Tíminn - 17.07.1949, Síða 1
Ritstjóri:
Þárarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsim;
Fréttasímar:
81302 og 81304
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Keykjavík, sunnudaginn 17. júlí 1949
149. blafr
Vöroflutningar með
bifreiðum til
Hólmavíkur
Um þessar mundir eru að
hefjast fastar áætlunarferð-
ir til Hólmavíkur frá Reykja-
vik. Er það óvenju seint sem
bílfært verður vestur á Strand
ir. Komst áætlunarbíllinn i
fyrsta sinn til Hólmavíkur s.l
þriojudag en áður höíðu ver
ið farnar nokkrar ferðir að
Tungá í Bitrufirði.
Ingvi Guðmundsson bif-
reiðastjóri, sem annast póst-
ferðirnar til Hólmavíkur hef-
ir komið að mál við tíðinda-
mann blaðsins, sem spurði
hann hvernig ferðunum yrði
háttað í sumar.
Fastar ferðir verða eins í
sumar og undanfarin sumur
Verður farið á þriðjud. og
föstud. til Hólmavikur, en á
miðvikudögum og laugardög-
um til Reykjavíkur. Auk þess
ætlar Ingvi í sumar að koma
á föstum ferðum með vöru-
flutninga á þessari leið og
má búast við því að margir
hafi not fyrir þær ferðir, þar
sem strandferðir eru strjálar.
Verða farnar tvær vöruflutn
ingaferðir í viku ef þörf ger-
ist, á sunnudögum og' fimmtu
dögum norður en þriðjudög-
um og föstudögum suður til
Reykjavíkur. Eru þessar ferö
ir mikil samgöngubót þvi
bifreiðin sem annast vöru-
flutningana getur flutt tíu
farþega, auk tveggja til
þriggja smálesta af vörum.
Á Hólmavík annast Kaupfél.
Steingrímsfjarðar vöruaf-
greiðslu, en Hjálmar Halldórs
son símstjóri afgreiöslu fyrir
farþega.
Stúlkurnar frá
íþr óttakennar askól-
anum sýna í kvöld
Fimleikaflokkur stúlkna frá
iþróttakennaraskóla íslands
sýnir í kvöld kl. 9 í skáta-
heimilinu við Snorrabraut.
Flokkurinn sýnir fimleika
á gólfi með píanóundirleik,
æfingar á dýnu og á slá, og
þjóðdansa. Stjórnandi flckks
ins er Sigríður Valgeirsdþtt-
ir, en við hljóðfærið Jórunn
Viðar.
Sigríður Valgeirsdóttir hef-
ur samið æfingarnar, sem eru
fagrar og breytilegar, en Jór-
unn Viðar hefur samræmt
við þær hljómlist, sem hún
kallar „Stef og tilbrigöi“.
Flokkur þessi hefur vakið
mikla hrifningu þar sem
hann hefur sýnt, því að stúlk
urnar eru þjálfaðar og vel
æfðar og íimleikarnir sem
þær bera fram nýstárlegir
Flokkurinn mun fara annan
mánudag til þátttöku í Ling-
hátíðinni í Stokkhóhni.
Potta er íim'eikaflokkur kvenna úr Ármanni undir stjórn ung-
frú Guðrúnar Niatsen. Þessi flokkur fer á Liniaden-mótið í Sví-
þjóð eítir rúma viku. Er þaS 5. limieikafar kvennaflokks úr Ár-
nianni á aiþjóðamót.
mann rei
Sýiíir í Mál@g$alandi á máimdagskvöld
j Þann 25. þ. m. mun kvennaflokkur úr Glímufélaginu
Ármanni fara íil Svíþjóðar og sýna fimleika á alþjóðafim-
leikamóti, scm haldið verður í Lingiaöen, sem er skammt
frá Stokkhólmi. Flokkur þessi er þekktur um öll Norðurlönd
j fyrir hina miklu leikni sína og er þetta í fimmta sinn sem
( flokkurinn fer utan. Á morgun mun flokkurinn halda sýn-
ingu í íþróttahúsinu í Hálogalandi.
Nátt'iruírseöiféíag'ib 60 ára:
Félaigsð fyrli* skemmtiferð tll Þiiig*;
valla, lÁrísitvikHi’-lelðina í dag»
í gær voru 60 ár Iiðin síðan Hið íslenzka Náttúrufræðifé-
Iag var stofnað, en stofnfundur þess var haldinn í Reykja-
vík, þann 16. júli 1889. Forsaga þessarar félagsstofnunai
var sú, að 2 árum áður, vorið 1887, var stofnað íslenzkt.
náttúrufræðifélag í Kaupmannahöfn. Mun Björn Bjarnar-
son, síðar sýslumaður, liafa átt fyrstu hugmyndina aé
þeirri félagsstofnun og átti hann, ásamt Stefáni Stefáns-
syni, síðar skólameistara, drýgstan þátt í að koma félaginu á
fót. Þrír af stofnendum þessa Hafnarfélags eru enn á lífi,
þeir Jóhannes Jóhannesson fyrrv. bæjarfógeti, Páll Ein-
arssoii, fyrrv. hæstaréttardómari og Sigurður Thoroddsen
verkfræðingur.
IþróttahátíÖin í Lingiaden
Á Lingiaden verður háð al-
þjóðafimleikamót. Þátttak-
endur munu verða frá 54
þjóðum og munu alls 116
flokkar og 13326 einstakling-
ar sýna úr öllum heimsálf-
um. Flokkur Ármanns, sem
þátt tekur í mótinu, er fyrir
löngu þekktur um öll Norður-
lönd og víðar fyrir hinar fram
úrskarandi æfingar sinar.
Fimmta utanlandsför
flokksins
Þetta er í fimmta skipti,
sem kvennafimleikaflokkur
Ármanns fer á alþjóðamót.
Fjórar ferðir hafa verið und
ir stjórn hins þekkta fim-
leikakennara félagsins, Jóns
Þorsteinssonar, en nú verður
flokkurinn undir stjórn Guð-
rúnar Nielsen.
I
Sýnir á mánudag í Há-
íogalandi
Á mánudagskvöld kl. 9 mun
í fl.okkurinn geía fólki kost á aö
sjá þær æfingar, sem hann
mun sýna i Svíþjóð. Verða
sýndar nýjar æfingar, sem
stjórnandi hans Guðrún Níel-
sen hefir sett, saman. Undir-
leik anriast ungfrú Ester Jóns
dóttir, en músikina hefir Árni
Björnsson, tónskáld tekið sam
an og valið.
Fáfiíiss feíiniifiúrii’
Páfi hefir lýst yíir, aö hann
muni bannfæra þá kaþóiska
| menn, er fylgi kommúnistum.
-— Blöð kommúnista hafa
kallað þetta „haturs-yfirlýs-
---O .
Torfi setti nýtt raet
í stangarstökki:
4,12 m.
Þarf að stökkva yf-
Ii* 4,2Ö m. til að kom-
ast í keppnisia við
ISaadaríksBi
Torfi Bryngeirsson setti á
föstudagskvöld nýtt ísl. met
í stangarstökki á móti i Sta-
anger í Noregi, stökk 4,12 m.
Litlu rnunaði að Torfa tæk-
ist að stökkva ‘næstu hæö,
sem var 4,22 m. Oamla met-
ið var 4,08 m. og setti Torfi
það i júlí í Osló. Samkvæmt
finnsku stigatöflunni gefur
þetta afrek 962 stig. Til þess
að komast í keppnina við
Bandaríkin þyrfti Torfi að
stökkva yfir 4,20 m. Beztur á
Norðurlöndum í ár er Kaas
Noregi, með fi.%\ m., en næst-
ur er Kataja, Finnlandi, með
4,20 m.
K.R.-ingar unnu flestar
greinar á mótinu. Gunnar
Huseby vann kúluvarp á 15,66
m. og kringlukast á 45,29 og
er það aöeins 11 cm. lakara
en met hans. Ásm. Bjarna-
son vann 100 m. á 11,1, rétt
á undan Norðmanninum
Halldór Hansen, sem fékk
sama tíma. Sig. Björnsson
vann 110 m. grindahlaup á
16,0 sek. Þörður Þorgeirsson
vann 3000 m. hlaup á 9:18,0
mín og' Eggert Sigurlásson
\ 1300 m. á 4:17,0 mín.
Þetta Hafnarfélag varð
ekki langætt, því ötulustu
menn þess fóru heim til ís-
lands þegar sumarið 1887, þ.
á m. Stefán Stefánsson. En
tveim árum síðar beitti
Stefán sér, ásamt Benedikt
Gröndal, Þorv. Thoroddsen o.
fl. fyrir stofnun Hins ís-
lenzka Náttúrufræðifélags
og var stofnfundur þess, sem
fyrr segir, 16. júli 1889. Á
stofnfundi gengu 58 manns
í félagið og eru fjórir þeirra
enn á lífi, þeir Jóhannes Jó-
hannesson fyrrv. bæjarfó-
geti, Árni Thorsteinsson tón-
skál, Ólafur Finsen læknir
og Sigurður Kristjánsson
bóksali. í fyrstu stjórn voru
kosnir: Benedikt Gröndal,
Jónas Jónassen, Björn Jens-
i son, Stefán Stefánsson og
; Þorvaldur Thoroddsen.
| Fyrsti formaður félagsins
var Benedikt Gröndal, er var
formaður til 1900. Helgi Pjet
urss var formaður 1900—
1905, Bjarni Sæmundsson
1905—1940 eða í 35 ár. Sið-
an hafa verið í formanns-
sæti Þorkell Þorkelsson, Jó-
hannes Áskelsson, Árni Fi'ið-
1 riksson, Finnur Guðmunds-
j son og nú Sigurður Þórar-
insson. í stjórn eru nú, auk
Sigurðar Þórarinssonar, Sig-
urður Pétursson gerlafræð-
ingur,. Þór Guðjónsson veioi-
málastj óri, Gunnar Árnason
gjaldkeri og Guðmundur
Kj ajrtansson jaýðfræðingur.
í félaginu eru nú 280 manns.
Félagið gefur nú út tímaritið
Náttúrufræðingurinn og er
Guðmundur Kjartansson rit
stjóri hans. í ár gaf félagið
og út þriðju útgáfu Flóru ís-
lands, en börn Stefáns skóla-
meistara, Hulda og Valtýr
gáfu félaginu útgáfurétt að
Flórunni ásamt- Minningar-
sjóði Stefáns Stefánssonar,
haustið 1942.
Aðaláhugamál félagsins
var frá upphafi að koma upp
Náttúrugripasafni. Var þeg-
ar eftir stofnun félagsins
hafizt handa um að safna
náttúrugripum, en lengi var
félagið í hraki með húsnæði
leigði herbergi fyrir munina
hér og þar úti í bæ, þar til
það var flutt í salinn á neðri
hæð Landsbókasafnshússins
haustið 1908. Þar er safnic
enn og er nú löngu oröið ‘‘svo
þröngt um það að til vand-
ræða horfir. En vonir standa
til að úr rætist á næstu ár-
um. Hefir ríkið, sem kunn-
ugt er yfirtekið rekstur Náti
úrugripasafnsins, en Háskói-
inn tekið að sér að byggja
hús yfir það á Háskólalóð-
inni fyrir happdrættisfé. —
Hefir Háskólaráð þegar sam
þykkt teikningar að safn-
byggingu, gerðar af Gunn-
laugi Halldórssyni arkitekt
og dregst vonandi ekki lengi
að hægt verði að hefjasi
handa um byggingu.
í tilefni af afmælinu eín-
ir Náttúrufræðifélagið tii
skemmtiferðar á morgui:
(Framhald á 7. siöu)
• miiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiuimmiii'.uit
I Héraðshátíð |
| Framsóknar- |
1 manna í Skafía- |
um |
I næstu heígi I
| Á laugardaginn kemur |
| efna Framsóknarmenn í |
I Vestur-Skaftafellssýslu til li
I Héraðshátíðar í Vík í
| Mýrdal. Hefst hátíðin jj
| klukkan átta um kvöldið. jj
| Verða þar ræðuhöld, ein- §
| söngur, upplestur og að
| lokum dans.
1 Nánar verður skýrt frá
i tilhögun þessarar héraðs-
1 hátíðar hér í blaðinu í
| næstu viku.
iiiiiiiiimiiiiiimmiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimmimic;
JIIllMllllllllHIIIIIMIHMIIMt!