Tíminn - 27.07.1949, Qupperneq 8
.ÆKLENT YFIRLIT“ t BAG:
ohn Wesley Snyder
'3; ácg. Reykjavík
.. „Á FÖRNUM VEGI“ í BAG:
Bjjó&arlöstur.
27. júlí 1349 156. blað
Tvö ár á Spasislaii:
Sjö gleymdir menn í
vörzlu 220 manna
liðs
í þessum mánuði eru ívö ár liðin síðan sjö fangar voru
látnir í virkisfangelsið í Spandau við Berlín. Klefar eru
þarna handa sex hundruð föngum, en síðusiu tvö ár hafa
þó cl:ki aðrir gisti þessar viStarverur en þessir 7 menn. Þeirra
er gætt af 150 manns, auk þess sem þarna er á að skipa
sjötíu manna þjónustuliði.
Varzlan er ströng, enda
ætti að vera hægt að gæta
sjö manna sæmilega með
þessu liði. Fangarnir sitja
bak við margfaldar járn-
grindur; og dag og nótt eru
hermenn, gráir fyrir járnum,
á verði á fangelsismúrunum,
Allt umhverfis er lýst með
ljóskösturum.
Sjö gleymdir menn.
I
En þrátt fyrir allan þenn-
an viðbúnað eru fangarnir 7
gleymdir menn. Það er aldrei
minnzt á þá, og ekkert þýzkt
blað mundi eftir því, að um
þessar mundir hefðu þeir
setið tvö ár í fangelsinu í
Spandau. Jafnvel ættingjar
þeirra virðast algerlega hafa
gleymt þeim.
Þessir fangar eru nazista-
foringjarnir sjö. sem dóm-
stóllinn í Núrnberg lét halda
lífi: Hess, Speer, Ráder, Dön-
itz, Neurath, Funk og Schi-
rach. Fyrir tveimur árum
beindist athygli heimsins að
þeim — nú eru þeir gleymdir
menn. Þeir eru ekki annað en
númeraðir og þýðingarlausir
fangar.
Titlar þeirra eru ekki leng-
ur notaðir. Þegar fangavörð-
urinn opnar klefa Speers,
segir hann: Númer 47327 —
útivistartími! Og númer 47327
stendur þegjandi upp, geng-
ur fram í fangelsisganginn
og staðnæmist í fangaröð-
inni. Fangavörðurinn gætir
þess, að hæfiiegt bil sé á
milli fanganna, og síðan fá
þeir að arka út í fangelsis-
garðinn. Enginn orö frá vör-
um. Fangarnir mega ekki
tala saman úti í garðinum.
Þeir eigra aðeins fram og aft
ur og virðast ekki gefa um-
hverfi sínu neinn gaum. Það
er sama, hvort sólskin er eða
regn, hvort fuglarnir syngja
18 breytingar-
tillögur felldar
Neðri deild brezka þingsins
hóf í dag umræður um breyt-
ingartillögur þær, er lávarða
deildin gerði við frumvarp
stj órnarinnar varðandi þjóð-
nýtingu brezka járn- og stál-
iðnaðarins. Hefir deildin þeg
ar fellt 13 af hinum 32 breyt-
ingartillögum, sem lávarða-
deiidin samþykkti. M. a. þá,
að framkvæmd frumv. verði
frestað, þar til eftir kosning-
arnar, sem fram fara í Bret-
landi eigi síðar en í júlí
næsta ár. — Umræöum verð-
ur haldið áfram í nótt.
eða flugvélarnar, sem fljúga
til Berlínar, suða í loftinu.
Allt gengur ixiarkaða
braut.
Allt gengur samkvæmt á-
kveðnum fyrirmælum. Klef-
arnir eru opnaðir á tiltekinni
mínútu og föngunum færður
matur. Allt er fyrirfram á-
kveðið. Fangarnir þurfa ald-
rei neins að spyrja.
Flestir eru fangarnir orðn-
ir ellilegir, og læknarnir eru
tíðir gestir í klefum þeirra.
Sérstaklega er heilsa Hess
veil. Hann situr annars hug-
ar í klefa sínum, starir á vegg
inn og talar við sjálfan sig
klukkustundum saman. Hann
hefir ævinlega ábreiðu yfir
öxlum sér, hvort sem heitt er
eða kalt.
Schirach og Speer
þvo þvottinn.
Neurath er þeirra heilsu-
beztur. Hann vinnur daglega
með haka og skóflu í fang-
elsisgarðinum. Schirach les
franskar bókmenntir af mik-
illi ákefð. Speer er öllum
stundum við smíðar. Fyrir
nokkrum mánuðum reyndi
hann að fremja sjálfsmorð
með því að brjóta höfuðkúp-
una með hamrinum. En nú
virðist hann aftur kominn í
andlegt jafnnvægi. Þeir Schi-
rach þvo fatnað allra fang-
anna í hverri viku.
Tóbaksskammt fá fangarn
ir á hálfs mánaðar fresti, og
bréf mega þeir skrifa einn
dag í mánuði — en bréfin eru
ijósmynduð og skoðuð mjög
'vandlega af sérfræðingum í
þjónustu hernámsyfirvald-
anna. Fólk má koma í heim-
sókn til fanganna einn dag á
tveggja mánaða fresti og tala
við þá í hálftíma. En það
kemur sjaldnast neinn í heim
sókn til þeirra.
Enginn Þjóðverji má koma
í námunda við fangelsið. Því
er stjórnað af fjórum höfuðs-
mönnum, amerískum, ensk-
um, rússneskum og frönsk-
um. Hermennirnir, sem fanga
vörzluna annast, eru aldrei
lengur en mánuð í þjónust-
unni. Hernámsríkin skipta
gæzlunni milli sin. Þennan
mánuðinn hafa Rússar hana
með höndum. .
Rússneskt „njet“.
Upp á síðkastið hafa heyrzt
raddir um þaö, að gæzla
hinna sjö fanga í Spandau sé
kannske helzt til kostnaðar-
söm, og betur mætti nota
húsakynnin þar. En allar
breytingar hafa hingað til
strandað á því, að rússnesku
yfirvöldin hafa sagt „njet“.
Enda borga Þjóðverjar brús-
ann.
„Brattur er Grœnlands bryggjusporður, bólgnir jakarhrapa i mar“, kvað Fornólfur. — Svona er umhorfs
á þeim slóðum við Grœnland þar sem ísinn er einv aldur. En þetta er samt ekki táknræn myjid um þcer
stöðvar, sem Súðin er á.
SLAGSMAL í
FRANSKA
ÞINGINU
Deiluefnið var A-
sáttmálinn
A-llhörð átök urðu meðal
þingmanna í franska þing-
inu í gær, er umræðum um
staðfestingu Norður-Atlants-
hafssáttmálans var haldið á-
fram. — í fyrrad. urðu mjög
heitar umræður milli komm-
únista og andkommúnista,
en ekki kom þó til handa-
lögmáls fyrr en í gær. Aðal-
átökin urðu fyrst milli fyrr-
verandi hermálaráðherra
Frakka annars vegar og
þriggja þingmanna kommún
ista hinsvegar. En stuðnings-
menn beggja deiluaðila vildu
veita þeim liðsinni og afleið-
ing varð sú að þingsalirnir
loguðu í slagsmálum áður en
lauk og allmargir þingmenn
meiddust. Varð að fresta
þingfundi um skeið, en um-
ræðum var síðan haldið á-
fram seinna um kvöldið.
Fjölbreytt hátíðahöld verzl-
unarmanna um næstu helgi
Skemmtanir I TivoligarðmuiH í þrfá dajfa
Um næstu helgi, vei'zlunarmannahelgina, efnir Verzlun-
armannafélag Reykjavíkur til fjölbreyttra hátíðahalda,
sem fram eiga að fara í Tivoli á laugardag, sunnudag og
mánudag. Hefir V. R. árlega efnt til hátíðahaída í Reykja-
vík um þessa fríhelgi verzlunarmanna. Var blaðamönnum í
gær skýrt frá tilhögun hátíðahaldanna.
Á laugardag hefjast hátíða
I höldin klukkah':'-3.30 suður í
, skemmtigarðirröm Tivoli. —
Verður þar flutt ræða: Magn
ús Valdimarsson, og til
skemmtunar verða töfra-
brögð, trúðleikar og dans síð
ast um kvöld'ið' til klukkan
tvö.
Á sunnudaginn hefjast há-
tíðahöldin með guðsþjónustu
klukkan ellefu, í Dómkirkj-
unni, séra Jón Thorarensen
prédikar. Eftir- hádegi leikur
16 manna híjómsveit undir
stjórn Kristjáns Kristjáns-
sonar á Austurvelli og síðan
fyrir hópgöngu..suður í Tivoli,
Kommönistar nálgast Kanton
hröðum
Dorglit má ná Iieita ehiangríið
Herir kínverskra kommúnista nálgast nú óðfluga bráða-
birgðahöfuðborg Kuomintang-stjórnarinnar. Sækja þeir
fram til borgarinnar á 600 mílna breiðri víglinu og má
heita að hún sé nú alveg einangruð. Setuliðið í borginni
hefir lýst yfir herlögum þar frá og með morgundeginum.
Ákafir bardagar.
Fréttaritarar segja, að á-
köfustu bardagarnir geysi á
aðalleiðinni milli Hankow og
Kanton og segja þeir stjórn-
arherinn hafa veitt nókkurt
viðnám þar. Kommúnistar
hafa nú um það bil helming
leiðarinnar á sínu valdi.
Ræðir við Chiang Kai-Shek.
Li, forsætisráðherra Kuo-
mintang-stj órnarinnar mun
halda til Formosa á morgun
til skrafs og r'áðagerða við
Chiang Kai-Shek. Ekkert hef
ir enn verið tilkynnt um
brottf luttning stj órnarinnar
eða opinberra starfsmanna
frá Kanton, en talið víst að
hans muni ekki langt að
bíða.
'en þar hefjast þá skemmtan-
ir að nýju. Sýna þar trúð-
leikararnir Maggi og Marco.
Baldur Georgs og Baldur og
Konni, líirudansari og auk
þess verður gamanþáttur og
upplestur. - Síðast um kvöldið
verður dansað inni í veitinga
j húsinu og úti á stéttinni þar
! fyrir utan.
I Á mánud. verða skemmt-
anir í Tivoli með svipuðu
sniði og hina dagana og með
flestum sömu skemmtikröft-
um. Þó standa vonir til að
nýir trúðar verði komnir til
landsins, en þar eru karlmað
ur og kvenmaður, sem sýna
ýmsar listir á reiðhjólum. ;—
: Skemmtunum í Tivoli lýkur
J á miðnætti á mánudagskvöld
ið meö fiugeldasýningum.
Um kvöldið verður sérstök
dagskrá í útvarpinu, sem
verzlunarmenn sjá um. Verð-
ur þar til skemmtunar viðtöl
við verzlunarmenn og gam-
anþáttur eftir Jón Snara.
Neyðarástandinu
lokið
Tilkynning var lesin upp í
brezka þinginu í dag þess
efnis, að neyðarástandinu
við Lundúnaí'öfn væri nú
lokið. — Umræður voru i
neðri málstofunni um verk-
fallið. Inijanríkismálaráð-
herrann vísáði á bug öllum
ásökunum um það, að brezka
stjórnin hefði hlaupið á sig,
i sambandi við verkfallið.