Tíminn - 27.07.1949, Síða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þörarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81304
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 27. júlí 1949
156. blað
Sambandið semur í Svíþjóð um
smíði á 1000 iesta kæliskipi
Skipið á aS gssiEf4a 13 xnílsii* raeð fisSlferanI
©g geta haldið 2© sílssía fi'asti í lesíam í 3®
síig'a 'Mta.
Samband íslenzkra samvinnufélaga hefir samið við
sænska skipasmíðastöð, A.—B. Oskarshamns Varv, um smíði
á 1000 lesta kæliskipi, sem ristir 14 fet fullhlaðið og á því
að komast inn á flestallar smærri hafnir landsins. Smíði
skipsins á að vera lokið um áramótin 1950—1951, en í síð-
asta lagi í febrúarmánuði 1951.
Samningurinn er gerður
með þeim fyrirvara, að nauð-
synleg iítflutnings-, innflutn
ings- og gj aldeyrisleyfi verði
veitt.
Kæliskipið á að verða hið
vandaöasta í hvívetna, smið-
að samkvæmt ströngustu
kröfum Lloyd’s og sérstak-
lega styrkt til siglinga í ís.
í samningnum er gert ráð
fyrir því, að burðarmagn
skipsins verði 1000 lestir d.
w., en farmrými 65000 ten-
ingsfet innan einangrunar;
lengd milli stafna 234 fet,
breidd 37 fet og 6 þumlungar,
dýpt frá efra þilfari („shelter
deck“) 23 fet og 6 þumlung-
ar, en frá neðra þilfari 14 fet.
450 lestir af olíuforða og
ballest rúmast í botntönkum
skipsins.
Kælivélar fyrir „freongas“
frysta allt lestarrúm skipsins
niður í -í- 20° C við + 30° C
lofthita.
Skipið á að vera knúiö 1440
Síldin er í Faxa-
flóa - en veður ekki
Tvö skip náðu góðri veiði í
Faxaflóa í fyrrakvöld. Voru
það Álsey, sem fékk 400 tunn
ur og Fanney, sem fékk 130
tunnur. Álsey Iandaði í
Reykjavík í gær, en Fanney
Iagði afla sinn upp í frysti-
hús á Akranesi.
í fyrrakvöld- óð mikil síld
sums staöar í Faxaflóa, en
síldin óð stutt, ekki nema um
tvær klukkustundir frá því
klukkan 10,30 til klukkan
langt gengin eitt. Skipin, sem
fengu síld voru þá stödd um
20 sjómílur norð vestur af
Akranesi.
Segja sjómenn að bergmáls
dýptarmælar sýni síldartorf-
ur víðsvegar um flóann, en
síldin er. yfirleitt nokkuð
dreift og veður ekki nema
stutta stund um lágnættið,
og fyrir það. All margir bátar
voru norð vestur af Akranesi
í gærkvöldi og biðu eftir því
að síldin kæmi upp á yfir-
borðið. Logn og gott veður
hafði verið á þessum slóðum
í allan gærdag og í fyrrinótt.
Norðanlands var engin sild
veiði í gær, en nokkrir bátar
lönduðu litlu magni af eldri
síld á Siglufirði í gær.
nestafla „Nohab“-diesel-vél
frá hinni þekktu vélaverk-
smiðju Nyquist & I-Iolm í
Trollháttan, og ganga 13 mil-
ur á klukkustund með full-
fermi.
Kæliskip þetta yrði fyrst
og fremst notað til flutninga
á frosnum vörum, kjöti og
fiski, frá frystihúsum Sam-
bandsfélaganna til neytenda
innanlands og erlendis. Sam-
bandsfélögin hafa nú frysti-
hús á 34 höfnum á landinu.
Þau kæliskip, sem fyrir eru
í landinu, munu sum svo
djúpskreið, að þau komast
ekki inn á nema fáar af þess-
um 34 höfnum, en grunn-
skreiðari skipin hinsvegar svo
önnum hlaðin, að þau geta'
ekki fullnægt flutningaþörf,
Sambandsfélaganna.
Þörf Sambandsfélaganna
fyrir kæliskip er því mjög
brýn. Þetta skip, sem S.Í.S.
hefir samið um smíði á,
myndi leysa þá þörf mjög á-
kjósanlega. Farmrými skips-
ins er mikið miðað við stærð
þess, og skipið svo grunn-
skreitt, að það kemst inn á
langflestar smærri hafnir
landsins. En skipið yrði ekki
einungis notað til þess að
flytja frystar vörur frá Sam-
bandsfélögunum, heldur einn
ig haft til þess að flytja vör-
ur beint frá útlöndum inn á
smærri hafnirnar, og mypdi
að því mikið hagræði og
sparnaður.
j Sambandið hefir þegar sótt
um nauðsynleg leyfi til þess
að lcaupa kæliskip þetta, og
treysta forráðamenn Sam-
bandsins því, að þau leyfi
verði veitt. Óhætt er að full-
yrða, aö þjóðinni allri, —
ekki einungis þeim tugþús-
undum manna, sem innan
I vébanda samvinnuhreyfingar
innar standa, — myndi vera
það mikill fengur, að þessi
ivandaði farkostur bættist við
skipastól hennar.
Glímufélagíð Ár-
mann sendir
glímuflokk ti
Svíþjóðar
Eins og getið hefir verið í
fréttum, hefst hið merkilega
og fjölsótta Ling-fimleika-
mót í Stokkhólmi þann 27.
þ. m.
Þá daga sem mótið stend-
ur, verður Stokkhólmsborg
öll í hátíðaskarti. Auk fim-
leikasýninga fjölmargra
flokka frá flestum löndum
heims, verða einnig aðrar í-
þróttasýningar á öllum helztu
skemmtistöðum borgarinnar,
og hefir Glímufélaginu Ár-
mann veriö boðið að senda
12 manna glímuflokk þangað
í því skýni. Flokkurinn mun
halda að minnsa kosti 5 sýn-
ingar víðsvegar um borgina
og verður dvöl flokksins þar
ókeypis. Glímumennirnir sem
fara í þessa för eru þéssir:
Einar Einarsson, Grétar Sig-
urðsson, Gunnlaugur Inga-
son, Hjörtur Elíasson, Ingólf-
ur Guðnason, Kristján Sig-
urðsson, Pétur Sigurðsson,
Sigfús Ingimundarson, Sig-
urður Ingason, Sigurður I.
Sigurðsson, Sigurjón Ingason
og Skúli Þorleifsson.
Stjórnandi og fararstjóri
flokksins er Þorgils Guð-
mundsson frá Reykholti.
Flokkurinn fór utan með
Skymasterflugvél Loftleiða
„Heklu“ í gærkvöldi.
Otto Abetz
{læmdnx*
Otto Abetz, er var sendi-
herra Hitlers í París meöan á
hernáminu stóð, hefir verið
dæmdur í 20 ára þrælkunar-
vinnu fyrir stríðsglæpi. M.
a. átti hann þátt í því, að
Mandel innanríkisráðherra
v&r drepinn.
Líklegt að kviknað
hafi í út frá raf-
magni
,ItaE8i8S«skaa bramans'
Síjsa A. JB. F. lokið
Rannsókn er nú lokið á
brunanum í trésmiðju Al-
menna byggingafélagsins í
Borgartúni. Þó að fullnægj-
andi upplýsingar séu ekki fyr
ir hendi, benda líkur til, að
kviknað hafi út frá rafmagni.
Upplýst er, að eldurinn
hafi komið upp í spóna-
geymslu trésmiðj unnar. Þar
er blásið frá trésmíðavélun-
um með einum blásara. Rétt
fyrir kaffitímann um morg-
uninn, um kl. 9, sprakk ör-
yggi í blásara vegna þess, aö
geymslan var orðin svo full,
að hann gat ekki lengur blás
ið frá þeim.
(Framhaíd á 7. slðu)
í Ameríku taka menn upp á ýmsu. Þar er nú farið að fra:n-
leiða fuilkomna sumarbústaði sem eru á hjólum, svo hæ^í sé
að flytja þá auðveldlega til. Þannig geta þeir sem ættu slíkan
sumarbústað búið í honum eitt sumarið noröur við Mývatn en
við Þingvailavatn það næsta. I þessum sumarbústöðum eru ful-
komin eldhús eins og sjá má af þessari mynd.
Tvær skemmtisamkomur
Framsóknarmanna um
næstu heigi
SigurÖME* Skagfielel óperasöngvaps »g Si^«
nrðnr ÓSafsson synjíja á samkoinnnmi)
Um næstu helgi verða haldnar tvær skemmtisamkomin
á vegum Framsóknarmanna. Önnur verður að Staðarfelli
Dölum en hin að Varmahlíð í Skagafirði. Á báðum stöðunun.
verða haldnar ræður en auk þess verður söngur og dans
tii skemmtunar.
Samkoman að Staðarfelli.
Á undan sjálfri skemmti-
samkomunni að Staðarfelli
verða haldnir tveir stuttir
stjórnmálafundir. Er það
stofnfundur félags ungra
Framsóknarmanna í Dala-
sýslu, og aðalfundur Fram-
sóknarfélags sýslunnar, hefj
ast þeir kl. 2 e. h.
Að undanförnu hefir verið
unnið að stofnun félags
ungra Framsóknarmanna í
Ðalasýslu, sem er heildarfé-
lag fyrir alla sýsluna. Auk
þess fer fram aðalfundur
Framsóknarfélags Dalasýslu.
Á þessurn- fundum mætir
Eysteinn Jónsson ráðherra og
Friðgeir Sveinsson formaður
S.U.F. Flytja þeir einnig ræð-
ur á skemmtisamkomunni,
sem haldin veröur að Staöar-
felli að loknum fundunum.
Hefst samkoman klukkan
sjö urn kvöldið. Að ræöunum
loknum verður einsöngur. —
Sigurður Ólafsson syngur
með undirleik Árna Björns-
sonar píanóleikara. Að lokum
verður dansaö.
Skemmtunin í Varmahlíð.
Hin skemmtunin, sem
Framsóknarmenn halda um
næstu helgi verður haldin í
Varmahlíð í Skagafirði. Þar
flytja ræður Steingrímur
Steinþórsson, búnaðarmála-
stjóri og Skúli Guðmundsson
alþingismaður. Að loknun..
ræðuhöldum syngur Siguröur
Skagfield óperusöngvari eir,-
söng með undirleik Ragnars
Björnssonar. Að lokum verð-
ur dansað.
Skemmtisamkoman i Varma,
hlíð hefst klukkan þrjú á
sunnudaginn.
Unnið að hreinsun
Hvalfjarðar
Nú um nokkurt skeið hefh'
brezkt skip unnið að hreins-
un Hvalfjarðar, en það starr
var hafið siðastliðið sumai
Er hér um umíangsmikiö og
seinlegt verk að ræða, og ei
talið að vel gangi, ef hreins-
uninni lýkur á þessu sumn
Þaö eru íslenzkir aðilai
sem sjá um þetta verk og
hefir vitamálastjórnin tekifc
brezka skipið á leigu til ac’
vinna að því. Mikið af alls
konar rusli hefir verið færi
upp á land, sem legið hetii
á botni Hvalfjarðar frá striðs
árunum, er flotahöfnin var i
Hvalfirði. Sumt af þessun,
gersemum má sjá hér á upp-
fyllingunni framan við hafn.
arhúsið, svo sem stór akker
og viðamiklar keðjur, úr kaf-
bátagirðingum. Þetta hreins-
unarverk er aðallega unnið
vegna sildveiða í Hvalfirði,