjóðin œðir á-
fram í gullleit og gróðavimu
á feigðarbraut vaxandi dýr-
tíðar. Þeir sjá hrunið, sem þá
bíður íslendinga, verðleysi
peninganna, afnám eignar-
réttar, upplausn sjálfs þjóð-
skipulagsins.“
Um sömu mundir kallar Ól-
afur Thors kommúnista
„þjóna erlends kúgunar-
valds,“ sem hafi „löngun til
að láta illt af sér leiða,“ og
séu ekki svaraverðir.
Af slíkum hreystiyrðum úr
herbúðum Sjálfstæðisflokks-
ins um skaðsemi kommúnista
er nægur forði, þó að hér verði
ekki fleira tilgreint. En öll
reyndust stóryrðin aðeins
„orð, orð innantóm“. Verkin
gengu í þveröfuga átt við
orðagjálfrið. Leiðtogar Sjálf-
stæðisflokksins tóku ásamt
Alþýðuf lokksf oringj unum
höndum saman við kommún-
ista um að leiða yfir þjóðina
bölvun dýrtíðarinnar, sem
Ólafur Thors og Mbl. höfðú
verið svo margmál um áður.
Samstarf Sjálfstæðisflokks-
ins og Alþýðuflokksins við
kommúnista endaði með
skelfingu eins og kunnugt er.
Erlendi gjaldeyririnn var
þrotinn, ríkissjóðurinn févana
og aðalatvinnuvegirnir reknir
með tapi. Sjálfstæðisflokkur-
in ber aðalábyrgðina á þessu
ástandi. Hann vildi óðfús
hníga í faðm hinna rauðu til
stjórnarmyndunar, að því er
Gísli Sveinsson hefir frá
skýrt. Hann hjálpaði kom-
múnistum til aukinna áhrifa
í verkalýðsfélögum og Al-
þýðusambandinu og hlóð
þannig undir þá á ýmsan hátt.
Það er því Sjálfstæðisflokk-
urinn, sem urn árabil ól kom-
múnistasnákinn við brj óst sér
og efldi hann til áhrifa í því
augnamiði að láta hann lyfta
sér til æðstu valda til hag-
sældar auðkóngum og brask-
aralýð höfuðstaðarins, en til
niöurdreps fyrir framleiðsl-
j una og atvinnulífið í landinu.
| Þenna sannleika mega kjós-
( endur ekki láta sér úr minni
ilíða þegar- kemur að næstu
kosningum.
Sjálfstæðismenn áfellast
kommúnista harðlega fyrir
ofbeldistilraunina gegn Al-
þingi, þegar samþykkt var
þátttaka íslands í Atlants-
hafsbandalaginu. Þetta at-
hæfi kommúnista fordæma
allir réttsýnir menn. Þó hafa
kommúnistar eina afsökun,
þó að þeir muni ekki hafa
brugðið henni fyrir sig. Þeir
höfðu fyrirmynd frá Sjálf-
stæðisflokknum. Sú fyrir-
mynd fólst í skrílvikunni
1931, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn efndi til, og var svo æðis-
kennd, að óttast var um lif
nolckurra fyrirliða Framsókn-
arflokksins í Reykjavílc. Þjóð-
in fordæmdi aðfarir Sjálf-
stæðisfiokksins 1531, og hún
fordæmir skrilslæti kcmmún-
ista 1949.
*
Þegar litið er á afstöðu nú-
verandi stjórnarflokka til
kommúnista á undanförnum.
árum, kemur það í ljós, að
annan sprettinn hafa S.jálf-
stæðismenn legið í illdeilum
við þá, en hinn sprettinn í
; innilegum, pölitískum faðm-
1 lögum. Alþýöuílokkurinn hef-
j ir tekið þátt í hvoru.tveggja.
Nú stendur yfir illindatímabil.
En sagan getur endurtekið
sig. Mbl. hefir áður ausið
kommúnista skömmum og
svívirðingum, stimplað þá
leiguþræla erlendrar kúgun-
ar og skaðræðisgript á inn-
lendum vettvangi, alveg eins
og nú ,og síðan í skyndi sætzt
við þá fullum sáttum. Svo var
það 1942, þegar Sjálfstæðis-
menn settust að völdum í
skjóli kommúnista og Alþýðu-
flokksins, og þó einkum 1944,
þegar tveir af núverandi
stjórnarflokkum gengu í flat-
sængina með kommúnistum.
Að*vísu losnaði þá fjórði hluti
Sjálfstæðisflokksins í bili úr
tengslum við hann af þess-
um sökum, svo ofbauð honum
„kollsteypan“. Og' hver getur
treyst því, að ný „kollsteypa"
! verði ekki aftur gerö, þrátt
'jfýrir allar yfirlýsingar Sjálf-
j. stæðisfloklcsins og Alþýðufl.
1 um það, að Sósíalistafl. sé
ekki samstarfshæfur lengur?
! Framsóknarflokkurinn einn
hefir aldrei bundizt kommún-
istum til stjórnarsamvinnu. í
það eina skipti, er það kom
t til tals, sneru Framsóknar-
(menn frá þeirri samstarfstil-
raun með viðbjóði og lýstu
1 yfir því, að enginn ábyrgur,
frjálslyndur lýðræðisflokkur
gæti bundið bagga með þeim.
Það er því hámark ósvífn-
innar, þegar blöð Sjálfstæöis-
flokksins eru við og við að
ympra á því, að þjóðinni stafi
hætta af löngun Framsókn-
armanna til stjórnarsam-
starfs með kommúnistum. Það
voru ekki Framsóknarmenn,
sem gerðu dýrtíðarbandalagið
við kommúnista 1944, sem
hefir haft svo örlagaþrungnar
afleiðingar. Það var Sjálf-
stæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn, sem það geröi.
Þess vegna er það skylda
allra þjóðhollra, frjálslyndra
umbótamanna í landinu að
styðja Framsóknarflokkinn
og veita honum öruggt fylgi.
Á þann hátt er bezt unnið á
móti skemmdarstarfi kom-
múnista, enda er þeim ekki
eins iila við neitt og frjáls-
lyndan umbótaflokk.
Stundum er auglýst með yfir-
læti og viöhöfn, að okkur finnst
sumum, það sem kailað er sól-
þurrkað íiskimjöl. X sambandi
við það eru svo ýmiskonar sólar-
fóðurblöndur og er það allt
saman sagt að vera hið dásam-
legasta fóður. Ég hefi nú um
hríð haft tækifæri til að kynn-
ast dáiítið framleiðslu þessarar
fóðurvöru, þar sem mér er sagt
að ffskimjölið sé malað í verk-
smiðju, sem er inni á Kletti í
Kleppsholti, nokkuð fyrir innan
Laugarnes. Reykvíkingar þekkja
jþetta fyrirtæki vel, einkum af
i lyktinni, sem lengi hefir verið
víðfræg i bænum, og ástæðulaust
er að kynna.
Við hliðina á verksmiðjunni er
hálfbyggð síldarþró frá því í
vetur og á hennar gólf er hrá-
efniö í sólarfóðrið flutt. Þar hef-
ir fiskbeinunum verið hellt í
miklar kasir og að jafnaöi
geymt vikum saman, því að fyr-
irtækið viröist liafa rótgróna
skömm á því, að mala beinin
nú. Meöan fiskmetið er kæst á
það sjálfsagt að draga í sig sól-
arkynngi og lífsmögn, svo að
fóðurblandan verði ósvikin, egg-
in og mjólkin, sem með henni
verða framleidd sannarlegt
kjarnmeti, fullt af hreysti og
fjörefnum. I-Ivað skyldi það gera
til, þó að vegfarendum, sem
næstir koma súrni í augum eit-
urdreggjar og ýmsar gufur, sem
leggur af haugunum? Hér er
verið að búa til fyrsta flokks
kraftfóður og það er aðalatriðið.
Sumir kreddubundnir smá-
borgarar munu líta svo á, að
fiskmeti sé hollast nýtt og verra
fóður eftir að liver fiskögn er
grotnuð af beinunum. Ekki mun
ég dæma um það, en gaman
væri að fá að vita efnagrein-
ingu á sumu af þessari fram-
leiðslu. Ómenntuðum mönnum
er það varla láandi, þó að þeir
hafi öllu betri þokka á fiski-
mjöli, sem er hvítt og hefir ilm
af nýjum fiski og bragð líkt og
bezti harðfiskur, heldur en hitt,
sem er þrátt, fúlt og úldlö fyrir
vitum þeirra, jafnvel þó að það
heiti á viðskiptamáli sólþurrk-
að fiskimjöl eða sólarkraftfóður.
Svo er sagt, að bæjarráð hafi
ætlað að stöðva rekstur þessar-
ar verksmiöju í fyrrasumar,
sökum þess, að illa þótti ilmað
frá henni, enda átti hún þá
stærri og eldri beðjur af beina-
ýldu, en nokkru sinni síðan.
Segir almannarómur, að sá
hafi endir þeirra mála orðið,
að Jóhann Þorkell og meðeig-
endur hans í verksmiðjunni
annarsvegar.en Jóhann Hafstein
og félagar hans í bæjarráði
hins vegar hafi gert með sér þá
forlíkun, að Jóhann Þorkell
mætti mala í friði, þegar vindur
stæði á Kleppsholtið en halda
kyrru fyrir ef veður lægi á mið-
bæinn. Þó mun sumum þykja,
sem ekki hafi þess altaf verið
gætt sem skyldi, að aldrei bær-
ist þefur í öfuga átt, en liér er
veðrátta oft breytileg og óstöð-
ugar áttir, og því enganveginn
tryggt, að lyktin verði rokin
nógu langt í burtu, þegar áttin
breytist. En þess skal getið, að
frásögn þessa kafla sel ég ekki
dýrara en ég keypti, en frarn-
leiðsluhættina og hráefnið hefi
ég séð. Og þetta átti að vera
brot úr íslenzkri iðnsögu.
Starkaður gamli.
fyrirliggjandi
FRYSTIHUSIÐ HERÐUBREIÐ
Sími 2678
EINARSSON & ZOÉfiA
M.s. „Lingesíroom”
fermir í Hull 19. þ. m.
t
Viðgerð á úrum
Flest úr, sem komu á vinnustofu mína fyrir 25. júní
|| s. 1. eru tilbúin. Eigendur þeirra er vinsamlega beffnir
að vitja þeirra, sem fyrst.
FRANCH MiCHELSEN
úrsmíðameistari
Laugaveg 39 — Sími 7264
Lokað vegna sumarleyfa
til ?. ágúst
Davíð S. Jónsson & Co.